Morgunblaðið - 07.01.2004, Page 44
ÍÞRÓTTIR
44 MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
England
Úrvalsdeild:
Aston Villa – Portsmouth ....................... 2:1
Juan Pablo Angel 22., Daris Vassell 83. –
Yakubu Ayegbeni 49. – 28,625.
Staðan:
Man. Utd 19 15 1 3 38:13 46
Arsenal 19 13 6 0 35:12 45
Chelsea 19 13 3 3 36:16 42
Charlton 19 8 6 5 27:22 30
Fulham 19 8 4 7 30:26 28
Aston Villa 20 7 6 7 21:24 27
Liverpool 18 7 5 6 28:21 26
Newcastle 19 6 8 5 26:22 26
Southampton 19 7 5 7 18:15 26
Birmingham 18 7 5 6 16:20 26
Everton 19 6 5 8 23:25 23
Bolton 19 5 8 6 20:28 23
Man. City 19 5 6 8 27:27 21
Blackburn 19 6 3 10 26:29 21
Middlesbro 18 5 6 7 14:18 21
Portsmouth 20 5 4 11 21:30 19
Leicester 19 4 6 9 28:31 18
Tottenham 19 5 3 11 19:29 18
Leeds 19 4 5 10 18:40 17
Wolves 18 3 5 10 16:39 14
2. deild:
Peterborough – Notts County .................5:2
Ítalía
Ancona – Parma ...................................... 0:2
Simone Barone 23.,66. – 10.000.
Bologna – Empoli .................................... 2:1
Claudio Bellucci 30., Fabio Pecchia 74. –
Antonio Di Natale 16. – 20.000.
Brescia – Siena......................................... 4:2
Stafano Mauri 12., 81., Roberto Baggio 18.,
53. – Stefano Argilli 42., Tore Andre Flo 46.
– 20.000.
Inter Mílanó – Lecce ............................... 3:1
Julio Cruz 46., Ivan Cordoba 59., Christian
Vieri 84., – Casare Bovo 2. – 55.000.
Juventus – Perugia.................................. 1:0
Pavel Nedved 28. – 41.500.
Modena – Chievo...................................... 0:3
Fedrico Cassato 41., Franco Semioli 69.,
Andrea Barzagli 80. – 14.000.
Reggina – Lazio ....................................... 2:1
David Di Michele 60., Fransesco Cozza 70.
– Fabio Liverani 13. – 25.000.
Udinese – Sampdoria .............................. 0:1
Fransesco Flachi 60. – 13.000.
Roma – AC Milan ......................................1:2
Antonio Cassano 45. – Andrei Shevchenko
24., 63. – 73.383.
Staðan:
Roma 15 11 3 1 32:6 36
Juventus 15 10 3 2 32:15 33
AC Milan 14 10 3 1 24:7 33
Inter 15 9 4 2 28:10 31
Lazio 15 9 1 5 24:19 28
Parma 15 8 3 4 24:18 27
Udinese 15 7 3 5 19:17 24
Sampdoria 15 6 5 4 18:16 23
Chievo 15 6 3 6 17:18 21
Reggina 15 4 7 4 15:22 19
Brescia 15 3 7 5 25:28 16
Modena 15 4 4 7 12:18 16
Siena 14 3 6 5 18:16 15
Bologna 15 3 5 7 14:22 14
Perugia 15 0 9 6 19:30 9
Lecce 15 2 3 10 15:31 9
Empoli 15 1 3 11 8:30 6
Ancona 15 0 4 11 7:28 4
Skotland
Dundee – Hearts .......................................1:2
Spánn
Bikarkeppnin, 16 liða úrslit, fyrri leikur:
Atletico Madrid – Dep. La Coruna..........0:0
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla
Ármann/Þróttur – ÍG........................... 86:65
ÍS – Stjarnan .........................................82:72
Staðan:
Skallagrímur 10 9 1 939:788 18
Fjölnir 10 8 2 889:750 16
Valur 10 8 2 867:821 16
Stjarnan 10 5 5 794:789 10
ÍS 10 5 5 807:820 10
Þór A. 10 4 6 839:892 8
Ármann/Þróttur 9 4 5 743:710 8
ÍG 9 3 6 753:805 6
Selfoss 10 2 8 826:933 4
Höttur 10 1 9 706:855 2
NBA-deildin
Úrslit í fyrrinótt:
Boston – Detroit ................................... 68:78
Philadelphia – Milwaukee.................... 76:88
Miami – Indiana.................................... 65:87
Chicago – Phoenix ................................ 87:82
Houston – Golden State....................... 83:65
Denver – San Antonio .......................... 74:98
Utah – Dallas ...................................... 108:94
Seattle – Portland............................. 119:108
Eftir framlengingu.
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, RE/MAX-deildin:
Seltjarnarnes: Grótta/KR – ÍBV .........19.15
KÖRFUKNATTLEIKUR
Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar, konur:
DHL-höllin: KR – Grindavík................19.15
Í KVÖLD
VEIGAR Páll Gunnarsson, knatt-
spyrnumaður, verður áfram í her-
búðum Íslandsmeistara KR-inga.
Veigar skrifaði í gær undir nýjan
tveggja ára samning við vesturbæj-
arliðið en undanfarnar vikur hafa
staðið yfir samningaviðræður milli
hans og KR-Sport um nýjan samn-
ing eftir að samningur hans við fé-
lagið rann út nú um áramótin.
„Það er mikill léttir að vera bú-
inn að ganga frá þessu og ég er
mjög sáttur. Nú get ég einbeitt mér
að fullu að fótboltanum og fyrsta
skrefið er að koma sér í gott form,“
sagði Veigar Páll við Morg-
unblaðið.
Veigar var með samningstilboð
frá norska úrvalsdeildarliðinu Sta-
bæk auk tilboðsins frá KR.
„Ég var ekkert rosalega spennt-
ur fyrir Stabæk og það má segja að
KR hafi allan tímann verið ofan á.
Mér hefur liðið ákaflega vel hjá KR
og gengið vel þar og ég lít mjög
björtum augum á komandi tímabil.“
Veigar Páll þótti einn besti leik-
maður KR-inga á síðustu leiktíð en
hann lék 13 leiki með liðinu í úr-
valsdeildinni og skoraði 7 mörk en
samtals hefur hann leikið 57 leiki í
úrvalsdeildinni, þar af 23 með
Stjörnunni, og skorað 17 mörk. Þá
hefur Veigar spilað 5 leiki landslið-
inu, þann síðasta gegn Mexíkóum í
San Francisco í nóvember.
Veigar Páll Gunnarsson
samdi við KR-inga
Fróði er 26 ára miðjumaður ogkemur frá B68 eins og Hans
Fróði Hansen, varnarmaðurinn sem
einnig hefur samið við Safamýrar-
félagið. Fróði sagði við færeyska
dagblaðið Sosialurin að hann væri
mjög spenntur fyrir því að reyna sig
í íslensku knattspyrnunni.
„Það var góður tími fyrir mig að
fara núna, ég hef lokið námi og er því
ekki lengur bundinn á neinn hátt hér
heima. Ég fer ásamt eiginkonu minni
til Íslands um næstu mánaðamót.“
Hann vildi ekki ræða launamál sín
hjá Fram en sagði að ekki væri um
fullan atvinnusamning að ræða. „Ég
ætla að vinna hálfan vinnudag á móti
fótboltanum. Framarar æfa ekki
miklu meira en gengur og gerist hér
í Færeyjum og maður yrði fljótt
frekar leiður á því að hafa ekki um
neitt annað að hugsa en fótbolta og
mæta á fjórar til fimm æfingar í
viku,“ sagði Fróði, sem hefur verið
einn besti miðjumaður Færeyinga
um árabil og á 24 landsleiki að baki.
Með brotthvarfi hans og Hans
Fróða eru stór skörð höggvin í lið
B68, sem varð í þriðja sæti 1. deildar
á nýliðnu ári og vann sér keppnisrétt
í UEFA-bikarnum. Áður hafði liðið
misst landsliðsmanninn Jann Inga
Petersen til Fremad Amager í Dan-
mörku. Í marki B68 leikur Grindvík-
ingurinn Albert Sævarsson, en hann
var valinn besti markvörður Fær-
eyja 2003.
Fróði Benjaminsen, annar Færeying-
anna hjá Fram, segir í Sosialurin
„Síðustu
forvöð að
reyna sig
erlendis“
FRÓÐI Benjaminsen, annar fær-
eysku knattspyrnumannanna
sem leika með Fram á komandi
keppnistímabili, segir að það
hafi verið orðin síðustu forvöð
fyrir sig að reyna fyrir sér erlend-
is og hann hafi því gripið tæki-
færið og gengið til liðs við Fram.
SAMEIGINLEGT lið Fylkis/ÍR í
kvennahandknattleik var í gær lagt
niður og leikur þar af leiðandi ekki
meira á Íslandsmóti kvenna. Í
fréttatilkynningu sem send var frá
félaginu í gærkvöldi segir:
„Á fundi stjórnar og leikmanna
Fylkis/ÍR var í dag þriðjudag 6.
janúar 2004, ákveðið að leggja „fé-
lagið“ niður og hætta nú þegar
rekstri þess. Ástæða þessa er að
eftir að þjálfari félagsins hætti
skyndilega störfum hefur ekki tek-
ist að ráða nýjan þjálfara. Þrátt
fyrir að rætt hafi verið við marga
hæfa einstaklinga um að taka að
sér liðið hefur það ekki tekist. Slíkt
ástand getur ekki gengið lengur og
er bæði stjórn og þá sérstaklega
leikmönnum ekki bjóðandi. Til að
leikmenn sem með liðinu leika geti
haldið áfram að stunda íþrótt sína
og verið löglegir til keppni nú þeg-
ar hefur verið ákveðið að leggja
„félagið“ niður. Vissulega er þetta
slæm niðurstaða en engu að síður
telur stjórnin að fullreynt sé að
ekki fáist hæfur þjálfari til félags-
ins að svo komnu máli.
Stjórnin harmar þetta en vill um
leið óska leikmönnum góðs gengis í
framtíðinni. Jafnframt vill stjórnin
þakka öllum þeim sem komið hafa
að Fylki/ÍR á einn eða annan hátt
fyrir frábært og fórnfúst sam-
starf.“
Fylkir og ÍR hófu samstarf í
fyrra og tók liðið þátt í 1. deild-
arkeppninni á síðustu leiktíð undir
stjórn Gunnars Magnússonar.
Finnbogi Grétar Sigmundsson tók
við starfi hans en hann sagði starfi
sínu lausu 10. desember síðastlið-
innn. Liðið hefur aðeins unnið einn
leik á tímabilinu og situr í neðsta
sæti með 2 stig líkt og Fram.
Kvennalið Fylkis/ÍR
hefur verið lagt niður
ÞJÁLFARI danska landsliðsins í
handknattleik karla, Torben Winth-
er, kom mörgum á óvart í gær er
hann valdi landsliðshóp sinn fyrir
Evrópumeistaramótið sem hefst í
Slóveníu í lok janúar.
Það sem vakti mesta athygli var
að Winther valdi ekki Lasse Boesen,
sem leikur með Portland San Anton-
io á Spáni – í hans stað var Kasper
Nielsen valinn, en hann leikur með
GOG í heimalandi sínu.
Winther valdi aðeins tvo mark-
verði og í stað Peter Nørklit, sem lék
á heimsmeistaramótinu í Portúgal á
sl. ári, velur hann Michael Bruun frá
Bjerringbro. Hann fór á kostum í
markinu í leik Íslendinga og Dana í
leik um þriðja sætið á Evrópumótinu
í Svíþjóð árið 2002. Það varð til þess
að Danir fengu bronsið, Íslendingar
fjórða sætið.
Hinn hálfíslenski Hans Óttar
Lindberg hlaut ekki náð fyrir augum
Winhters – er einn sjö varamanna
sem verða til reiðu. Danski hópurinn
er þannig skipaður:
Markverðir: Kasper Hvidt,
Ademar Leon, og Michael Bruun,
Bjerringbro.
Útileikmenn: Morten Bjerre,
Hamburg SV, Kasper Nielsen, Klavs
Bruun Jørgensen og Torsten Laen,
allir frá GOG, Lars Jørgensen, BM
Altea, Jesper Jensen, Skjern, Lars
Christiansen, Joachim Boldsen, Sø-
ren Stryger og Lars Krogh Jeppe-
sen, allir frá Flensburg Handewitt,
Boris Schnuchel og Christian
Hjermind, báðir frá Kolding, Mich-
ael V. Knudsen, Skjern og Claus
Møller Jakobsen, BM Altea.
Sjö varamenn eru til reiðu, þeir:
Lasse Boesen, Portland San Anton-
io, Jesper Nøddesbo, Team Tvis
Holstebro, Hans Lindberg, Team
Helsinge, Lars Møller Madsen,
Skjern, Bo Spellerberg, Kolding,
Kristian Asmussen, BM Altea og
Peter Nørklit, FCK Håndbold.
Töpuðu fyrir Írum
og Grænlendingum
KVENNALANDSLIÐ Íslands í blaki tapaði fyrir Írum og Grænlend-
ingum í tveimur síðari leikjum sínum í forkeppni Evrópumóts C-þjóða
sem lauk í Dublin í gær. Íslenska liðið, sem áður hafði tapað 3:0 fyrir
Skotum, beið lægri hlut fyrir Írum með sama mun og loks fyrir Græn-
lendingum, 3:2. Skotar og Írar halda áfram keppni en Íslendingar og
Grænlendingar eru úr leik.
Leikurinn gegn Írum endaði 18:25, 23:25 og 21:25. Ósigurinn gegn
Grænlendingum kom mjög á óvart en að sögn Jóns Ólafs Valdimars-
sonar, framkvæmdastjóra Blaksambands Íslands, er væntanlega um
fyrsta landsliðssigur Grænlendinga að ræða en þeir hafa ekki áður
verið á meðal þátttökuþjóða í Evrópukeppni. Hrinurnar þar enduðu
24:26, 21:25, 25:13, 25:21 og 11:15.
Winther setti Lasse
Boesen út í kuldann