Morgunblaðið - 21.02.2004, Page 27

Morgunblaðið - 21.02.2004, Page 27
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2004 27 hér væru á ferð á því að unnið hefði verið gott starf og sagði það einkum að þakka frábæru starfi Valgeirs Þorvaldssonar. Það starf sem hér væri unnið væri mjög vel þekkt, ekki aðeins á Íslandi heldur mjög víða erlendis og þá sér- staklega í Vesturheimi, enda hefði vel tekist til og allt unnið af fá- gætri fagmennsku og smekkvísi. Ársæll Guðmundsson sveit- arstjóri tók til máls og tók mjög í sama streng og fyrri ræðumenn, sagði Ársæll að starf það sem unn- ið er í Vesturfarasetrinu á Hofsósi væri ekki eingöngu mikilvægt fyr- ir það litla samfélag sem væri á Hofsósi, heldur væri hér leyst af hendi metnaðarfullt menningar- starf sem hefði áhrif um allt land og langt út fyrir landsteinana. Að loknum ávörpum var gengið út fyrir Frændgarð og þar afhjúp- uðu þau Siv Friðleifsdóttir, Helga Guðjónsdóttir og Valgeir Þor- valdsson viðurkenninguna, sem er listaverk, hannað af Oddi Her- mannssyni arkitekt. Valgeir Þorvaldsson sagði það sér og öllum þeim sem að starfinu í Vesturfarasetrinu kæmu mjög öfluga hvatningu og sagði það mikilsvert að finna stuðning og fá viðurkenningu á því sem verið væri að gera. Sagði hann þessa viðurkenningu hvetja til enn frek- ari átaka, og benti á hversu mik- ilvægt væri fyrir lítil samfélög úti á landi að fá að taka að sér mik- ilvæg verkefni með þjóðarstuðn- ingi. Hann sagðist vænta þess að viðurkenningin yrði öðrum jafn áhugavekjandi og þeim á Vest- urfarasetrinu. Að afhjúpun verksins lokinni þágu gestir veitingar, en ungur tónlistarmaður, Jón Þorsteinn Reynisson, lék nokkur lög á harm- oniku meðan setið var undir borð- um. Morgunblaðið/Björn Björnsson Viðurkenning: Siv Friðleifsdóttir, Helga Guðjónsdóttir og Valgeir Þor- valdsson afhjúpa listaverkið sem Oddur Hermannsson arkitekt hannaði. Akranes | Ungir karateiðkendur létu mikið að sér kveða á Akranesi 14. febrúar sl. er þar fór fram Ís- landsmót unglinga í íþróttinni. Þetta er í fyrsta sinn sem Íslands- mót fer fram í karate á Akranesi en þar hefur íþróttin verið stunduð af krafti undanfarin ár. Alls tóku 90 keppendur þátt að þessu sinni og er það talsverð aukn- ing frá því sem var fyrir ári er Ís- landsmótið fór síðast fram. Fjórir aldursflokkar voru í keppni í kata og í tveimur efstu aldursflokkunum var kynjaskipt. Keppt var í þremur flokkum í hópkata. Karatefélagið Þórshamar úr Reykjavík náði í flest stig á Íslands- mótinu og eru unglingameistarar félaga í kata árið 2004. Félögin fá stig fyrir einstaklinga sem ná 1., 2. eða 3. sæti í einstaklingskeppninni og einnig eru gefin stig fyrir hóp- kata. Eins og áður segir var Þórs- hamar efst í stigakeppninni, Kar- atefélag Reykjavíkur kom þar á eft- ir, Haukar úr Hafnarfirði fengu brons, Breiðablik varð í fjórða sæti og Karatefélag Akraness í því fimmta. Jón Yngvi Seljeseth, Þórshamri, Guðbjartur Ísak Ásgeirsson, Hauk- um, Andri Bjartur Jakobsson, Kar- atefélagi Reykjavíkur, María Helga Guðmundsdóttir, Þórshamri, Anton Kaldal Ágústsson, Karatefélagi Reykjavíkur, og Sólveig Sigurð- ardóttir, Þórshamri, fengu gull- verðlaun í einstaklingskeppninni. Haukar sigruðu í hópkata tán- inga, Karatefélag í hópkata ung- linga og í yngsta hópnum varð Þórshamar í efsta sæti. Yfirdómari á mótinu var Gunn- laugur Sigurðsson og yfirvall- ardómarar þeir Ólafur Hreinsson og Jón Ingi Þorvaldsson sem var að þessu sinni á heimavelli. Auk þeirra voru 9 meðdómarar en mótsstjóri var Indriði Jónsson. Frumraun Skagamanna við framkvæmd mótsins þótti takast vel og er greinilegt að íþróttin er komin til þess að vera í „knatt- spyrnubænum“. Þórshamar sló í gegn á Skaganum Morgunblaðið/Sigurður Elvar Sólveig Sigurðardóttir, Fríða Bogadóttir og Auður Olga Skúladóttir voru vígalegar á Akranesi um helgina, en stúlkurnar kepptu fyrir Þórshamar á Íslandsmóti unglinga. LANDIÐ Reykjanesbær | Forvarnarstefna Reykjanesbæjar var formlega kynnt fyrir tengiliðum þeirra nítján stofn- ana og félaga sem tengjast henni við athöfn í Kirkjulundi í Keflavík í fyrradag. Jafnframt var sagt frá hlutverki forvarnarteymis sem bæj- arstjórn hefur kosið. Nefnd þriggja embættismanna sem starfaði undir forystu Ragnars Arnar Pétursonar, æskulýðs- og for- varnarfulltrúa, undirbjó forvarnar- stefnuna sem samþykkt var sam- hljóða í bæjarstjórn Reykjanesbæjar fyrr í vetur. Þegar nefndin tók til starfa voru sjö stofn- anir, félög og samtök í Reykjanesbæ með forvarnarstefnu. Nefndin ósk- aði eftir því að fleiri færu í þessa vinnu og bættust tólf aðilar við á meðan nefndin vann að verkefni sínu. Niðurstaðan varð sú að nítján stofnanir, félög og samtök lögðu fram forvarnarstefnu sína og eru plöggin nú órjúfanlegur hluti af for- varnarstefnu Reykjanesbæjar. Forvarnarstefna Reykjanesbæjar í heild var í fyrradag kynnt fyrir tengiliðum þessara aðila og þeim af- hent eintak af henni. Geta sótt um styrki Bæjarstjórn kaus sex manna for- varnarteymi til að fylgja áætluninni eftir. Í henni eiga sæti embættis- mennirnir sem undirbjuggu stefn- una ásamt fulltrúum þriggja ráða bæjarins. Í nefndinni eru, auk for- varnarfulltrúans, Rannveig Einars- dóttir yfirfélagsfræðingur, Gylfi Jón Gylfason yfirsálfræðingur, Gunnar Oddsson frá menningar-, íþrótta- og tómstundaráði, Gerður Pétursdóttir frá fjölskyldu- og félagsmálaráði og Helga Jóhanna Oddsdóttir frá fræðsluráði. Ragnar Örn segir að hópurinn muni hittast nokkrum sinnum á ári til að fylgjast með fram- kvæmd stefnunnar. Þá sé hugmynd- in að fulltrúar þeirra nítján aðila sem eigi beina aðild að forvarnarstefn- unni hittist einu sinni á ári. Þá getur hann þess að fleiri stofn- anir og félög hafi haft áhuga á að leggja fram sínar forvarnarstefnur en ekki unnist tími til þess áður en bærinn gekk frá sinni stefnu. Muni þeir tengjast henni jafnóðum og plöggin verði til. Þær stofnanir og fé- lög sem eiga aðild að forvarnarstefn- unni geta sótt um styrki úr forvarn- arsjóði Reykjanesbæjar til verkefna á þessu sviði. Forvarnarstefna Reykjanesbæjar afhent þátttakendum Sex manna forvarnar- teymi fylgir stefnunni eftir Ljósmynd/Jóhannes Kr. Stefnan tekin: Fulltrúar allra stofnana og félaga sem tengjast forvarnarstefnu Reykjanesbæjar komu á kynning- arfund og fengu stefnuna afhenta. Forvarnarteymi kynnti einnig fyrirhuguð störf sín við að fylgja stefnunni eftir. Sandgerði | Öllum lóðum sem ætl- aðar eru fyrir sumarhús í landi Nátthaga við Þóroddsstaði í Sand- gerðisbæ hefur verið úthlutað, alls nítján lóðum. Fimm hús eru full- gerð, tvö fokheld og framkvæmdir að hefjast á nokkrum lóðum. Talsverðar framkvæmir standa yfir í Sandgerði um þessar mundir, bæði á vegum bæjarfélagsins, fyr- irtækja og einstaklinga. Yfirlit Guðfinns G. Þórðarsonar bygging- arfulltrúa er birt á vef Sandgerð- isbæjar. Framkvæmdir eru hafnar við Miðnestorg 3 í fyrirhuguðum miðbæ Sandgerðis. Framkvæmdin er á vegum Sandgerðisbæjar, Miðnestorgs ehf. og Búmanna hsf., en aðalverktaki er Húsagerðin ehf. Um er að ræða þriggja hæða bygg- ingu, alls um 3.200 fermetra að stærð. Í húsinu verða bókasafn, bæjarskrifstofur, ýmis þjónustu- starfsemi, miðjukjarni með þjón- ustueldhúsi og íbúðir. Gengið verður frá lóð með mal- bikuðum bílastæðum, hellulögn og öðrum frágangi. Á lóðinni er gert ráð fyrir fjölskyldugarði og tjörn. Fyrirhugað er að taka húsið í notk- un eftir um það bil ár. Samið hefur verið við Nesprýði ehf. um endurnýjun lagna og gang- stétta í Túngötu, Vallargötu, Aust- urgötu, Hlíðargötu og hluta Suð- urgötu. Endurnýjaðar verða að hluta til fráveitu- og vatnslagnir og lagðar nýjar gangstéttir. Áætlað er að framkvæmdum ljúki á þessu ári. Lóðirnar renna út Lóðaúthlutun hefur gengið vel við Bogabraut, sem er nýtt bygg- ingarsvæði fyrir einbýlishús, sunn- an við Oddnýjarbraut. Þar eru tólf byggingarlóðir auk tveggja syðst við Holtsgötu. Búið er að úthluta níu lóðum, flutt er inn í eitt hús, tvö eru um það bil fokheld og framkvæmdir eru hafnar á nokkr- um lóðum. Framkvæmdir standa yfir við götuna og er áætlað að malbikun ljúki síðari hluta ársins. Nýtt byggingarsvæði var sam- þykkt á síðasta ári við Lækjamót, fyrir ofan Heiðarbraut. Gatnafram- kvæmdir standa yfir og er aðal- verktaki A. Pálsson ehf. Fyrirhug- að er að gera neðri hluta svæðisins byggingarhæfan á þessu ári og er verið að vinna við gatnagerð og lagnir. Úthlutað hefur verið fjórtán byggingarlóðum til verktaka og einstaklinga fyrir einbýlishús, par- hús og raðhús. Eitt parhús með tveimur íbúðum er nú fokhelt. Allar lóðir í Nátt- haga gengnar út Nafn á nýjan skóla | Fræðsluráð Reykjanesbæjar óskar eftir áliti bæjarbúa á nafni á nýjan skóla sem byggður verður í Innri-Njarðvík á þessu og næsta ári. Skólinn hefur borið vinnuheitið Thorkilliskóli, í höfuðið á Jóni Þor- kelssyni Thorillius Skálholtsrektor sem fæddist í Innri-Njarðvík. Nokkrar umræður hafa farið fram um nafnið í bæjarfélaginu og sýnist sitt hverjum að því er fram kemur á vef Reykjanesbæjar. Nokkrar hugmyndir hafa komið fram og tengjast þær ýmist sögunni eða örnefnum á svæðinu. Komið hef- ur tillaga um að nefna skólann Jóns- skóla í stað Thorkilliskóla, en í höfuð sama manns. Einnig Tjarnaskóli en með því nafni er verið að skírskota til nafns hverfisins sem heita mun Tjarnahverfi vegna tjarnanna sem þarna eru áberandi í umhverfinu. Heitin Seyluskóli og Kópuskóli eru nefnd með skírskotun til útræðis og atvinnuhátta. Þá hefur verið nefnt að endurvekja Akurskóla sem starf- ræktur var í Innri-Njarðvík um aldamótin 1900. Sömuleiðis eru fræðsluyfirvöld að velta fyrir sér nafni á bóka- og upp- lýsingastofu í skólanum og er óskað eftir tillögum á hana. Talið er koma til greina að tengja hana nafni Jóns Þorkelssonar eða Akri. Efnt hefur verið til skoðanakönn- unar á vef Reykjanesbæjar. Einnig er unnt að koma hugmyndum að nöfnum á framfæri við fræðsluráð Reykjanesbæjar með því að senda þær á netfangið nyrskoli@reykja- nesbaer.is eða koma þeim á fræðslu- skrifstofuna að Hafnargötu 57.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.