Morgunblaðið - 09.01.2004, Blaðsíða 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 23
DORRIT Moussaieff forsetafrú
verður verndari Siglingadaga
2004 á Ísafirði sem fram fara í
sumar og eru tíu daga hátíð-
arhöld, helguð sjósporti.
Dorrit, sem er mikil áhuga-
manneskja um siglingar og vat-
naíþróttir of fór m.a. á sjóskíði á
Ísafirði í fyrra, mun verða andlit
daganna út á við og setja hátíðina
sem hefst föstudaginn 16. júlí og
stendur til 25. júlí.
Úlfar Ágústsson, fram-
kvæmdastjóri Siglingadaganna á
Ísafirði, segir ánægju ríkja með
að fá Dorrit á hátíðina. „Það er
okkur mikill heiður að hún sýni
okkur þennan virðingarvott,“
segir Úlfar. „Vestfirskar konur
eru sterkari en annars staðar á
Íslandi og þess vegna vildum við
gjarnan fá Dorrit sem fulltrúa,
þar sem hún hefur sýnt það í
þeim ferðum sem hún hefur átt til
Vestfjarða að hún er kraftmikil
og dugleg kona sem nýtur mik-
illar virðingar,“ segir Úlfar.
Einnig var gengið frá því ný-
lega að samgönguráðherra,
Sturla Böðvarsson, kæmi að ráð-
stefnu um siglingaleiðina milli Ís-
lands og Grænlands, sem haldin
verður í tengslum við hátíðina.
Þar munu innlendir og erlendir
sérfræðingar fjalla um þessa
hættulegu siglingaleið. „Þetta er
ein hættulegasta siglingaleið í
heiminum bæði vegna veðurfars
og ísreks, en nú er ísinn að hörfa
vegna hlýnunar andrúmsloftsins,“
segir Úlfar og tekur fram að ráð-
stefnan sé ætluð þeim sem hafa
áhuga á því að sigla um þetta haf-
svæði, þar sem þeir geta fengið í
einu lagi upplýsingar um veð-
urfar, sjólag og ísrek og mögu-
leika til afþreyingar á Austur-
Grænlandi. Að lokinni ráðstefn-
unni er áætlað að skemmtibátar
fari í siglingu yfir sundið til Aust-
ur-Grænlands og skoði það sem
landið hefur að bjóða.
Forsetafrúin verndari
Siglingadaga 2004
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Egilsstaðir | Haus af hreinkú, sem
fannst í Oddsdal í Norðfirði fyrir fá-
einum vikum, er nú til skoðunar á
Keldum.
Hafði maður séð dýrið steypast
fram af barði og lá það dautt eftir.
Þegar nánar var að gáð mátti sjá á
vinstri vanga þess risavaxið kýli sem
náði frá eyra fram á snoppu. Hefur
það ekki getað bitið fyrir kýlinu og
því veslast upp af hungri. Auk þess
hefur það varnað dýrinu sjónar á
vinstra auga. Hreinkýr hafa áður
fundist með kýli á höfði, en ekki er
enn vitað hvað veldur.
Skarphéðinn Þórisson hjá Nátt-
úrustofu Austurlands, sem sendi
hausinn að Keldum til rannsóknar,
segir kýlið vera n.k. blóðfylltan kepp
sem himna hafi myndast yfir og eins
og þétt, vökvafyllt blaðra. Orsökin
liggi þó ekki ljós fyrir.
Reiknað er með að niðurstaða
rannsóknar á Keldum liggi fyrir á
næstu dögum.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Fannst í Norðfirði: Hreinkýr með
ljótt kýli. Hausinn nú til rannsóknar
á Keldum.
Orsaka leit-
að fyrir
kýlamyndun
á hreinkýr
10. janúar 2004
Hvað er hér í gangi?