Morgunblaðið - 07.01.2004, Blaðsíða 43
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004 43
Hópa- og firmakeppni
Breiðabliks
haldin í Fífunni 17. jan. Spilað er á hálfum
velli í 8 manna liðum á stór mörk.
Glæsileg verðlaun fyrir 1.- 3. sæti.
Þátttökugjald 17.000 kr. á lið.
Upplýsingar og skráning í síma 510 6404
og knattspyrna@breidablik.is
ÓLAFUR Sigurjónsson, hand-
knattleiksmaður úr ÍR, hefur
gengið frá samningi við spænska
2. deildarliðið Tres De Mayo frá
Kanaríeyjum og leikur með því út
þetta tímabil.
Ólafur kom til félagsins á laug-
ardaginn og fór beint í æfinga-
leik tveimur tímum eftir komuna
þangað. Forráðamenn Tres De
Mayo voru afar ánægðir með
frammistöðu hans og buðu hon-
um strax samning sem nú er frá-
genginn.
„Vonandi verður Ólafur sá
herslumunur sem okkur hefur
vantað í undanförnum leikjum.
Hann hefur tvær vikur til að
komast í gang eftir nokkurt hlé
frá handboltanum en hann hefur
haldið sér vel við og er í góðu
líkamlegu ástandi og þjálfarinn
og allir í kringum liðið eru mjög
ánægðir með hann.
Við erum staðráðnir í að halda
okkur í deildinni í vetur og í
framhaldi af því verður stefnan
örugglega sett á að komast upp í
1. deild á næstu tveimur árum,“
sagði Hlynur Jóhannesson, mark-
vörður Tres De Mayo, við Morg-
unblaðið.
Liðið er næstneðst í spænsku 2.
deildinni með aðeins 6 stig eftir
14 umferðir. Fyrsti leikur Ólafs
með liðinu verður þann 17. jan-
úar en þá leikur Tres De Mayo
við annað lið frá Kanaríeyjum,
Juventud Gran Canaria, á
heimavelli sínum í Tenerife.
Ólafur er 26 ára miðjumaður
og varð annar markahæsti leik-
maður ÍR síðasta vetur með 113
mörk í 26 leikjum í 1. deild.
Hann tók sér hvíld frá handbolt-
anum í haust vegna meiðsla í
baki.
OLA Lindgren, þjálfari þýska 1.
deildarliðsins Nordhorn og leik-
reyndasti landsliðsmaður Svía og
fyrirliði landsliðsins árum sam-
an, er sagður efstur á óskalista
sænska handknattleiks-
sambandsins sem eftirmaður
Bengts Johanssons. Johansson
ákvað fyrir ári að hætta þjálfun
sænska landsliðsins eftir Evr-
ópumeistaramótið sem hefst í
Slóveníu í lok þessa mánaðar eft-
ir 16 ár í brúnni.
Lindgren hefur ekki mikla
reynslu af þjálfun. Hann tók við
þjálfun Nordhorn sl. sumar af
landa sínum Kent-Harry And-
ersson, sem einnig er nefndur
sem hugsanlegur eftirmaður
Johanssons. Andersson þjálfar
nú Flensburg sem er í efsta sæti
þýsku 1. deildarinnar um þessar
mundir.
Lindgren hætti að leika með
sænska landsliðinu eftir HM í
Portúgal í fyrra þar sem Svíum gekk ekki sem skyldi. Hann verður fertug-
ur á þessu ári og var leiðtogi hins sænska landsliðs árum saman, utan vall-
ar sem innan, og nýtur af þeim sökum mikillar virðingar meðal handknatt-
leiksmanna í heimalandi sínu. Þá þykir hann hafa farið vel af stað sem
þjálfari Nordhorn í Þýskalandi þar sem hann hefur haft út takmörkuðum
fjármunum og litlum hópi leikmanna að spila.
Johanssons bíður erfitt verkefni á EM í Slóveníu, sinni síðustu stór-
keppni með sænska landsliðið, þ.e. að tryggja því sæti á Ólympíuleikunum í
Aþenu en margar þjóðir sækjast eftir því eina „lausa“ sæti á Ólympíu-
leikunum sem keppt verður um í Slóveníu.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Gylfi Gylfason skorar í landsleik gegn Pólverjum í Laugardalshöllinni.
Ólafur samdi við
Tres De Mayo
GUNNAR Örn Ólafsson, KR og
Bára Bergmann Erlingsdóttir, Ösp,
taka þátt í heimsmeistaramóti
þroskaheftra í sundi sem fer fram í
Hong Kong. Þjálfarar og fararstjór-
ar eru þau Ingigerður M. Stefáns-
dóttir og Ingi Þór Einarsson.
Keppnin hefst 9. janúar og keppa þá
bæði Gunnar og Bára keppa í 50
metra skriðsundi.
FABÍÁN Carini, landsliðsmark-
vörður Uruguay, er nú undir smá-
sjánni hjá Atlético Madrid og Bor-
ussia Dortmund. Carini, sem var um
tíma í herbúðum Arsenal, leikur nú
með Standard Liege í Belgíu.
Carini, 23 ára, hefur leikið 39 lands-
leiki fyrir Uruguay.
TORBEN Winther, landsliðsþjálf-
ari Dana í handknattleik, ákvað að
senda hinn hávaxna Lars Møller
Madsen, 2,05, leikmann GOG, heim í
gær frá æfingabúðum í Farum. Mad-
sen er meiddur á öxl og vill Winther
að hann fari í læknisskoðun og
sjúkrameðferð. Ef hann reynist
tilbúinn í slaginn á Evrópumótinu í
Slóveníu, sem hefst 22. janúar, kem-
ur hann aftur til liðs við landsliðshóp
Dana á mánudaginn, eða þegar þeir
koma heim frá móti í Rússlandi.
DANSKA landsliðið tekur þátt í
sex þjóða móti í Rússlandi um
helgina, þar sem liðið leikur í riðli
með Rússlandi og Serbíu-Svart-
fjallalandi. Í hinum riðlinum leika
Þjóðverjar, Egyptar og Frakkar.
Danir mæta Íslendingum í Fraum
fimmtudaginn 15. janúar í móti, sem
Svíar og Egyptar taka einnig þátt í.
Mótið fer fram í Danmörku og Sví-
þjóð.
OLIVER Neuville, þýski landsliðs-
maðurinn í knattspyrnu hjá Bayer
Leverkusen, verður frá keppni í
fimm vikur. Hann hefur gengist und-
ir skurðaðgerð vegna meiðsla á nára.
„Það er mikið áfall fyrir liðið að Oliv-
er verður frá keppni svo lengi, þar
sem hann er lykilmaður á miðjunni,“
sagði Klaus Augenthaler, þjálfari
Leverkusen.
FÓLK
Tekur Lindgren
við af Johansson?
Morgunblaðið/Ásdís
Staffan Olsson og Bengt
Johansson með Evrópubikar-
inn í Króatíu 2000.
Stroud til
Grindvíkinga
GRINDVÍKINGAR hafa tryggt sér
annan erlendan leikmann fyrir kom-
andi átök í Intersportdeild karla í
körfuknattleik en þeir ákváðu um ára-
mótin að segja upp samningnum við
Daniel Trammel, sem lék með þeim í
haust. Nýi leikmaðurinn heitir Derrick
Straoud, 202 sentimetra framvörður
sem getur einnig leikið sem miðvörður
ef mál æxlast þannig.
Stroud útskrifaðist úr skóla í Banda-
ríkjunum 1999 og hefur síðan leikið í
Evrópu. Hann var eitt tímabil í Hol-
landi en tvö síðustu tímabil lék hann í
Finnlandi og þar gerði hann 23 stig að
meðaltali í leik og tók 17 fráköst. Hann
var frákastahæsti leikmaður finnsku
deildarinnar bæði árin sem hann lék
þar. Stroud kemur væntanlega ekki til
landsins fyrr en í næstu viku.