Morgunblaðið - 09.01.2004, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 55
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert bæði raunsæ/r og til-
finninganæm/ur og átt auð-
velt með að koma sjón-
armiðum þínum á framfæri.
Þú kemst því gjarnan til
áhrifa. Þetta ár getur orðið
eitt af bestu árum ævi þinnar.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú nýtur óvenjumikillar at-
hygli og ættir því að huga að
því hvernig þú kemur fyrir.
Reyndu að líta sem best út.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ættir að breyta út af van-
anum á einhvern hátt í dag.
Farðu í stutt ferðalag eða á
listasafn, bókasafn eða í búðir
sem þú þekkir ekki.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þó það sé freistandi að líta
fram hjá smáatriðunum varð-
andi trygginga- og erfðamál,
skuldir og skatta, skaltu ekki
láta það eftir þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú getur komist að einhverju
nýju um sjálfa/n þig í sam-
ræðum við einhvern náinn þér
í dag.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Gefðu þér nokkra klukkutíma
til að taka til á heimilinu eða í
vinnunni í dag. Það mun koma
þér á óvart hversu mikil áhrif
það mun hafa á afköst þín.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Sköpunargáfa þín og ímynd-
unarafl er einstaklega frjótt.
Reyndu að nýta þér þetta með
einhverjum hætti í dag.
Mundu að oft skiptir sköp-
unarferlið meira máli en af-
raksturinn.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Veittu fjölskyldu þinni og
heimili sérstaka athygli í dag.
Umhverfi þitt skiptir þig
mjög miklu máli og fjöl-
skyldan er kjölfestan í lífi
þínu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú munt sennilega eiga mik-
ilvægar samræður við systk-
ini þín í dag. Þú gætir fengið
mikilvægar upplýsingar.
Hlustaðu vandlega á það sem
aðrir hafa að segja.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þig langar til að kaupa eitt-
hvað til að ganga í augun á
öðrum. Þú hefur þörf fyrir að
bæta sjálfsmynd þína og það
er í himnalagi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Sólin er í merkinu þínu og því
er þetta rétti tíminn til að
endurhlaða batteríin fyrir
næstu mánuði. Láttu því þín-
ar eigin þarfir hafa forgang.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur varið miklum tíma í
samræður við vini þína að
undanförnu. Nú þarftu á ein-
veru að halda til að hugsa
málin í ró og næði.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Deildu draumum þínum og
framtíðarvonum með vini þín-
um. Oft sjá tveir hlutina í
skýrara ljósi en einn.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SVANASÖNGUR Á HEIÐI
Ég reið um sumaraftan einn
á eyðilegri heiði;
þá styttist leiðin löng og ströng,
því ljúfan heyrði’ eg svanasöng,
já, svanasöng á heiði.
Á fjöllum roði fagur skein,
og fjær og nær úr geimi
að eyrum bar sem englahljóm,
í einverunnar helgidóm,
þann svanasöng á heiði.
Svo undurblítt ég aldrei hef
af ómi töfrazt neinum:
í vökudraum ég veg minn reið
og vissi’ ei, hvernig tíminn leið
við svanasöng á heiði.
Steingrímur Thorsteinsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
90 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 9. jan-
úar, er níræð Unnur Jóns-
dóttir frá Valadal í Skaga-
firði, nú búsett í
Fagrahjalla 5, Kópavogi.
Eiginmaður hennar var
Ragnar Óskar Sigurjónsson
er lést 1999.
80 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 9 jan-
úar, er áttatíu ára Ósk Lauf-
ey Jónsdóttir. Hún tekur á
móti gestum á heimili dóttur
sinnar, Bjarkarási 12,
Garðabæ, milli kl. 17 og 19 á
afmælisdaginn. Laufey von-
ast til að sjá sem flesta ætt-
ingja og vini.
SVEINN Rúnar Eiríksson
og Erlendur Jónsson eru
„heitt par“ um þessar
mundir, en þeir félagar
urðu í öðru sæti í minning-
armótinu um Hörð Þórð-
arson og unnu svo jólamót
Bridsfélags Hafnarfjarðar.
Þessi tvö mót eru haldin
milli jóla og nýárs og var
þátttaka mjög góð í báð-
um, 53 pör í Reykjavík og
72 pör í Hafnarfirði.
Norður gefur.
Norður
♠Á105
♥754
♦KDG
♣DG94
Vestur Austur
♠97 ♠G4
♥ÁK932 ♥DG1086
♦1063 ♦974
♣852 ♣763
Suður
♠KD8632
♥–
♦Á852
♣ÁK10
Spilið er frá jólamóti
Hafnfirðinga og það gaf
Sveini Rúnari og Erlendi
semitopp að segja al-
slemmu í spaða.
Erlendur er í norður og
Sveinn í suður:
Vestur Norður Austur Suður
– 1 lauf Pass 1 spaði
Pass 1 grand Pass 2 tíglar
Pass 2 spaðar Pass 5 hjörtu *
Pass 5 grönd Pass 6 lauf *
Pass 7 lauf Pass 7 spaðar
Pass Pass Pass
Kerfið er Standard og
eftir hefðbunda byrjun
sýnir Erlendur 12–14
grandhönd og Sveinn kref-
ur í geim með tveimur
tíglum (tvíhleypan).
Þegar Erlendur segir
næst frá þrílit í spaða
ákveður Sveinn að slemma
skuli spiluð og kannski sjö
ef makker á réttu spilin.
Til að kanna sjöuna
stekkur Sveinn í fimm
hjörtu, sem er spurning
um lykilspil fyrir utan
hjartað – „Exclusion Key
Card“ eins og þetta heitir
á enskunni.
Erlendur sýnir einn ás
með fimm gröndum og
tekur svo alslemm-
uáskorun Sveins næst,
enda með alla punkta
virka.
Sjö spaðar gáfu 38 stig
af 40 mögulegum.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, föstudaginn 9. janúar, eiga 50 ára
hjúskaparafmæli hjónin Sigríður Pálsdóttir og Baldur
Ólafsson, fyrrverandi bændur á Fit. Þau verða að heiman.
40ÁRA af-mæli. Í
gær, fimmtudagin
8. janúar, urðu
tvíburasysturnar
Anna Bjarnadótt-
ir, Hlíðargötu 12,
Neskaupstað og
Ása Bjarnadóttir,
Höfðahlíð 17, Ak-
ureyri fertugar.
Þær munu hitta
fjölskyldu og ætt-
ingja á ættarmóti
í sumar.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 g6 5. Rc3 Bg7 6.
Be3 Rf6 7. Dd2 O-O 8. Bc4
Rg4 9. Rxc6 bxc6 10. Bf4 d6
11. h3 Re5 12. Bd3 Be6 13.
O-O Dd7 14. De3 c5 15.
Had1 Hab8 16. Hb1
Rxd3 17. cxd3 a5 18. Hfe1
a4 19. a3 Hb3 20. Hec1
Hfb8 21. Dd2 H3b7 22.
Hc2 Bb3 23. Hcc1 Be6 24.
Hc2 h5 25. Be3 Kh7 26.
d4 cxd4 27. Bxd4 Bb3 28.
Hcc1 De6 29. Bxg7 Kxg7
30. Dd4+ Df6 31. Dxf6+
Kxf6 32. f4 e6 33. g4 hxg4
34. hxg4 g5 35. f5 e5 36.
Kf2
Staðan kom upp á al-
þjóðlegu unglingamóti
sem Taflfélagið Hellir hélt
fyrir skömmu. Johannes
Kvisla (1560) hafði svart
gegn Elsu Maríu Þorfinns-
dóttur. 36... Ba2! 37. Ha1
37. Rxa2 hefði einnig tapað
eftir 37...Hxb2+ 38. Hxb2
Hxb2+. 37... Hxb2+ 38.
Ke1 Hh8 39. Kf1 Hh1#.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
FRÉTTIR
NÁMSKRÁ Endurmenntunar Há-
skóla Íslands fyrir vorönn 2004 er
komin út. Boðið verður upp á um
200 námskeið á ýmsum fræðasvið-
um. Flest námskeiðin eru ný en
auk þeirra má finna námskeið sem
haldin eru aftur vegna eftirspurn-
ar.
Auk styttri starfstengdra nám-
skeiða hefja nokkrir nýir hópar
nám samhliða starfi nú í janúar en
alls eru 11 námsleiðir í boði. Þar af
er ein ný, Stjórnun og forysta í
skólaumhverfi sem er ætlað stjórn-
endum og millistjórnendum í fram-
haldsskólum, grunnskólum og leik-
skólum. Markmiðið er að efla
skólastjórnendur m.a. á sviðum
mannauðsstjórnunar, leiðtogafærni,
fjármála- og rekstrarstjórnunar.
Í menningarflokknum verður t.d.
Jón Böðvarsson með námskeið um
Passíusálma Hallgríms Pétursson-
ar, Magnús Þorkell Bernharðsson
verður með nýtt námskeið um ísl-
am, Vesturlönd og lýðræði. Árni
Bergmann og Hörður Bergmann
verða með námskeið um Listina að
efast og afhjúpa – innræting og
gagnrýnin hugsun; ádrepa og leið-
arljós í bókmenntum. Björn Krist-
jánsson, forstöðumaður Söguseturs
íslenska hestsins, verður með nám-
skeið um íslenska hestinn – sögu
hans og menningu.
Ný námskeið í öðrum flokkum
eru t.d. Enska í rannsóknum og
vísindum, Viðburðastjórnun (Event
management), Álagsstjórnun – að
fyrirbyggja óþarfar og kostnaðar-
samar afleiðingar starfsstreitu,
Umtal og almannarómur í mark-
aðssetningu, Störf stjórnarmanna
lífeyrissjóða, Hitun sumarbústaða
og Verðmælingar í upplýsinga-
tækni.
Námskrá Endurmenntunar er
komin á netið www.endurmenntun-
.is og þar er jafnframt hægt að
skrá sig.
Námskeið hjá
Endurmenntun HÍ
Stórútsala
25-70% afsláttur
• Prjónagarn
• Heklugarn
• Útsaumspakkningar
• Útsaumsefni í metratali
• Dúkadamask í metratali
• Strammamyndir
• Smávara í föndrið
• Þrívíddarmyndir
• Bækur og blöð
Opið mán.-fös. kl. 9-18 lau. kl. 10-14.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi, sími 564 3988.
Afmælisþakkir
Hjartanlegar þakkir færi ég öllum þeim, sem
glöddu mig á 85 ára afmæli mínu 22. desem-
ber sl.
Gleðilegt nýtt ár.
Kær kveðja.
Hafsteinn Björnsson,
Laufvangi 9, Hafnarfirði.
ÚTSALA ÚTSALA
20-50%
afsláttur
Nýtt kortatímabil
gjafavöruverslun,
Frakkastíg 12, sími 511 2760