Morgunblaðið - 09.01.2004, Blaðsíða 32
UMRÆÐAN
32 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ hlýtur að vera einmana-
legt fyrir Jóhönnu Sigurð-
ardóttur þessa dagana þar sem
hún stendur alein og
gagnrýnir þær úr-
bætur sem stefnt er
að gera á húsnæð-
iskerfinu hinn 1. júlí
með tilkomu pen-
ingalána Íbúðalána-
sjóðs á grunni nýrra
markaðsvænna
íbúðabréfa. Allir
þeir aðilar sem best
til þekkja hafa fagn-
að þessum fyrirætl-
unum sem eru mik-
ilvæg skref í átt til
neytendaverndar í
fasteignaviðskiptum
og styrkingar ís-
lensks fjármála-
markaðar.
Breytingar á hús-
bréfakerfinu voru
boðaðar!
Það kemur á óvart
hversu þessar fyr-
irhuguðu breytingar
hafa komið mörgum
á óvart þar sem við
framsóknarmenn
lögðum á það
áherslu í kosninga-
baráttunni að for-
senda þess að unnt væri að inn-
leiða 90% almennra íbúðalána til
kaupa á hóflegri væru ákveðnar
tæknilegar breytingar á skulda-
bréfaútgáfu Íbúðalánasjóðs.
Í minnisblaði Árna Magn-
ússonar, þáverandi fram-
kvæmdastjóra Framsókn-
arflokksins, um 90% almenn
húsnæðislán sem lá til grundvall-
ar í kosningabaráttunni kom
fram að ein af forsendum 90%
lánanna væru:
...breytingar á fyrirkomulagi
íslensks fjármálamarkaðar til að
auðvelda aðgengi erlendra fjár-
festa að íslenskum skuldabréfa-
flokkum.
Þær fyrirhuguðu breytingar
sem nú hafa litið dagsins ljós
byggja á niðurstöðu nefndar á
vegum fjármálaráðuneytisins sem
skipuð var fulltrúum fjár-
málaráðuneytis, félagsmálaráðu-
neytis, Íbúðalánasjóðs, Lánasýslu
ríkisins og Seðlabanka Íslands.
Nefndin hefur verið
að störfum und-
anfarin misseri og
skilaði niðurstöðum
sínum í októbermán-
uði. Breytingarnar
eru því mjög vel
ígrundaðar.
Íbúðalánasjóður
ekki á leið í
bankakerfið!
Sú stefna sem nú hef-
ur verið mótuð breyt-
ir engu hvað varðar
hlutverk Íbúðalána-
sjóðs sem lánveit-
anda. Hún er ekki
sérstakt skref í átt til
þess að færa bönk-
unum húsnæðiskerfið.
Það er hvorki auð-
veldara né erfiðara að
koma opinbera hús-
næðislánakerfinu til
bankanna eftir breyt-
inguna.
Þótt svo vilji til að
Samtök banka og
verðbréfafyrirtækja
sendi síðastliðið haust
frá sér tillögur um
fyrirkomulag skulda-
bréfaútgáfu á sömu nótum og
nefndin hafði verið að móta, þá
fer fjarri að það standi til að
flytja opinbera húsnæðislánakerf-
ið yfir til bankanna eins og Jó-
hanna Sigurðardóttir virðist ótt-
ast.
Þvert á móti hafa aðgerðir
undanfarið einmitt beinst að því
að tryggja íbúðalánakerfið í sessi
innan vébanda Íbúðalánasjóðs.
Ein af ástæðum þess að fyrirætl-
anir um að hækka almennt láns-
hlutfall í 90% voru tilkynntar til
Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA),
voru efasemdir meðal annars
Samtaka banka og verðbréfafyr-
irtækja um að núverandi starf-
semi Íbúðalánasjóðs stæðist EES
samninginn. Væntanlega mun
Mikilvægt skref í
átt að 90% lánum
Birkir Jón Jónsson skrifar um
húsnæðiskerfið
Birkir Jón Jónsson
’Með hinu nýjafyrirkomulagi
verður íbúða-
kaupendum og
íbúðabyggj-
endum tryggðir
lægstu mögu-
legu markaðs-
vextir á hverj-
um tíma.‘
LISTIR
SKÁLDSAGA Búlgakovs um
heimsókn Satans til Moskvuborg-
ar Stalíns og sólarhring í lífi
Pontíusar Pílatusar er einhver sú
magnaðasta sem skrifuð var á síð-
ustu öld. Bæði átakamikil og efn-
isrík, hefur bæði breidd og dýpt,
og er auk þess uppfull af skemmti-
legheitum og hugmyndaflugi.
Leikgerðir geta verið ágætis
túlkunartæki, og bjóða oft upp á
möguleika til að skoða byggingu
og innihald efniviðar síns á nýjan
hátt um leið og þær verða að lifa
sjálfstæðu lífi sem listaverk.
Hilmar og hans fólk kýs að fylgja
atburðaröð skáldsögunnar nokkuð
nákvæmlega, sérstaklega framan
af, og þá fyrir vikið verða mjög
skýr skil í framvindunni um mið-
bik sýningarinnar. Fyrri hlutinn
segir frá viðskiptum Skrattans,
sem kallar sig að þessu sinni Pró-
fessor Woland, og hyskis hans við
Moskvubúa og lýkur með al-
mennri niðurlægingu þeirra í fjöl-
leikahúsinu. Síðari hlutinn er síð-
an ástarsaga Meistarans og
Margarítu og píslarsaga Meistar-
ans og skáldverks hans, sem
fjallar um viðskipti boðbera sann-
leikans við kjarklausa millistjórn-
endur á öðrum tíma, söguna af
Jesúa Ha-Notsri og Pontíusi Píl-
atusi. Hápunktar þeirra sögu
fléttast saman við meginsöguna
uns þræðirnir renna saman í lokin
þegar skáldsaga Meistarans hefur
verið lesin á æðstu stöðum og veit-
ir innsýn í rætur ragmennsku
hans. Ástin og listin sigra.
Annað sem leikgerðin dregur
skýrt fram er hve Woland er mið-
lægur í henni, og hve hlutverk
hans er jákvætt. Hann er ekki
„hið illa“, varla einu sinni freist-
arinn sem afvegaleiðir mannkynið,
heldur sá sem veitir makleg mála-
gjöld. Hið illa er á hans könnu í
sama skilningi og glæpir eru verk-
efni dómsmálaráðherra. Hann
virðist sammála Jesúa um það að
ragmennskan sé verst mannlegra
lasta, enda er það smáskitleg
spilling sem verður fyrir honum,
hann gerir enga tilraun til að ráð-
ast að höfuðpaurnum sjálfum.
Hann er kominn til að gera rassíu
og halda árshátíð.
Margt í sviðsetningu Hilmars
heppnast afbragðsvel. Frumleg og
ögrandi notkun rýmis hefur verið
eitt af sterkustu vopnum Hafn-
arfjarðarleikhússins og sannar
það máltækið um neyðina og
nöktu konuna, enda sýningarsal-
urinn ekki augljóslega heppilegur
vettvangur fyrir leiklist. Svo er
einnig hér, og snjöll notkun tjalda,
lýsingar og frábærlega vel nýttrar
myndbandstækni gefur sýning-
unni aukna vídd. Hljóðheimurinn
verður á köflum líkamlega áþreif-
anlegur þegar málmblástursdrun-
ur Lúðrasveitarinnar skella á
áhorfendum – innblásin hugmynd.
Auk þess skreytir sýninguna
endalaust flóð af snjöllum, eða
kannski fyrst og fremst skemmti-
legum, lausnum sem aðdáendur
Hilmars og Hafnarfjarðarleik-
hússins eru næstum farnir að
ganga út frá sem lágmarkskröfu.
Nægir að nefna krossfestinguna,
ræðu Latúnskís gagnrýnanda og
nýstárlega lyfjagjafatækni geð-
hjúkrunarkonunnar sem dæmi um
þessi litlu atriði sem taka stórt
pláss í minninu.
Ýmislegt stendur þó í vegi fyrir
að sýningin vinni fullnaðarsigur á
áhorfendum, allavega undirrituð-
um. Framanaf náði hún ekki að
brjóta sig þannig úr viðjum skáld-
sögunnar að framvindan yrði
hnökralaus. Í síðari hlutanum
gekk miklu betur að láta atriðin
flæða hvert inn í annað og þar er
líka tekin frjálslegri afstaða til
framvindunnar. Verulega snjallt
að skjóta krossfestingunni inn í
árshátíð Wolands, nánast eins og
skemmtiatriði. Fullvíst má telja að
fyrri hlutinn þéttist og orka hans
vaxi með auknu öryggi, en hluti
vandans liggur samt í frásagnar-
aðferðinni, atriðaskiptingunni og
því hversu hefð- og jarðbundin
leikgerð efnisins í raun er, þótt
sviðsetningin bæti þar nokkuð úr.
Annað sem hindrar algera ham-
ingju er að mínu mati búninga- og
gervavinnan. Eins skemmtilegt og
frumlegt og framlag þeirra Ástu
og Þórunnar er þá glatast nokkuð
áhrifamátturinn af framand- og
yfirnáttúruleika Wolands og hysk-
is hans þegar heimurinn sem þeir
mæta er alveg jafn skrítinn og
þeir. Með því að gera allan heim-
inn að sirkus er ekki við öðru að
búast en undursamlegir hlutir
gerist. Trúðslegur leikstíll í
raunsæislegra útliti hefði verið
frjórri jarðvegur fyrir galdurinn.
Leikhópurinn er nokkuð ólíkur
þeim sem oftast hefur sést hjá
leikhúsinu, einungis Erling Jó-
hannesson er eftir af helstu kan-
ónum félagsins og á góðan dag í
hlutverkum sínum, einkum var
nærvera hans sterk sem hinn trú-
fasti en óáreiðanlegi sagnaritari
Leví Matteus. Egill Heiðar Anton
Pálsson var betri sem Meistarinn
en Jesúa og samleikur hans og
Margarítu, Margrétar Vilhjálms-
dóttur, var heitur og fallegur.
Margrét er mögnuð í hlutverki
nöfnu sinnar.
Tveir gamalreyndir leikarar
snúa aftur úr leikhléi í þessari
sýningu. Kristján Franklín Magn-
ús gerir nærveru Wolands áhrifa-
mikla og stillir sig um þann
óhemjuskap sem vel er hægt að
ímynda sér að hlutverkið bjóði
upp á. Hjálmar Hjálmarsson verð-
ur einna kómískastur af fylgdar-
liði andskotans, nokkuð sem kem-
ur á óvart því í sögunni stendur
Azazello að þessu leyti nokkuð að
baki þeim Korovéf og Behemot.
Kemur þarna til leikstíll Hjálm-
ars, en texti hans hljómar nánast
eins og spunninn á staðnum, hvort
sem það er raunin eður ei. Vera
má að þau Páll S. Pálsson og Elma
Lísa Gunnarsdóttir hefðu átt að
fylgja fordæmi Hjálmars að þessu
leyti, því þetta gerði Azazello bæði
hættulegri og fyndnari. Páll á
annars ágætan leik sem Korovéf,
en lítið varð úr kettinum Behemot
í sýningunni, sem helgast meira af
því sem sleppt er úr sögunni og
fyrrgreindum ólíkindum í útliti
sýningarinnar en Elmu Lísu, sem
gekk betur með ungnornina Nat-
ösju. Jón Páll Eyjólfsson nær eft-
irtektarverðum tökum á Pílatusi
og er auk þess drepfyndinn mútu-
þægur hússtjórnarformaður. Sól-
veig Guðmundsdóttir fer ágætlega
með nokkur smærri hlutverk.
Hópur ungmenna bregður sér í
ýmis hlutverk í hópsenum, með
stuðningi lúðrasveitarfólks. Orka
hópsins dugði ekki til að blása lífi í
sirkusatriðið, sem var einkenni-
lega flatt í samhengi sýningarinn-
ar. Hæst rísa samt hópatriðin á
hárréttum stað, í magnaðri veislu-
senunni þar sem töfrar Hafnar-
fjarðarleikhússins losna fyrir al-
vöru úr læðingi.
Meistarinn og Margaríta á ef-
laust eftir að eflast með frekari
sýningum, en er trúlega of bundin
forskrift sinni til að ná fullu flugi.
Samt er hún stórviðburður:
skemmtileg, fjölbreytt, skrautleg
og efnisrík sýning, borin uppi af
ríkulegu hugmyndaflugi aðstand-
enda sinna. Allir ættu að sjá hana.
LEIKLIST
Hafnarfjarðarleikhúsið
Leikgerð á skáldsögu eftir Mikhaíl Búlga-
kov. Leikstjóri: Hilmar Jónsson, leik-
mynd: Börkur Jónsson, búningar: Þórunn
María Jónsdóttir, lýsing: Egill Ingibergs-
son, myndband: Gideon Gabriel Kïers,
leikgervi: Ásta Hafþórsdóttir, dansar:
Ólöf Ingólfsdóttir, tónlist: Margrét Örn-
ólfsdóttir. Leikendur: Brynja Jóhann-
esdóttir, Egill Heiðar Anton Pálsson,
Elma Lísa Gunnarsdóttir, Erling Jóhann-
esson, Hjálmar Hjálmarsson, Jón Páll Eyj-
ólfsson, Kristján Franklín Magnús, Mar-
grét Vilhjálmsdóttir, Myriam
Guðmundsdóttir, Ólöf Jakobsdóttir, Páll
S. Pálsson, Sólveig Guðmundsdóttir,
Sveinn Hólmar Guðmundsson, Valgeir
Emil Sigurgeirsson, Vinni Drexler og Þór-
dís Lilja Sigurðardóttir. Lúðrasveitin
Svanur, stjórnandi: Rúnar Óskarsson.
Hafnarfjarðarleikhúsinu 7. janúar 2004.
MEISTARINN OG MARGARÍTA
Árshátíð andskotans
Morgunblaðið/Sverrir
„Meistarinn og Margaríta á eflaust eftir að eflast með frekari sýningum, en er trúlega of bundin forskrift sinni til að ná
fullu flugi. Samt er hún stórviðburður: skemmtileg, fjölbreytt, skrautleg og efnisrík sýning,“ segir m.a. í umsögninni.
Þorgeir Tryggvason
ÁRNI Tómas Ragnarsson
læknir skrifar í Morgunblaðið sl.
miðvikudag og fjallar um yfir-
standandi deilu milli sérfræði-
lækna og Tryggingastofnunar rík-
isins. Læknirinn er vanstilltur í
skrifum sínum og virðist eiga eitt-
hvert sérstakt erindi við mig
vegna greinar sem ég hafði skrif-
að í blaðið 5. janúar, þar sem vikið
var að skýringum á dómi Hæsta-
réttar 11. desember sl. Kemst höf-
undur svo að orði, að ég hafi orðið
fyrir opinberun um niðurstöður
Hæstaréttar í málinu. Hefð sé
orðin fyrir því að ég fái slíka vitr-
un í hvert skipti sem ég tapi máli
fyrir réttinum. Ég hafi þannig far-
ið mikinn við úrskurði Hæstarétt-
ar í kvóta- og öryrkjamálum.
Í tilefni þessara sérkennilegu
skrifa skal tekið fram, að í grein
minni 5. janúar var einungis verið
að skýra niðurstöðu Hæstaréttar í
dómsmálinu. Dómurinn var ekk-
ert gagnrýndur, aðeins skýrt hvað
í honum fælist. Í greininni var
meðal annars á það bent, að ekki
fælist skerðing á atvinnufrelsi
lækna í því, að þeir ráðstöfuðu at-
vinnu sinni með samningum við
aðra. Þetta gera yfirleitt allir
vinnandi menn í meira eða minna
mæli. Benti ég meðal annars á að
af forsendum dómsins megi þvert
á móti draga þá ályktun, að út frá
lögfræðilegum forsendum væri
ekkert því til fyrirstöðu, að lækn-
arnir tækju með samningum á sig
þær skuldbindingar, sem TR
hafði talist felast í samningi þeirra
en Hæstiréttur ekki fallist á. Þessi
augljósu sannindi ættu að vera öll-
um þenkjandi mönnum ljós. En
þau virðast dyljast Árna lækni.
Ég læt mig það ekki miklu
varða, þó að þessi læknir ráði ekki
við þessa einföldu hugsun. Senni-
lega á hann hagsmuni af niður-
stöðunni, sem villa honum sýn.
Það kemur mér hins vegar und-
arlega fyrir sjónir, að hann skuli
ráðast að persónu minni fyrir það
eitt að hafa sagt deili á þessum
hæstaréttardómi. Verra er líka
fyrir hann að telja mig hafa tapað
fyrir Hæstarétti „kvóta- og ör-
yrkjamálum“. Ég veit ekkert hvað
hann er að tala um. Mál sem unnt
er að fella undir þessi heiti hef ég
aldrei flutt við réttinn. Svo einfalt
er það.
Ég vona að Árni læknir nái
kröftum sínum á ný.
Vanstilltur læknir
Höfundur er hæstarétt-
arlögmaður.
Jón Steinar Gunnlaugsson