Morgunblaðið - 09.01.2004, Síða 59
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 59
EINN þekktasti tenniskappi Breta,
Greg Rusedski, neitaði í gær að
hafa tekið inn steralyfið nandro-
lone en niðurstöður lyfjaprófs sem
birtar voru í gær gefa til kynna að
Rusedski hafi notað steralyfið. Í yf-
irlýsingu sem Rusedski sendi frá
sér í kvöld segir hann að lítið magn
nandrolone hafi fundist í sýni frá
honum en mál hans verður tekið
fyrir á sérstökum fundi í Montreal
þann 9. febrúar n.k. Þess ber að
geta að Rusedski er í öðru sæti á
heimslistanum í tennis.
Rusdeski er fæddur í Kanada en
er breskur ríkisborgari. Hann hef-
ur verið mjög oft meiddur á und-
anförnum misserum og hefur lítið
getað leikið á mótum af þeim sök-
um.
Rusedski féll
á lyfjaprófi
Eftir tvo fyrstu leikhlutana höfðuheimamenn forystuna og héldu
henni allt fram til síðustu sekúndu
fyrir leikhlé er gest-
unum tókst að jafna
og um leið og leik-
hlutinn var úti datt
þriggja stiga skot
Lýðs Vignissonar niður og gestirnir
voru yfir með þrem stigum. Í síðari
hálfleik tóku Snæfellingar forustuna
og þar voru það Dondrell Withmore,
Lýður og Corey Dickerson sem röð-
uðu niður stigunum.
Snæfell náði mest tólf stiga for-
ystu um miðjan fjórða leikhluta, en
heimamenn náðu að saxa niður for-
skotið og þegar sex sekúndur voru
eftir var staðan 87:88 og þá var brot-
ið á Lýð Vignissyni, en hann hitti úr
hvorugu vítaskotinu, Tindastóls-
menn geystust í sóknina en sniðskot
Axels Kárasonar rataði ekki niður og
gestirnir fögnuðu gífurlega.
Hjá Tindastól voru Nick Boyd og
Clifton Cook langbestir og Axel kom
sterkur inn í síðasta leikhluta, en í
liði Snæfells voru Dondrell, Lýður
og Corey yfirburðamenn. Sigurður
Þorvaldsson átti góðan síðasta leik-
hluta.
Fjölnir engin hindrun
Það var engin spenna í leikGrindavíkur og Fjölnis þegar
þeir síðarnefndu mættu í Röstina í 8
liða úrslitum bikar-
keppni karla í körfu-
knattleik. Heima-
menn sigruðu
örugglega eins og
flestir reiknuðu með, 105:77.
Það varð strax ljóst hvert stefndi í
fyrsta leikhluta og heimamenn voru
komnir með 22:5 forustu um miðjan
fyrsta leikhluta. Gestirnir gáfust þó
ekki upp og náðu að minnka forustu
heimamanna í byrjun seinni hálfleik.
En það var ekki nóg.
„Þetta var öruggt enda mikill
munur á liðunum. Við vorum að
klikka úr mörgum sniðskotum og
kæruleysiskaflarnir voru nokkrir.
Fjölnisstrákarnir eru með ágætis lið
með fína einstaklinga. Þetta lið kem-
ur örugglega til með að spila í úrvals-
deild innan nokkurra ára. Það verða
bara topplið í úrslitum en vonandi
fáum við heimaleik en það eru engir
óskamótherjar,“ sagði Friðrik Ingi
Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga.
Naumur
sigur
Snæfells
Björn
Björnsson
skrifar
Garðar
Vignisson
skrifar
BARÁTTULEIKUR Tindastóls og
Snæfells verður ekki flokkaður
með því besta sem sést hefur á
körfuboltavellinum en liðin átt-
ust við í átta liða úrslitum bik-
arkeppni karla í körfuknattleik í
gær. Hinsvegar var leikurinn
æsispennandi og tryggðu gest-
irnir sér sigur á síðustu sek-
úndum leiksins, 87:88, og sæti í
undanúrslitum um leið.