Morgunblaðið - 09.01.2004, Blaðsíða 57
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 57
ALÞJÓÐAÓLYMPÍUNEFNDIN, IOC,
sendi frá sér fréttatilkynningu í gær þar
sem að fram kemur að ekkert lyfjasýni
frá vetrarleikunum í Salt Lake City hafi
innihaldið hið nýja steralyf THG. Í októ-
ber sl. kom í ljós að íþróttamenn höfðu
notað þetta lyf til þess að auka árangur
sinn en á þeim tíma var ekki hægt að
finna THG í þeim lyfjaprófum sem gerð
voru. IOC ákvað að skoða öll lyfjapróf
frá vetrarleikunum með nýjum aðferð-
um.
Jacques Rogge, forseti IOC, sagði að
greinilegt væri að aðeins þröngur hópur
íþróttamanna hefði haft aðgang að THG-
efninu og að baráttunni gegn lyfjanotk-
un yrði haldið áfram.
Breski spretthlauparinn Dwain Cham-
bers er einn þeirra sem hafa fallið á
lyfjaprófi vegna THG.
THG fannst
ekki í Salt Lake
TRYGGVI Guðmundsson
knattspyrnumaður varð að
hafna boði frá enska úrvals-
deildarliðinu Birmingham City
en honum stóð til boða að
koma til félagsins til reynslu í
vikutíma. Þá vildi Wigan, eitt
af toppliðunum í ensku 1.
deildinni, fá Tryggva til
reynslu en hann varð einnig að
neita því. Ástæðan er sú að
meiðsli í rist eru enn að plaga
Tryggva frá því hann brotnaði
í sumaren þau tóku sig upp
fyrir landsleikinn gegn Mexíkóum sem
varð til þess að hann gat ekki spilað.
Tryggvi fór í myndatöku í fyrrakvöld og
skilaboðin sem hann fékk frá læknum,
eftir að þeir höfðu skoðað myndirnar,
voru þau að hann getur ekki byrjað að
spila fyrr en eftir fjórar vikur.
„Ég verð bara að bíða þol-
inmóður en það er ljóst að ekk-
ert verður af heimsóknum
mínum til Englands. Ég er
samt ekkert taugaveiklaður þó
svo að félagaskiptaglugginn
lokist um næstu mánaðamót.
Ég gæti skrifað undir hjá
norskum liðum strax á morgun
en ég ætla að bíða rólegur og
vona það besta. Ég vil taka
áhættuna og bíða eftir því að
eitthvað spennandi komi upp
um leið en ef það
gerist ekki þá verð ég áfram hér í Nor-
egi eða í Svíþjóð. Aðalmálið í dag er að fá
sig góðan af meiðslunum sem því miður
reyndust meiri en ég reiknaði með,“
sagði Tryggvi við Morgunblaðið.
Tryggvi Guðmundsson
varð að neita Birmingham
Tryggvi
BRIAN Mikkelsen, menningarmálaráðherra Dana, hljóp
aðeins á sig í vikunni þegar hann sagðist ætla að sjá til
þess að mál Rios Ferdinands, hjá Manchester United,
verði tekið fyrir hjá Alþjóða lyfjadómstólnum og leik-
maðurinn fái tveggja ára keppnisbann fyrir að mæta
ekki í lyfjapróf í haust. Málið er ekki eins einfalt og
Mikkelsen hélt, en hann er í framkvæmdastjórn Alþjóða
lyfjanefndarinnar, WADA, vegna þess að Alþjóða lyfja-
dómstóllinn hefur ekki lögsögu í máli Ferdinands þar
sem FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandið er ekki aðili
að WADA. Þar af leiðandi er ekki hægt að vísa málum
knattspyrnumanna til Alþjóða lyfjadómstólsins. Þetta
staðfesti Dick Pound, yfirmaður WADA, í gær og sagði
að á meðan FIFA væri ekki aðili að WADA gæti WADA
ekkert gert í málum knattspyrnumanna í heiminum.
FIFA er eitt fárra alþjóða íþróttasambanda sem ekki
hefur viljað falla undir samræmdar aðgerðir og bönn
WADA vegna lyfjamisnotkunar íþróttamanna.
Meðal annars hefur FIFA þótt reglur um keppnisbönn
vera of strangar.
Mikkelsen verður
ekki að ósk sinni
Guðmundur segist leggja sér-staka áherslu á tvennt í leikj-
unum við Sviss, að slípa saman varn-
arleikinn og þróa
nýjar útfærslur í
sóknarleiknum. „Við
ætlum að halda
áfram að þróa 6/0
vörnina sem er okkar aðal varnarað-
ferð. Á síðustu æfingum höfum við
lagt mikla vinnu í varnarleikinn, en
það er eitt að æfa hlutina og annað að
framkvæma þá í alvöru leikjum. Þá
höldum við áfram að þróa varnar-
leikinn með nýjum útfærslum og það
kemur síðan í ljós hvernig það geng-
ur. Vera kann að það taki sinn tíma
að slípa saman vörnina, en það verð-
ur að gefa sér þann tíma sem þarf.
Það er nú einu sinni þannig að leik-
menn landsliðsins koma hver úr
sinni áttinni, eru að leika ýmsar
varnaraðferðir með sínum liðum.
Þegar leikmennirnir koma síðan inn
í landsliðið þá er óhjákvæmilegt að
það taki nokkurn tíma hjá þeim að
stilla saman strengina,“ sagði Guð-
mundur.
„Þá liggur fyrir að við ætlum að
prófa nokkur ný atriði í sóknarleikn-
um sem við höfum verið að þreifa
okkur áfram með upp á síðkastið,
bæði í leikjunum í haust við Pólverja
og á æfingum upp á síðkastið. Í sókn-
arleiknum, líkt og í varnarleiknum,
verður ekki nein bylting í leikaðferð-
um, heldur erum við að byggja ofan á
það sem vel hefur tekist til með hjá
okkur á síðustu árum.
Meðal atriða í sóknarleiknum má
nefna viðbrögð við því að vera einum
leikmanni fleiri eða einum leikmanni
færri. Þá verður haldið áfram að
vinna í þeirri stöðu þegar einn leik-
maður er tekinn úr umferð,“ segir
Guðmundur sem leggur mikla
áherslu á að vel verði unnið í leikj-
unum þremur þar sem lítill tími sé til
stefnu fram að Evrópumeistara-
mótinu.
Allir fá tækifæri gegn Sviss
Dagur Sigurðsson fékk högg á
annað lærið á æfingu í fyrradag og
verður af þeim sökum ekki með í
leikjunum um helgina og í raun ríkir
fullkomin óvissa um það hvort hann
verður með á EM. Af þessum sökum
hefur Guðmundur úr 21 leikmanni að
spila í leikjunum við Sviss og segir
Guðmundur að leikmenn muni leika
misjafnlega mikið, en allir fái þó ein-
hver tækifæri. „Það verður ekki
framhjá því litið að það er kjarni
leikmanna sem kemur til með að
bera leik okkar uppi á EM og því
liggur í augum uppi að þeir leikmenn
fá meiri tækifæri en aðrir í leikjun-
um sem framundan eru, annað væri
óeðlilegt,“ segir Guðmundur og bæt-
ir við: „Hins vegar eru nokkrir leik-
menn sem eru að keppa um stöður í
liðinu og þeir leikmenn fá tækifæri
til að sýna hvað í þeim býr gegn
Sviss. Hversu margir þessir leik-
menn eru og hversu mikið þeir fá að
spila vil ég ekki gefa upp núna, það
verður bara að koma í ljós í leikj-
unum þremur. Þetta er í raun síðasta
tækifæri nokkurra leikmanna til
þess að sýna sig og sanna áður en
EM-hópurinn verður valinn strax eftir helgina,“ segir
Guðmundur sem er ánægður með þann stóra hóp leik-
manna sem hann hefur haft til æfinga síðustu vikur.
EM-hópurinn verður valinn á mánudag
EM-hópurinn verður valinn á mánudaginn, tveimur
dögum áður en haldið verður til Danmerkur á æfingamót
sem í taka þátt, auk heimamanna, Svía og Egyptar. „Ég
reikna með að ég velji fimmtán leikmenn í fyrstu og haldi
einu sæti opnu fram að Evrópumótinu,“ segir Guðmund-
ur. Spurður hvort það komi til greina að halda tveimur
leikmönnum volgum vegna þessa eina sætis sem skilið
verður eftir autt í hópnum segir hann: „Það kemur vel til
greina, hvort sem það verður markvörður eða útispilari,
að halda opnu sæti í liðinu fram yfir það að keppnin hefst.
En það er kannski best að tala sem minnst um það á
þessu augnabliki,“ segir Guðmundur Þórður Guðmunds-
son, landsliðsþjálfari í handknattleik.
Guðmundur Þ. Guðmundsson stjórnar landsliðinu að Varmá
Besta lið Svisslend-
inga í langan tíma
„ARNO Ehret, landsliðsþjálfari Sviss, er að byggja upp nýtt lið og
eftir því sem ég kemst næst þá hafa Svisslendingar ekki átt jafn
gott lið í langan tíma, það verður því spennandi að takast á við þá,“
segir Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í hand-
knattleik, um væntanlega þrjá vináttulandsleiki við Sviss sem fara
fram hér á landi um helgina, sá fyrsti verður að Varmá í Mosfellsbæ
í kvöld. Leikirnir eru liður í undirbúningi beggja þjóða fyrir Evrópu-
mótið í Slóveníu síðar í þessum mánuði.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Guðmundur Þórður Guðmundsson stjórnar
hér landsliðinu í leik gegn Pólverjum í Laug-
ardalshöllinni á dögunum.
Ívar
Benediktsson
skrifar
KOLBRÚN Ýr Kristjánsdóttir,
sundkona frá Akranesi, hélt í gær til
Bandaríkjanna þar sem hún hyggst
vera við æfingar næstu tvær vikur.
Eftir æfingaferðina heldur hún á
Opna Lyngby-mótið í sundi í Dan-
mörku. Kolbrún hyggst helga sig
sundinu fram yfir Ólympíuleikana í
Aþenu í sumar.
MARC Baumgartner, þekktasti
handknattleiksmaður Sviss og leik-
maður þýska meistaraliðsins
Lemgo, gefur ekki lengur kost á sér í
svissneska landsliðið og leikur því
ekki með því í þremur vináttulands-
leikjum hér á landi, þeim fyrsta í
kvöld að Varmá í Mosfellsbæ.
CARLOS Lima, hornamaður
lemgo í Þýskalandi og svissneska
landsliðsins, leikur enn með landslið-
inu. Meðal annarra þekktra leik-
manna svissneska landsliðsins sem
leika með því um þessar mundir er
leikstjórnandinn Robbie Kostadino-
vich, Urs Schärer og markvörðurinn
reyndi, Christian Meisterhans.
STOKE City hefur samþykkt til-
boð frá Bristol City í Marc Goodfel-
low en síðan er það undir leikmann-
inum komið hvort hann samþykki
félagaskiptin. Goodfellow er 20 ára
gamall miðjumaður og lék um tíma
sem lánsmaður með ÍBV fyrir tveim-
ur árum. Honum hefur gengið illa að
vinna sér sæti í byrjunarliði Stoke á
leiktíðinni og hefur aðeins fengið að
spreyta sig í fjórum leikjum.
LEIKMENN þýska knattspyrnu-
liðsins Hertha Berlin ætla að greiða
allan ferðakostnað 4000 stuðnings-
manna félagsins á útileiki liðsins það
sem eftir er tímabilsins auk þess að
borga miðana á leikina. Þetta gera
leikmennirnir til að koma til móts við
félagið eftir að þeir neituðu að taka á
sig 25% launalækkun. Áætlaður
kostnaður er rúmlega 90 millj. kr.
NOLBERTO Solano er kominn á
söluskrá hjá Newcastle. Bobby Rob-
son, knattspyrnustjóri Newcastle,
segir að hafi eitthvert lið áhuga á
Solano sé hann falur. Vitað er af
áhuga Aston Villa.
MANCHESTER United mun að
öllum líkindum fá írska landsliðs-
manninn Liam Miller til liðs við sig í
sumar. Samningur þessa 22 ára
gamla miðjumanns við Celtic rennur
út í sumar.
BÁRÐUR Eyþórsson þjálfari
Essó-liðsins úr norðri í Stjörnuleikn-
um hefur valið þá Hafþór Inga
Gunnarsson Snæfelli og Ómar Sæv-
arsson ÍR í lið sitt og Friðrik Ingi
Rúnarsson þjálfari Stakkavíkur-liðs-
ins í suðri hefur valið Marvin Valdi-
marsson Hamri í sitt lið vegna for-
falla. Það eru þeir Skarphéðinn
Ingason KR og Lýður Vignisson
Snæfelli sem ekki geta leikið með
Essó-liðinu og Brenton Birmingham
sem ekki getur leikið.
FÓLK
Markverðir:
Guðmundur Hrafnkelsson, Kronau-Östringen
Reynir Reynisson,Víkingi
Björgvin Gústafsson, HK
Birkir Ívar Guðmundsson, Haukum
Hornamenn og línumenn:
Guðjón Valur Sigurðsson, Essen
Logi Geirsson, FH
Gylfi Gylfason, Wilhelmshavener
Einar Örn Jónsson, Wallau-Massenheim
Sigfús Sigurðsson, Magdeburg
Róbert Sighvatsson, Wetzlar
Róbert Gunnarsson, Aarhus GF
Bjarni Fritzson, ÍR
Útileikmenn:
Dagur Sigurðsson, Begrenz
Jaliesky Garcia Padron, Göppingen
Snorri Steinn Guðjónsson, Grosswallstadt
Rúnar Sigtryggsson, Wallau-Massenheim
Gunnar Berg Viktorsson, Wetzlar
Heiðmar Felixson, Bidasoa
Ólafur Stefánsson, Ciudad Real
Ragnar Óskarsson, Dunkerque
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Haukum
Patrekur Jóhannesson, Bidasoa
Landsliðshópurinn