Morgunblaðið - 09.01.2004, Síða 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Vinningar í jólahappdrætti
Sjálfsbjargar 2003
Dregið var 31. desember 2003
Fujitsu-Simens lifebook E4010v.
kr. 219.700
Vöruúttekt að eigin vali frá Kringlunni
að verðmæti kr. 40.000
2259 6892 29413 50834
Subaru Impreza Gx 2,0 kr. 2.280.000
35769 37750
113
1739
16416
17033
22088
26267
26876
27075
38100
38252
38436
39153
41337
42018
44708
44800
46858
51121
51654
52530
55621
56831
58010
60816
1123
2646
2704
3809
4871
4993
5040
5840
5978
6936
7630
9070
9406
9614
10034
11030
11651
11735
12500
12570
12701
12799
12890
13127
14513
14565
14725
14979
17191
17923
18028
18878
18951
19035
19549
22832
23330
23585
24676
31076
31506
32991
33776
35039
35081
35311
37700
39412
39876
40235
42431
43432
43591
43681
44273
47605
48262
49003
49665
49755
49795
49876
50513
51170
51723
52075
52950
54164
54338
55009
56470
56659
57066
58085
58743
61323
61987
62754
63555
63957
64440
64535
64553
64730
65609
66176
67711
68071
68565
Þökkum veittan stuðning
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra,
Hátúni 12, 105 Reykjavík, s. 552 9133.
Ferðavinningur með Úrval Útsýn
(leiguflug) að verðmæti kr. 160.000
MEÐALLESTUR á Morg-
unblaðinu og Fréttablaðinu eykst
lítið eitt en lestur á DV minnkar
samkvæmt könnun Gallup sem
fram fór fyrri hluta desem-
bermánaðar. Fyrri könnun, sem
miðað er við, fór fram í lok októ-
ber.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar var meðallestur á
Morgunblaðinu nú 52,8% og óx
um hálft prósentustig frá fyrri
könnun síðustu vikuna í október.
Lestur Fréttablaðsins óx einnig
lítillega á sama tíma og mældist
65,1% samanborið við 64,8% í
október. Meðallestur á DV minnk-
ar hins vegar um tæp 5 prósentu-
stig úr 19,8% í lok október í 14,9%
í desember síðastliðnum.
Könnunin náði til sjónvarps og
dagblaða og fór fram 3.–9. desem-
ber síðastliðinn. Úrtakið var valið
með tilviljunaraðferð úr þjóðskrá.
Könnunin náði til rúmlega 800
manna á aldrinum 12–80 ára og
var nettósvarhlutfall 58,5%.
74,4% lásu Morgunblaðið eitt-
hvað í umræddri viku, 88,2% lásu
Fréttablaðið eitthvað og 34,5%
lásu eitthvað í DV.
Áhorf á Stöð 2 vex
frá fyrri könnun
Sjónvarpsáhorf var einnig mælt
í könnuninni og horfðu 64,4% eitt-
hvað á Sjónvarpið og 68,3% eitt-
hvað um helgar. Þetta er ívið
minna en í fyrri könnun í lok
október því þá horfðu 65,6% eitt-
hvað á virkum dögum og 73,8%
eitthvað um helgina. Á Stöð 2
horfðu 52,6% eitthvað á virkum
dögum og 48,4% eitthvað um
helgina á laugardegi eða sunnu-
degi sem er nokkru meira en í
fyrri könnun þegar 46,9% horfðu
eitthvað á virkum dögum og
37,9% yfir helgina. Á Skjá einum
er áhorfið minna en í síðustu
könnun eða 32,2% virka daga en
var 37,8% í könnuninni í lok októ-
ber og 27,7% um helgar, en var
áður 36,6%.
Uppsafnað áhorf á fréttir
Stöðvar 2 eykst frá síðustu könn-
un úr 18,9% í 22,5%. 39,1% horfir
á fréttir, íþróttir og veður Sjón-
varpsins, sem er ívið minna en í
síðustu könnun þegar 41% horfðu
á fréttir sjónvarpsins. Mest er
horft á Spaugstofuna en 68,8%
horfa á hana og næstmest var
horft á Laugardagskvöld með
Gísla Marteini en 46,6% horfðu á
þann þátt. Á Stöð 2 er mest horft
á Idol stjörnuleit, 46,6%, og næst-
mest á atkvæðagreiðslu í sam-
bandi við hana, 35,4%. Þá horfa
27% á Kastljósið og 16,8% á Ís-
land í dag og svipað eða 16,6% á
Ísland í bítið. Survivor hefur mest
áhorf á Skjá einum og horfir
21,1% á þann þátt og litlu færri,
eða 20,9%, á Malcom in the
Middle.
!
"
!
!
!
!
" "
!
# $%
& $%
'(
52,8% lesa Morgunblaðið
á hverjum degi
SLYSIÐ í Breiðholtslaug á miðviku-
dagskvöld er hið þriðja í röðinni á
fimm mánuðum. Í ágúst 2003 lá
ungri telpu við drukknun þegar hún
hljóp út í laugina eftirlitslaust, en var
bjargað fljótlega upp á bakkann.
Hinn 11. nóvember varð enn alvar-
legra slys þegar aðeins munaði hárs-
breidd að 14 ára piltur, Þengill Otri
Óskarsson, drukknaði í lauginni og
lá hann í hálfan mánuð á gjörgæslu-
deild Landspítalans.
Gunnar Hauksson, forstöðumaður
Breiðholtslaugar, harmar ítrekuð
slys í lauginni að undanförnu en seg-
ir að eftirliti sé þannig háttað að
varla verði meira gert. Hins vegar
þurfi að setja lýsingu í botn laugar-
innar og gerir hann kröfu um að það
verði klárað í sumar. „Við verðum að
fá laugina í nútímalegra horf og
þetta er hlutur sem verður að taka
á,“ segir hann. Laugin er 23 ára
gömul og hefur undanfarin 4 ár verið
unnið að endurnýjun í vélasal henn-
ar.
Eftirlitið eflt í kjölfar
síðasta slyss
Eftir slysið í nóvember var eftirlit-
ið eflt enn frekar þótt það hefði verið
öflugt fyrir að sögn Gunnars. Breyt-
ingarnar fólu í sér að vaktmaður úr
baðklefa fer nú ávallt út í varðturn til
að leysa starfsbróður sinn af á með-
an hann fer út að hreinsa á sundlaug-
arbakkanum. Er því stöðug vakt úr
turni. Þessar breytingar leiddu þó
ekki til þess að slysið á miðvikudags-
kvöld uppgötvaðist af vaktmanni í
turni því sundlaugargestur varð
fyrst var við hreyfingarlausan mann-
inn á 180 cm dýpi og setti þá vakt-
maður í turni af stað neyðaráætlun,
sem gekk eins vel og til var ætlast að
sögn Gunnars. Þess ber að geta að í
slysinu í nóvember var það vaktmað-
ur í turni sem kom fyrst auga á
Þengil Otra.
Skelfilegt fyrir alla aðila
„Þetta er skelfilegt fyrir alla aðila
sem eiga hlut að máli, bæði aðstand-
endur og starfsmenn,“ segir Gunnar
um ítrekuð slys í lauginni. Ítarlega
var farið yfir viðbrögð starfsfólksins
eftir slysið á miðvikudag og segir
Gunnar að viðbrögð þess hafi verið
samkvæmt reglum. Vaktmaður í
turni hafi hringt viðvörunarbjöllu
um leið og slysið uppgötvaðist og síð-
an hafi starfsfólk í afgreiðslu hringt
á sjúkrabíl og vaktmenn úr baðklefa
byrjað lífgunartilraunir á meðan
beðið var eftir sjúkrabílnum. Lífg-
unartilraunir vöruðu í 5–6 mínútur
að sögn Gunnars. Lögreglumaður
sem er fastagestur í lauginni tók
einnig þátt í lífgunartilraunum en
hann var líka á staðnum ásamt
tveimur öðrum lögreglumönnum
þegar Þengill Otri lenti í sínu slysi.
Þess skal einnig getið að annar sund-
laugargestur hjálpaði til í báðum til-
vikunum.
Björgunaræfingar haldnar
13–14 sinnum árlega
Í Breiðholtslaug eru haldnar
björgunar- og öryggisæfingar 13–14
sinnum á ári, klukkustund í senn, en
skylt er samkvæmt reglugerð að
halda slíkar æfingar 3–4 sinnum á
ári. Öryggið hefur verið eflt frá því
að slysið varð í nóvember en ekki er
samt vitað hvers vegna vaktmaður í
turni, sem hefur yfirsýn yfir alla
laugina, kom ekki auga á manninn á
laugarbotninum á miðvikudaginn.
Gunnar segir hugsanlegt að botnlýs-
ing hefði hjálpað til í þessu tilviki en
slær þó engu föstu um það. „Við er-
um hér til að bregðast við ef eitthvað
fer úrskeiðis, þess vegna höldum við
allar umræddar æfingar,“ segir
Gunnar. „Við höfum farið ítarlega yf-
ir viðbragðaferlið og ef við erum sátt
við okkar þátt, þá getum við ekki
gert meira.“
Breiðholtslaug þarfnast lýsingar í botninn en öryggisgæsla nægileg að mati forstöðumanns
Þriðja slysið
í lauginni á
5 mánuðum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Höfð er stanslaus vakt úr varðturni laugarinnar en þörf er á að lýsa botn-
inn, segir Gunnar Hauksson forstöðumaður. Myndin var tekin í gær.
KARLMAÐUR um fertugt var
stunginn í síðuna með hnífi heima
hjá sér í Fossvogi í fyrrakvöld. Hann
var fluttur á Landspítalann í Foss-
vogi og gekkst undir aðgerð og mun
ekki vera í lífshættu.
Atvikið varð um kl. 23 og voru
tveir menn um þrítugt handteknir
grunaðir um verknaðinn. Annar
þeirra var úrskurðaður í 2 vikna
gæsluvarðhald en hinn látinn laus.
Tildrög árásarinnar munu vera
ósætti sem kom upp í samkvæmi hjá
fórnarlambinu, en árásin tengist
ekki fíkniefnaviðskiptum að sögn
lögreglu.
Í gæslu vegna hnífstungu