Morgunblaðið - 07.01.2004, Page 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004 39
ÚTSALA!! Stórhöfða 21, við Gullinbrú
545 5500, netfang. flis@flis.is
www.flis.is
Sálfræðistöðin
Á námskeiðinu færðu:
1. Þekkingu á boðgreiningu.
2. Aðferðir til að greina eigin og annarra samskipti.
3. Skriflegt mat á persónulegri stöðu.
4. Markvisst hjálpartæki til að ná persónulegum árangri
- í starfi sem utan.
Leiðbeinendur eru sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 562 3075 og 552 1110.
Vinnusálfræði
fyrir einstaklinga - stofnanir - fyrirtæki
EFTIRFARANDI ályktanir voru
samþykkt á aðalfundi Sjómanna-
deildar Verkalýðsfélags Húsavíkur
30. desember sl.:
„Aðalfundur Sjómannadeildar
Verkalýðsfélags Húsavíkur mót-
mælir harðlega boðuðum breyting-
um á lögum um tekju- og eignarskatt
er miða að því að fella niður sjó-
mannaafsláttinn.
Ljóst er að um verulega tekju-
skerðingu er um að ræða fyrir sjó-
menn, enda sjómannaafslátturinn
hluti af þeim kjarasamningum sem í
gildi eru fyrir sjómenn. Sé það ætlun
ríkistjórnarinnar að afnema sjó-
mannaafsláttinn er eðlilegt að hún
ákveði einnig með lögum hvernig
sjómönnum verður bætt sú kjara-
rýrnun sem hlýst af afnámi hans eða
samtök útgerða taki að sér að bæta
kjararýrnunina sem hlýst af afnámi
afsláttarins,“ segir í ályktun sjó-
mannanna.
Standa vörð um gildandi kjör
„Sjómannadeild Verkalýðsfélags
Húsavíkur hvetur sjómenn um land
allt til að standa vörð um gildandi
kjör sjómanna og koma í veg fyrir að
stjórnvöldum takist með aðstoð út-
gerðarmanna að skerða réttindi og
kjör sjómanna. Frumvarp stjórn-
valda um afnám sjómannaafsláttar-
ins og framkomnar tillögur útgerð-
armanna um skerðingar á gildandi
kjarasamningi sjómanna eru bein
árás á kjör sjómanna,“ segir í álykt-
uninni.
Þá fagnar Sjómannadeild Verka-
lýðsfélags Húsavíkur áformum Ís-
hafs hf. að gera út fjögur skip til
rækjuveiða frá Húsavík í upphafi
næsta árs.
Gangi áætlanir fyrirtækisins eftir
koma þær til með að hafa mjög já-
kvæð áhrif á atvinnulíf á Húsavík
með fjölgun starfa við sjómennsku
og í störfum tengdum sjávarútvegi.
Mikilvægt er að við ráðningar á
skipin verði leitast við að ráða hús-
víska sjómenn,“ segir í yfirlýsing-
unni.
Einnig skorar Sjómannadeild
Verkalýðsfélags Húsavíkur á stjórn-
völd að tryggja sjófarendum sömu
skilyrði til sjónvarps- og útvarps-
sendinga og bjóðast í landi.
„Það hlýtur að teljast eðlileg krafa
að allir landsmenn sitji við sama
borð er varðar þjónustu sem þessa.
Þá má ekki gleyma því að útvarps-
sendingar gegna mikilvægu hlut-
verki í öryggismálum þjóðarinnar.
Ekki síst þess vegna er ekki síður
mikilvægt að þessum málum verði
sem fyrst komið í viðunandi horf,“
segir m.a. í ályktun félagsins.
Sjómenn í Verkalýðsfélagi Húsavíkur
Mótmæla niðurfellingu
sjómannaafsláttar
Stuðningshópur um krabbamein í
blöðruhálskirtli verður með rabb-
fund í húsi Krabbameinsfélagsins í
Skógarhlíð 8 í Reykjavík í dag, mið-
vikudaginn 7. janúar, kl. 17. Kynnt
og rætt verður nýtt danskt mynd-
band sem fjallar um blöðruháls-
krabbamein.
Í DAG
Opið hús verður hjá Ísalp og Klif-
urhúsinu um næstu helgi. Mark-
miðið með opnu húsi er að kynna
starfsemina. Húsið opnar kl. 11 báða
dagana og verður opið til kl. 18.
Það verður frítt í Klifurhúsið alla
helgina og kynnt verða fyrirhuguð
námskeið og annað sem Klifurhúsið
hefur uppá að bjóða. Hægt verður að
fá lánaða skó.
Ísalp verður með myndasýningar og
kynningarborð. Hægt verður að
skoða ýmislegt sem tengist fjalla-
mennsku s.s. gönguferðir, ís- eða
klettaklifur.
Á NÆSTUNNI
FÉLAG um skjalastjórn mun halda
fyrsta fræðslufund ársins 2004 á
morgun, 8. janúar, í Þjóðarbókhlöð-
unni. Eins og fram hefur komið á
nýrri vefsíðu félagsins irma.is mun
Þorsteinn Hallgrímsson aðstoðar-
landsbókavörður kynna varðveislu
vefsíðna á fundinum kl. 12.00–13.00 í
Þjóðarbókhlöðunni.
„Félagsmenn og aðrir þeir sem
áhuga hafa á málefninu eru eindreg-
ið hvattir til að mæta og fræðast um
þetta áhugaverða efni sem varðar
varðveislu vefsíðna og annarra
gagna sem birt eru eða gerð að-
gengileg almenningi á hinum ís-
lenska hluta veraldarvefjarins, þ.e.
þjóðarléninu .is – sbr. nýja reglugerð
um skylduskil til safna nr. 982/2003
og gefin var út 5. desember 2003,“ að
því er segir í fréttatilkynningu.
Hægt verður að kaupa sér léttan
málsverð í kaffistofunni í Þjóðarbók-
hlöðunni við hliðina á fyrirlestrar-
salnum fyrir eða eftir fundinn ef ósk-
að er.
Fræðslufundur um
varðveislu vefsíðna
KENNSLUFORRITIÐ Glói geim-
vera á Lestrareyju er komið út hjá
Námsgagnastofnun. Glói geimvera á
Lestrareyju er nýtt kennsluforrit
handa börnum sem eru að læra að
lesa. Forritið er sjálfstætt framhald
af forritinu Glói geimvera lærir að
lesa. Til að hafa fullt gagn af nýja
forritinu þurfa börnin að hafa náð
tökum á undirstöðuatriðum lesturs,
þekkja stafi og hljóð og geta lesið
stutt orð og setningar. Börnum nýt-
ist vel forritið Glói geimvera á Lestr-
areyju þótt þau hafi ekki notað fyrra
forritið.
Leysa ýmsar þrautir
Leikurinn felst í því að Glói og
Doppa vinkona hans lenda á Lestr-
areyjunni þar sem þau leysa ýmsar
þrautir. Þau fara í Lestrarkastala, á
Stafabryggju, í Rímhóla, Orðheima,
skoða Galdrabækur og fara á
Lukkufjall. Í aðalvalmynd geta
börnin valið leikinn sem þau vilja
fara í en í flestum leikjunum eru
nokkrar gerðir misþungra verkefna.
Í stillingum má stilla forritið og
velja æfingar sem henta ólíkri getu
barna. Þessi hluti er eingöngu ætl-
aður kennurum og foreldrum. Þar er
m.a. hægt að ákveða hvort kveikt er
á hátalara í forritinu en sá möguleiki
er einkum hugsaður fyrir börn sem
eiga erfitt með að ná tökum á lestri
og er tilgangurinn að barnið heyri
orðið lesið um leið og það sér orð-
myndina.
Glói geimvera á Lestrareyju er
einn liður í átaki Námsgagnastofn-
unar í gerð námsefnis fyrir nem-
endur í yngstu bekkjunum.
Glói geimvera er samvinnuverk-
efni Námsgagnastofnunar og aug-
lýsingastofunnar Næst sem sér um
grafíska hönnun forritsins. Höf-
undur texta er Arnheiður Borg og
lesari er Felix Bergsson.
Kennsluforritið Glói
geimvera á Lestrareyju VERKEFNI stýrihóps sem Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra hefur
skipað stýrihóp sem hefur það hlut-
verk að gera tillögu að nýrri framtíð-
arskipan flugmála á Íslandi. Hlutverk
stýrihópsins er eftirfarandi:
1. Fara yfir og skilgreina alla flug-
starfsemi, skipulag og verkefni.
Meta hvað eru stjórnsýslu- og eft-
irlitsverkefni og hvað eru þjónustu-
verkefni.
2. Skilgreina hvaða rekstrarform
hentar fyrir þá starfsemi Flug-
málastjórnar sem lýtur að rekstri
og þjónustu við flugið. Í því sam-
bandi verði kannað sérstaklega
hvort hlutafélagaformið henti
þeirri starfsemi eða hluta hennar.
3. Kanna fjárhagslega afleiðingar
breytinganna.
4. Kanna áhrif á starfsmannamál.
5. Skilgreina áhrif skipulagsbreyt-
inga á flugöryggismál.
6. Gera tillögur að nauðsynlegum
laga-, reglu- og skipulagsbreyting-
um.
Í nefndinni eru Hilmar B. Baldurs-
son, flugstjóri en hann er formaður,
Bjarni Benediktsson alþingismaður,
Kristinn Árnason sendiherra, Ómar
Benediktsson framkvæmdastjóri og
Svafa Grönfeldt framkvæmdastjóri.
Með nefndinni starfa Þorgeir Pálsson
flugmálastjóri, Jóhann Guðmundsson
skrifstofustjóri og Sigurbergur
Björnsson skrifstofustjóri sem jafn-
framt er starfsmaður nefndarinnar.
Hlutverk stýrihópsins er að endur-
skoða heildarskipulag flugmála á Ís-
landi með tilliti til þeirra breytinga
sem orðið hafa erlendis og með það
fyrir augum að auka hagkvæmni og
bæta rekstrarskilyrði. Þá verður
stjórnsýsla Flugmálastjórnar og ör-
yggismál skoðuð sérstaklega.
Stýrihópnum er ætlað að ljúka
störfum eigi síðar en 30. september
næstkomandi.
Ný framtíðarskipan flugmála
HALDIÐ var upp á 125 ára afmæli
Sparisjóðs Höfðhverfinga nú í vik-
unni, en sjóðurinn var stofnaður 1.
janúar árið 1879. „Þetta var alveg
ljómandi skemmtilegur dagur,“
sagði Jón Helgi Pétursson spari-
sjóðsstjóri, en gestum og gangandi
var boðið í afmæliskaffi í tilefni af
tímamótunum. Um 100 manns
mættu í kaffið sem er dágott hlut-
fall því íbúar hreppsins eru um 400
talsins.
Sparisjóður Höfðhverfinga er í
hópi elstu fjármálastofnana lands-
ins og þar er veitt öll almenn fjár-
málaþjónusta auk þess sem sjóð-
urinn annast póstafgreiðslu á
Grenivík. „Hér getur fólk fengið
sambærilega þjónustu og hjá öðr-
um fjármálastofnunum landsins,“
sagði Jón Helgi. Nánast hver ein-
asti íbúi hreppsins á viðskipti við
sparisjóðinn, „Ætli við nálgumst
ekki að vera með 100% markaðs-
hlutdeild hér á svæðinu og svo er
líka í hópi viðskiptavina okkar fólk
utan hrepps, einkum fólk sem teng-
ist hingað með einhverjum hætti, er
hér uppalið.“
Jón Helgi sagði menn bara nokk-
uð bratta á þessum tímamótum.
„Þetta er sterkur sjóður og við telj-
um okkur veita viðskiptavinum
okkar góða þjónustu,“ sagði Jón
Helgi og bætti við að íbúar hrepps-
ins væru bara almennt vel stæðir, „í
það minnsta kvarta menn ekki hér
um slóðir.“
Ákveðið hefur verið að taka sam-
an sögu sparisjóðsins í 125 ár og
hefur Björn Ingólfsson skólastjóri
tekið að sér það verkefni. Gert er
ráð fyrir, að sögn Jóns Helga, að
bókin komi út á næsta ári.
Sparisjóður Höfðhverfinga fagnar 125 ára afmæli
Nánast allir
íbúarnir í
viðskiptum
Ljósmynd/Jón Helgi Pétursson
Fjölmenni sótti starfsfólk Spari-
sjóðs Höfðhverfinga heim í tilefni
af 125 ára afmæli sjóðsins.
Boðið var upp á girnilegar veit-
ingar í tilefni dagsins.