Morgunblaðið - 09.01.2004, Qupperneq 54
DAGBÓK
54 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
dag er Vædderen
væntanlegt.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag lætur Steffan C.
úr höfn.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og
jóga, kl. 14 bingó.
Hársnyrting, fótaað-
gerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 13–
16.30 smíðar. Bingó
spilað 2. og 4. föstu-
dag í mánuði.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–
12 vefnaður, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
vefnaður og frjálst að
spilað í sal. Félagsvist
kl. 13.30.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað
og hárgreiðslustofan
opin, kl. 14 söngstund.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16
handavinnustofan op-
in, kl. 10–13 verslunin
opin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–
16.30 vinnustofa,
myndlist o.fl., kl. 9.30
gönguhópur, kl. 14
spilað.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl.
10 hárgreiðsla, kl. 10–
12 verslunin opin, kl.
11 leikfimi, kl. 13 opið
hús, spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Opnað kl. 9, dag-
blöðin, rabb og kaffi.
Brids kl. 13, billiard
kl. 13. Snyrtinámskeið
hefst mánud. 12. jan.
kl. 13. Skráning í
Hraunseli í síma
555 0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Leikfélagið
Snúður og Snælda,
æfing kl. 11.
Félag eldri borgara í
Garðabæ. Félagsvist í
Garðabergi kl. 13.
Gjábakki, Fannborg
8. Kl. 9.05 myndvefn-
aður, kl. 9.30 málm-
og silfursmíði, kl. 13
bókband.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar,
m.a. búasaumur og
fjölbreytt föndur. Kl.
10 „Gleðin léttir lim-
ina“, létt ganga o.fl.
Kl. 13 bókband, kl.
13.30 kóræfing. Veit-
ingar í hádegi og
kaffitíma í Kaffi
Bergi. Allar uppl. á
staðnum og í síma
575 7720.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, út-
skurður, baðþjónusta,
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 11 spurt
og spjallað, kl. 14
bingó.
Hvassaleiti 58–60.
Fótaaðgerðir virka
daga, hársnyrting
þriðjudaga og föstu-
daga.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
17 hárgreiðsla, kl. 10–
11 boccia, kl. 14 leik-
fimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–
16 fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–
14.30 handavinna,
kl.10–11 kántrídans.
Kl. 13.30 sungið við
flygilinn við undirleik
Sigurbjargar Petru,
dansað í kaffitímanum
við lagaval Sigvalda.
Allir velkomnir.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hár-
greiðsla og myndlist,
kl. 9.30 bókband og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir og leik-
fimi, kl. 12.30 leir, kl.
13.30 bingó.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Opið
frá kl. 10–14.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað
brids kl. 19 þriðjud.
og kl. 13.15 föstud.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, kl. 10.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan
er opin virka daga frá
9–17.
Kvenfélag Kópavogs
heldur fund 22. janúar
kl. 19 í Hamraborg
10. (Ath. breyttur
fundartími). Matur og
skemmtiatriði. Þátt-
taka tilkynnist fyrir
16. janúar hjá Rann-
veigu, s: 554 3386,
Erlu, s: 554 1519 eða
Ólöfu: s. 554 0388.
Minningarkort
Minningarsjóður
Krabbameinslækn-
ingadeildar Landspít-
alans. Tekið er við
minningargjöfum á
skrifst. hjúkrunarfor-
stjóra í s. 560 1300
alla virka daga milli
kl. 8 og 16. Utan dag-
vinnutíma er tekið á
móti minningargjöfum
á deild 11-E í s.
560 1225.
Hrafnkelssjóður
(stofnað 1931) minn-
ingarkort afgreidd í s.
551 4156 og 864 0427.
Í dag er föstudagur 9. janúar, 9.
dagur ársins 2003. Orð dagsins:
Trúið á ljósið meðan þér hafið
ljósið, svo að þér verðið börn
ljóssins.
(Jh. 12, 36.)
Katrín Júlíusdóttir al-þingismaður fjallar á
vefsíðu sinni um sam-
skipti sín við DV á und-
anförnum mánuðum.
Gefum Katrínu orðið:„Snemma var mér
kennt að sem ung kona í
stjórnmálum ætti maður
að vera fljótur til að
svara fjölmiðlum játandi
óskuðu þeir eftir viðtali
við mann. Hef ég fylgt
þessum ráðleggingum
nema í undantekning-
artilvikum þegar ég hef
bara ekki með nokkru
móti komist, vegna þess
að hið karllæga fjölmiðla-
samfélag kvartar sí og æ
yfir því að konur séu
tregar til viðtala – sem
ég held reyndar að sé al-
ger della.
Nú í nóvember var ég
beðin af DV (undir rit-
stjórn þeirra Mikaels
Torfasonar og Illuga Jök-
ulssonar) um að hitta
blaðamann DV og fara í
snjókast við stjórnarliða
fyrir framan ljósmynd-
ara. Fannst mér hug-
myndin hvorki sérlega
sniðug né heldur skildi
ég hvað hún kæmi önnum
þingsins sem þá voru
miklar nokkuð við –
nema eins og blaðamaður
sagði að þetta ætti að
vera gaman og sniðugt
og sýna á okkur léttari
hlið. Þegar á hólminn var
komið gat ég ekki mætt.
Fyrir vikið vorum við
nokkur sem ekki kom-
umst úthrópuð á síðum
blaðsins sem leið-
indapúkar og blaðamað-
ur lýsti því yfir að hún
vissi sko nákvæmlega
hverja hún myndi strika
yfir í næstu kosningum –
jú leiðindapúkana úr
yngri deild þingmanna
sem ekki mættu í snjó-
kast! Þessari úthrópun
fylgdi af okkur mynd
með stóru rauðu X-i yfir.
Nú á milli jóla og nýársvar enn á ný vegið en
nú með heigulslegum
hætti úr launsátri nafn-
leyndar í grein þar sem
ég var úthrópuð fyrir að
vera alltaf í viðtölum um
eitthvað allt annað en
pólitík. Var farið þar
nokkuð mörgum orðum
um þessa hneisu og síðan
skreytt með uppnefn-
ingum og nokkrum göml-
um myndum af mér úr
eldri viðtölum við DV –
slapp þó reyndar við
rauða X-ið í það sinn.
Fannst mér þetta nokkuð
spaugilegt, sérstaklega í
ljósi nýlegrar reynslu
minnar af því að neita
DV undir ritstjórn þeirra
félaga um þátttöku í snjó-
kasti nýrra alþing-
ismanna!
Á nýju ári er því sá nýiog nokkuð óreyndi
þingmaður sem þetta rit-
ar mjög ringlaður hvað
umgengni við fjölmiðla
varðar og þá ekki síst DV
þeirra félaga. Hef klórað
mér nokkuð stíft í hausn-
um þessa viku frá því
blammering þeirra núm-
er II birtist því ef maður
segir nei fær maður gusu
og ef maður segir já fær
maður líka gusu – ekkert
má maður!“ segir Katrín.
STAKSTEINAR
Ekkert má maður
Víkverji skrifar...
Fram kom í fréttum nýlega aðstefnt væri að því að Ísland tæki
þátt í geimáætlun Evrópu með sam-
starfi við eða aðild að Geim-
ferðastofnun Evrópu, ESA. Án nokk-
urs vafa getur samstarf af þessu tagi
gagnast ýmsum íslenzkum vís-
indamönnum, ekki sízt í raun-
greinum, og þeir hinir sömu geta ef-
laust lagt sitt af mörkum til
landvinninga Evrópumanna í geimn-
um. Víkverja finnst hins vegar að það
eigi að setja ákveðin markmið með
þessari þátttöku Íslands í geim-
áætluninni. Þegar hefur tekizt,
reyndar líka fyrir tilstuðlan erlendra
ríkja, að koma Íslendingi út í geim-
inn, Bjarna okkar Tryggvasyni, sem
er kanadískur ríkisborgari en fæddur
á Íslandi og uppalinn hér til sjö ára
aldurs. Bjarni er ættaður frá Dalvík
og Víkverji man ekki betur en að á
sínum tíma, þegar Bjarni fór í geim-
flugið, hafi blað Svarfdælinga, Norð-
urslóð, sagt frá því undir fyrirsögn-
inni „Fyrsti svarfdælski geimfarinn“.
Ekki minnimáttarkenndinni fyrir að
fara þar, enda engin ástæða til.
Hvernig væri að Ísland setti sér það
markmið með geimsamstarfinu að
koma Svarfdælingi til tunglsins, t.d.
fyrir árið 2050?
x x x
Himingeimurinn er mörgum hug-stæður; undir lok síðasta árs
lagði Hlynur Hallsson, varaþingmað-
ur VG, fram á Alþingi tillögu til
þingsályktunar um að geimurinn
verði friðlýstur fyrir vopnum. Til-
lagan rifjaði upp fyrir Víkverja þegar
skoðanasystkin Hlyns í borgarstjórn
Reykjavíkur lögðu til einhvern tím-
ann á níunda áratugnum að Reykja-
vík yrði lýst kjarnorkuvopnalaus
borg. Davíð Oddssyni, þáverandi
borgarstjóra, leizt vel á tillöguna, en
hann vildi taka friðlýsinguna í áföng-
um. Móttillaga Davíðs var að byrjað
yrði á að lýsa Blesugrófina kjarn-
orkuvopnalaust svæði og svo yrði
skoðað að einhverjum tíma liðnum
hvernig reynslan af þessu fyr-
irkomulagi væri. Einhverra hluta
vegna var lítið talað um þessa friðlýs-
ingu eftir þetta.
x x x
Geðveikt“ sagði NorðmaðurinnKurt Nilsen þegar hann vann
World-Idol-keppnina á dögunum.
Nokkrum dögum síðar birtist les-
endabréf í Addresseavisen í Ósló,
undir fyrirsögninni „krabbameins-
sjúkt flott hjá Kurt“. Höfundur les-
endabréfsins gagnrýnir orðfæri ungu
kynslóðarinnar í Noregi og bendir á
að enginn hefði sagt „krabbameins-
sjúkt flott“ um árangur söngvarans.
Geðveiki sé sjúkdómur, sem margir
þjáist af, og óþarfi sé að hafa hann í
flimtingum. Víkverji er ekki frá því að
margir Íslendingar mættu líka velta
þessari ábendingu fyrir sér.
Reuters
Kurt Nilsen: Gagnrýndur fyrir
ógætilegt orðaval.
ÉG tek undir með þeim
sem eru óánægðir með
hvernig búið er að fara með
gömlu góðu myndasögurn-
ar í Morgunblaðinu. Þetta
voru margra ára vinir
manns og fastir punktar í
tilverunni. Ég hélt að til-
gangurinn væri að ná betur
til yngri lesenda en sé svo
að ein 12 ára stúlka í Mos-
fellsbæ er óánægð með
þetta. Mér finnst þessi
Clifton-sería ófyndinn
hrærigrautur.
Morgunblaðið má vara
sig á að gera svona róttæk-
ar breytingar. Ég gladdist
þegar Ferdinand kom aftur
enda var það eins og að
missa góðan heimilisvin
þegar honum var kippt
burtu.
Fyrst ég er farin að tjá
mig um Morgunblaðið þá
finnst mér smáauglýsing-
arnar skemma blaðið og
færa það á lægra þrep. Ég
hélt að það væri nóg af dag-
blöðum sem birtu smáaug-
lýsingar og ég er fljót að
fletta framhjá þessu í
blaðinu.
Kona á Selfossi.
Vantaði blessun
hjá forseta
ÉG var að hlusta á forset-
ann á nýársdag. Ég saknaði
þess að hann bað ekki guð
að blessa land og þjóð þeg-
ar hann ávarpaði þjóðina.
Samt er hann verndari
kirkjunnar.
Jóhanna Jónsdóttir,
Stóragerði 11.
Hvað varð
um Gretti?
MÉR er spurn; hvað varð
um hann Gretti? Hann er
algjörlega horfinn úr
myndasögunum og svo
virðist sem öllum sé sama
um það. Svo að ég best veit
þá var hann vinsælasta per-
sónan í myndasögum
Morgunblaðsins. Að mínu
áliti eru myndasögurnar
sem nú eru í blaðinu alls
ekki skemmtilegar.
Einn sem
er ekki sama.
Tapað/fundið
Lyklakippa týndist
LYKLAKIPPA með mörg-
um lyklum á hring týndist á
leiðinni í eða við Háskólabíó
29. desember sl. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 525 6356 eða 551 1918.
Flauelstaska týndist
SVÖRT flauelstaska týnd-
ist í leigubíl í Reykjavík að-
faranótt 9. nóvember. Í
töskunni var farsími, tvær
filmur og húslyklar. Ef ein-
hver getur gefið upplýsing-
ar um töskuna er hann vin-
samlegast beðinn að
hringja í símanúmer
868 7154.
Myndavél týndist
MYNDAVÉL tapaðist á
gamlárskvöld um miðnætti
efst í Rofabænum við
Brúarás í Árbænum.
Myndavélin var silfurlituð
Sony Digital-myndavél.
Vélin er ný og voru margar
myndir í henni svo að þetta
er mikill missir.
Ef einhver hefur fundið
myndavélina yrði ég mjög
þakklát ef þeir gætu séð
sér fært að skila henni á
sinn stað. Fundarlaun í
boði. Upplýsingar gefur El-
ín í síma 586 1616 eða
869 2010.
Næla í óskilum
NÆLA fannst við Menn-
ingarmiðstöðina Gerðu-
berg 19. desember. Upplýs-
ingar gefur Guðrún í síma
575 7720 frá kl. 9–16.30
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Hvar eru
mynda-
sögurnar?
LÁRÉTT
hárskúfs, 4 efsti hluti
hússtafns, 7 að svo búnu,
8 ábreiða, 9 gagnleg, 11
dýr, 13 stampur, 14 skap-
vond, 15 brjóst, 17 guð,
20 liðinn hjá, 22 ber
birtu, 23 girnd, 24 ójafn-
an, 25 hafni.
LÓÐRÉTT
1 pjatla, 2 deila í smá-
skömmtum, 3 bráðum, 4
gert við, 5 ræna, 6 gleð-
skapur, 10 sitt á hvað, 12
rekkja, 13 andvara, 15
fall, 16 skurðurinn, 18
næði, 19 ráfi, 20 klukk-
urnar, 21 líkamshlutinn.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 svipmikil, 8 sálir, 9 uglan, 10 kæn, 11 murta,
13 nærri, 15 glaða, 18 staka, 21 fet, 22 fóður, 23 ættar,
24 harðfisks.
Lóðrétt: 2 volar, 3 purka, 4 Iðunn, 5 illur, 6 ásum, 7
snúi, 12 tíð, 14 æst, 15 gufa, 16 auðga, 17 afræð, 18
stæli, 19 aftek, 20 arra.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16