Morgunblaðið - 21.02.2004, Side 31
ÚR VESTURHEIMI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2004 31
SVONEFND Snorraverkefni njóta
mikilla vinsælda og sóttu nær tvö-
falt fleiri en komast í Snorraverk-
efnið hérlendis í sumar, en um-
sóknarfrestur í sambærilegt
verkefni í Manitoba í Kanada og
verkefnið fyrir eldri Snorra,
Snorra – plús, á Íslandi í ágúst er
ekki útrunninn.
„Við getum aðeins tekið á móti
15 krökkum í Snorraverkefnið
hérlendis en fengum 26 umsóknir
og þurftum því að velja eins og í
fyrra, sem var erfitt,“ segir Ásta
Sól Kristjánsdóttir, verkefn-
isstjóri.
Verkefnin hér og í Manitoba eru
hugsuð fyrir ungmenni á aldr-
inum 18 til 25 ára og jafnvel eldri.
Ungmenni af íslenskum ættum í
Bandaríkjunum og Kanada koma
hingað og kynnast landi og þjóð á
sex vikum í júní og júlí. Norræna
félagið og Þjóðræknisfélag Íslend-
inga hófu samstarf um verkefnið
1999 og kemur því sjötti hópurinn
í sumar en samtals hafa 75 manns
tekið þátt í verkefninu.
Víða kynningar
Verkefnið í Manitoba, Snorri
West, byrjaði sumarið 2001 og fer
nú fram í fjórða sinn, en það
stendur yfir frá því í lok júní og
fram í byrjun ágúst. Tilgangurinn
er að kynna íslenskum ungmenn-
um menningu og sögu Nýja Ís-
lands og efla tengslin, en þátttak-
endur búa hjá fjölskyldum af
íslenskum ættum og taka þátt í
leik og starfi. Fyrsta sumarið fóru
tvær stúlkur vestur, þátttakendur
voru fjórir sumarið 2002 og fimm í
fyrra. „Við höfum kynnt verkefnið
að undanförnu, meðal annars í
Hinu húsinu í tengslum við þemað
Útþrá, á alþjóðadegi Háskóla Ís-
lands og í Menntaskólanum á Ak-
ureyri og Verkmenntaskólanum á
Akureyri en næstu tvær vikurnar
verðum við með kynningar í fram-
haldsskólum á höfuðborgarsvæð-
inu,“ segir Ásta Sól.
Hægt er að sækja um að taka
þátt í verkefninu vestra til 17.
mars, en nánari upplýsingar má fá
á vefnum www.snorri.is þar sem
einnig má nálgast umsókn-
areyðublöð. Eins heldur einn þátt-
takandi úti vefnum www. geoci-
ties.com/irisbjorg um verkefnið.
Verkefnið Snorri – plús er
hugsað fyrir 30 ára gamalt fólk og
eldra af íslenskum ættum í Banda-
ríkjunum og Kanada. Verkefninu
var hrundið af stað í fyrra og tóku
átta manns þátt í því en í sumar
verður það haldið í tengslum við
verkefnið „Heim í átthagana“,
hópferð Vestur-Íslendinga til Ís-
lands í lok ágúst. Umsókn-
arfrestur rennur út 1. apríl.
Mikill áhugi á
Snorraverkefnunum
Morgunblaðið/Kristján
Eva Huld Ívarsdóttir til vinstri, sem var þátttakandi í Snorra West síðast-
liðið sumar, og Ásta Sól Kristjánsdóttir verkefnisstjóri kynna verkefnið í
Menntaskólanum á Akureyri, en frekari kynning verður á næstunni.
„VIÐ viljum styrkja menningar-
brúna milli Íslands og Vesturheims
og það er mikill vilji til þess af beggja
hálfu,“ segir Björn Th. Árnason,
framkvæmdastjóri Félags íslenskra
hljómlistarmanna, um fyrirhuguð
samskipti félagsins við Manitoba-há-
skóla í Winnipeg.
Björn Th. Árnason var með djass-
leikaranum Birni Thoroddsen, gítar-
leikara, í Manitoba á dögunum. „Til-
gangurinn með ferð minni var að
byggja upp tengslanet og koma á
samstarfi milli djassdeildar tónlist-
arskóla Manitoba-háskóla og FÍH,“
segir Björn. Hann segir að margt
gott hafi verið gert í samskiptunum
við Vesturheim og hugmyndin sé að
byggja ofan á þann trausta grunn.
„Hugmyndin er að auðvelda tónlist-
armönnum leiðina og næsta skref er
að vinna úr hugmyndunum en auð-
vitað er þetta spurning um peninga
eins og alltaf.“
Björn Thoroddsen lék með Rich-
ard Gillis, trompetleikara, og Steve
Kirby, bassaleikara, á 10 tónleikum í
Manitoba og fékk mjög góða dóma,
meðal annars í dagblaðinu Free
Press í Winnipeg. Richard Gillis,
sem er kennari við tónlistarskóla
Manitoba-háskóla og stjórnandi
Stórsveitar Winnipeg, hefur oft spil-
að með Birni og verið honum innan
handar. Steve Kirby, sem er yfir-
maður djassdeildar tónlistarskóla
Manitoba-háskóla, er þekktur bassa-
leikari vestra og lék Björn Thorodd-
sen með honum í fyrsta sinn í þessari
ferð en til stendur að endurtaka leik-
inn á Íslandi í haust. „Samspil þre-
menninganna tókst frábærlega, en
þeir komu fram með Stórsveitinni í
Winnipeg og sem tríó og var alls
staðar vel tekið,“ segir Björn Árna-
son og bætir við að kanadíska út-
varpið hafi meðal annars tekið upp
tónleika þeirra í Gimli.
„Ég var mjög stoltur af mínum
manni og það var ekki annað að
heyra á heimamönnum en að þeir
væru mjög sáttir við Björn,“ segir
framkvæmdastjórinn. „Ungir sem
aldnir fylltu salina, virtust njóta
hvers augnabliks og tóku þátt í tón-
leikunum af lífi og sál. Stórsveitin
kom fram tvisvar sama daginn í sal
Listasafns Winnipeg sem tekur um
450 manns, en á meðan á öðrum tón-
leikunum stóð fór ég á tónleika með
einni skærustu stjörnu Kanada og
þar var hálftómt hús. Það var því
Björn Thoroddsen sem trekkti.“
Vilja styrkja menn-
ingarbrúna vestur
Ljósmynd/Brian Gudmundson
Björn Thoroddsen til hægri lék með Richard Gillis,
trompetleikara, til vinstri, og Steve Kirby, bassaleikara,
á 10 tónleikum í Manitoba á dögunum.
Brian Gudmundson, formaður Íslendingafélagsins
Framfara í Winnipeg, kom að tónleikahaldinu og er
hér til vinstri með Birni Th. Árnasyni, framkvæmda-
stjóra FÍH.
Dagskráin í dag 21. febrúar
ze
to
r
www.rvk.is/vetrarhatid
11:00 – 12:00
Styttur bæjarins, sem enginn nennir að horfa á…
Gönguferð milli útilistaverka. Listasafn Reykjavíkur.
11:00 – 17:00
Með kveðju frá Barcelona. Listasafn Reykjavíkur.
12:00 – 16:00
Opið hús Hjá Myndhöggvarafélagi Reykjavíkur, Nýlendugötu 15.
13:00 – 15:00
Þríleikur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
13:00 – 18:00
Óðurinn til orkunnar. Elliðaárstöðin í Elliðárdal.
13:00 – 17:00
Listir Hallgrímskirkju, Skólavörðuholti.
13:00 – 17:00
Fjölbreytt dagskrá í félagsstarfi Gerðubergs.
14:00 – 17:00
Þekkir þú höggmyndir Sigurjóns? Skemmtilegur fjölskylduleikur
í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga.
14:00
Brúðuleikhús fyrir börn á öllum aldri í Iðnó, Vonarstræti.
14:00 – 17:00
Þjóðahátíð í Ráðhúsi Reykjavíkur. Meðal þátttakenda eru
fulltrúar frá Japan, Póllandi og Ástralíu.
Fjölþjóðleg skemmtiatriði á sviði á klukkutíma fresti.
14:00 – 17:00
“Sonor” “Jipto” í sýningarsal SÍM, Hafnarstræti 16.
14:00 – 22:30
Líttu inn í Hitt húsið, Pósthússtræti. Afar fjölbreytt dagskrá.
14:00 – 17:00
Safnaramarkaður í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
14:30 – 16:00
Leiksýningin In Transit í biðsalnum á Reykjavíkurflugvelli.
14:45 & 15:45
Listhlaup á skautum í Skautahöllinni, Múlavegi 1.
15:00
Er listin þraut? Fjölskylduleikur og leiðsögn.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum.
15:00
Norðurland á Vetrarhátíð, hljómsveitin Mór í Ingólfsnausti.
15:00 & 17:00
Ljóðatónleikar í Söngskólanum í Reykjavík, Snorrabraut 54.
16:00
Voices for Peace kynnir heimstónlist fyrir börnum í Hafnarhúsi.
16:00
Leikur að tónum. Flautuleikur í Listasafni Einars Jónssonar.
16:00
Kynning á Grafíkvinum og listamanni ársins.
Sýningarsalurinn íslensk Grafík Hafnarhúsi, Tryggvagötu.
20:30
Opinn hljóðnemi með Howie Kunzinger frá New York í Aþjóðahúsi.
21:00 – 22:00
Reykjavík Fashion. Íslenskir fatahönnuðir í Ráðhúsi Reykjavíkur.
21:00 – 23:00
Fjölþjóðlega hljómsveitin Voices for Peace heldur tónleika í
Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Miðasala í síma: 562 3045.
SPRON er aðalstyrktaraðili tónleikanna.
22:00
Raftónlist í Skaparanum, Laugavegi 28.
23:00
Fjölmenningarlegt ball fram eftir nóttu í Iðnó, Vonarstræti.