Morgunblaðið - 09.01.2004, Qupperneq 21
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 21
Vandaðu valið
á nýja árinu
www.islandia.is/~heilsuhorn
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889,
fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum,
Fjarðarkaupum,
Árnesapóteki Selfossi og
Yggdrasil, Kárastíg 1.
SOLARAY býður mikið úrval af
vítamínum og bætiefum fyrir alla fjöl-
skylduna. Þegar þú kaupir bætiefni, vertu
þá viss um að vinnsla og meðhöndlun hrá-
efnanna sé sem best svo virku efnin skili
sér alla leið til þín.
Kynntu þér úrvalið og gæðin.
Innflytjandi Heilsuhornið á Akureyri
10. janúar 2004
Hvað er hér á ferðinni?
Frímerki • Mynt • Seðlar
Uppboðsaðili AVNUMISMATICS & PHILATELY leitar
að efni til uppboðs eða kaupir frímerki, umslög, mynt,
seðla, póstkort, minnispeninga, orður, gömul skjöl
o.m.fl.
AKUREYRI – Hótel KEA
lau. og sun. 10. og 11. janúar
frá kl. 11-18
Opið daglega mán.-lau. frá kl. 10:30-15:00
á Austurströnd 8 - Íbúð nr. 402 - Seltjarnarnesi.
Sími 694 5871.
UMFANGSMIKLUM breytingum
og endurbótum á Árbaki EA, ís-
fisktogara ÚA, er lokið. Til stóð
að togarinn héldi til veiða seint í
gærkvöld en hann hefur verið frá
veiðum frá því í október á síðasta
ári. Heildarkostnaður við fram-
kvæmdirnar er um 70 milljónir
króna, að sögn Sæmundar Frið-
rikssonar, útgerðarstjóra ÚA.
Hann sagði að breytingarnar
hefðu tekist vel og búið væri að
gera gott skip ennþá betra.
Breytingar á Árbaki voru gerð-
ar í Gdynia í Póllandi. Brú skips-
ins var hækkuð um eina hæð og
við það skapaðist rými fyrir setu-
stofu, íbúð og sjúkraaðstöðu. Þá
var settur veltitankur á skipið,
nýtt perustefni, nýr skutur, kjöl-
urinn endurnýjaður og skipið
málað í hólf og gólf. Árbakur kom
til Akureyrar frá Póllandi fyrir
jól og frá þeim tíma hefur verið
unnið að ýmsum lagfæringum og
m.a. settur niður flokkari og ísk-
rapavél.
Fyrsta löndun hjá ÚA á nýju ári
var í gær en þá kom Kaldbakur
EA með tæplega 100 tonn að landi
en togarinn hélt til veiða að
kvöldi 2. janúar sl.
Morgunblaðið/Kristján
Árbakur EA, ísfisktogari ÚA, hefur tekið miklum breytingum en umfangs-
miklum endurbótum á togaranum er nú lokið.
Árbakur EA til
veiða á ný
NORÐURORKA hefur gert sam-
starfssamning við Grýtubakka-
hrepp um að hefja athugun á hag-
kvæmni þess að leggja hitaveitu á
Grenivík og ef til vill víðar í sveitar-
félaginu.
Erfiðlega hefur gengið að finna
heitt vatn í sveitarfélaginu en í landi
Grýtubakka er ein borhola með
töluverðu magni af um 25 gráðu
heitu vatni. Franz Árnason, for-
stjóri Norðurorku, sagði að áhugi
væri fyrir því að kanna þann mögu-
leika að nýta holuna í tengslum við
varmadælur.
Í vikunni voru opnuð tilboð í
vinnu við arðemis- og kostnaðar-
áætlanir vegna væntanlegra fram-
kvæmda og bárust sjö tilboð í verk-
ið. Franz sagði erfitt að bera
tilboðin beint saman en þau voru á
bilinu frá rúmum 600 þúsundum
króna og upp í tæpar 2,5 milljónir
króna. Hann sagði verkið fólgið í því
að hanna hitaveitu fyrir svæðið og
kyndistöð með varmadælu. Franz
sagði að leitað yrði eftir styrk til
Orkusjóðs til að gera þessa könnun.
„Framhaldið ræðst svo af því
hversu arðbært þetta kann að vera.
Gangi hlutirnir eftir er hugmyndin
sú að koma veitunni upp síðar á
þessu ári eða í byrjun þess næsta.“
Ef notuð er varmadæla við hitun
íbúðar flokkast orkan inn á hana
sem raforka til hitunar og nýtur
niðurgreiðslna, samkvæmt upplýs-
ingum frá Benedikt Guðmundssyni
hjá Akureyrarsetri Orkustofnunar
en slík notkun hefur ekki verið nið-
urgreidd til þessa. Þak er lægra fyr-
ir þessa notkun en beina rafhitun
eða þriðjungur af niðurgreiðsluþak-
inu sem er 50.000 kWh miðað við
sérmælingu. Það þýðir að möguleiki
er á niðurgreiðslu á rúmlega 16.000
kWh vegna upphitunar með varma-
dælu.
Lagning hitaveitu á
Grenivík til skoðunar
Sýna farsa | Fiðringur, revíufarsi
eftir Aðalstein Bergdal leikara,
verður sýndur á Græna hattinum
annað kvöld, laugardagskvöldið 10.
janúar, kl. 20.30. Þetta er verk sem
einungis er ætlað til að fá fólk til
að hlæja ofurlítið eina kvöldstund að
sögn Aðalsteins. Hann leikstýrir líka
þessu verki, sem gerist í hádeg-
isverðarhléi hjá sorphreins-
unarmönnum. Eins og títt er með
farsa kemur upp misskilningur og
stefnir í að upp komi meiriháttar
vandamál, enda ekki allt sem sýnist.
Verkið var sýnt á Melum í Hörg-
árdal fyrir áramót og hlaut góðar
viðtökur. Þá brugðu leikarar sér til
Grímseyjar og sýndu í félagsheim-
ilinu Múla. Þar mættu að sögn Að-
alsteins 93% eyjarskeggja og var
mikil stemmning. Einnig var góð
mæting í Hrísey.
Miðasala verður á Græna hatt-
inum í dag, föstudag, frá kl. 16 til 18
og fyrir sýningu á morgun.
Ábyrgð stjórnenda | Ábyrgð
stjórnenda og endurskoðenda fyr-
irtækja: afleiðingar vanrækslu, mis-
taka og lögbrota er yfirskrift hádeg-
isverðarfundar Félags viðskipta- og
hagfræðinga og Deloitte & Touche
sem verður haldinn í dag, föstudag-
inn 9. janúar, á Fiðlaranum kl. 12–
13:30.
Fyrirlesarar eru þeir Árni Harð-
arson, lögfræðingur hjá Deloitte &
Touche, og Stefán Svavarsson, lög-
giltur endurskoðandi og dósent við
HÍ.
Unglingaæfingar | Vikulegar ung-
lingaæfingar Skákfélags Akureyrar
hefjast að nýju eftir jólafrí á laug-
ardag, 10. janúar. Aðalunglingaþjálf-
ari félagsins er Björn Ívar Karlsson.
Æfingarnar hefjast kl. 13:30 og er
að venju teflt í Íþróttahöllinni.
Allir krakkar 15 ára og yngri eru
velkomnir, eina skilyrðið er að kunna
mannganginn.
SORPEYÐING Eyjafjarðar hefur
sent hreppsnefnd Arnarneshrepps
erindi þar sem leitað er eftir sam-
vinnu við hreppsnefndina um
hugsanlega staðsetningu á sorp-
urðunarstað. Tvö svæði í hreppn-
um eru nefnd í erindinu, annars
vegar við Bjarnarhól, þar sem
frumathugun hefur farið fram, og
hins vegar við Dysnes. Í umræðu
um hugsanlegan stað undir stór-
iðju í Eyjafirði hefur helst verið
horft til Dysness. Hjördís Sigur-
steinsdóttir, oddviti Arnarnes-
hrepps, sagði að ekki hefði verið
fjallað um þetta erindi formlega
innan hreppsnefndar.
Hjördís sagði að svæðið við
Bjarnarhól hefði ekki komið vel út
í þeim athugunum sem þar voru
gerðar, auk þess sem svæðið væri
á fornminjaskrá og að trúlega væri
svæðið við Dysnes betri kostur.
„Mín tilfinning er sú að innan
hreppsnefndar sé meiri áhugi fyrir
því að sorp verði urðað á Dysnesi
en að þar rísi álver. En við vitum
hins vegar ekki hversu stóru landi
er verið að leita eftir undir sorpið.“
Hjördís sagði að Arnarnes-
hreppur væri hluti af sorpsamlag-
inu í Eyjafirði og því eðlilegt að
taka þátt í samvinnu um lausn
málsins. Hún gagnrýnir forsvars-
menn Hörgárbyggðar og segir þá
hafa dregið stjórn Sorpeyðingar á
asnaeyrunum í tengslum við þetta
mál. Eins og margoft hefur komið
fram hefur leit að nýjum stað und-
ir sorpurðun í Eyjafirði staðið yfir
í nokkur ár en án árangurs. Helst
var horft til svæða í Hörgárbyggð
en sveitarstjórn hefur hafnað urð-
un bæði á Gásum og í landi Skúta.
Leita samstarfs um
sorpurðunarstað
SLYSUM hefur fækkað ár frá ári í
umdæmi lögreglunnar á Dalvík og
einnig umferðaróhöppum þar sem
tjón er mikið. Þá fækkaði umferð-
arlagabrotum á síðasta ári miðað
við árið á undan. Hins vegar hefur
lítið dregið úr fjölda fíkniefnamála
og brotum á áfengislögum hefur
heldur fjölgað, samkvæmt upplýs-
ingum úr dagbók lögreglunnar á
Dalvík.
Alls fékk lögreglan 3.026 verk-
efni á síðasta ári og fækkaði þeim
um rúmlega 260 frá árinu á undan.
Skráð umferðarlagabrot í fyrra eru
296 en þau voru 462 árið 2002. Mál-
um vegna líkamsárása fjölgaði á
milli ára, sem og málum vegna inn-
brota og þjófnaða.
Slysum hefur
fækkað ár frá ári