Morgunblaðið - 21.02.2004, Síða 11

Morgunblaðið - 21.02.2004, Síða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2004 11 Skuldir | Þriggja ára rekstraráætl- un Reykjavíkurborgar var til um- ræðu á fundi borgarstjórnar á fimmtudag og kom ekki á óvart að skuldir voru ræddar frá ýmsum skemmtilegum sjónarhornum. Sýnilegt | Stefán Jón Hafstein, R- lista, sagði að mikið af ósýnilegum skuldum hefði verið í Reykjavík þeg- ar R-listinn tók við 1994. „Já, ekki voru skuldirnar sýnilegar þegar R- listinn tók við, um fjórir milljarðar króna 1993 miðað við 70 milljarða króna 2005,“ sagði Gísli Marteinn Baldursson, D-lista, í svari sínu. Ósýnilegt | „Og svo eigum við eftir að sjá þegar R-listinn teflir fram hin- um ósýnilegu eignum á móti skuld- unum. Spurning hvort þær seljist betur en hinar sýnilegu eignir til að borga fyrir skuldirnar,“ bætti Gísli Marteinn við. Fólksfjöldi | Gísli Marteinn hélt áfram og sagði að fólki í Reykjavík hefði fjölgað um 0,6% á síðasta ári en 0,7% á landinu öllu. Reykjavík drægi niður meðaltalið í landinu. Sagðist hann bíða spenntur eftir að Stefán Jón færði fram þau frumlegu rök að „það séu í raun ósýnilegir Reykvík- ingar að flytja hingað.“ Laugardagskvöld | „Þetta er svo skemmtilegt fimmtudagskvöld með Gísla Marteini að ég fæ ekki staðist freistinguna að fara hér í umræðuna,“ sagði Helgi Hjörvar, R-lista. Gísli sagði sjálfsagt að Helgi nyti þess að vera með honum á fimmtudagskvöldi því lengra væri í að þeir eyddu laug- ardagskvöldi saman. Loforð | Biðlistar á leikskólum komu til tals í máli Guðlaugs Þórs, D-lista, þegar hann svaraði Stefáni Jóni. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, R- lista, sagði enga svokallaða biðlista í Reykavík. Guðlaugur rifjaði upp að R-listinn hefði lofað því árið 1998. „Hvaða ár er nú?“ spurði hann og sagði nú fyrst sjást fyrir endann á biðlistunum. Fílar | Steinunn Valdís sagði þetta tímamótayfirlýsingu Guðlaugs Þórs, að engir biðlistar væru á leikskóla. „Þakka þér kærlega fyrir ágæti borg- arfulltrúi,“ voru hennar lokaorð. „Eru einhverjar nýjar leikreglur? Getur maður komið hér upp og sagt eftir ræðu Þórólfs að hann hafi verið að tala um fíla í Afríku?“ spurði Guð- laugur og vildi ekki kannast við skiln- ing Steinunnar. Fornaldarmenn | Kjartan Magnús- son, D-lista, sagði marga borgarfull- trúa R-listans hafa flutt tilfinninga- þrungnar ræður um Línu net fyrirtækið. „Þeir sem voguðu sér að vera með efasemdir um að borgin færi í samkeppni á fjarskiptamarkaði voru bara kallaðir fornaldarmenn í jakkafötum. Það var ekkert annað,“ sagði Kjartan þegar hann gagnrýndi fjáraustur í þetta fyrirtæki. Sorglegt | „Þetta er ný starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur, fjórða veitan, og það er sorglegt að ungir stjórn- málamenn á borð við Kjartan Magn- ússon og Guðlaug Þór Þórðarsson, sem eru vissulega fornaldarmenn í jakkafötum, skuli ekki hafa uppgötv- að þetta,“ var svar Alfreðs Þorsteins- sonar, R-lista, þegar hann undirstrik- aði mikilvægi Línu net. Afsökun | Ólafur F. Magnússon sagði að niðurgreiðslum á raforku til stóriðju væri mætt með hækkun á raforku til almennings. Skoraði hann á þá borgarfulltrúa, sem studdu gerð Kárahnjúkavirkjunar í borgarstjórn, að biðja Reykvíkinga afsökunar. Umræðan | Kjartan Magnússon sagði að R-listinn hefði fyrir tveimur árum talað um eftirsóknarverðar skuldir en talaði nú um ósýnilegar skuldir. „Ég veit ekki hvort þær eru eftirsóknarverðar eða ekki.“  „ÞAÐ mun auðvitað ekki ganga í samkeppnisumhverfi að Reykjavík- urborg sé annars vegar aðaleigandi Orkuveitu Reykjavíkur og hins veg- ar næst stærsti eigandinn í öðru af stóru orkuframleiðslufyrirtækjun- um, sem er Landsvirkjun,“ sagði Helgi Hjörvar borgarfulltrúi og stjórnarmaður í Landsvirkjun á fundi borgarstjórnar á fimmtudag. Það komi nú í ljós hversu óheppilegt þetta sé um leið og orkufyrirtæki fari að starfa í samkeppni. Taldi hann þörf á pólitískri umræðu um hvort leyfa ætti t.d. lífeyrissjóðum að fjárfesta í orkugeiranum. Helgi sagði að Orkuveita Reykja- víkur væri að auka eigin orkufram- leiðslu til að selja í Reykjavík og þörfin fyrir aðild borgarinnar að öðru orkufyrirtæki væri ekki lengur fyrir hendi. Landsvirkjun framleiddi líka fyrst og fremst fyrir stóriðju og önnur landsvæði. „Þess vegna er tímabært að taka þessa eignaraðild til endurskoðunar,“ sagði Helgi og ástæða væri til að efast um að Reykjavíkurborg ætti hlutdeild í þjóðvegakerfi fyrir raforku. Eðli- legra væri að ríkisvaldið ætti flutn- ingskerfið eitt og sér. Hagsmunamál Reykvíkinga Dagur B. Eggertsson, borgar- fulltrúi R-listans, tók undir orð Helga og sagði þetta brýnt hags- munamál Reykvíkinga. Sjálfsagt væri að axla ábyrgð til atvinnuupp- byggingar á höfuðborgarsvæðinu í gegnum Orkuveitu Reykjavíkur. „Það er með öllu ólíðandi að við þurf- um jafnframt að taka á okkur skuld- bindingar og lán vegna uppbygging- ar Landsvirkjunar,“ sagði Dagur. Ef nýju raforkulögin ættu ekki að vera aðhlátursefni hlyti ný nefnd að verða stofnuð af stjórnvöldum um það hvernig losa ætti hlut borgarinnar í Landsvirkjun. Þriðji fulltrúi meirihlutans í borg- arstjórn, Stefán Jón Hafstein, tók undir þessi orð og sagði eignina í Landsvirkjun ekki skila neinum arði sem um munaði heldur fela ein- göngu í sér skuldbindingar. Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, borgar- fulltrúi R-listans, sagði þetta fyrirkomulag bjóða upp á hags- munaárekstra. Vandamál væri að Reykjavíkurborg væri svo stór eign- araðili í tveimur stórum orkufyrir- tækjum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, odd- viti Sjálfstæðisflokksins og stjórnar- maður í Landsvirkjun, sagði að það þurfi að skilgreina framtíð, stöðu og skyldur Landsvirkjunar áður en menn hentu því fram að það bæri bara að selja hlut Reykjavíkurborg- ar. Þetta samstarf hefði varað í tæp 40 ár og menn ryfu það ekki svo glatt. Allt hefði þetta sinn eðlilega tíma og framundan væru mikilvægir stóriðjusamningar. Hægt væri að skoða þetta þegar Kárahnjúkavirkj- un væri lokið og þá kæmi vel til greina að fjársterkir sjóðir fengju að fjárfesta í Landsvirkjun. Vilhjálmur sagði að Reykjavíkur- borg veitti ekki af einhvern daginn að eiga þessa peninga í Landsvirkj- un til að grynnka á skuldasúpunni. Hann treysti mörgum til að taka þessa peninga og eyða þeim. Borgarfulltrúar R-listans vilja rjúfa 40 ára samstarf um Landsvirkjun Gengur ekki að Reykjavíkur- borg eigi í Landsvirkjun NÝTT skipulag raforkumála á Ís- landi mun hafa í för með sér hækkun á raforku til heimila en lækkun til stórnotenda spáði Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson oddviti Sjálfstæðisflokks- ins í borgarstjórn á fimmtudaginn. Hann gagnrýndi breytinguna þar sem skilið er á milli framleiðenda raforku og stofnað sérstakt fyrir- tæki um raforkuflutning. Við þessu hefði mátt búast eftir tilskipun Evr- ópusambandsins um þetta efni. Ís- land sé þó ekki hluti af innri markaði Evrópu og óþarfi hafi verið að éta þetta fyrirkomulag upp eftir Evr- ópusinnum. Reynist rétt, að orku- verð á höfuðborgarsvæðinu hækki, sé það mjög alvarlegt mál. Létu undan þrýstingi frá Brussel Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarfulltrúi R-listans, tók undir með Vilhjálmi og sagði það með öllu óþolandi ef þessi breyting fæli það í sér að raforkuverð hækkaði mest hjá þeim sem byggju á suðvesturhorni landsins. Hún sagði það ríka til- hneigingu hjá stjórnmálamönnum að kenna valdinu í Brussel um hvernig komið væri. „Ég lít svo á og tel að það sé alfarið íslenskum stjórnvöld- um um að kenna að það þurfi að taka upp þessa tilskipun og þau hafi ein- faldlega sofið á verðinum þegar verið var að vinna að þessari tilskipun. Þau hefðu vel getað, einmitt með þeim rökum að við erum ekki hluti af innri markaði í raforkumálum, feng- ið undanþágu frá þessari tilskipun ef þau hefðu beitt sér í málinu. En þau sváfu á verðinum. Þannig að það er ekkert hægt að kenna Brussel um. Það er íslenskum stjórnvöldum um að kenna,“ sagði Ingibjörg Sólrún. „Ég held að það sé mikið til í því sem borgarfulltrúi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir um þetta mál að ís- lensk stjórnvöld hafi sofið á verðin- um,“ svaraði Vilhjálmur, og þau hafi látið undan þrýstingi frá Brussel. Ekki endilega útlendingum þar held- ur e.t.v. Íslendingum sem þar vinni. Ísland ekki hluti af innri raforkumarkaði ESB „Alfarið íslenskum stjórn- völdum um að kenna“ Morgunblaðið/Sverrir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði að íslensk stjórnvöld hefðu sofið á verð- inum. Þau hefðu vel getað fengið undanþágu frá tilskipun ESB. FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ gerir athugasemd við frétt sem birt- ist í gær um umræður í borgarstjórn um kostnaðarmat ráðuneyta á laga- frumvörpum og reglugerðum. Frétt- in var undir fyrirsögninni „Ráðu- neyti hunsa samning um kostnaðarmat“. Í fréttinni er haft eftir borgar- stjóra að misbrestur sé á því að kostnaðarmat fylgi reglugerðum og lagafrumvörpum frá félagsmála- og umhverfisráðuneyti þrátt fyrir sam- komulag sem gert var 4. desember sl. milli ríkis og sveitarfélaga. „Félagsmálaráðueytið vill vegna þessara ummæla taka undir mikil- vægi þess að áður en sett eru ný lög eða reglugerðir fari fram mat á því hvaða áhrif slíkt hafi á útgjöld sveit- arfélaga. Ráðuneytið vill jafnframt að fram komi að frá því að umrætt samkomu- lag tók gildi hefur engin athugasemd borist ráðuneytinu frá Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga eða einstökum sveitarfélögum við framkvæmd mats á kostnaðaráhrifum reglugerða sem ráðuneytið setur gagnvart sveitar- félögum. Sama máli gegnir um laga- frumvörp sem félagsmálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi. Ráðuneyt- ið telur sig hafa farið í einu og öllu eftir því samkomulagi sem gert var á milli ríkis og sveitarfélaga og telur því sérstaka ástæðu til að vísa fyr- irsögn fréttarinnar á bug.“ Athugasemd frá félags- málaráðuneytinu Farið eftir samkomu- laginu ÞESSARI þriggja ára áætlun vinstri meirihlut- ans í Reykjavík verður best lýst sem árlegum loforðum um áður svikin loforð,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokksins, við seinni umræðu um rekstraráætl- un, framkvæmdir og fjármál Reykjavíkurborg- ar til ársins 2007 í borgarstjórn í fyrradag. Lýsti hún því hvernig áform R-listans, í áður framlögðum áætlunum, um skuldalækkun hefðu síðan reynst fela í sér skuldahækkun. Þar skeikaði jafnvel 35%. Þá væri bara lofað upp á nýtt og öllu gleymt sem áður var sagt. Áætl- anirnar stæðust ekki einu sinni væri horft eitt ár fram í tímann, hvað þá þrjú. „Boðskapur þessarar þriggja ára áætlunar er því fyrst og síðast tilkynning til borgarbúa um áframhaldandi skuldaaukningu,“ sagði Hanna Birna. Stefnt væri að því að hreinar skuldir Reykjavíkurborgar yrðu 74 milljarðar árið 2007 en hefðu til samanburðar verið 4 milljarðar árið 1993. Stefán Jón Hafstein sagði að mikið hefði ver- ið fjárfest í mannauði í valdatíð R-listans en því hefði verið ábótavant. Þá hefðu innviðir sam- félagsins verið treystir og þessar fjárfestingar kostuðu peninga. Þegar erlendir gestir kæmu til landsins væri ekki bara áhugavert í þeirra augum að Íslendingar hituðu upp hús sín með heitu vatni, heldur ekki síður, að Reykjavík- urborg setti 40% af útgjöldum sínum í fræðslu- mál. Ósýnilegar skuldir Hanna Birna sagðist aldrei hafa heyrt ein- kennilegri ræðu um skuldir Reykjavíkurborgar. Stefán hefði í raun kynnt nýtt hugtak; ósýni- legar skuldir. Og allt hefði verið vaðandi í ósýnilegum skuldum þegar Reykjavíkurlistinn tók völdin, sagði hún og það hefði ekki síst ver- ið ríkisstjórninni að kenna að sögn Stefáns Jóns. Þessar skuldir sæi hann bara en ekki aðr- ir í borgarstjórn. „Eru einhverjar aðrar ósýnilegar skuldir hér í Reykjavík sem við sjáum ekki og vantar í þriggja ára áætlunina?“ spurði Hanna Birna borgarfulltrúann. Samkvæmt ræðu Stefáns Jóns væri það til marks um að vera framsýnn og nútímalegur stjórnmálamaður að safna skuldum fyrir komandi kynslóðir. Það væri það eina sem R-listinn hefði gert. „Má ég þá biðja um að tilheyra öðrum hópi,“ sagði Hanna Birna. Stefán Jón svaraði því til að í Reykjavík hefðu skólar verið byggðir upp og innviðir sam- félagsins treystir. Hanna Birna sagði Stefán tala eins og í Reykjavík hefði verið ómenntað fólk og engir skólar. Engin bylting hefði orðið þegar R-list- inn tók við stjórn borgarinnar. „Eina byltingin er að R-listinn hefur stöðugt safnað skuldum,“ sagði hún. Stefán sagði nóg að nota eitt orð til að lýsa þessari byltingu R-listans. „Leikskólar,“ sagði hann og settist í sæti sitt. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn gagnrýna rekstraráætlun næstu þriggja ára Segja skuldaukningu boðaða áfram

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.