Morgunblaðið - 09.01.2004, Side 40
MINNINGAR
40 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Ólafur KetillFrostason fædd-
ist í Reykjavík 17.
október 1953. Hann
lést 24. desember síð-
astliðinn. Hann var
sonur hjónanna
Kötlu Kristínar
Ólafsdóttur húsmóð-
ur og djáknanema, f.
10. október 1934 og
Frosta Skagfjörð
Bjarnasonar flug-
stjóra, f. 21. janúar
1930. Ólafur var elst-
ur fjögurra systkina
en þau eru; 1) Sturla
Skagfjörð flugumsjónarmaður, f.
22. júní 1956, kvæntur Ólöfu Ein-
arsdóttur myndlistarkona, f. 4.
júní 1959. 2) Svanborg Þórdís úti-
bússtjóri, f. 16. mars 1964, gift
Ófeigi Gestssyni verslunarmanni,
f. 12. október 1943. 3) Bjarni flug-
stjóri, f. 16. júní 1968, kvæntur
Hrafnhildi Gunnarsdóttur við-
skiptafræðingi, f. 9. maí 1972.
Ólafur kvæntist 30. júlí 1977 Jó-
hönnu Valgerði Hauksdóttur ljós-
móður og hjúkrunarfræðingi, f.
16. desember 1956. Þau slitu sam-
vistum 1998. Jóhanna er dóttir
hjónanna Hauks Jóhannssonar
eftirlitsmanns og bifvélavirkja og
Stellu Bjarkar Georgsdóttur mat-
ráðskonu. Ólafur og Jóhanna
eignuðust þrjá syni. Þeir eru: 1)
Haukur flugmaður, f. 17. nóvem-
ber 1979, heitbundinn Hallfríði
Gunnsteinsdóttur tannlækna-
nema, f. 27. febrúar
1980. 2) Frosti hag-
fræðinemi, f. 16.
ágúst 1982. 3) Hjört-
ur grunnskólanemi,
f. 19. febrúar 1988.
Ólafur lauk einka-
flugmannsprófi árið
1972. Samhliða
menntaskólanámi
stundaði hann nám
til atvinnuflug-
mannsréttinda og
varð stúdent frá
Menntaskólanum í
Kópavogi 1976. At-
vinnuflugmannsrétt-
indi öðlaðist hann árið 1977 og
lauk prófi í flugumferðarstjórn
sama ár eftir nám heima og er-
lendis. Ólafur starfaði sem flug-
umferðarstjóri og flugmaður hjá
Flugmálastjórn til ársins 1983.
Það sama ár hóf hann störf sem
flugmaður og síðar flugstjóri hjá
Flugleiðum og gegndi því starfi
þar til hann lét af störfum vegna
heilsubrests árið 1998. Ólafur
gegndi fjölmörgum trúnaðar-
störfum fyrir Félag íslenskra at-
vinnuflugmanna. Hann stundaði
nám og lauk prófi sem leiðsögu-
maður árið 2000 og starfaði tíma-
bundið sem slíkur. Síðustu árin
hafði Ólafur búsetu í Bandaríkj-
unum en var fluttur heim til Ís-
lands er hann lést.
Útför Ólafs verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Elsku Óli minn.
Frá því að við hittumst fyrst hef-
ur þú aldrei sýnt mér annað en ást
og umhyggju. Þú varst alltaf tilbú-
inn að rétta öðrum hjálparhönd og
varst óhræddur við að leiðbeina öðr-
um. Þú sýndir mér oft hvernig hægt
væri að gera betur og það var alltaf
hægt að læra eitthvað nýtt hjá þér.
Elsku Óli minn, þú vildir öllum
svo vel og vildir vera svo góður við
alla. Ég man vel eftir því þegar
strákarnir þínir ætluðu að kíkja út
til Bandaríkjanna til þín og þér
fannst alveg ómögulegt að ég yrði
skilin ein eftir og ákvaðst að bjóða
mér út með ykkur. Ég náði aldrei að
þakka þér nógu vel fyrir það. Þetta
er eitt af fjölmörgum dæmum um
góðmennsku þína. Ég held að ég
hafi aldrei hitt jafn gáfaðan og
metnaðarfullan mann eins og þig.
Man eftir því að þú varst að fara í
próf í leiðsöguskólanum og sagðist
ekki kunna neitt. Daginn eftir
spurðum við hvernig þér hefði geng-
ið og mig minnir að þú hafir fengið
hæstu einkunn. Þetta er dæmi um
hversu klár þú varst.
Það er svo erfitt að þurfa að
kveðja jafn góðhjartaðan mann eins
og þig Óli minn. Eins yndislegur og
þú varst áttir þú allt það besta skil-
ið. Eins og ég sagði þá hefur þú allt-
af verið yndislegur við mig og það
veitir mér huggun að vita af þér á
betri stað.
Óli minn, ég vona að þú vitir að
strákarnir þínir elska þig svo heitt
og hafa alltaf gert. Það er svo sárt
að kveðja þig elsku Óli. Það eina
sem gleður mig er að vita að nú hef-
urðu fengið hvíld og ert á betri stað
og vakir yfir okkur öllum. Elsku Óli,
þó að þú sért farinn þá lifir þú enn í
hjörtum okkar allra. Óli minn, takk
fyrir allar yndislegu stundirnar sem
við áttum saman.
Þín tengdadóttir
Hallfríður.
Elsku stóri brói minn.
„Komdu með það, heiminn“.
Þessa hógværu beiðni lagði ég fyrir
þig þegar ég var 3ja ára hnáta og þú
13 ára unglingur. Það er ótrúlega
oft í gegnum tíðina sem við höfum
rifjað upp þessi orð og hlegið mikið.
Nú síðustu daga þegar ég hugsa um
fjölmargar samverustundir okkar
verður mér ljóst, að þau tæpu 40 ár
sem við áttum saman þá gerðir þú
svo sannarlega allt sem í þínu valdi
stóð, til að færa mér heiminn. Í huga
minn koma fram ýmsar minningar:
Stóri bróðir að reiða litlu systur á
stönginni á ljósbláa DBS hjólinu.
Stórir bræður með afróhárið. Stóri
bróðir að kenna mér á bíl. Stóri
bróðir að keyra stóra rútu. Flug-
ferðir með stóra bróður. Skokkferð-
ir með stórstíga stóra bróður – þú
sveifst eitt skref og ég hljóp þrjú.
Hjólreiðaferðir með stóra bróður og
fleira góðu fólki um fjöll og firnindi.
Skíðaganga með stóra bróður í
Þrastaskógi. Fjallaferðir á fjalla-
bílnum ÓLA KET. Ferðalag til
heimkynna stóra bróður til Flórida.
Ljóðið sem stóri bróðir orti til mín á
brúðkaupsdaginn minn sl. sumar.
Stóri bróðir með stóra hjartað.
Allt sem þú gerðir, lagðir þú þig all-
an í verkið.
Til viðbótar við þessi minningar-
brot er svo ljúft að minnast fasta,
hlýja faðmlagsins í hvert sinn er við
hittumst. Það þekkja allir sem
kynntust þér.
Hvíl í friði,
þín systir.
Á lífsleiðinni rekast saman ein-
staklingar af ýmsum ástæðum.
Kynnin eru svo háð aðstæðum
hverju sinni, stutt, löng, náin eða lít-
il.
Ólafur Ketill Frostason var mág-
ur minn, kynntist ég honum nánast
um leið og Svanborgu konu minni.
Þau systkin, Svanborg og bræðurn-
ir þrír, voru svo náin að atburður í
lífi eins þeirra var kunnur í systk-
inahópnum nánast samstundis. Óli,
sá elsti í hópnum, hefur nú vikið frá,
um stundarsakir. Hans er saknað,
myndi einn segja, Guði sé lof að
hann fær frið, myndi annar segja.
Vont þykir mér að eiga ekki með
honum stundir um ókomin ár. Víst
er að síðustu misserin hefur líf Óla
verið sem rysjótt tíð á þorra. Mín
lífsgæði eru m.a. fólgin í því að okk-
ur Óla kom vel saman og áttum sam-
an stundir sem rifjast nú upp hver
af annarri. Réttsýni, nákvæmni og
frábært skipulag, voru atriði sem
einkenndu Óla við fyrstu kynni. Á
bak við framhliðina var viðkvæmur
ljúflingur, skapmikill, skáldmæltur,
unnandi síbreytilegrar náttúru Ís-
lands og þess sem til fyrirmyndar
má teljast um umhverfisvernd víða
um heim en Óli var víðförull, ná-
kvæmur athugandi.
Skömmu eftir að við kynntumst
brast hjónaband hans með yndis-
legri konu og þá um leið varð breyt-
ing á samskiptum hans við þrjá efni-
lega syni. Sársauki hans við þessar
breyttu aðstæður var augljós og
vangaveltur hans um framtíðina
óvissukenndar, hann var á þessum
tíma í tvígang skorinn upp vegna
krabbameins, líkamlegur þróttur
hans var mjög sveiflukenndur, svo
mjög að í stuttri gönguferð eitt sinn
þurftum við systir hans að styðja
hann undir báða handleggi á heim-
leið í hálftíma gönguferð. Hann sem
hafði hlaupið, skíðað eða hjólað,
nánast sem þindarlaus væri.
Um tíma bjó Óli í litlum bæ ekki
langt í suður frá Orlando í Flórída.
Þar las hann fagurbókmenntir, orti
ljóð og átti meðal annars verðlauna-
ljóð í ljóðakeppni sem fór fram í öll-
um ríkjum USA. Þaðan ferðaðist
hann vítt um álfuna, frá norðri til
suðurs.
Á heimili Óla í Flórída dvaldist ég
ásamt fjölskyldu minni, í fyrsta
skipti vestan hafs, nutum við leið-
sagnar hans, þess að kynnast fólki
sem honum var hlýtt til þar vestra,
mörgum fallegum stöðum, sýning-
um og uppákomum ýmsum árstíða-
bundnum sem Óli þekkti.
Minningar mínar um Óla verða
mér hugstæðastar og bjartastar frá
ferð okkar um heiðalönd og eyði-
sanda á Norður- og Austurlandi.
Eyddum við nokkrum stilltum dög-
um, skoðuðum ýmislegt það sem
fram hjá okkur hafði farið í fyrri
ferðum, bárum saman bækur okkar
um nöfn fjalla, dala og sanda, flett-
um þá gjarnan handbærum upplýs-
ingum og lásum fyrir þann sem ók
hverju sinni. Tókum gjarnan göngu-
ferð þegar myrkrið var að leggjast
að og land rann saman við himin,
gjörsamlega dauðaþögn og friður.
Spjölluðum saman þar til birta tók
og landið fékk síbreytilega ásýnd á
ný og greindist frá himni sem var að
sama skapi breytilegur.
Á þessum stað kveð ég þig Óli
minn og þakka þér stundirnar sem
við áttum saman.
Ófeigur.
Fyrstu kynni mín af Óla voru þeg-
ar foreldrar hans fóru að byggja hús
á nágrannalóð okkar. Var mikið
byggt í Kópavoginum á þessum
tíma, og alltaf spennandi að stelast í
byggingar á mismunandi stigum. Að
tíu ára strákur, jafngamall mér,
fylgdi með gerði það ekki minna
spennandi. Urðum við fljótt góðir
leikfélagar, sem þróaðist yfir í langa
og góða vináttu. Við vorum heima-
gangar hvor hjá öðrum, og vorum
bekkjarbræður í mörg ár. Á ung-
lingsárunum þróuðust ný áhugamál,
meðal annars man ég að við hlust-
uðum mikið á Bítlana saman. Við
fengum bílpróf um svipað leyti, og
breytti það eðlilega mörgu hjá okk-
ur, en ekki vináttunni.
Ég fór í nám til Noregs, og settist
þar að. Að halda góðu sambandi við
gamla kunningja á Íslandi hefur
verið mér ómetanlegt, vinátta sem
hefur tengt Óla og okkur „strákana“
og fjölskyldur okkar saman. Eigum
við öll margar og góðar minningar
frá samverustundum okkar.
Bless Óli, þinn æskuvinur
Sigurður Bjarnason.
Það var ekki auðvelt að láta sér
yfirsjást mann eins og Ólaf Frosta-
son. Fas hans og vallarsýn, djúpa
karlmannlega röddin og talsmátinn
sem var slíkur að hver setning var
sem bókfærð; aldrei rangmynduð né
hlaðin auk- og hikyrðum sem svo
mjög er algengt. Engan flugstjóra
hef ég heyrt ávarpa farþega sína svo
kurteislega né föðurlega sem hann.
Eftir þær messur varð jafnvel hin-
um flughræddasta farþega ljóst að
hann þyrfti engu að kvíða því hér
væri hann í góðum höndum, sama
hve farið skalf á loftsins vegum. Sú
kennd var heldur ekki á sandi
byggð: Einn starfsbróðir hans sagði
mér að efni sem hann tók saman um
Boeing 737 hefðu félagar hans not-
ast við sem náms- og starfsgögn. Og
ekki tókst mér nema einu sinni að
gera hann kjaftstopp – og trúi vart
enn þeim árangri mínum! Þá er ótal-
in útgeislun hans – sem var ómæld.
Nokkrum sinnum fékk ég far hjá
honum í Kópavoginn eftir vinnu eft-
ir að ég komst að því, mér til
ánægju, að við máttum heita ná-
grannar. Af þeim ökuferðum spratt
vinátta sem átti eftir að endast árin
mörg og hvorugur bar skaða af. Fá-
ir eru þeir göngustígarnir í Kópa-
vogi og Heiðmörkinni að liggi þar
ekki spor okkar – og runnarnir
geyma rökræður okkar og rök-
færslur; langar og ítarlegar.
Óli var einn fárra manna sem ég
hef hitt sem sameinuðu áhuga og
trausta kunnáttu í fagurfræði, bók-
menntum, vísindum og tækni. Hann
var flugstjóri og flugumferðarstjóri,
fagurkeri og fræðimaður; jafnvígur
á tónlist og tölvur, Laxness og Land
Cruiser. Eitt sinn sagðist hann hafa
talið saman hjólbarðana undir far-
kostum sínum: Þeir voru 36! Eftir
að hann hætti flugi og kom niður á
jörðina hafði hann stórar áætlanir
uppi; hugðist ferðast kringum
hnöttinn á mótorhjóli og skyldi
fyrsti áfanginn vera Alaska – Suður
Ameríka. Ekki gengu þær áætlanir
eftir að fullu, en víðreist gerði hann
um Bandaríkin á hjólinu og eign-
aðist kunningjafjöld.
Margar eru myndirnar úr minn-
ingabanka okkar Óla: Hann á prik-
inu aftur í frá Orlando, orðinn hærð-
ur og skeggprúður sem Karl Marx,
kertaljósanóttin í torfbænum í
Skagafirði þar sem öll heimsmálin
voru leyst á einu óttuskeiði; akst-
urinn yfir land á svarta Cadillacnum
þegar hann sat aftur í sem enskur
lord og fílósóferaði milli dúra; allir
göngutúrar okkar, sumur og vetur,
sem mæla mætti í tugkílómetrum! Á
þeim stundum var ekkert undir sól-
inni látið óreifað! Af meðfæddri
hjálpfýsi hljóp hann undir bagga
með mér þegar þýðingaverkefni á
og úr erlendum málum uxu mér yfir
höfuð. Í úrlausnum hans þurfti aldr-
ei að breyta stafkrók! Hann var
sannur homme universel og slíkur
heili að hvaðeina til verka og bókar
sem hann tók sér fyrir hendur
heppnaðist honum – utan það áform
hans að verða meistarakokkur! Þótt
hann sé nú horfinn – langt um aldur
fram – munu fylgja mér minning-
arnar um vináttu okkar og skegg-
ræður, brall og brölt; bros hans og
ómæld hlýja; kímnigáfan og karl-
mennskan; lífsgleðin og dýpstu
sorgir, leifrandi gáfur, nákvæmni og
kristaltær rökvísi, tröllfast handtak
hans og bróðurfaðmur.
Slíkan mann tjóar ekki að kveðja
á færri en fimm tungum:
Gone away ein guter Mann,
Guds I høje sale,
framar ekki föðmum hann,
frater bone, vale!
Aðstandendum hans votta ég
samúð mína í söknuði þeirra.
Jón B. Guðlaugsson
Hann var skírður í höfuðið á móð-
urafa sínum, athafnamanninum frá
Laugarvatni, Ólafi Ketilssyni, sem
var landsfrægur fyrir orð og athafn-
ir. Óli Frosta eins og hann var kall-
aður var líkur afa sín að því leyti að
hann var ekki allra, en mjög margra
þó. Þegar hann var búinn með 2.
bekki í Menntaskólanum við Tjörn-
ina fann hann það út, eins og svo
margur ungur maðurinn gerir að
það var svo margt annað hægt að
gera en að vera í skóla. Hann söðlaði
þá um og fór meðal annars að keyra
rútur hjá afa sínum og nafna. Seinna
tók hann síðan upp þráðinn á ný og
kláraði stúdentspróf frá Mennta-
skólanum í Kópavogi. Þar kynntist
hann henni Jóhönnu sinni sem hann
átti eftir að ganga veginn með
næstu 22 árin og eignast þrjá efni-
lega og góða syni með. Á mennta-
skólaárunum var hann með fjörugri
mönnum, hrókur alls fagnaðar, vel
liðtækur í fótboltanum og búinn að
ná ágætis tökum á golfinu. Hann
hafði góða söngrödd og söng síðar
meir með Karlakórnum Fóstbræðr-
um. Flugið átti hug hans allan, enda
alinn upp við flugið frá blautu barns-
beini. Fljótlega eftir stúdentspróf
hóf hann nám og störf sem flugum-
ferðarstjóri og starfaði við það þar
til hann var ráðinn flugmaður hjá
Flugleiðum. Á meðan hann starfaði
hjá Flugmálastjórn var hann einnig
flugmaður á flugvél stofnunarinnar.
Eftir nokkurra ára starf hjá Flug-
leiðum lenti hann í ágreiningi við
nokkra vinnufélaga sína í borg er-
lendis. Óli taldi að félagarnir hefðu
ekki haldið þær reglur sem í gildi
voru um bann við áfengisneyslu fyr-
ir flug. Úr þessu var gert hið mesta
mál og segja má að Óli hafi verið
lagður í einelti af stórum hóp vinnu-
félaga og að hluta til yfirmanna
sinna. Hefði þetta mál komið upp í
dag er alveg öruggt að tekið hefði
verið öðruvísi á málum, því bæði
einelti á vinnustöðum og áfengis-
neysla flugmanna er tekið miklu al-
varlegri tökum nú orðið en þá var
gert. Það er alltaf erfitt að dæma
um hvað sé orsök og hvað sé afleið-
ing. En frá þessum tíma má segja að
Óli hafi átt í stöðugri baráttu, bæði
við sjálfan sig og ekki síst umhverf-
ið. Hann taldi að hann hefði fengið
mjög rangláta og ómaklega meðferð
í þessum hremmingum sem hann
lenti í. Hjónabandið endaði 1997 og
flugmannsferlinum lauk stuttu síðar
þar sem hann hafði misst flug-
mannsskírteinið af heilsufarsástæð-
um. Hann var þrotinn að andlegum
kröftum og við bættist húðkrabba-
mein sem þurfti að meðhöndla. Við
tók þrotlaus barátta, barátta við að
reyna að endurheimta heilsuna.
Gekk hann milli sérfræðinga og
prófaði ýmsar aðferðir, skipti um
umhverfi og flutti af landi brott
tímabundið, svo eitthvað sé nefnt.
Árangurinn lét á sér standa og von-
leysið náði oft yfirtökunum. Allt
þetta álag leiddi til þess að hann var
ekki samur maður, honum fannst
sér vera hafnað. Þetta leiddi til ein-
angrunar.
Ólafur Ketill Frostason var ljúfur
og góður drengur sem mörgum
þótti mjög vænt um. Því var það
átakanlegt fyrir vini hans og fjöl-
skyldu að horfa uppá þær hörmung-
ar sem hann þurfti að lifa við síðustu
árin.
Um leið og við þökkum samfylgd-
ina sendum við öllum hans nánustu
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Vonum við að hann hafi fengið frið,
friðinn sem hann þráði svo að fá í lif-
andi lífi, en fékk ekki.
Berglind Helgadóttir og
Björn Hermannsson.
Ólafur Frostason var kær vinur
sem gerði tilveru okkar ríkari og
fjölbreyttari. Leiðir okkar lágu
fyrst saman í Menntaskólanum í
Kópavogi. Hann var eldri og lífs-
reyndari en flestir samnemendur og
opnaði fyrir okkur gáttina að ýms-
um hliðum lífsins sem við höfðum
ekki komið auga á. Hann kunni að
gleðjast, hafði fallega rödd, var
söngelskur og lagviss. Og hann
lærði snemma hjá afa sínum að aka
rútu. Alls þessa urðum við oft að-
njótandi.
Óli og Jóhanna skólasystir og vin-
kona felldu hugi saman og giftust.
Seinna eignuðumst við fjölskyldur,
börn á sama aldri og glíman var við
svipuð viðfangsefni. Þau fluttu á
Kópavogsbrautina, endurbyggðu
húsið og deildu gleðinni óspart með
okkur. Í minningunni lifa grillveisl-
ur á sólríku hlaðinu með leikandi
börnum. Líka vetrarboð við kerta-
ljós, þegar húsgögnum var ýtt til
hliðar og við dönsuðum eftir tónlist
Stevie Wonder fram eftir kvöldum.
ÓLAFUR KETILL
FROSTASON
Bróðir okkar,
ÁSGEIR GÍSLI FREDERIKSEN,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði, laugardaginn 13. desem-
ber, hefur verið jarðsettur í kyrrþey.
Ágústa Frederiksen og
Gunnar V. Frederiksen.