Morgunblaðið - 09.01.2004, Page 1
MBA-nemendur við HÍ á ólíkum aldri
og úr öllum áttum Daglegt líf
Hristir upp í
heilafrumum
Í leit að lífs-
hamingju
Leikritið Eldað með Elvis frum-
sýnt í Loftkastalanum Listir
Fólkið í dag
Móna Lísa brosir breitt Útgáfan
og græjurnar Gjafmildur ljós-
myndari Sjónarhorn Ástkon-
ur á sviðinu Berir að ofan
SAMSTAÐA virðist vera um það á norska
Stórþinginu að samræma eftirlaunakerfi
þjóðarinnar sem þýðir, að eftirlaunarétt-
indi þingmanna, ráð-
herra og annarra fríð-
indahópa verði skert.
Kjell Magne Bonde-
vik forsætisráðherra
sagði í fyrradag, að
breyta ætti eftirlauna-
réttindum þingmanna
þannig að þau yrðu lík
því, sem almennt gerð-
ist, og hafa talsmenn
flestra annarra flokka,
utan stjórnar sem inn-
an, lýst yfir stuðningi við það. Mun eft-
irlaunanefnd þingsins skila af sér tillögum
í næstu viku og fullyrt er í Aftenposten, að
þær muni einmitt lúta að þessu. Hefur hún
sérstaklega tekið til athugunar þá hópa í
samfélaginu, sem njóta meiri réttinda en
landsmenn almennt.
Einn megintilgangur væntanlegra um-
bóta er að koma á þjóðarsátt um eft-
irlaunamálin./14
Eftirlaun þing-
manna í Noregi
verði skert
Kjell Magne
Bondevik, forsætis-
ráðherra Noregs.
VINNUEFTIRLIT ríkisins varð að fresta
morgunverðarfundi um veikindafjarvistir,
sem halda átti á Grand Hóteli í dag.
Ástæðan er sú, að sögn Ásu G. Ásgeirs-
dóttur, verkefnisstjóra hjá Vinnueftirlit-
inu, að aðalfyrirlesarar fundarins, hjón
frá Svíþjóð, boðuðu forföll á síðustu
stundu vegna veikinda. Ekki mun um al-
varleg veikindi að ræða.
Fyrirlestur hjónanna bar heitið „Vinnu-
tengdir heilsufarskvillar – möguleikar á
forvörnum og endurhæfingu“.
Auk þeirra átti Kristinn Tómasson, yf-
irlæknir Vinnueftirlitsins, að halda fyr-
irlestur um veikindafjarvistir nokkurra
starfshópa hér á landi.
Veikindafundi frest-
að vegna veikinda
FJÖLDI íbúa höfuðborgarsvæðisins mun
ná 200 þúsundum eftir fjögur ár, standist
spár um náttúrulega fjölgun og búferla-
flutninga, byggðar á þróun áranna 1995 til
2000, segir Bjarni Reynarsson, skipulags-
fræðingur hjá Land-ráð. Íbúar á höf-
uðborgarsvæðinu voru 181.746 1. desem-
ber 2003, og hafði þeim fjölgað um 2.112
frá sama tíma árið 2002, en það er fjölgun
um 1,18%. Íbúar á landinu öllu voru
290.490 í desember 2003, og búa því um
63% landsmanna á höfuðborgarsvæð-
inu./20
Um 200.000 höfuð-
borgarbúar 2008
INNAN tíðar munu við-
skiptavinir norska flug-
félagsins Norwegian geta
keypt farmiða og innritað
sig í flug með farsímanum
sínum. Búist er við að kerf-
ið verði tekið í notkun um
mitt árið en með því verður
hægt að bóka flug, borga
fyrir það og innrita sig
með því að senda smáskila-
boð (SMS).
Kaupa flugfarmiða
með SMS-boðum
Osló. AP.
BENSÍNVERÐ á sjálfs-
afgreiðslustöðvum olíufélaganna
lækkaði um tvær til þrjár krónur í
gær í kjölfar þess að Atlantsolía
hóf að selja bensín á afgreiðslu-
stöð sinni við Kópavogsbraut um
miðjan dag. Bensínlítrinn kostar
nú minnst hjá Orkunni við
Skemmuveg í Kópavogi, 91,4 kr.
lítrinn, en á öðrum stöðvum Ork-
unnar 92,4 kr. Á sjálfsafgreiðslu-
stöðvum ÓB, Esso Express og
Atlantsolíu kostar lítrinn 92,50 kr.
Algengasti verðmunurinn er því
tíu aurar. Orkan lækkaði sitt verð
á 95 oktana bensíni um rúmar
tvær krónur en ÓB og Esso Ex-
press um rúmar þrjár krónur. Á
afgreiðslustöðvum olíufélaganna,
sem bjóða upp á fulla þjónustu,
kostar lítrinn af 95 oktana bensíni
100,9 kr.
Sigurður Geirdal, bæjarstjóri
Kópavogs, opnaði fyrstu bensín-
afgreiðslu Atlantsolíu formlega í
gær og dældi fyrstu lítrunum.
Hugi Hreiðarsson markaðsstjóri
segir að viðbrögðin hafi verið
mjög góð og margir þakkað fyrir
þessa kjarabót. Hann hafi búist
við því að olíufélögin lækkuðu sín
verð til jafns við verð Atlantsolíu.
Það sé þeirra leið til að viðhalda
fákeppni en valdið sé neytenda og
í þeirra þágu að versla við þá sem
raunverulega lækka bensínverðið.
Engin teikn hafi verið um verð-
lækkun fyrir gærdaginn.
Gunnar Skaptason hjá Orkunni
segist fylgja verðstefnu síðustu
átta ára að bjóða viðskiptavinum
alltaf lægsta eldsneytisverðið.
Samkeppnisaðilarnir viti að Orkan
lækki verð fari þeir neðar með sitt
verð. Orkan geri út á það að vera
lægst og líka langlægst – og vísar
hann þá til afgreiðslustöðvarinnar
við Skemmuveg þar sem bensín-
lítrinn er seldur á 91,4 kr.
Heimir Sigurðsson hjá Esso
Express segir að þeirra viðskipta-
vinir eigi að geta gengið að því
vísu að fá hagstætt verð á bensíni.
Því sé brugðist við þegar sam-
keppnisaðilar lækki sitt verð.
Núna komi Atlantsolía af stað
ákveðnum breytingum á verðinu
en hingað til hafi þrjú félög verið í
mikilli samkeppni í rekstri sjálfs-
afgreiðslustöðva. Hann segir sam-
keppnina því ekki vera nýja af nál-
inni.
Helga Friðriksdóttir hjá ÓB
segir alltaf boðið upp á samkeppn-
ishæft verð á afgreiðslustöðvum
ÓB og því verði haldið áfram. Þar
af leiðandi hafi verið ákveðið að
lækka verð á bensíni um leið og
samkeppnisaðilarnir.
Lítrinn lækkaði um 2–3 krónur í kjölfar þess að Atlantsolía hóf bensínsölu
Barátta á bensínmarkaði
Morgunblaðið/Ásdís
Atlantsolía hóf sölu á bensíni í gær og kostaði lítrinn þar 92,50 kr. Önnur olíufélög brugðust við og lækkuðu
verð á á sjálfsafgreiðslustöðvum. Með fullri þjónustu kostar lítrinn af 95 oktana bensíni yfir 100 kr.
Lægst verð hjá
Orkunni í Kópa-
vogi í gærkvöldi
BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar sam-
þykkti í gær að leggja til við bæj-
arstjórn að selja Alcan í Straums-
vík 52 hektara lands sunnan og
austan við núverandi athafna-
svæði álversins. Fyrir liggur
kaupsamningur og er kaupverðið
um 300 milljónir króna.
Hrannar Pétursson, upplýs-
ingafulltrúi Alcan á Íslandi, segir
fyrirtækið nokkuð lengi hafa haft
augastað á þessu landi og viljað
tryggja sér það. Þó séu engin sér-
stök áform um nýtingu þess held-
ur sé verið að horfa til framtíðar.
Alcan sé ekkert nær því að auka
við umsvif sín á Íslandi nú en áð-
ur.
Stækkun álversins í Straumsvík
fór í gegnum mat á umhverfis-
áhrifum um mitt ár 2002. Nú er
verið að meta alla kosti innan Alc-
an-samsteypunnar varðandi fram-
tíðaráform félagsins.
Starfsemi álversins í dag er á
um 40 hektara landi en nýja land-
ið er á móti því, hinum megin við
Reykjanesbrautina. Fyrir á Alcan
þar um 200 hektara land sem nær
langt upp í hraunið. Samanlagt
landsvæði í eigu Alcan sunnan
Hafnarfjarðar er því tæpir 300
hektarar.
Alcan tryggir sér auk-
ið land í Straumsvík
Landið sem Alcan hefur tryggt sér er sunnan og austan við álverið í Straumsvík.
ÞEIR sem reykja sígarettur
með litlu tjöruinnihaldi eiga
alveg jafn mikið á hættu að fá
lungnakrabbamein og þeir
sem reykja vindlinga með
miðlungsmiklu tjöruinni-
haldi. Þetta er niðurstaða
fyrstu stóru rannsóknarinnar
þar sem skoðað er hvaða
áhrif mismunandi magn tjöru
í sígarettum hefur á heilsuna,
en hún var birt í British Medi-
cal Journal um helgina.
Í rannsókninni, sem tók til
tæplega milljónar manna og
gerð var á sex ára tímabili á
níunda áratugnum, kemur
fram að dauðsföll vegna
lungnakrabba voru jafn-
algeng hjá fólki sem reykti
sígarettur með mjög litlu
(minna en 7 mg) og miðlungs-
miklu (15–21 mg) tjöruinni-
haldi. Hins vegar voru þeir
sem reyktu sígarettur án síu
og með miklu tjöruinnihaldi
(meira en 21 mg) í mun meiri
hættu, líkurnar á að þeir
dæju úr lungnakrabba voru
44% meiri en hjá hinum hóp-
unum.
Allt sama
tóbakið
París. AFP.
STOFNAÐ 1913 8. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is