Morgunblaðið - 07.01.2004, Qupperneq 47
ÞAÐ er sama hvaðan gott kemur og hvernig
það er gert. Hvort sem um er að ræða banda-
rískar, íranskar, japanskar eða enskar
myndasögur; kvenkyns eða karlkyns höfunda;
svart/hvítt eða litskrúðugt myndmál; texta-
lausar eða óðamála; gamalt efni á nýjum
belgjum eða gljáfægðar frumraunir. Gæði
myndasagna aukast ár frá ári, samhliða því að
myndasagan nýtur stöðugt meira sannmælis
en þær hafa hingað til verið álitnar forheimsk-
andi barnabókmenntir af þorra fólks. Mynda-
söguárið var gjöfult að vanda og ekki heiglum
hent að velja úr flórunni.
1. Buddha. Bindi 1 og 2 (af átta) eftir
Osamu Tezuka.
Tezuka hefur verið titlaður
guðfaðir japanskra mynda-
sagna („manga“) og á hann
stóran þátt í því að gera
myndasögur að mest lesna
bókmenntaforminu í Jap-
an. Hægt og bítandi eru
bækur Osamu Tezuka að
koma fyrir sjónir hins
enskumælandi og ensku-
skiljandi heims. Í fyrra var lesendum boðið
upp á meistaraverkið The Phoenix Saga og í
ár eru það fyrstu tvær bækurnar af átta um
trúarleiðtogann Buddha, sem voru fyrst gefn-
ar út á áttunda áratugnum í Japan. Buddha er
saga konungssonarins Siddharta Gotama sem
fæddist í héraðinu Lumbini (núna Nepal) fyrir
rúmlega 2500 árum og varð seinna leiðtogi
trúar- og heimspekistefnu sem kennd er við
hann og hundruð milljóna aðhyllast í dag. Tez-
uka tekur sér skáldaleyfi og fylgir sögu
Buddha í meginatriðum en fyllir þess á milli í
eyðurnar og skapar urmul aukapersóna. Per-
sónurnar eru teiknaðar í einföldum mangastíl
en bakgrunnurinn fíngerður og stórbrotinn
sem gerir myndmálið léttúðugt og djúpt í
senn. Textinn er frábærlega þýddur og bráð-
fyndinn. Yfir sögunni hvílir heiðarleiki og virð-
ing við lesandann og heimssýn Tezuka, sem
einkenndist af mannúð og virðingu fyrir öllu
lífi. Það samræmist vel því sem söguhetjan
átti seinna eftir að gera að sínu leiðarljósi.
Mannbætandi lesning og á eftir að endast vel
þar sem bækurnar sex sem á eftir koma verða
gefnar út næstu þrjú ár. Besta útgáfa þessa
árs án nokkurs vafa.
2. Persepolis: The Story of a Childhood
eftir Marjane Satrapi.
Marjane Satrapi er ungur
íranskur myndasöguhöf-
undur sem búið hefur í
Frakklandi frá unglings-
árum og numið þar mynda-
sögulistina. Nafnið Perse-
polis vísar í Teheran,
höfuðborg Írans, borg
persanna. Satrapi segir frá
barnæsku sinni á tíma
trúarbyltingarinnar sem gerð var 1979. Með
einföldum svart/hvítum teikningum sem leiða
lesandann inn í hugarheim höfundarins bregð-
ur hún upp myndum af daglegu lífi barns á
umbreytingatímum. Túlkun hennar á heimi
sem snúist hefur á haus er óborganleg. Frek-
ar en að ofgera dramatíkinni, sem viðfangs-
efnið býður svo sannarlega upp á, segir hún
sögu sem er oft og tíðum bráðfyndin. Lesand-
inn fræðist um samfélag sem er (eða var) ger-
ólíkt því sem við þekkjum af fréttamyndum.
Kim Wilde, Michael Jackson og Teheranpönk-
arar koma öll við sögu. Jafnvel ömurlegar lýs-
ingar af pyntingum og morðum sem snertu
fjölskyldu hennar eru gerðar forvitnilegar
með augum barnsins. Persepolis hefur verið
líkt við snilldarverkið Maus eftir Pulitzer-
vinningshafann Art Spiegelman og þar er
engu skrökvað. Meira af þessu, takk.
3. The Frank Book eftir Jim Woodring.
Frank er sakleysislegt
kattarlíki sem vafrar um í
þöglum heimi. Bókinni er
skipt í margar sjálfstæðar
sögur sem hver myndar
bút af heildarlandslagi
draumveruleika Jims
Woodring. Sögurnar eru á
köflum fyndnar, stundum
sorglegar, jafnvel truflandi
en alltaf hugvekjandi og fallegar. Enginn texti
fylgir myndunum sem gerir enn frekari kröf-
ur til sagnagáfu höfundarins þar sem hann
verður að reiða sig eingöngu á myndmálið til
að koma skilaboðunum áleiðis. Woodring
sagði einhverju sinni að hann hlífi lesendunum
við sínum óhugnanlegustu draumum, sem er
kannki betra því honum tekst meistaralega að
vekja lesandann til umhugsunar um
draumana sem hann ber hér á borð. Súrreal-
ískt og seiðandi.
4. Animal man, 3. bindi, eftir Grant
Morrison.
Grant Morrison getur verið svolítið erfiður.
Jafnvel einföldustu hlutir verða flóknar tilvist-
arpælingar um samband ímyndar og veru-
leika, trúar og þekkingar, heilabrota og af-
þreyingar. Animal Man er ofurhetja sem býr
yfir þeim kröftum að geta tileinkað sér hæfi-
leika dýra. Hann getur því stokkið eins og fló,
hlaupið eins og blettatígur, synt eins og há-
hyrningur og svo fram-
vegis. Skemmtilega gam-
aldags og búningurinn
einstaklega hallærislegur.
En Morrison snýr þessu að
sjálfsögðu öllu á haus. Ani-
mal Man verður harkalega
fyrir barðinu á tilraunum
Morrisons til að skoða og
forvitnast um takmörk of-
urhetjusögunnar og stað mannsins í heim-
inum. Eiginlegir rammar myndasögunnar eru
brotnir og söguhetjan þarf að horfast í augu
við þrælahaldara sinn. Sláandi endalok bók-
arinnar verðlauna lesandann margfalt á við
annað ofurhetjutengt efni. Sagan var gefin út í
blaðaformi 1988 en hefur misst fátt af fersk-
leika sínum þótt ég hefði kosið aðra teiknara
til að liðsinna Morrison á fluginu. Heimspeki
og kukl í dulargervi.
5. League of Extraordinary Gentlemen, nr.
2, eftir Alan Moore og Kevin O’Neill.
Eins og í fyrri bók sinni um
ævintýri Allan Quarter-
main, Kaftein Nemo, Dokt-
or Jekyll (og herra Hyde að
sjálfsögðu), ósýnilega
manninn Hawley Grifinn
og ungfrú Minu Murrey
gerir Moore þessar sögu-
hetjur klassískra höfunda
að sínum eigin. Persón-
urnar, sem eru meðal þeirra þekktustu í bók-
menntasögunni eru skammlaust settar í
,,Mooremulningsvélina“ sem ljær þeim nýjar
og bjagaðar hliðar sem við eigum ekki að venj-
ast. Bókin er að miklu leyti byggð á sögu H.G.
Wells um innrásina frá Mars en í meðförum
Moore verður hún nánast óþekkjanleg. Per-
sónusköpunin er groddaleg og jafnvel frá-
hrindandi en að sama skapi skemmtileg. Vert
er að minnast á teikningar O’Neill sem falla
eins og flís við rass að söguefninu. Uppsetning
mynda á blaðsíðunum setur punktinn yfir i-ið.
Fantasíu er blandað saman við ótrúlega þekk-
ingu Moores á afþreyingarbókmenntum lið-
inna tíma og úr verður kokteill sem lesandinn
lætur ekki frá sér fyrr en síðustu dreggjarnar
eru kláraðar úr glasinu.
Myndasögur ársins 2003
Best var bók
um Búdda
Hér er farið yfir það sem upp úr stóð í myndasöguútgáfu árs-
ins 2003. Heimir Snorrason velur fimm bestu bækurnar.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004 47
Kl. 8 og 10. Með ensku tali.
Sýnd kl. 6. Með íslensku tali.
www.laugarasbio.is
Will Ferrell
Sýnd kl. 5, 6, 9 og 10.
„Ein besta jólamynd sem sést hefur...“
Hjörleifur Pálsson, Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
Yfir 60.000 gestir á 10 dögum!
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra
tíma.“
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg
mynd.“
HJ MBL
„Besta mynd ársins.“
SV MBL
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Skonrokk FM909
Sýnd kl. 6. B.i. 10 ára.
Sýnd kl. 6. B.i. 10.
Skonrokk FM909
ÞÞ FBL
HJ MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16.
www .regnboginn.is
Yfir 60.000 gestir á 10 dögum!
HJ MBL
„Besta mynd ársins.“
SV MBL
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg
mynd.“
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra
tíma.“
Sýnd kl. 8 og 10.
Stranglega bönnuð yngri en 16 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
DANSMYNDIN Honey er ákaf-
lega dæmigerð kvikmynd sinnar teg-
undar, fjallar um hæfileikamann-
eskju með frægðardrauma sem fær
stóra tækifærið, lendir í erfiðleikum
sem hún yfirvinnur og allt endar vel.
Flashdance er nærtækt dæmi sem
sótt er stíft til, og er það heppni að
bæði legghlífar og skábolir eru
komnir aftur í tísku, þannig að þetta
er nokkurs konar flashdancemynd
fyrir kynslóðina sem fæddist um og
eftir lok Wham og Duran Duran-
stríðsins. En nú eru tónlistarmynd-
bönd í anda Britney Spears jafn-
framt allsráðandi og er því eins gott
fyrir hvern þann sem vill leggja
danslistina fyrir sig að hafa stál-
slegna magavöðva. Það er reyndar
einn af helstu kostum samnefndrar
aðalpersónu myndarinnar, Honey
Daniels, sem er dansari á heims-
mælikvarða en hefur ekki fengið
réttu tækifærin ennþá, enda fædd og
uppalin í gettóinu.
Söguþráður myndarinnar er langt
frá því að vera frumlegur en ágæt-
lega tekst að setja hér kunnuglega
sögu í nýtt samhengi. Honey reynir
fyrir sér í tónlistarmyndbanda-
bransanum sem snýst um fáklædda
kroppa og mjaðmasveiflur, og þótt
slík tónlistaratriði séu notuð til að
poppa myndina upp er gert grín að
þessum áherslum um leið. Aðalper-
sónan kemur t.d. með ferskt innlegg
í bransann, reynir að virkja þá dans-
orku sem hún sér á götunni í gamla
hverfinu sínu, og gengur þess vegna
vel.
Kostir myndarinnar eru sæmilegt
handrit, sem spunnið er út frá við-
leitni Honey við að koma sér á fram-
færi og láta gott af sér leiða í get-
tóinu, og kröftug dansatriði, þar sem
fagfólk fer greinilega með stjórnina
og sporin. Hin glimrandi sæta leik-
kona Jessica Alba heldur fjörinu vel
uppi í aðalhlutverkinu, en fínir
barnaleikarar eru einnig í myndinni.
Þar sem hér er um nokkurs konar
nútíma dans- og söngvamynd að
ræða verður hin rósrauða áferð get-
tósins að fyrirgefast. En í fátækra-
hverfinu sem hér um ræðir er full-
orðna fólkið sérlega frítt og
krakkarnir með eindæmum krútt-
legir, innviðir híbýla fábrotnir en
smekklegir og allir í hverfinu eru
meðfæddir danssnillingar. Og ná
fyrir vikið að halda uppi fjörinu.
Gömul saga og ný
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjórn: Billy Woodruff. Handrit:
Alonzo Brown og Kim Watson. Aðal-
hlutverk: Jessica Alba, Mekhi Phifer, Lil
Romeo, David Moscow. Lengd: 94 mín.
Bandaríkin. Universal Pictures, 2003.
HONEY Jessica Alba og Mekhi Phifer. Heiða Jóhannsdóttir