Morgunblaðið - 07.01.2004, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 07.01.2004, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Næring ekki refsing BANDARÍSKA leyniþjónustan CIA, hefur keypt íslenska atferlisrannsóknarhugbún- aðinn Theme sem Magnús S. Magnússon, forstöðumaður rannsóknarstofu um mannlegt atferli við Háskóla Íslands, hef- ur verið að þróa sl. 25–30 ár. Hugbúnaður- inn var hannaður til að leita að huldum munstrum í mannlegu atferli en að sögn Magnúsar gæti hugbúnaðurinn hugs- anlega nýst CIA í leit þess að hryðjuverka- mönnum. CIA gaf þó ekki upp hvernig stofnunin hygðist nota hugbúnaðinn. „Það kom okkur mjög á óvart þegar pöntun kom frá CIA. Þeir voru kannski ekki markhópurinn sem við höfðum haft í huga. Það er samt í sjálfu sér rökrétt að nýta megi þennan hugbúnað á þessu sviði, og hefur öðru hverju komið til tals,“ sagði Magnús. Hugbúnaðurinn hefur að sögn Magn- úsar nýlega verið markaðssettur í 70 lönd- um og rannsóknarteymi í háskólum víða um heim sinna rannsóknum byggðum á hugbúnaðinum og þeirri aðferðafræði sem Magnús hefur þróað. Aðspurður segir Magnús að hugbún- aðurinn virðist enn hafa sérstöðu í heim- inum þar sem minni framfarir hafa orðið í þróun aðferðafræði af þessu tagi, og þeim hugbúnaði sem þetta krefst, en við hefði mátt búast, sl. 20–30 ár. CIA getur leitað hryðjuverka- manna með ís- lenskum búnaði LÖGREGLAN handtók í gær mann sem kom og vitjaði um vörusendingu sem í höfðu verið falin um það bil tíu kíló af hassi. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins barst vörusendingin til landsins snemma í desem- ber og fannst þá hassið og hefur lögreglan því um alllanga hríð beðið eftir að eigandi sendingarinnar kæmi og sækti hana. Ekki liggur fyrir hvort fleiri aðilar tengj- ast málinu en sá sem nú hefur verið hand- tekinn. Fíkniefnalögreglan varðist allra frétta af málinu. Mikið magn af hassi í vörusendingu HÚNI KE, sex tonna bátur, sökk í gærkvöldi 20 sjómílur norðvestur af Garðskaga. Einn maður var um borð og sat hann jökulkaldur á stefni bátsins sem maraði í hálfu kafi þegar Sólborgin RE kom að slysstaðnum. „Það var bara blánefið á bátnum upp úr og þar sat hann. Báturinn seig upp og niður og hann var alveg orðinn dofinn fyrir neðan mitti,“ segir Ásgeir Baldursson, skipstjóri á Sólborg- inni. Ásgeir segir manninn ekki hafa komist í flot- galla þar sem óhappið hafi borið svo brátt að. Þeir hafi kastað til hans björgunarhring, mað- urinn hafi getað smeygt honum yfir sig og þeir dregið hann að Sólborginni. „Hann var orðinn svo þrekaður að hann gat ekkert hreyft sig og það þurfti fjóra menn til þess að kippa honum um borð. Hann var svo dofinn að hann hefur ábyggilega ekkert fundið fyrir fótunum,“ segir Ásgeir. Sólborgin var á leið inn til Sandgerðis með skipverjann af Húna undir miðnætti í gærkvöldi og sagði Ásgeir hann vera farinn að hressast: „Við settum hann í heita sturtu, gáfum honum kaffi og heita súpu og hann er allur að bragg- ast.“ Það var kl. 19.47 að Húni datt út úr sjálfvirkri tilkynningarskyldu. Eftir að Húni hafði ekki svarað ítrekuðum köllum Reykjavíkurradíós og ekki var svarað í farsíma um borð var haft sam- band við nærstadda báta og skip og þau beðin um að svipast um eftir honum. Sólborgin var næst slysstað í fimm sjómílna fjarlægð og kom hún kl. 21.03 að Húna. Tog- arinn Vigri var einnig í nágrenni slysstaðarins og kom að um líkt leyti og Sólborgin. Mannbjörg er Húni KE sökk um tuttugu sjómílur norðvestur af Garðskaga Sat jökulkaldur og hálfur í sjó á blástefninu Ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson Ingibjörg Hafliðadóttir fagnar eiginmanni sín- um, Sævari Brynjólfssyni, skipverja af Húna KE, við komuna til Sandgerðis á miðnætti. ÞAÐ vantaði ekki hátíðleikann á þrettánda- brennunni við Ægisíðu í gærkvöldi en þar komu saman í blysför nemendur úr Melaskóla, Vesturbæjarskóla og Grandaskóla ásamt for- eldrum sínum og sungu og trölluðu. Álfahirð kom einnig í heimsókn á hestum og söng með krökkunum sem nutu aðstoðar harmonikku- leikara sem lék á als oddi. Krakkarnir í Grandaskóla tóku auk þess fyrstu sjö erindin í Ólafi Liljurós sem fjallar um misjöfn samskipti manna og álfa. Jólin voru kvödd með mikilli gleði og látum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Álfareið á Ægisíðu NOKKRIR bílar keyrðu fram hjá jeppabifreið á hvolfi sem oltið hafði við hringveginn um 10 kíló- metra austur af Kirkjubæjar- klaustri á þriðja tímanum í gær en í henni sat móðir föst með tvo unga syni sína í einar 5–10 mín- útur án þess að þeim væri komið til hjálpar. „Ég held að ég hafi að minnsta kosti séð eina fjóra eða fimm bíla keyra fram hjá en svo sneri ég baki í veginn af því ég var að reyna að skorða syni mína af og þá sáu þeir enn einn bílinn keyra fram hjá án þess að stoppa. Þeir voru mjög hræddir af því að þeir voru lokaðir svona inni,“ seg- ir Helga Björg Ragnarsdóttir frá Egilsstöðum en hún var á ferð með synina, 3 og 4 ára, þegar hún missti skyndilega stjórn á jeppa- bifreið sinni í mikilli ísingu. Bif- reiðin kastaðist út fyrir veginn og hafnaði á toppnum. „Hurðirnar voru fastar og ég komst ekki út en það var brotinn gluggi sem eldri sonur minn náði síðan að skríða út um þegar hann fór að ókyrrast mjög en ég gat ekki komið hinum út vegna glerbrota og gaddavírs. Sjálf komst ég ekki út fyrr en að- stoð barst,“ segir Helga. Að lokum voru það bændur á nærliggjandi bæ, sem áttu leið þarna um, sem komu mæðgin- unum til aðstoðar. Helga og synir hennar voru flutt með sjúkra- bifreið á heilsugæslustöðina á Klaustri þar sem hugað var að þeim. Þau sluppu svo til ómeidd og er það þakkað því að dreng- irnir voru á sérstökum púðum, spenntir í öryggisbelti og móðir þeirra var sömuleiðis með bílbelti spennt. Jeppinn var aftur á móti mjög illa farinn og gekk þak hans langt niður. Helga segir skyggni hafa verið gott og að stefnu- eða viðvörunar- ljós á þeirri hlið jeppans sem sneri að veginum hafi verið blikk- andi. „Það átti því að vera nokkuð augljóst að það var fólk þarna inni ef menn hefðu aðeins litið í áttina til okkar. Eftir að okkur var hjálpað sat ég í bíl við veginn og þá sá ég vel inn í minn bíl. Mér finnst þetta alveg ótrúlegt.“ Lögreglan á Klaustri segir það umhugsunarvert að engir hafi sinnt konunni og sonum hennar þar sem bifreið þeirra lá á toppn- um utan vegar eftir að slysið varð. Sátu föst en bílarnir óku hjá LOÐNUVERTÍÐN fór vel af stað í gær og fengu nokkur skip góðan afla. Það voru þó aðeins flottrollsskipin sem gátu stundað veiðarnar í gær en loðnan er nokkuð dreifð og stendur djúpt og því næst ekki til henn- ar með nót. Ingunn AK landaði fyrsta loðnuafla árs- ins í Neskaupstað í gær þegar hún kom þar til hafnar með um 100 tonn. Aflinn fór að mestu til bræðslu hjá Síldarvinnslunni en þó var hluti aflans tekinn til frystingar fyrir Austur-Evrópumarkað. Að sögn Freysteins Bjarnasonar, útgerðarstjóra Síldarvinnslunnar, gengu veiðarnar vel hjá skipum félagsins norðaustur af Langanesi í gær. Fyrsta loðna ársins á land Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Ingunn AK landar fyrstu loðnunni í gær. ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.