Morgunblaðið - 09.01.2004, Blaðsíða 64
64 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Í trylltum dansi
(Stark Raving Mad)
Gamanspenna
Bandaríkin 2002. Sammyndbönd VHS.
Bönnuð innan 12 ára. (103 mín.) Leik-
stjórn og handrit Drew Daywalt og David
Schneider. Aðalhlutverk Seann William
Scott, Lou Diamond Phillips.
HÉR er lofað mynd í anda Lock,
Stock and Two Smoking Barrels
og Trainspotting með gríni í anda
American Pie. Ekkert er þó fjær
sannleikanum því þessi blessuð B-
mynd er ekki eins nándar nærri
eins svöl, spennandi eða fyndin og
ofannefndar, þótt
meiningin hafi
sannarlega verið
að jafnast á við
þær.
Fyrir það fyrsta
þá er hugmynda-
skorturinn algjör.
Ekkert nýtt að
gerast, þótt leik-
stjóraparið unga hafi vafalaust
haldið annað með því að tvinna
fífldjarfa bankaránstilraun saman
við æsilegt reif. Svo átti Seann
William Scott örugglega að redda
restinni með persónutöfrum og
glettni. En æ og ó hvað menn hafa
misreiknað sig.
Nú er svo komið að eigi Scott
blessuðum að takast að segja skilið
við Stifler blessaðan þá verður
hann að taka sig saman í andlitinu
og velja sér betri verkefni en
þetta. Annars á hann eftir að
kynnast nýjasta vinnufélaga sínum
honum Lou Diamond Phillips
miklu betur. Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Rán á
miðju reifi
ÞAÐ gerist æ sjaldnar að gefnar séu út íslenskar
barnaplötur, hvað þá að sótt sé í gamla þjóð-
sagnaarfinn eða sígild ævintýri Grimms-bræðra
eða H.C. Andersens. Fyrir rúmum tveimur ára-
tugum síðan stóð slík útgáfa hins vegar í miklum
blóma og margar barnaplötur litu þá dagsins ljós,
aðallega fyrir tilstuðlan Svavars Gests og útgáfu
hans SG-hljómplatna.
Skífan, sem á útgáfurétt á öllum upptökum sem
voru í eigu SG-hljómplatna, hefur nú gefið út sex
sígildar barnaplötur sem ófáanlegar hafa verið
um alllangt skeið. Sú elsta, upplestur Ævars R.
Kvaran á íslenskum ævintýrum, er orðin yfir
þriggja áratuga gömul en þær yngstu rétt rúm-
lega tveggja áratuga gamlar.
ÍSLENSK ÆVINTÝRI (1969)
Ævar R. Kvaran flytur
Hér er á ferðinni endurútgáfa
á upplestri Ævars R. Kvaran
sem kom fyrst út á plötu árið
1969. Annars vegar tvö æv-
intýri eftir Jónas Hallgríms-
son, Leggur og skel og Fífill
og hunangsfluga. Hins vegar eru hér tvö frábær
ævintýri úr þjóðsögum Jóns Árnasonar, Búkolla
og Velvakandi og bræður hans.
ÆFINTÝRI Í
MARARÞARABORG (1974)
Æfintýri í Mararþaraborg er
bráðskemmtileg og spennandi
saga úr undirdjúpunum eftir
Ingebright Davik í þýðingu
Kristjáns frá Djúpalæk. Á
plötunni er það í flutningi
Helga Skúlasonar leikara og
fjallar um flatvaxna flyðrufjölskyldu sem býr á
hvítum sandfláka. Flatur pabbi, mamma Flöt og
tvíburabræðurnir Fimur og Frakkur koma við
sögu ásamt öðrum íbúum sjávarins sem verða á
vegi þeirra.
PÉTUR & ÚLFURINN (1977)
Bessi Bjarnason flytur
Bessi Bjarnason leikles hið sígilda tónlistar-
ævintýri um Pétur og úlfinn
eftir Sergei Prokofieff við
undirleik Philadelphia
Orchestra.
Skemmtilegar teikningar eftir
Pétur Halldórsson fylgja með
í bæklingi.
HANS OG GRÉTA/ÖSKUBUSKA (1978)
MJALLHVÍT/RAUÐHETTA (1978)
Nú eru liðin tæp 200 ár síðan
ævintýrakver Grimms-bræðra
leit dagsins ljós í Þýskalandi. Á
þessum tveimur plötum má
heyra vandaðar leikgerðir frá
árinu 1978 af fjórum af þekkt-
ustu ævintýrunum, um Hans
og Grétu, Öskubusku, Mjall-
hvít og Rauðhettu. Leikendur
eru Bessi Bjarnason, Elfa
Gísladóttir, Gísli Alfreðsson,
Margrét Guðmundsdóttir og
Sigurður Sigurjónsson en leik-
stjóri var Gísli Alfreðsson.
BAKKABRÆÐUR (1983)
Sigurður Sigurjónsson flytur
Sögur þær sem hér birtast eru
teknar úr íslenskum þjóðsög-
um og ævintýrum sem Jón
Árnason safnaði um miðbik
síðustu aldar. Svo vinsælar
hafa margar þessar sögur orð-
ið meðal þjóðarinnar að máltæki og orðtök úr
sumum þeirra lifa enn. Sigurður Sigurjónsson fer
á kostum í mögnuðum leiklestri.
ÆFINTÝRI H.C. ANDERSEN (1983)
Bessi Bjarnason flytur
Bessi Bjarnason las þrjú af
þekktari ævintýrum H.C.
Andersen meistaralega inn á
hljómplötu sem var útgefin
árið 1983. Þessi bráð-
skemmtilegi leiklestur er nú í
fyrsta sinn fáanlegur á geislaplötu.
Sígildar barnaplötur endurútgefnar
Þjóðsögur, Grimms-ævin-
týri og saga úr undirdjúpum
EPÓ
Kvikmyndir.com
Roger Ebert
AE. Dv
Skonrokk
FM909
Sýnd kl. 5.40. B.i. 16. Enskur texti
Vinsælasta myndin á Íslandi 3 vikur í röð!
Sýnd kl. 10.10. B.i. 16.
Tilnefnd til 5 Golden Globe
verðlauna
meðal annars besta
mynd ársins
Stórbrotin og mögnuð kvikmynd
sem enginn Íslendingur má missa af.
Kvikmyndir.is
GH. Kvikmyndir.com
HJ.MBL
HJ. MBL
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 8.
The Rolling Stone
SV. Mbl
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
„Fantavel leikin
eðalmynd“
ÞÞ Fréttablaðið
Frá
framleiðendum
Four Weddings,
Bridget Jones &
Notting Hill
SV. MBL Roger Ebert
Sjáið eina athyglisverðustu
og mest sláandi mynd ársins.
Magnþrungin
erótísk spennumynd
með Meg Ryan eins
og þið hafið aldrei
séð hana áður.
FRUMSÝNING
ÓHT. Rás2
Frá framleiðendum Four Weddings,
Bridget Jones & Notting Hill
Hennar draumar. Hennar skilmálar.
Frábær mynd og frábær tónlist enda kom myndin
skemmtilega á óvart í Bandaríkjunum.
Kvikmyndir.is
KEFLAVÍK
Kl. 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 10.10. B.i. 16 ára.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8.
KEFLAVÍK
Kl. 6 og 10.
Hilmir snýr heim
(The Return of the King)
Peter Jackson tekst það sem allir vonuðust eftir, að magna
upp það sem var magnað fyrir, og ljúka kvikmyndagerð
Hringadróttinssögu með glæsibrag. (H.J.) Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó, Sambíóin,
Borgarbíó Ak.
Bana Billa – I. hluti
(Kill Bill – Vol. I.)
Aðdáendur Tarantinos geta varpað öndinni léttar, meist-
arinn hefur engu gleymt. (H.J.) Regnboginn.
Borg guðs (City of God)
Listavel gerð mynd um ömurlegt líf gleymdra barna í fá-
tækrahverfum Brasilíu. (S.V.)½
Háskólabíó.
Dulá (Mystic River)
Vægðarlaust stórdrama um tengsl glæpa í nútíð og fortíð og
dæmda vináttu þriggja manna. Stórvirki frá Eastwood.
(S.V.) ½ Háskólabíó.
Kaldaljós
Gullfalleg kvikmynd sem hefur gríðarlega sterkan tilfinn-
ingalegan slagkraft og notast á markvissan hátt við sjón-
rænar og táknrænar lausnir við að miðla sögunni. (H.J.)
½
Háskólabíó, Sambíóin
Leitin að Nemó
(Finding Nemo)
Bullandi sköpunargleði blandast fagmennsku á öllum svið-
um. (H.J.) ½
Sambíóin, Háskólabíó.
Keisaraklúbburinn
(The Emperor’s Club)
Samviskusamlega og fagmannlega gerð. Kevin Kline stend-
ur sig með prýði í klæðskerasniðnu hlutverki.(S.V.) Háskólabíó.
BÆJARINS BESTU
Sæbjörn Valdimarsson/Skarphéðinn Guðmundsson/
Heiða Jóhannsdóttir
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð
Tímasóun 0 Botninn
Borg guðs er af mörgum talin ein allra besta kvik-
mynd sem frumsýnd var hér á landi árið 2003.