Morgunblaðið - 09.01.2004, Blaðsíða 2
Halldór Björnsson
SAMNINGANEFNDIR Samtaka
atvinnulífsins (SA) og Starfs-
greinasambandsins (SGS) hittast í
dag í húsakynnum Ríkissáttasemj-
ara til að ræða komandi kjara-
samninga, en í fyrradag átti SA
fund með samninganefnd Flóa-
bandalagsins svonefnda. Starfs-
greinasambandið átti svo sinn
fyrsta fund með samninganefnd
ríkisins á miðvikudag.
Framkvæmdastjórn Starfs-
greinasambandsins kom saman til
fundar í gær og að því loknu hitt-
ist stóra samninganefnd sam-
bandsins með formönnum allra að-
ildarfélaga.
Viðræður verða í sama
farvegi á næstu dögum
Halldór Björnsson, formaður
SGS, segir að á fundinum hafi ver-
ið farið yfir stöðu mála og rætt um
einstaka þætti í samningagerðinni
til að upplýsa um gang mála. Við-
ræðurnar muni halda áfram í sama
farvegi næstu dagana. „Það er nú
að koma miður janúar og það er
eins og gengur og gerist að fólk
verður óþolinmótt ef ekki fer eitt-
hvað að ganga,“ sagði Halldór.
„Ég get ekki ímyndað mér ann-
að en málið hljóti að liggja nokkuð
skýrt fyrir kannski í lok næstu eða
þarnæstu viku. Það getur ekkert
annað verið. Menn verða þá bara
að fara að taka ákvarðanir um
hvað þeir ætla að gera,“ sagði
Halldór ennfremur.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, segir að
eftir áramót hafi áhersla verið lögð
á viðræðurnar við verkalýðsfélög-
in. Vinna sé í gangi milli aðila,
einkum vegna afmarkaðra starfs-
hópa innan Starfsgreinasambands-
ins og Flóabandalagsins. Ari segir
viðræðurnar til þessa hafa gengið
eftir áætlun. Ekki sé enn farið að
reyna á hvort samningar náist án
átaka.
Að sögn Ara fer mest vinna
núna í að ræða kröfur verkalýðs-
félaganna um nýja launatöflu, þar
sem farið er fram á fleiri launa-
flokka og -þrep.
Iðnaðarmenn bætast við
„Það sér ekki fyrir endann á
þessari vinnu og óljóst er hvenær
við förum að ræða heildarlínur í
samningunum eða heildarkostnað.
Ég geri ráð fyrir að viðræðurnar
verði á þessu sviði í janúar en um
mánaðamótin fara iðnaðarmenn að
bætast í hópinn,“ segir Ari og á
þar m.a. við Samiðn, Matvís og
Rafiðnaðarsambandið í tengslum
við nýjan virkjanasamning. Renna
samningar félagsmanna í þessum
samtökum út um næstu mánaða-
mót.
SA og Starfsgreinasambandið ræða launatöflur
Óþolinmæði ef ekki
fer eitthvað að ganga
Ari Edwald
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VÍSAR ÁSÖKUNUM Á BUG
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
vísar á bug ásökunum um ritstuld
eða óheiðarleg vinnubrögð í bók
sinni Halldór, fyrsta bindi ævisögu
Halldórs Kiljans Laxness.
Bensínstríð er hafið
Barátta er hafin á bensínmarkaði
eftir að Atlantsolía hóf bensínsölu á
afgreiðslustöð sinni við Kópavogs-
braut í gær. Lítrinn lækkaði um
tvær til þrjár krónur á sjálfs-
afgreiðslustöðvum bensínstöðvanna.
Bensínlítrinn kostar nú minnst hjá
Orkunni við Skemmuveg í Kópavogi,
91,4 kr.
Leita sprengna í borgum
Sérfræðingar á vegum banda-
rískra stjórnvalda hafa undanfarið
kannað með leynd hvort hryðju-
verkamenn hyggist koma fyrir
geislavirkum sprengjum eða kjarn-
orkusprengjum í helstu stórborgum
landsins. Hafa þeir gengið um götur
með mælitæki sem greina slíkar víg-
vélar.
Alcan kaupir aukið land
Alcan hefur tryggt sér aukið land í
Straumsvík eftir að bæjarráð Hafn-
arfjarðar samþykkti í gær að leggja
til við bæjarstjórn að selja fyrirtæk-
inu 52 ha land sunnan og austan við
núverandi athafnasvæði álversins.
Kaupverðið er um 300 milljónir kr.
Mikil hálka
Mjög mikil hálka sem varað hefur
að undanförnu bitnar ekki síst á
eldri borgurum sem margir eiga erf-
itt með að komast leiðar sinnar.
Starfsmenn Gatnamálastofu borg-
arinnar hafa ekki haft undan að
sandbera gangstéttir. Fjölmargir
hafa leitað sér aðhlynningar á slysa-
deild, m.a. með beinbrot.
Samræmd eftirlaun í Noregi
Samstaða er um það á norska
Stórþinginu að samræma eft-
irlaunakerfi þjóðarinnar sem þýðir
að m.a. að eftirlaun þingmanna í
Noregi verði skert.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 37
Viðskipti 12 Viðhorf 38
Úr verinu 12 Minningar 39/50
Erlent 14/16 Kirkjustarf 51
Minn staður 18 Myndasögur 52
Höfuðborgin 20 Bréf 52
Akureyri 21 Dagbók 54/55
Austurland 22/23 Staksteinar 54
Suðurnes 22/23 Íþróttir 56/59
Landið 26 Leikhús 60
Daglegt líf27 Fólk 60/65
Listir 30/32 Bíó 62/65
Umræðan 32/33 Ljósvakamiðlar 66
Forystugrein 34 Veður 67
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is
Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport-
@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Innri maður Hjálm-
ars Hjálmarssonar
ekki ekki leikara
Framtíðarskóli Gerð-
ar G. Óskarsdóttur
Offita íslenskra
barna og unglinga
TÍMARIT
MORGUNBLAÐSINS
FYLGIR MORGUNBLAÐINU
Á SUNNUDAG
ÁSMUNDUR Stefánsson ríkis-
sáttasemjari segist í samtali við
Morgunblaðið vonast til þess að
sættir náist án átaka í viðræðum
Starfsgreinasambandsins og rík-
isins. Að öðru leyti geti hann ekki
tjáð sig um gang viðræðna.
Ásmundur segir miklar annir
framundan í gerð kjarasamninga
við fjölmargar starfsstéttir í þjóð-
félaginu. Á næstu vikum muni þeim
hópum fjölga sem fá fundaaðstöðu í
húsakynnum Ríkissáttasemjara við
Borgartún.
Formlega eru aðeins tvö mál í
gangi hjá sáttasemjara í dag. Auk
viðræðna Starfsgreinasambandsins
og ríkisins var deilu Lyfjafræðinga-
félags Íslands og ríkis vísað til emb-
ættisins í lok nýliðins árs. Ganga
þær viðræður aðallega út á að
koma á sjálfstæðum samningi lyfja-
fræðinga við ríkið, sem ekki hefur
verið við lýði til þessa.
Annir fram-
undan hjá
sáttasemjara
ÞAÐ er best að fara varlega eins og
tíðarfari er háttað nú og þarf ekki
brött þök til að fólk detti í hálkunni.
Þessir málarar höfðu greinilega
vaðið fyrir neðan sig og höfðu
bundið kaðal um sig miðja.
Morgunblaðið/Eggert
Hvatt til varkárni
24 ÁRA karlmaður, sem bjargað var
af botni Breiðholtslaugar í fyrra-
kvöld, liggur enn meðvitundarlaus í
öndunarvél á gjörgæsludeild Land-
spítalans við Hringbraut. Slysið varð
kl. 18.50 en ekki er ljóst hversu lengi
maðurinn hafði verið á botni laugar-
innar þegar hans varð vart.
Sundlaugargestur kom fyrst auga
á manninn og brá annar gestur þá við
og náði honum upp á bakkann. Þá
þegar var farin í gang neyðaráætlun
starfsfólks sem hringdi á sjúkrabíl og
hóf lífgunartilraunir. Maðurinn var
meðvitundarlaus á 180 cm dýpi þegar
hann fannst. Í lauginni er engin botn-
lýsing og segir Gunnar Hauksson for-
stöðumaður að ekki verði við svo búið
lengur. Gerð er krafa um að sett verði
lýsing í laugina í sumar.
Maðurinn
enn án með-
vitundar
Breiðholtslaug
Þriðja slysið/6
♦♦♦