Morgunblaðið - 09.01.2004, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2004 65
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6.30 og 9.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
Frá framleiðendum Four Weddings,
Bridget Jones & Notting Hill
Frá
framleiðendum
FourWeddings,
Bridget Jones
& Notting Hill
GH. Kvikmyndir.com HJ.MBL
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Stórbrotin og mögnuð kvikmynd
sem enginn Íslendingur má missa af.
HJ. MBL
Kvikmyndir.is
KRINGLAN
kl. 8. Enskt. tal.
ÁLFABAKKI
kl. 3.50 og 5.55. Ísl. tal.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6. Ísl. tal
AKUREYRI
kl. 10.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.30 OG 8.
„Fantavel leikin
eðalmynd“
ÞÞ Fréttablaðið
Sjáið eina athyglisverðustu
og mest sláandi mynd ársins.
Magnþrungin
erótísk spennumynd
með Meg Ryan eins
og þið hafið aldrei
séð hana áður.
FRUMSÝNING
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50. Ísl. tal.
Sýnd kl. 4 og 8.15. Enskt. tal.
„ATH!
SÝND
MEÐ
ÍSLENS
KU OG
ENSKU
TALI“
KRINGLAN
kl. 6. Ísl. tal.
AKUREYRI
kl. 6. Ísl. tal
KEFLAVÍK
kl. 6. Ísl. tal
ÓHT. Rás2
FINNSKA rokkhljómsveitin The
Rasmus er væntanleg til Íslands til
tónleikahalds í byrjun febrúar og
heldur eina tónleika á Gauki á
Stöng.
The Rasmus er í dag talin bjart-
asta von Finnlands á sviði dæg-
urtónlistar og nýtur gríðarlegra
vinsælda á Norðurlöndum sem og á
Íslandi. Lagið „In The Shadow“ var
eitt vinsælasta lag síðasta árs, jafnt
hérlendis sem erlendis, hefur verið
mikið leikið á MTV og er eitt sölu-
hæsta lag sögunnar á Norð-
urlöndum. Hljómsveitin sem leikur
kraftmikla blöndu af rokki og
popptónlist sópaði að sér Grammy-
verðlaunum í Finnlandi og var val-
in besta norræna hljómsveitin á
MTV Europe verðlaununum í nóv-
ember.
Á Íslandi hafa vinsældir hljóm-
sveitarinnar farið vaxandi og hafa
fleiri en eitt myndband af nýjustu
plötu sveitarinnar Dead Letter not-
ið vinsælda á íslensku PoppTíví og
SkjáEinum.
The Rasmus munu spila á Gauk á
Stöng föstudaginn 6. febrúar en þá
verður tónleikasalur Gauksins ein-
mitt opnaður á ný, stærri og betri
eftir gagngerar breytingar. Kemur
það svo í hlut íslensku Maus að
leika með finnsku stjörnunum.
Tónleikafélagið Hr. Örlygur
stendur að komu The Rasmus til Ís-
lands.
The Rasmus
til Íslands
Finnsku Rasmusarnir hafa vakið
eftirtekt fyrir ofurgrípandi og til-
finningaríkt léttþungarokk.
NÝ kvikmynd byggð á hinni frægu
bók Douglas Adams, Hitchhiker’s
Guide to the Galaxy, verður tekin að
hluta hér á landi á þessu ári.
Það er Pétur Bjarnason og kvik-
myndafyrirtækið Labrador sem kem-
ur að kvikmyndagerðinni hér á landi
og að sögn hans er gert ráð fyrir að
tökur fari annaðhvort fram í apríl eða
ágúst á þessu ári.
Í samtali við Morgunblaðið segir
hann að ekki sé alveg búið að negla
niður hvar tökur fara fram. „Það
verður líklega á einhverjum jöklinum
en fer svo alveg eftir því hvort tökur
fara fram í apríl eða ágúst hvort tökur
fara fram á hálendinu eða láglendinu.
Ég er að vonast til að þetta verði í
apríl því þá erum við laus við ferða-
mannastrauminn. Margt spilar þar
inn í eins og hvenær leikarar eru laus-
ir og hvenær stúdíóaðstaða fæst í
Lundúnum.“
Búið er að ákveða hvaða
senur verða teknar hér – at-
riðin þar sem við sögu koma
pláneturnar tvær, hin hvíta
og hin myrka – og sam-
kvæmt þeim áætlunum gerir
Pétur ráð fyrir að tökur hér á
landi muni standa í viku en
gætu samt varið lengur.
Pétur fullyrðir að um stór-
mynd sé að ræða enda sé hún búin að
vera mörg ár í undirbúningi. Hann
segir Ísland koma inn í dæmið vegna
þess að bresku framleiðend-
ur myndarinnar hafi unnið
áður að verkefnum hér á
landi, m.a. með sér, og þekki
því vel til aðstæðna og vænt-
anlegs innlends samstarfs-
fólks. Sjálfur segist Pétur
hafa unnið að þessu verkefni
síðan í júlí á síðasta ári og
áætlar að kostnaður við tök-
urnar hér á landi fari aldrei undir 1
milljón dala eða um 70 milljónir
króna. 100 manns munu starfa við
tökurnar hér á landi og gerir Pétur
ráð fyrir að helmingur þeirra verði Ís-
lendingar. Enn er á huldu hverjir
leika í myndinni en Pétur staðfestir
að kunnir leikarar verði fyrir valinu,
jafnt bandarískir sem breskir.
Leikstjóri myndarinnar er Garth
Jennings. Hann er kunnastur fyrir
gerð tónlistarmyndbanda m.a. fyrir
REM, Blur, Fatboy Slim, og Badly
Drawn Boy, en þetta mun vera hans
fyrsta bíómynd. Það eru breskir að-
ilar sem standa að framleiðslu mynd-
arinnar með stuðningi frá tveimur
Hollywood-risum. Annar þeirra er
Disney-fyrirtæki og hefur það tryggt
sér dreifingarrétt á myndinni vestan-
hafs. Búist er við því að kvikmyndin
The Hitchhiker’s Guide To The Gal-
axy verði tilbúin til sýningar árið
2005.
Kvikmynd eftir bókinni Hitch Hiker’s Guide To The Galaxy tekin hérlendis
Morgunblaðið/Jim Smart
Pétur Bjarnason hefur komið að mörgum erlendum kvikmyndaverkefnum
hér á landi í gegnum tíðina.
Íslenskur
jökull verð-
ur fjarlæg
pláneta skarpi@mbl.is