Morgunblaðið - 09.01.2004, Page 56
ÍÞRÓTTIR
56 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
REYKJAVÍKURMÓTIÐ í
knattspyrnu hefst í kvöld í
Egilshöll með tveimur leikjum
í A-riðli í meistaraflokki karla.
Leiknir og Þróttur leika kl. 19
og ÍR og Valur kl. 21. KR leik-
ur einnig í riðlinum. Liðin sem
leika í B-riðli eru Fylkir,
Fjölnir, Fram og Víkingur.
Efstu tvö liðin í riðlunum
komast í undanúrslit, en
Reykjavíkurmótinu lýkur með
úrslitaleik 15. febrúar.
Framarar eru núverandi
Reykjavíkurmeistarar – lögðu
Fylkismenn í vítaspyrnu-
keppni í Egilshöll, 6:5.
Reykjavíkur-
mótið
að byrja
vel liðið, þótti leika skemmtilegan
fótbolta og allt eitthvað svo krútt-
legt og sætt í kringum það; falleg
borg, góður matur, lítill en ástríðu-
þrunginn heimavöllur með áhorf-
endur alveg ofan í leikmönnum að
enskri fyrirmynd og ekki síst létt-
leikandi spilarar á borð við Zola,
Brolin og Asprilla auk þess sem fé-
lagið ól upp marga góða leikmenn á
borð við þá Cannavaro-bræður Fa-
bio og Paolo.
En á aðventunni hrundi allt. Nyt-
in úr kúnni Parmalat reyndist við
nánari skoðun ekki eins góð og bút-
íðindi hermdu og kom í ljós nú rétt
fyrir jólin að Calisto kallinn Tanzi
hefur leikið einhvern ótrúlegasta
bókhaldsleik allra tíma í Evrópu og
náð að sóla endurskoðendur og fjár-
festa upp úr skónum og skjóta bylm-
ingsskoti í Bermúdaþríhyrninginn
einhverjum óteljandi hundruðum
milljarða að „enronskri“ fyrirmynd.
Með hverjum degi hækkar summan,
en talan sem knattspyrnuaðdáendur
þurfa að hugsa um er sú sem lið
Parma þarf til að lifa af fram í miðj-
an mánuðinn er dómstólar taka
ákvörðun um hvort liðið verður lýst
gjaldþrota og sýnt rauða spjaldið og
vísað úr Serie A.
Flestir kannast við Fíatfamilíunaá bak við Juventus, Berlusconi
og AC Milan og Morettiættina og
Inter. Í síðari tíð
einnig pastaveldið
Cirio að baki Lazio
sem náði að skila
einum meistaratitli.
Öll þessi lið eru stórlið en eitt er það
smálið sem tekist hefur að halda sér
í fremstu röð í réttan áratug þrátt
fyrir lítinn heimavöll og heldur fá-
tæklega sögu; Parma frá sam-
nefndri borg í matarkistu Ítalíu,
héraðinu Emilia Romagna. Félagið
hefur verið rekið sem eining innan
hins öfluga mjókursamlags og mat-
vælarisa Parmalat og stofandi þess,
Calisto Tanzi, kom félaginu í
fremstu röð í Evrópu áður en hann
skilaði stjórnartaumunum til sonar
síns Stefanos.
Mjólkin búin
Mjólkurpeningarnir frá Parmalat
auk hygginda þjálfarans Nevios
Scala skiluðu Parma bikartitlum
heimafyrir, stöðugri baráttu um
efstu sæti í deildinni og síðast en
ekki síst hörkuárangri í Evrópu,
m.a. í tvígang sigri í Evrópukeppni
félagsliða. Var félagið einstaklega
Björgunarhringurinn mun bera
töluna 50 milljónir evra og stuðn-
ingsmenn liðsins naga á sér negl-
urnar þessa dagana og biðja um gott
veður hjá bústjórum þrotabúsins –
að liðinu verði ekki hreinlega fórnað
á skuldaaltarinu í heild sinni. Mas-
simo Moratti, forseti Inter, hefur
þegar kastað hálfum hring í hafið
því hann er tilbúinn að staðgreiða 23
milljónir evra til að framherjinn
Adrianno komi til Inter í sumar og
japanska „vasadiskóið“ Nakata hef-
ur verið lánað til nágrannanna Bo-
logna svo þeir geti selt einhverjar
treyjur með nafni hans á bakinu en
það er víst eina gagnið sem hægt er
að hafa af þeim manni. Markvörð-
urinn Sebastien Frey er einna verð-
mætastur þeirra eftirlifandi og er
líklegur til að verða seldur á næstu
dögum og takist að fá gott verð fyrir
Frakkann er vonandi að félaginu sé
borgið í bili.
Fjóshaugurinn sem Parmalat hef-
ur skilið liðið eftir í er erfiður úr að
komast en líklegt er talið að Arrigo
Sacchi, fyrrverandi landsliðsþjálfara
Ítala, verði falið að taka við af Stef-
ano Tanzi sem forseti félagsins og
freista þess að bjarga því sem bjarg-
að verður. Eitt fyrsta verk hans
verður að hefja leit að krónprinsum í
hópi auðmanna til að taka við veld-
inu fallna og talið er líklegt að hann
leiti ekki langt út fyrir „matardall-
inn“, eins og nágrenni Parma er
nefnt, og reyni að fá pastaframleið-
andann Barilla, rjómabollurnar í
Parmacotto eða skinkukallana í
Prosciutto di Parma til að fylla belgi
fótboltanautnaseggja.
Reuters
Þó svo að Benny Carbone fagni hér marki fyrir Parma, er ekki
mikill fögnuður með fjárhagsstöðu liðsins þessa dagana.
Verður Parma
blóðmjólkað?
ÁRATUGUM áður en auðmenn á borð við Roman Abromovich héldu
innreið sína í knattspyrnuna var það orðin tíska á Ítalíu að ríkmenni
ættu í það minnsta eitt fótboltalið ættu þeir að teljast samkvæm-
ishæfir. Þannig hafa vinsælustu lið Ítalíu fengið vítamínsprautu
fjármagns umfram það sem tíðkast hefur annars staðar í Evrópu.
Allar götur fram til 1992, er áskriftarsjónvarp fór að hafa mikil áhrif
á tekjustreymi í knattspyrnunni, skapaði þetta ítölskum liðum mik-
ið forskot og gerði það freistandi fyrir helstu stórstjörnur í bolt-
anum að leika á Ítalíu.
Eftir
Einar Loga
Vignisson
ANDRIUS Stelmokas, línumaður
KA, skoraði 6 mörk og landi hans
Dalius Rasikevicius, leikstjórnandi
Hauka, var með 5 mörk þegar Lithá-
ar unnu Eistlendinga, 30:24, í fyrri
leik þjóðanna í forkeppni að undan-
keppni HM í handknattleik en þjóð-
irnar mættust í Panevezys í Litháen.
OLEG Kuleschov, leikstjórnandi
þýska handknattleiksliðsins Magde-
burg, sem Alfreð Gíslason þjálfar og
Sigfús Sigurðsson leikur með, verð-
ur frá æfingum og keppni í sex vikur
vegna meiðsla. Kuleschov getur þar
af leiðandi ekki leikið með Rússum á
Evrópumeistaramótinu í Slóveníu í
lok þessa mánaðar.
CHELSEA hyggst gera tilboð í
Paul Robinson, markvörð Leeds
United, eftir að franska liðið Rennes
hafnaði tilboði félagsins í Tékkann
Petr Cech. Tilboð Chelsea í Tékkann
hljóðaði upp á 6 milljónir punda en
tilboðið í Robinson er talið að verði í
kringum 4 milljónir punda.
BRASILÍSKI varnarmaðurinn Lu-
cio er enn og aftur orðaður við
Chelsea en félag hans í Brasilíu,
Santos, segir að Chelsea hafi boðið
12,6 milljónir punda í leikmaninn.
LUIS Enrique, leikmaður Barce-
lona, kinnbeinsbrotnaði á æfingu
liðsins í vikunni og verður hann frá
æfingum og keppni næstu sex vik-
urnar. Hann þarf að gangast undir
aðgerð en forráðamenn Katalóníul-
iðsins vonast til að Enrique verði bú-
inn að ná sér fyrir leikinn á móti
Bröndby í UEFA-keppninni sem
fram fer 26. febrúar.
MANCHESTER United mun
ganga frá samningi við Dong
Fangzhou, 18 ára framherja frá
Kína, á næstu dögum að sögn fram-
kvæmdastjóra Dalian Shide, liðsins
sem Dong leikur með í Kína. United
er sagt reiða fram 3,5 milljónir
punda fyrir Kínverjann og með
kaupunum ætla Englandsmeistar-
arnir að herja á Asíumarkaðinn með
sölu á ýmiss konar varningi í nafni
félagsins.
ÍTALSKI knattspyrnuþjálfarinn
Giovanni Trappatoni var meðal
áhorfenda á leik Tottenham og
Birmingham á White Hart Lane í
Lundúnum í fyrrakvöld. Heimsókn
Trappatonis ýtir undir þær fréttir
að hann kunni að taka við stjóra-
starfinu af David Pleat hjá Totten-
ham en Trappatoni hyggst hætta
þjálfun ítalska landsliðsins eftir EM í
Portúgal í sumar.
GERARD Houllier, knattspyrnu-
stjóri Liverpool, sagði í gær að vel
kæmi til greina að hann keypti nýjan
markvörð til félagsins vegna meiðsla
markvarðanna tveggja, Chris Kirk-
land og Jerzy Dudek. Kirkland er
fingurbrotinn og Dudek meiddist á
nára í leiknum við Chelsea og verður
frá næstu vikurnar.
FÓLK
Í BÍGERÐ er að byggja yfir
Centre Court, aðalleikvanginn á
hinu fræga Wimbledon-móti í
tennis sem fram fer í London ár
hvert. Þar með á að stemma stigu
við töfum sem verða nánast ár-
lega á mótinu vegna rigningar.
The All England Club, tennis-
klúbburinn sem rekur völlinn í
Wimbledon, tilkynnti í gær áætl-
anir sínar um að koma upp
færanlegu þaki, sem hægt yrði að
renna yfir völlinn á aðeins 10
mínútum. Þær hafa þó ekki verið
samþykktar ennþá, ljóst er að
tveggja ára bið er í að fram-
kvæmdir hefjist og þakið verður
ekki komið á sinn stað fyrr en
eftir fimm ár, fyrir Wimbledon-
mótið árið 2009.
„Okkar markmið er stöðugt
það að Wimbledon-mótið sé ávallt
viðurkennt sem stærsti tennisvið-
burður í heiminum. Centre Court
hefur verið okkar djásn í 80 ár og
þar hafa farið fram margir af
dramatískustu leikjum tennis-
íþróttarinnar. Við ætlum okkur
að varðveita sögu og hefðir
Centre Court en gera allar að-
stæður þar stórglæsilegar,“ sagði
Tim Phillips, formaður klúbbsins,
sem um leið tilkynnti að völlurinn
myndi rúma 15 þúsund áhorf-
endur eftir breytingarnar, í stað
13.800 eins og hann tekur í dag.
Þá er stefnt að því að byggja yfir
völl númer eitt á svæðinu um leið
og reynsla verður komin á þessa
byggingu.
Byggt yfir aðaltennisleik-
vanginn á Wimbledon
Bresku fjölmiðlarnir þurftu aðbíða lengi eftir svörum frá
Claudio Ranieri, knattspyrnustjóra
Chelsea, eftir ósigur liðsins gegn
Liverpool á Stamdord Bridge í
fyrrakvöld. Roman Abramovich, eig-
andi Lundúnaliðsins, kallaði knatt-
spyrnustjórann á fund strax eftir
leikinn og eftir þann fund var Rani-
eri krafinn svara um framtíð sína hjá
félaginu en þrálátur orðrómur hefur
verið í gangi um að Ítalinn verði lát-
inn taka poka sinn og Sven Göran
Eriksson landsliðsþjálfari komi í
staðinn.
Ranieri var hins vegar afar róleg-
ur og yfirvegaður eftir fundinn með
rússneska auðjöfrinum. „Ég og
Abramovich ræðum alltaf saman í
einrúmi eftir hvern leik og venju
samkvæmt gerðum við það nú. Rom-
an var alls ekki ánæðgur með að tapa
og líklega hömpum við ekki meist-
aratitlinum í vor,“ sagði Ranieri en
lærisveinar hans hafa tapað þremur
af síðustu fimm deildarleikjum og
eru sjö stigum á eftir forystusauð-
unum í Manchester United.
Ranieri sagði þær vangaveltur
fjölmiðla að hann kynni að missa
starf sitt innan tíðar algjörlega úr
lausu lofti gripnar. „Ég hef fullan
stuðning og sjálfur ætla ég ekki að
gefast upp. Vissulega erum við að
ganga í gegnum erfiðleikaskeið en
ég er sannfærður um að við réttum
úr kútnum. Ég hrósaði leikmönnum
mínum fyrir leikinn á móti Liver-
pool. Þeir lögðu sig allir vel fram en
því miður töpuðu þeir leiknum. Ég er
alls ekki áhyggjufullur. Það er ekk-
ert lið sem getur siglt í gegnum
tímabilið án þess að missa dampinn.
Það er auðvelt fyrir mig að segja að
ég vilji berjast hart fyrir því að vinna
titilinn en það er ekki satt. Ég er að
berjast við að byggja upp lið og ég
hef trú á að menn hafi þolinmæði til
þess.“
Spurður hvort hann ætlaði sér að
nýta sér félagaskiptagluggann og
styrkja lið sitt enn frekar sagði Rani-
eri: „Nei. Það eina sem við þurfum
að gera er að komast í gegnum þetta
erfiðaleikatímabil. Ég hef fulla trú á
mínu liði.“
Ranieri
tekinn á
teppið