Morgunblaðið - 07.01.2004, Side 40
DAGBÓK
40 MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Víkverji skrifar...
Eftir að hafa dásamað gaseldavél-ina í nýju íbúðinni í meira en ár
var Víkverji óþægilega minntur á
ókostinn við svona eldhúsbúnað síð-
degis á aðfangadag, þremur kort-
erum áður en jólin voru hringd inn í
Ríkisútvarpinu. Hamborgarhrygg-
urinn var kominn í pottinn og aðeins
eftir að skrúfa frá gashellunni. En
viti menn? Enginn kom loginn og
fljótlega varð ljóst að klárast hafði
úr gaskútnum – á besta tíma, eða
þannig. Frábært, hugsaði Víkverji
með sér, og fór nú að redda málum.
Hringt var út og suður og eftir
ábendingu heimilisvinar var leitað til
gasfyrirtækisins Ísaga. Þar varð fyr-
ir svörum í neyðarnúmeri afar þjón-
ustulipur starfsmaður sem vildi allt
fyrir Víkverja gera. Þrátt fyrir að
vera kominn í sparifötin gerði hann
sér dágóða ferð í höfuðstöðvarnar til
að opna fyrirtækið og afgreiða gas-
kútinn. Á meðan fékk hryggurinn að
malla í potti hjá hjálpsömum ná-
grönnum Víkverja í stigaganginum.
Sjálfsagt til hughreystingar upp-
lýsti starfsmaðurinn, er komið var á
staðinn, að Víkverji væri ekki sá
fyrsti sem hefði hringt í neyðarnúm-
erið þennan aðfangadag jóla, en von-
andi hefur hann starfsmannsins
vegna verið sá síðasti! Í þessu neyð-
arástandi uppgötvaðist að Víkverji
var fyrir með aðra gerð af gaskút en
Ísaga býður og því var hann sendur
heim með nýjan svonefndan þrýsti-
jafnara – og til öryggis tvær teg-
undir af honum. Rétt áður en dyr-
unum var lokað fékk starfsmaðurinn
bakþanka og útvegaði aðra tegund,
reyndist það hin eina rétta og því
margsannaði þessi starfsmaður sína
faglegu kunnáttu og einstöku lipurð.
Sagan er reyndar ekki öll því Vík-
verji gat ekki losað tóma kútinn fyrr
en seint og um síðir þar sem hann
hafði lánað stóra skiptilykilinn út í
bæ. En allt bjargaðist að lokum og
jólin gengu í garð á heimili Víkverja,
þökk sé Ísaga og góðum grönnum!
Eitt er þó klárt, og það vonar Vík-
verji að aðrir eigendur gaseldavéla
hafi í huga, að tékka endilega á kútn-
um fyrir eldamennsku á stórhátíð-
um, hafa aukakút til staðar eða ein-
faldlega fjárfesta í gasmæli. Einnig
kemur til greina að skipta yfir í raf-
magnseldavél en færi rafmagnið af í
Hlíðunum á lokaundirbúningi
jólanna sér Víkverji ekki fram á að
geta skutlast t.d. upp í höfuðstöðvar
Orkuveitunnar og náð í „orku-
skammt“ fyrir heimilið.
Af dálitlum kvikindisskap vonar
Víkverji bara að um næstu jól fari
rafmagnið síðdegis á aðfangadag
þannig að hann geti haldið áfram að
dásama gaseldavélina – með fullan
kút!
Morgunblaðið/SverrirEkkert gas, engin jól.
Samningar
sérfræðilækna
MIG langar að koma á
framfæri óánægju minni
vegna uppsagnar samninga
sérfræðilækna við TR.
Ég á 7 ára gamlan son
sem hefur ítrekað þurft að
fara í aðgerðir vegna röra í
eyrum. Þetta er nú í annað
skiptið á þessum 7 árum
sem ég þarf að borga allan
kostnað sjálf við þess hátt-
ar aðgerð vegna þess að
samningar hafa ekki verið
fyrir hendi. Mér er sagt að
aðgerðin muni kosta um
30.000 krónur. Innifalið er
ný rör í eyru og nefkirtlar
fjarlægðir ásamt svæfingu.
Mér er spurn, til hvers er
ég að borga mína skatta ef
ég þarf líka að borga fullt
verð fyrir læknisþjónustu?
Mér var bent á hjá TR að
bíða með aðgerðina þangað
til samningar næðust. En á
ég að láta barnið mitt bíða
með eyrnaverk og skerta
heyrn þar til þessum aðil-
um þóknast að semja? Ég
held ég ætti að fá skattaaf-
slátt fyrst ég á ekki rétt á
niðurgreiddri heilbrigðis-
þjónustu.
Jóna Eyjólfsdóttir.
Áhrif hækkunar
skólagjalda
MIG langar til að spyrja
stjórnendur Háskóla Ís-
lands og alþingismenn
hvort þeir geri sér nokkra
grein fyrir því hvaða áhrif
hækkun skólagjalda og
fjöldatakmarkanir hafi í för
með sér á Ísland til fram-
tíðar? Fólk fer bara annað í
nám og störf.
Mér dettur ekki í hug að
borga 500.000 krónur t.d.
fyrir menntun hér heima
þegar ég get fengið hana
ókeypis í Svíþjóð eða Dan-
mörku. Spáið í það. Ég er
fullviss um að ég geti sagt
það sama um marga aðra
nemendur svo ég skora á
þá sem stýra þessu að bæta
úr ástandinu í HÍ áður en í
óefni er komið.
Gleðilegt ár!
Háskólanemi.
Tapað/fundið
Svartur
trefill týndist
LANGUR og breiður
svartur trefill glataðist á
kvikmyndasýningu í
Kringlubíói 30. desember
sl. Trefillinn er saumaður
úr þykku alullarefni, með
grófu kögri í báða enda.
Hefur hann mikið tilfinn-
ingalegt gildi fyrir eigand-
ann.
Finnandi hafi vinsamleg-
ast samband við Kristínu í
s. 588 0709 eða í gsm
825 8127.
Barnaseðlaveski
í óskilum
BARNASEÐLAVESKI
fannst í Hafnarfirði sl.
laugardag, 3. janúar. Upp-
lýsingar í síma 565 4849.
Fartölva týndist
FARTÖLVA týndist í
IKEA á milli jóla og nýárs.
Tölvan er í eigu blinds
manns sem saknar hennar
sárlega. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
898 8137.
Armband týndist
KARLMANNS-armband
með áletruninni Ómar
Snævar týndist í miðbæ
Reykjavíkur, líklega í
kringum 20. desember sl.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 863 1059.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
- . 1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Skrif-
stofa s. 551 4349, fax.
552 5277, mataraðstoð
kl. 14–17.
Fjölskylduhjálpin
Eskihlíð 2–4, Fjósinu
við Miklatorg. Út-
hlutun: fimmtud. kl.
14–17. Móttaka: mið-
vikud. kl. 13–15. S.
551 3360, gsm.
897 1016.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa og postulín,
kl. 13 postulín. Versl-
unarferð í Hagkaup í
dag, rúta frá Afla-
granda og Grandavegi
kl. 10, kaffi í boði Hag-
kaupa.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna, kl.
10.30–11.30 heilsu-
gæsla, kl. 13–16.30
smíðar og handavinna,
kl. 13 spil.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
12.30 bað, kl. 9–12 gler-
list, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 10–10.30
bankinn, kl. 13–16.30
brids/vist, kl. 13–16
glerlist.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 að-
stoð við bað, kl. 10 leik-
fimi, kl. 14.30 bankinn,
kl. 14.40 ferð í Bónus.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 opin verslunin,
kl. 13.30 bankinn, kl.
11–11.30 leikfimi.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9 postu-
lín, kl. 9–16 leir-
munagerð.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna,
Félag eldri borgara
Kópavogi. Skrifstofan
er opin í dag frá kl. 10–
11.30, viðtalstími í Gjá-
bakka kl. 15–16.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9, myndment kl. 10–
16, línudans kl. 11, pílu-
kast og billjard kl.
13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Leikfélagið
Snúður og Snælda æf-
ing kl. 10. Línudans-
kennsla kl. 19.15.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, m.a. tréút-
skurður og almenn
handavinna, kl. 13.30
kóræfing, allir vel-
komnir. Gamlir leikir
og dansar hefjast 14.
janúar. S. 575 7720.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Stólaleikfimi
kl. 9.30, leikfimi kvenna
kl. 10.20 og 11.15 í
Kirkjuhvoli. Opið í
Garðabergi frá kl. 13–
17. Skráning stendur
yfir á bridsnámskeið
sem hefst 14. jan.
Myndlistarsýning
stendur yfir í Garða-
bergi á verkum Guð-
bjargar Jónsdóttur og
Ástu Hannesdóttur,
sem eru báðar í mynd-
list í félagsstarfinu.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–17 handavinna, kl.
9.30 boccia, kl. 9.30 og
kl. 13 glerlist, kl. 13 fé-
lagsvist, kl. 15.15 söng-
ur, kl. 16 hringdansar,
kl. 17 bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsstarfið óskar
öllum farsældar á nýju
ári og þakkar sam-
starfið á liðnu ári. Kl. 14
kynning á fyrirhugaðri
starfsemi Gullsmára
janúar til maí. FEBK
kynnir starfsemi á veg-
um félagsins, einnig
verða aðrir möguleikar
til þátttöku í fé-
lagslífinu kynntir.
Skráning á námskeið
verður á sama tíma.
Allir velkomnir. Allar
óskir og ábendingar um
starfsemi í Gullsmára
eru vel þegnar. Sími
564 5260.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
banki, kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9–15 handmennt, kl. 9–
10 og kl. 10–11 jóga, kl.
9.30–10.30 sögustund,
kl. 15–18 myndlist.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 vinnustofa, kl. 13–
13.30 bankinn, kl. 14 fé-
lagsvist, kaffi og verð-
laun.
Vesturgata 7. Kl. 8.25–
10.30 sund, kl. 10–11.30
ganga, kl. 9.15–16
myndmennt, kl. 12.15–
14.30 verslunarferð, kl.
13–14 spurt og spjallað,
kl. 13–16 tréskurður.
Vitatorg. Kl. 8.45
smiðja, kl. 10 búta-
saumur, bókband, kl. 13
föndur og kóræfing, kl.
12.30 verslunarferð.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13–
16 keramik, taumálun,
föndur, kl. 15 bókabíll-
inn.
Vinahjálp, brids spilað
á Hótel Sögu í dag kl.
13.30.
Hafnargönguhóp-
urinn. Kvöldganga kl.
20 miðvikudaga. Lagt
af stað frá horni Hafn-
arhússins norð-
anmegin.
Sjögrens-hópurinn
hittist í kvöld kl. 20 á
Kaffi Mílanó í Faxafeni.
Í dag er miðvikudagur 7. janúar,
7. dagur ársins 2003, Knútsdagur.
Orð dagsins: Því að náð Guðs
hefur opinberast til sáluhjálpar
öllum mönnum.
(Tít. 2, 11.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Rifjað er upp á Múrn-um að hægrimenn á
Íslandi létu mikið með
lögmál Parkinsons. Lög-
málið er kennt við höf-
und sinn sem var enskur
sagnfræðingur. „Hann
kom hingað til lands fyr-
ir um 20 árum og var þá
hampað mikið af svoköll-
uðum „frjálshyggju-
mönnum“ en jafnframt
tortryggður af mörgum
vinstri mönnum. Lögmál
hans hljóðaði svo að op-
inbert kerfi hneigist til
að þenjast út. Þangað
eru ráðnir starfsmenn og
þeir búa þegar í stað til
verkefni sem þeir ráða
ekki við og brátt þarf að
ráða fleiri og fleiri, uns
heil stofnun er farin að
sinna verkefnum sem
engum hafði dottið í hug
að þörf væri fyrir.“
Ármann Jakobsson seg-ir í pistlinum að hann
hafi séð Parkinson ræða
lögmál sitt bæði við
aðdáendur og efasemda-
menn. „Var hann greini-
lega mjög snjall og sann-
færði sjálfsagt flesta sem
á horfðu um ágæti lög-
málsins. Það hefur enda
sannað sig óspart síðan.
Það sérkennilega er hins
vegar að þeir sem köll-
uðu sig aðdáendur Park-
insons hafa reynst sýnu
duglegastir að sanna lög-
mál hans,“ segir Ármann
og á þá líklega við hægri-
menn. Hann virðist hins
vegar skauta fram hjá
þeirri staðreynd að
vinstrimenn hafa verið
hvað iðnastir við að boða
aukin útgjöld og verkefni
hins opinbera og því
sannir stuðningsmenn
Parkinsons-lögmálsins í
framkvæmd.
Þó bendir Ármann áeitt atriði máli sínu
til stuðnings: „Eitt sér-
stakt hugðarefni hægri-
manna, ekki síst þeirra
sem kalla sig frjálslynda,
eru her og lögregla.
Parkinson hafði sér-
stakan áhuga á þessum
málaflokki og spáði því á
4. áratug síðustu aldar
að innan skamms yrðu
fleiri aðmírálar en skip í
breska flotanum. Spáin
rættist og jók það mjög
frægð Parkinsons.
Í sæluríki hægri-
manna, Bandaríkjunum,
hefur lögmál Parkinsons
aldeilis verið sannað. Út-
gjöld til hermála þenjast
þar út með þvílíkum
hraða að enginn ræður
neitt við neitt,“ segir Ár-
mann Jakobsson.
Frjálslyndum mönnumhefur þó verið treyst
best til að vernda frelsi
og öryggi borgaranna;
bæði gegn ofbeldi sam-
borgaranna með lög-
reglu og ofbeldi borgara
annarra ríkja með her.
Pistlahöfundi ætti hins
vegar að vera fullkunn-
ugt um að frjáls-
hyggjumenn víða um
heim, og ekki síst í
Bandaríkjunum, gagn-
rýna stjórnvöld harðast
ef sú vernd stuðlar frek-
ar að helsi einstakling-
anna en frelsi. Slíka
gagnrýni má nú finna á
stefnu Bandaríkjamanna.
STAKSTEINAR
Sjálfvirk útþensla
hins opinbera
LÁRÉTT
1 málgefin, 4 afdrep, 7
hafna, 8 rándýr, 9 pest,
11 sárabindi, 13 skordýr,
14 ginna, 15 listi, 17 vind-
leysa, 20 liðamót, 22
skóflar, 23 stingurinn, 24
flýtinn, 25 starið.
LÓÐRÉTT
1 kunnátta, 2 spila, 3
teikning af ferli, 4 regn-
demba, 5 slétta, 6 blund-
ar, 10 fuglinn, 12 ná húð
af, 13 poka, 15 samtala,
16 innheimta, 18 kraft-
urinn, 19 óhróðurinn, 20
orgar, 21 borðum.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 næturgagn, 8 fælin, 9 lofar, 10 und, 11 súrir,
13 urðar, 15 Spánn, 18 balar, 21 áll, 22 stirð, 23 ussar, 24
sunnudags.
Lóðrétt: 2 ætlar, 3 unnur, 4 guldu, 5 gáfuð, 6 ofns, 7
hrár, 12 inn, 14 róa, 15 sess, 16 átinu, 17 náðin, 18 blund,
19 lúsug, 20 rýrt.
Krossgáta