Morgunblaðið - 09.01.2004, Síða 58
ÍÞRÓTTIR
58 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
FORRÁÐAMENN og leikmenn kvennaliðs Keflavíkur í
körfuknattleik eru ekki sáttir við vinnubrögð Íþrótta-
félags stúdenta sem fékk til sín bandaríska leikmann-
inn Meadow Overstreet á dögunum og lék hún með ÍS
þann 3. janúar s.l. en hvarf síðan af landi brott. Þar
með getur Reykjavíkurliðið fengið til sín erlendan leik-
mann á næstu vikum og mánuðum en Keflvíkingar telja
að þar með hafi ÍS brotið heiðursmannasamkomulag
liðanna.
Hrannar Hólm formaður körfuknattleiksdeildar
Keflavíkur sagði í gær við Morgunblaðið að Ívar Ás-
grímsson þjálfari ÍS hefði að fyrra bragði óskað eftir
því að félögin gerðu með sér heiðursmannasamkomu-
lag þess efnis að hvorugt liðið myndi fá til sín erlendan
leikmann á leiktíðinni. „Ég svaraði því að ég væri per-
sónulega hlynntur því að gera slíkt samkomulag en
fyrst yrði ég að ræða við kvennaráð félagsins. Það
gerði ég en ég svaraði hinsvegar ekki Ívari fyrr en
nokkrum dögum síðar. Þann 20. desember sagði ég
honum að við værum til í að gera slíkt samkomulag en
þá var hann kominn á aðra skoðun. Meadow Overstreet
yrði með liðinu í einum leik og þar með gæti ÍS haldið
þeim glugga opnum að fá sér útlending er líða færi á
tímabilið. Ívar vildi sem sagt ekki ganga að því sam-
komulagi sem hann hafði sjálfur stungið uppá.
Við erum að sjálfsögðu ekki ánægð með þessi vinnu-
brögð nýráðins landsliðsþjálfara og ég trúi því ekki
fyrr en ég sé það að ÍS-liðið mæti til leiks gegn okkur
með erlendan leikmann í sínum röðum,“ sagði Hrannar
og bætti því við að sá tími sem hefði verið til stefnu í
kjölfarið hefði ekki verið nægur til þess að skoða þá
leikmenn sem stóðu til boða. „Við hefðum vel getað náð
í leikmann með hraði án þess að velta því mikið fyrir
okkur hvort hún hentaði liðinu, sent hana til baka eftir
einn leik og uppfyllt þau skilyrði sem sett eru um komu
erlendra leikmanna eftir 6. janúar. En kostnaðurinn
við slíkt var ekki réttlætanlegur.“ En í reglugerð KKÍ
segir að einungis þau lið sem hafa haft erlendan leik-
mann í sínum röðum fyrir 5. janúar geti fengið til sín
erlenda leikmenn á tímabilinu 6.-30. apríl.
„Íþróttafélag stúdenta braut
heiðursmannasamkomulag“
Knattspyrnuhöllin í Grafarvogi
Reykjavíkurmótið í meistaraflokki karla
Föstudaginn 9. janúar kl. 19.00 Leiknir - Þróttur
Föstudaginn 9. janúar kl. 21.00 ÍR - Valur
Miðaverð fullorðnir kr. 800, 12-16 ára kr. 200 og gildir það á báða leikina
viðkomandi kvöld. Frítt fyrir börn yngri en 12 ára í fylgd með fullorðnum.
Knattspyrnuráð Reykjavíkur
ÍHafnarfirði skiptust liðin á forystuframan af en gestirnir voru þó oft-
ar yfir. Hratt var leikið og tók það
sinn toll en í lok
þriðja leikhluta
sýndu Keflvíkingar
að þeir eru betur
búnir undir slíkt at.
Þegar þreytan fór að segja mikið til
sín náðu þeir að einbeita sér betur,
spila yfirvegað og sigu fram úr í lok
þriðja leikhluta en hleyptu Haukum
síðan ekki inn í leikinn.
Margra augu beindust að skotbak-
verðinum Whitney Robinson, sem
lék sinn fyrsta leik fyrir Hauka.
Hann sýndi ágæta snerpu, gerði
margt ágætt sjálfur og spilaði stund-
um ágætlega á samherja sína. Á 28
mínútum skoraði hann úr 3 af 8 skot-
um inni í teig, hitti úr einu af 5
þriggja stiga skotum og 7 af 8 vítum
en tók 3 fráköst. Michael Manciel tók
9 fráköst og gerði 26 stig.
Hjá Keflavík varði Nick Bradford
4 skot og tók 12 fráköst eins og Der-
rick Allen, sem hitti úr 13 af 16 skot-
um inni í teig og varði 2 skot. „Við
vorum ekki nógu góðir í vörn fyrir
hlé en það gerði gæfumuninn er við
tókum okkur á,“ sagði Falur Harð-
arsson, þjálfari Keflvíkinga, eftir
leikinn en það þurfti líka að reka liðið
af stað. „Við sögðum við leikmenn í
hálfleik að nú væri ekki rétti tíminn
til að fela sig, þetta væri eins og hver
annar úrslitaleikur og nú yrði að
taka af skarið. Og þá gekk betur.“
Njarðvík ekki í vandræðum
Njarðvík tók á móti Hamar í 8-liðaúrslitum bikarkeppni KkÍ og
Lýsingar í Njarðvík í gærkvöld.
Njarðvík sigraði
97:78.
Leikurinn fór
frekar hægt af stað
og voru fyrstu stig
leiksins skoruð eftir tveggja mínútna
leik. Hamar voru sterkir á upphafs-
kaflanum og virtist vera ákveðið
vanmat hjá liði Njarðvíkur. Bestu
menn vallarins voru Brenton Birm-
ingham og Brandon Woudstra. Þetta
var góður liðssigur og við getum ekki
annað en verið sáttir að sigra Ham-
ar. Þeir hafa verið á mikilli siglingu.
En við hlökkum til undanúrslit-
anna,“ sagði Friðrik Stefánsson, fyr-
irliði Njarðvíkur.
Meistar-
arnir slá
ekki af
Stefán
Stefánsson
skrifar
Davíð Páll
Viðarsson
skrifar
HEITT var í kolunum í Hafn-
arfirði í gærkvöldi þegar Haukar
tóku á móti Keflavík í 8-liða úr-
slitum bikarkeppni Lýsingar.
Haukar skörtuðu nýjum útlend-
ingi og það efldi þá til dáða en
margfaldir meistarar í Keflavík
hafa marga fjöruna sopið og
þegar þeir náðu undirtökunum
skóp það 98:90 sigur. Í Njarðvík
fóru heimamenn seint í gang en
unnu síðan örugglega 97:78.
Hart var tekist á í byrjun og þarhöfðu leikmenn Gróttu/KR
betur, voru fastir fyrir í vörninni og
fundu auðveldlega
gloppur í vörn ÍBV.
En þegar Eyjastúlk-
ur náðu áttum gripu
þær til leikreynsl-
unnar, stoppuðu í götin í vörninni og
höfðu fimm marka forystu í leikhléi,
13:8. Eftir hlé brettu leikmenn
Gróttu/KR upp ermarnar og náðu að
minnka forskot ÍBV niður í tvö mörk
en það vantaði samt herslumuninn
og þegar það gekk ekki að jafna
misstu þeir móðinn um stund sem
dugði ÍBV til að stinga af.
„Þetta var ströggl en við áttum al-
veg í þær,“ sagði Anna Úrsúla en
henni héldu engin bönd og hún skor-
aði 8 mörk á línunni. „Það munaði
ekki miklu en það komu lægðir hjá
okkur þegar við misstum þær fram-
úr okkur. Það verðum við að laga en
við stóðum okkur ágætlega. Við höf-
um verið í þol- og styrktaræfingum
milli jóla og nýárs enda sýndi sig að
við erum mun sterkari svo að þetta
kemur hjá okkur. Teodora Visco-
kaite var öflug og þurfti mikið til að
stöðva hana og Hildur Gísladóttir
var góð í markinu fyrir hlé.
„Það tók smátíma að komast í gír-
inn enda fyrsti leikur okkar í tvo
mánuði,“ sagði Aðalsteinn Eyjólfs-
son þjálfari Eyjastúlkna eftir leik-
inn. „Það var því svolítið ryð í þessu
hjá okkur en ég var líka að prófa 3-3
vörn, sem við höfum ekki spilað áður
því ég er að undirbúa að geta spilað
fleiri afbrigði af varnarleik, bæði fyr-
ir þetta mót og Evrópukeppnina,
sem við erum að fara í. Hinsvegar
var sóknarleikur okkar mjög stirður
og við þurfum nokkra leiki í viðbót til
að koma honum í lag. Stigin voru því
góð því þetta er erfiður heimavöllur,
eins og veit svo vel sjálfur.“ Mark-
vörðurinn Gantimorova átti mestan
þátt í sigrinum þegar hún varði 24
skot, þaraf tvö víti. Sylvia Strass hélt
uppi spilinu, Anja Nielsen skilaði
sínu úr horninu og Alla Gorkorian
tók við sér í lokin. Anna Yakova byrj-
aði vel en það var mjög hart tekið á
henni.
Morgunblaðið/Þorkell
Teodora Visockaite leikmaður Gróttu/KR reynir skot yfir Birgit
Engl landsliðsmann frá Austurríki úr liði meistaraliðs ÍBV.
Kraftur Gróttu/
KR dugði ekki
KRAFTINN vantaði ekki í Gróttu/KR þegar Eyjastúlkur komu í heim-
sókn á Seltjarnarnesið í gærkvöldi en það dugði samt ekki til því
þegar gestirnir höfðu dustað rykið af varnar- og sóknarleik sínum
var það meira en heimasæturnar á Nesinu réðu við. ÍBV trónir því
enn á toppi deildarinnar eftir 23:29 sigur og Grótta/KR-konur eru í
6. sæti en ef þær slípa leik sinn betur má búast við að þær fikri sig
upp töfluna.
Stefán
Stefánsson
skrifar
LEIFUR Sigfinnur Garðarsson, al-
þjóðlegur dómari í körfuknattleik,
mun dæma tvo leiki í Meistaradeild
Evrópu í körfuknattleik í byrjun
næsta mánaðar. Hinn 3. febrúar
dæmir Leifur leik Bourges Basket
frá Frakklandi og Orsi Sirion frá
Frakklandi í meistaradeild kvenna
og daginn eftir leik Nancy frá
Frakklandi og NIS Vojvodina frá
Serbíu/Svartfjallandi í meistara-
deild karla, en báðir leikirnir fara
fram í Frakklandi.
Leifur hefur á undanförnum ár-
um fengið úthlutað mörgum verk-
efnum í Evrópukeppninni og
undantekningarlaust fengið góða
dóma. Fyrr í vetur dæmdi hann tvo
leiki á Evrópumótunum, þann fyrri
í Danmörku og hinn síðari í Wales.
Leifur dæmir í Frakklandi
HANDKNATTLEIKUR
Landsleikur karla:
Varmá: Ísland – Sviss ................................20
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Ásgarður: Stjarnan – ÍG.......................19.15
Laugardalsh.: Árm./Þróttur – Selfoss .....20
Akureyri: Þór A. – Skallagrímur .........19.15
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót karla:
Egilshöll: Leiknir – Þróttur ......................19
Egilshöll: ÍR – Valur ..................................21
Í KVÖLD
HANDKNATTLEIKUR
Grótta/KR - ÍBV 23:29
Seltjarnarnes, 1. deild kvenna, RE/MAX-
deildin, fimmtudagur 8. janúar 2004.
Gangur leiksins: 3:1, 5:3, 6:7, 8:13, 11:15,
16:20, 20:23, 21:24, 23:29.
Mörk Gróttu/KR: Anna Úrsúla Guð-
mundsdóttir 8, Eva Björk Hlöðversdóttir
5/4, Eva M. Kristinsdóttir 4, Aiga Stefanie
2, Theodora Visockaite 2, Ragna Karen
Sigurðardóttir 1, Arndís María Erlings-
dóttir 1.
Varin skot: Hildur Gísladóttiur 17 (þar af 5
aftur til mótherja).
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk ÍBV: Alla Gorkorian 8, Anna Yakova
7/2, Sylvia Strass 5, Anja Nielsen 4, Birgit
Engl 3, Guðbjörg Guðmundsdóttir 2.
Varin skot: Julia Gantimarova 24/2 (þar af
8 aftur til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Ólafur Haraldsson og Guðjón L.
Sigurðsson.
Áhorfendur: 160.
Staðan:
ÍBV 11 10 0 1 329:253 20
Valur 12 9 1 2 299:255 19
Haukar 12 9 1 2 323:293 19
Stjarnan 12 7 0 5 262:259 14
FH 11 5 0 6 276:270 10
Víkingur 12 4 1 7 268:275 9
Grótta/KR 12 3 2 7 273:290 8
KA/Þór 11 2 1 8 269:308 5
Fylkir/ÍR 0 0 0 0 0:0 0
Fram 11 0 0 11 219:315 0
Undankeppni HM karla:
1. riðill:
Grikkland - Búlgaría .............................32:17
2. riðill:
Tyrkland - Kýpur ..................................29:22
3. riðill:
Bosnía - Holland....................................29:28
Sex þjóða mót í Rússlandi
Frakkland - Egyptaland.......................30:19
Rússland - Danmörk .............................30:30
Æfingaleikur
Svíþjóð - Túnis .......................................31:28
KÖRFUKNATTLEIKUR
Haukar - Keflavík 90:98
Ásvellir, Bikarkeppni KKÍ og Lýhsingar,
8-liða úrslit karla, fimmtud. 8. janúar 2004.
Gangur leiksins: 2:0, 2:5, 11:7, 14:23, 24:27,
29:26, 34:36, 43:45, 47:53, 50:53, 52:59,
67:61, 69:74, 69:79, 74:81, 74:84, 80:86,
80:92, 90:98.
Stig Hauka: Michael Manciel 26, Whitney
Robinson 16, Halldór Kristmannsson 15,
Sævar Haraldsson 10, Drejak Bojovic 10,
Ingvar Guðjónsson 9, Sigurður Einarsson
2, Kristinn Jónsson 2.
Fráköst: 18 í vörn, 11 í sókn.
Stig Keflavíkur: Derrick Allen 32, Nick
Bradford 22, Magnús Gunnarsson 15,
Gunnar Einarsson 12, Davíð Jónsson 9, Jón
N. Hafsteinsson 6, Hjörtur Harðarson 2.
Fráköst: 26 í vörn, 15 í sókn.
Dómarar: Erlingur S. Erlingsson og Sig-
mundur Herbertsson.
Áhorfendur: 260.
UMFN - Hamar 97:78
Njarðvík:
Gangur leiksins. 8:8, 13:14, 19:14, 25:21,
37:33, 46:37, 57:46, 66:49, 75:57, 87:64,
97:78.
Stig UMFN: Brenton Birmingham 26,
Brandon Woudstra 16, Friðrik Stefánsson
15, Guðmundur Jónsson 11, Halldór Karls-
son 8, Ólafur A Ingvason 6, Páll Kristins-
son 4, Kristján Sigurðsson 3, Arnar Smára-
son 3, Sveinbjörn Skúlason 2.
Fráköst : 33 í vörn - 10 í sókn.
Stig Hamars: Chris Dade 25, Lárus Jóns-
son 12, Svavar Pálsson 12, Fahrem Nelson
10, Hallgrímur Brynjólfsson 10, Marvin
Valdimarsson 6, Atli Gunnarsson 6.
Fráköst : 20 í vörn - 11 í sókn.
Dómarar: Helgi Bragason og Rögnvaldur
Hreiðarsson.
Áhorfendur: Um 100.
Tindastóll - Snæfell 87:88
Sauðárkrókur:
Gangur leiksins: 4:2, 12:4, 17:9, 20:17,
25:19, 29:25, 33:31, 38:41, 46:46, 48:51,
53:63, 59:67, 63:75, 66:77, 74:81, 82:84,
87:88.
Stig Tindastóls: Nick Boyd 29, Clifton Co-
ok 23, Axel Kárason 16, Óli Barðdal 5, Frið-
rik Hreinsson 5, Kristinn Friðriksson 5,
Gunnar Þór Andrésson 2, Helgi Rafn
Viggósson 2.
Fráköst: 21 í vörn - 17 í sókn.
Stig Snæfells: Dondrell Whitmore 28, Co-
rey Dickerson 22, Lýður Vignisson 17, Sig-
urður Þorvaldsson 10, Hlynur Bæringsson
4, Hafþór I. Gunnarsson 3, Andrés M.
Hreiðarsson 2, Edvard N. Dotson 2.
Fráköst: 23 í vörn - 11 í sókn.
Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson, og
Aðalsteinn Hjartarson.
UMFG - Fjölnir 105:77
Grindavík:
Gangur leiksins: 14:2, 22:5, 35:19, 39:22,
48:33, 61:34, 61:46, 68:52, 81:57, 89:61,
101:68, 105:77.
Stig Grindavíkur: Darrel Lewis 32, Páll
Axel Vilbergsson 26, Guðmundur Bragason
21, Þorleifur Ólafsson 12, Örvar Kristjáns-
son 5, Ármann Vilbergsson 5, Jóhann
Ólafsson 2, Davíð Hermannsson 2.
Fráköst: 30 í vörn - 17 í sókn.
Stig Fjölnis: Hjalti Vilhjálmsson 21, Hilm-
ar Hjálmarsson 14, Brynjar Kristófersson
11, Pálmar Ragnarsson 9, Guðni Valent-
ínusson 8, Magnús Pálsson 7, Bjarni Karls-
son 5, Helgi Þorláksson 2.
Fráköst: 25 í vörn – 13 í sókn.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Karl Frið-
riksson.
Áhorfendur: Um 70.
Haukar - UMFN 75:57
Ásvellir, Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar, 8-
liða úrslit kvenna:
Gangur leiksins: 21:12, 38:29, 60:34, 75:57.
Stig Hauka: Helene Sverrisdóttir 25, Pál-
ína Gunnlaugsdóttir 18, Þóra Árnadóttir
12, Hanna Hálfdánardóttir 10, Svanhvít
Skjaldardóttir 4, Bára Hálfdánardóttir 4.
Stig UMFN: Auður Jónsdóttir 13, Ingi-
björg Vilbergsdóttir 11, Guðrún Karlsdótt-
ir 8, Eva Stefánsdóttir 8, Sigurlaug Guð-
mundsdóttir 8.
KNATTSPYRNA
Spánn
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit, fyrri leikir:
Villarreal - Sevilla .....................................1:3
Levante - Barcelona..................................1:0
BLAK
1. deild karla:
Stjarnan - HK1:3
(16:25, 18:25, 25:18, 20:25)