Morgunblaðið - 07.01.2004, Qupperneq 48
48 MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
EPÓ
Kvikmyndir.com
Roger Ebert
AE. Dv
Skonrokk
FM909
Frá framleiðendum Four Weddings,
Bridget Jones & Notting Hill
Sýnd kl. 10.30. B.i. 16. Enskur texti Sýnd kl. 5.30. Íslenskt tal.
Vinsælasta myndin á Íslandi 3 vikur í röð!
Sýnd kl. 8. B.i. 16.
Tilnefnd til 5 Golden Globe verðlauna
meðal annars besta
mynd ársins
Sýnd kl. 6.10.
Stórbrotin og mögnuð kvikmynd
sem enginn Íslendingur má missa af.
Opinberun
Hannesar
Gamanmynd
sem er hræðilegt að missa af
fyrir alla Íslendinga.
Kvikmyndir.is
GH. Kvikmyndir.com
HJ.MBL
Kvikmynd eftir Hrafn Gunnlaugsson.
Eftir sögu Davíðs Oddsonar
i i l .
i í
HJ. MBL
SV.MBL
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 8 og 10.15.
The Rolling Stone
SV. Mbl
Frá
framleiðendum
FourWeddings,
Bridget Jones
& Notting Hill
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
„Fantavel leikin
eðalmynd“
ÞÞ Fréttablaðið
Frumsýnd 9. janúar
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6 og 9.
Frá framleiðendum Four Weddings,
Bridget Jones & Notting Hill
Frá
framleiðendum
FourWeddings,
Bridget Jones
& Notting Hill
GH. Kvikmyndir.com HJ.MBL
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
KEFLAVÍK
Kl. 8.
Kvikmyndir.is
ÁLFABAKKI
kl. 4 og 6. Ísl. tal.
kl. 4, 6 og 8. Enskt. tal.
AKUREYRI
kl. 6. Ísl. tal
„ATH!SÝND MEÐÍSLENSKU OGENSKU TALI“
AKUREYRI
kl. 8 og 10.30.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 8 OG 10.30.
Frá framleiðendum Four Weddings,
Bridget Jones & Notting Hill
KRINGLAN
kl. 6. Ísl. tal.
Uppáhalds-
plata allra
tíma?
Pixies – Surfer
Rosa. Ég eign-
aðist þessa
plötu á tímabili
þegar ég hélt að mér þætti tón-
list ekki lengur skemmtileg. Ég
var einhverra hluta vegna ekki
móttækilegur fyrir því sem ég
heyrði í útvarpinu en svo kom
þessi plata og bjargaði lífi mínu
og hún gerir það enn.
Hvaða plötu setur þú á á laug-
ardagskvöldi?
Á laugardagskvöldum síðustu
ára hefur NPK-diskur Ske og
Halls Ingólfssonar með tónlist
frá Íslenska dansflokknum nán-
ast alltaf ratað á spilarann á ein-
hverju tímabili. Svo Radiohead,
Curtis Mayfield – Superfly, fer
eftir stemmningu.
Hvaða plötu setur þú á á sunnu-
dagsmorgni?
Jää Jumalaga Eestimaa – Väik-
este Kootspillide Uhing. Ég er
ekki viss hvort er titillinn og
hvort er flytjandinn. Tvöfaldur
diskur sem eistneskur leikari
gaf mér í Tallinn árið 2002. Disk-
urinn er settur á að frumkvæði
sex ára sonar míns sem er harð-
skeyttur Geirfuglaaðdáandi og
var látinn hlusta á rímur sem
kornabarn í vísindaskyni. Þetta
eru gömul eistnesk sjómanna-
og fylleríslög sungin af dimm-
radda karlmönnum sem spila á
100 ára gamlar harmonikur,
mandólín, fiðlur og fleira. Þegar
börnin leyfa manni ekki að sofa
út er ekki annað að gera en að
játa sig sigraðan og taka daginn
með trompi með espressó og
kósakkadansi.
Hver er fyrsta platan sem þú
keyptir þér?
Líklega hefur það verið U2 – War
sem ég keypti fyrst sjálfur. Dur-
an Duran-plötur voru afmælis-
eða jólagjafir.
Þetta vil
ég heyra
Andri Snær Magnason
…DÓMARI í
Las Vegas hefur
fallist á kröfu
poppstjörnunnar
Britney Spears
um að ógilda
hjónaband sem
hún gekk í ásamt
vini sínum, Jason
Allen Alexander,
aðfaranótt laugardags. Í kröfu
Spears segir, að hún hafi ekki gert
sér grein fyrir gerðum sínum og því
hafi hún ekki verið fær um að sam-
þykkja giftinguna. Spears og Alex-
ander voru því gift í 55 klukkustundir
en það tók dómarann aðeins 2 stundir
að taka ákvörðun. Hugsanlega er um
að ræða stysta hjónaband í sögu Las
Vegas.
„Það er ekkert hjónaband í gildi,“
sagði David Chesnoff, lögmaður
Spears. „Jason var þessu fullkomlega
samþykkur. Þau hafa tekið viturlega
ákvörðun. Ég veit að þeim þykir vænt
hvoru um annað. Þau eru vinir.“
Britney og Jason eru bæði frá sama
bænum í Louisiana og eru jafnaldrar,
22 ára. Brúðkaupið fór fram klukkan
5:30 sl. laugardagsmorgun í kapellu í
Los Angeles. Chesnoff segir að
Spears hafi ekki verið undir áhrifum
áfengis. AP-fréttastofan hefur eftir
vini Spears, að henni hafi hins vegar
verið brugðið þegar hún vaknaði síð-
ar um morguninn og gerði sér grein
fyrir því að hún var löglega gift.
Alexander segir að þeim Spears hafi
dottið í hug að gifta sig fyrr um nótt-
ina. „Þetta var algert brjálæði,“ sagði
hann við Access Hollywood í gær-
morgun. „Og við horfðum á hvort
annað og sögðum: Gerum eitthvað
brjálæðislegt. Giftum okkur, bara
fyrir grínið.“
Í dómkröfu Spears segir m.a: „Áður
en þau gengu í hjónaband þekktu
stefnandi og stefndi ekki tilfinningar
hvort annars, vissu ekki hvort þau
vildu eignast börn eða hvar þau vildu
búa. Eftir að hafa fengið nánari vitn-
eskju um þetta kemur í ljós að þessar
langanir eru svo ósamrýmanlegar, að
ljóst er að gagnkvæman skilning
skorti á ástæðum þess að þau gengu í
þetta hjónaband.“ …Shezat Eikem-
eier, öðru nafni Shelvis, freistar þess
nú að setja nýtt heimsmet í Presley-
lagasöng. Shelvis situr nú í glugga í
húsnæði útvarpsstöðvar í Hamborg í
Þýskalandi og baular Presleylög sem
mest hann má og ætlar að gera fram
á fimmtudag, 8. janúar, en þann dag
hefði Elvis Presl-
ey orðið 69 ára
hefði hann lifað.
Núgildandi met,
sem skráð er í
heimsmetabók
Guinness, er 25
klukkustundir, 33
mínútur og 30
sekúndur …R og
B stjarnan Usher gefur út nýja plötu
næsta mars og kallast hún Confess-
ions. Á meðal uppstökustjóra eru
Neptunes og R. Kelly. Usher segist
ætla að reyna nýja hluti á þessari
plötu, taka skref fram á við til móts
við nýja og spennandi heima.
FÓLK Ífréttum
NÆSTA plata múm mun heita
Summer Make Good og kemur hún
út í byrjun apríl á vegum Fat Cat
Records. Platan er tilbúin, var
hljómjöfnuð í desember og eftir það
skelltu meðlimir sér í jólafrí.
Upptökur fóru m.a. fram í Garð-
skagavita. Það mætti halda að múm
væri orðin hugfangin af vitum sem
ákjósanlegum hljóðverum en síðasta
plata, Loksins erum við engin eða
Finally We Are No One, sem út kom
í fyrra, var að miklu leyti tekin upp í
Galtarvita.
„Okkur vantaði nú bara húsnæði,
í nálægð við Reykjavík,“ segir
Gunnar Tynes múm-ari og lýsir
þessu sem helberri tilviljun. „Síðan
fengum við þetta frábæra hús þarna
í Garði og fengum meira að segja að
vera þarna í boði bæjarins.“ Plötuna
tók sveitin upp með Orra Jónssyni,
sem m.a. skipar dúettinn Slowblow
ásamt Degi Kára Péturssyni.
„Með honum tókum við upp „lif-
andi“ hljóðfæraleik á segulband og
blönduðum því svo saman við það
sem við vorum tilbúin með á tölv-
um,“ segir Gunnar.
Það eru Örvar Þóreyjarson
Smárason og Kristín Valtýsdóttir
sem skipa múm ásamt Gunnari en
með þeim í upptökum voru þau Ei-
ríkur Ólafsson, Ólöf Arnalds og
Samuli Kosminen. Þau hafa einnig
leikið með tríóinu á tónleikum und-
anfarin misseri.
„Upptökur gengu bara mjög vel,“
segir Gunnar.„Kannski var þetta
helst til mikil törn en það spillti þó í
engu fyrir.“
Gunnar á erfitt með svör hvað
tónlistina varðar, segir hana mögu-
lega vera lágstemmdari en áður.
„Við vildum líka fá skítugan hljóm
með segulbandinu. Hafa þetta „lif-
andi“.“
Suðvestanátt
Orri segir að múm-liðar hafi ósk-
að eftir samstarfi og það hafi reynd-
ar staðið til lengi að gera eitthvað.
„Örvar spilaði með mér og Degi á
fremur skrautlegum tónleikum í
L.A. árið 2000. Svo léku nokkrir
múm-liðar með okkur í Slowblow á
tónleikum milli jóla og nýárs árið
2002,“ segir hann og rifjar upp
kynnin.
„Við vorum með allar græjur með
okkur í þessu húsi þarna við Garð-
skagavita,“ útskýrir hann. „Þetta var
stíf törn í sex til sjö vikur og lítið um
frí. Þau voru búin að vinna slatta á
Pro-Tools og ég kom með sextán
rása upptökutæki. Lifandi upptökur
voru svo keyrðar saman við tölvu-
dæmið. Það sem setti helst strik í
upptökurnar var þegar suðvestan-
áttin varð sterk. Þá kólnaði tækið
mitt og vann hægar. Þá fór allt sam-
ræmi á milli tölvanna og lifandi hljóð-
færa út um gluggann. Þegar allt var
klárt hljóðblönduðum við þetta síðan
í Sundlauginni hjá Sigur Rós.“
Orri segir að Slowblow
og meðlimir múm hafi verið
að rotta sig saman að und-
anförnu. M.a. syngur Krist-
ín inn á væntanlega Slow-
blowplötu, sem út kemur í
ár.
Hann vill sem minnst
segja um tónlistina sem til
varð í Garði, hljóðheimur
múm hafi þó tekið ein-
hverjum óræðum breytingum.
Forsmekkurinn að plötunni verð-
ur tveggja laga smáskífa með einu
lagi af plötunni og einu nýju. Gunn-
ar hefur á orði að ekkert eitt lag
hafi verið augljóst smáskífulag
þannig að þau hafi bara pikkað út
eitthvað.
Gunnar segir að í apríl taki við
fimm mánaða tónleikaferðalag út
um allar trissur. Síðar á árinu kem-
ur svo út stuttskífa með lagi af plöt-
unni og þremur til fjórum nýjum
lögum.
Þriðja breiðskífa múm kemur út í apríl
Sumarið góða
arnart@mbl.is
LEIÐTOGI Blur, Íslandsvinurinn Damon Albarn
(og einn af þeim örfáu sem eru réttnefndir) hefur
nýverið sett á laggirnar eigin
útgáfu, Honest Jons Records.
Er það gert í góðu samstarfi við
samnefnda plötubúð í Lundún-
um. Damon gaf t.d. út plötu
Einars Arnar, Ghostigital á
þessu merki og einnig plötu
með Terry Hall (Specials, Fun
Boy Three, Colourfield) sem hann gerir ásamt as-
ísk-innblásnu sveitinni Mushtaq. Rétt fyrir jól kom
svo sólóplata Damons, Democrazy.
Það er reyndar fullmikið að kalla Democrazy eig-
inlega breiðskífu eða hljóðverskífu. Þetta er safn af
prufuupptökum („demo“) sem Damon setti á band á
síðasta tónleikaferðalagi Blur í Bandaríkjunum sem
fram fór fyrr á þessu ári. Oft eru þetta lagabútar,
stundum meira en það en öllu þessu er ætlað að
gefa mynd af því hvernig lagasmiðurinn Damon,
sem þykir einn sá snjallasti í Bretlandi samtímans,
grófvinnur hugdettur og hugmyndir. Platan var
eingöngu pressuð í 5000 eintökum og gefin út á for-
láta, tvöfaldri tíutommu í mjög svo skemmtilegum
og frumlegum umbúðum.
Albarn er enginn nýgræðingur í sólóvinnu og hef-
ur sinnt margs konar vinnu meðfram Blur; heims-
tónlistarverkefnið Mali Music t.d., þá hipp-popp
sveitin Gorillaz og hann hefur einnig sinnt ýmiskon-
ar vinnu við kvikmyndatónlist.
Democrazy var tekin upp á hótelherbergjum á
fjögurra rása segulband. Lögin eða lagaskissurnar
eru fjórtán, einskonar „laga-dagbók“.
„Þetta er hráasta „lo-fi“ plata sem gerð hefur
verið,“ segir Damon sjálfur um plötuna og hefur
reyndar viljað nefna þetta „no-fi“.
„Hugmyndin var að hrista aðeins upp í brans-
anum. Mér fannst áhugavert að leyfa fólki að heyra
ákveðinn þátt í
tónlistargerð sem
það heyrir eigin-
lega aldrei.“
Af Blur er það
svo að frétta að
það er mikið
stuð í þeim her-
búðunum, enda
nýjustu plötunni víðast hvar verið
vel tekið og tónleikaferðalagið er búið að vera giftu-
ríkt. Albarn segir bjartsýni nú ríkjandi og þeir fé-
lagar stefni ótrauðir á stuttskífu á þessu ári. Mögu-
legt er að eitt lag af Democrazy, „Sub Species Of An
American Day“ verði þar í breyttu formi.
Damon Albarn gerir Democrazy
Band-vitlaus
arnart@mbl.is
www.noisedfisk.com/mumweb/
www.randomsummer.com
www.damon-albarn.com