Morgunblaðið - 21.02.2004, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2004 53
Veisla í Washington
Glæsilegur vinningur:
Sælkeraferð fyrir tvo til Washington
Flug til Baltimore fyrir tvo, gisting í Washington og sælkeraveislur á
hinum vinsælu veitingastöðum DC Coast, Ceiba og Ten Penh.
Þú svarar þremur spurningum og setur merktan
svarseðilinn í hátíðarpottinn í Vetrargarðinum.
Sjáumst - og njótum þess að vera til.
Spurningaleikur Icelandair
á Food & Fun hátíðinni sem hefst kl. 12
í Vetrargarðinum í Smáralind í dag
ÍSLEN
SK
A
A
U
G
LÝ
SIN
G
A
STO
FA
N
/SIA
.IS IC
E 23767 02/2004
Ökukennsla, akstursmat
Bifreið Toyota Touring 4x4.
Steinn Karlsson,
símar 861 2682 og 586 8568.
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Nissan Almera,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
Toyota Avensis, bifhjólak.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Wolksvagen Passat,
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.Ökukennsla - Akstursmat. Kenniá Ford Mondeo, einstakir aksturs-
eiginleikar. Akstursmat og aðstoð
við endurveitingu ökuréttinda.
Góður ökuskóli, 892 2860 og 586
1342. www.sveinningi.com
Glæsileg kennslubifreið,
Subaru Impreza, 4 wd.
Góður í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
símar 696 0042 og 566 6442.
Einn með öllu M. Benz
Ökukennsla, ökumat, ökuskóli.
Kenni á nýjan M. Benz 2003.
Eggert Valur Þorkelsson, öku-
kennari, s. 893 4744 og 565 3808.
Hilux DC SR5 bensín árg. '92,
ekinn 170 þús. Lengdur, 47 cm á
milli hjóla, 5,71 hlutf., nospin að
aftan, gormar framan, loftpúðar
að aftan, snorkel, flækjur og 2,1/2
tommu púst, 38 tommu dekk og
13 tommu krómfelgur, piee-kast-
arar, cd, gps, tölvuborð. Verð 950
þ. Skipti á ód. S. 899 7548.
Sími 590 2000
Hratt og örugglega
frá Bandaríkjunum,
tvisvar í viku
Scania, Volvo eigendur!
Varahlutir á lager. Upplýsingar,
www.islandia.is/scania
G.T. Óskarsson, Vesturvör 23,
Sími 554 6000.
Partasala, varahlutir. Mazda,
Mitsubishi, Nissan.
Bílaviðgerðir. Sími 587 8040,
892 5849 og 897 6897.
Jeppapartasala Þórðar,
Tangarhöfða 2, sími 587 5058
sérhæfum okkur með varahluti
í jeppa og Subaru. Nýrifnir:
Pajero '92, Patrol '92, Cherokee
'89, Terrano'90 og Vitara '91-'97
Gabríel höggdeyfar, sætaáklæði,
ökuljós, spindelkúlur, stýrisendar,
vatnsdælur, gormar, handbremsu-
barkar og drifliðshlífar.
GS varahlutir,
Bíldshöfða 14, sími 567 6744.
Sími 590 2000
Rafgeymarnir
komnir
TOPPGÆÐI
Þarftu að auglýsa bílinn þinn ?
Mundu tilboð til áskrifenda í Bíla-
blaðinu á miðvikudögum.
Auglýsing með mynd á kr. 995.
Pantanafrestur er til kl. 12 á þriðj-
udögum.
Auglýsingadeild Morgunblaðsins,
sími 569 1111. Netfang:
augl@mbl.is
HAFNARFJARÐARBÆR og Fjöl-
ís, samtök hagsmunaaðila um höf-
undarétt, hafa undirritað samning
um ljósritun á vernduðum verkum
í stjórnsýslu og stofnunum Hafn-
arfjarðarbæjar þ.á m. tónlistar-
skóla á vegum sveitarfélagsins.
Samningurinn er gerður sam-
kvæmt samningsfyrirmynd að
samningum sveitarfélaga við Fjöl-
ís, sem unnin var í samvinnu Fjölís
og Sambands íslenskra sveitarfé-
laga.
Fjölís er hagsmunafélag sam-
taka sem koma fram fyrir hönd
rétthafa að verkum sem njóta höf-
undarréttarverndar og nýtt eru
með ljósritun og annarri hliðstæðri
eftirgerð rita. Aðildarfélög Fjölís
eru Blaðamannafélag Íslands, Fé-
lag íslenskra bókaútgefenda, Hag-
þenkir – félag höfunda fræðirita
og kennslugagna, Myndstef, Rit-
höfundasamband Íslands og STEF.
Fjölís gætir höfundarréttar vegna
fjölföldunar á útgefnum, vernd-
uðum verkum með samningum
sem heimila takmarkaða ljósritun
gegn endurgjaldi. Auk samnings
við Hafnarfjarðarbæ hefur Fjölís
gert samning við Reykjavíkurborg
um ljósritun í stjórnsýslu og stofn-
unum borgarinnar, við ríkið vegna
ljósritunar í Stjórnarráði Íslands
og stofnunum þess, við mennta-
málaráðuneytið vegna ljósritunar í
skólum, einstakar ríkisstofnanir
sem falla utan Stjórnarráðssamn-
ingsins, Kirkjuráð vegna sókna og
stofnana Þjóðkirkjunnar, Samtök
tónlistarskóla í Reykjavík, og auk
þess samninga við allmarga einka-
skóla.
Hafnarfjarðarbær og
Fjölís undirrita samning
SJÁLFSBJÖRG, landssamband
fatlaðra, hefur sent frá sér
ályktun þar sem lýst er þungum
áhyggjum af því ástandi sem
ríkir í tengslum við heimahjúkr-
un á Reykjavíkursvæðinu, en
ágreiningur er milli starfsfólks
hennar og stjórnar Heilsugæsl-
unnar.
„Fyrir tæpu einu ári lá við
uppnámi þessarar þjónustu en á
síðustu stundu náðist tímabund-
ið samkomulag milli heimaþjón-
ustunnar og Heilsugæslunnar.
Það hefði mátt ætla að tíminn
sem síðan er liðinn, yrði notaður
til að ná framtíðarsamkomulagi
um þessa mikilvægu þjónustu en
svo virðist því miður ekki vera.
Vegna ágreinings við stjórn
Heilsugæslunnar liggur fyrir, að
fjöldi starfsmanna heimahjúkr-
unar hefur nú ákveðið að leggja
niður störf hinn 1. mars nk.
Eins og nefnt var í bréfi
Sjálfsbjargar dags. 25, apríl
2003, sjá samtökin fram á veru-
lega röskun og míkil óþægindi
fyrir fjölmarga félagsmenn sam-
takanna og aðra hreyfihamlaða,
sem háðir eru þjónustu heima-
hjúkrunar til að geta lifað og
starfað á eðlilegan hátt. Falli
þessi þjónusta niður eða skerð-
ist verulega, til lengri eða
skemmri tíma, lendir fjöldi ein-
staklinga og heimila í stórfelld-
um vandræðum. Nægir þar að
nefna erfiðleika með að fara á
fætur og hátta, fara í bað, á sal-
erni o.s.frv.
Án aðstoðar við þessar grunn-
þarfir daglegs lífs er fótunum
kippt undan tilveru þessara ein-
staklinga. Atvinna, skóli, fé-
lagslíf og önnur þátttaka í
mannnlífinu er í uppnámi. Það
segir sig sjálft að slíkt ástand er
gjörsamlega óþolandi.“
Tekið er fram í ályktuninni að
samtökin taki ekki efnislega af-
stöðu til deilunnar.
Ályktun frá Sjálfsbjörg
Hefur áhyggjur
af heimahjúkrun
Alþjóðadagur leiðsögumanna
verður haldinn í dag, laugardaginn
21. febrúar. Af því tilefni býður Fé-
lag leiðsögumanna vistfólki á Elli-
og hjúkrunarheimilinu Grund í hóp-
ferð í Bláa lónið. Valur Pálsson leið-
sögumaður mun fræða þátttakendur
um markverða staði á leiðinni, sem
og tilurð og sérstöðu Bláa lónsins.
Kaffiveitingar verða í boði Bláa lóns-
ins en ekki er gert ráð fyrir baðferð
að þessu sinni.
Lagt verður af stað í hópbifreið frá
Guðmundi Jónassyni hf. frá Elli– og
hjúkrunarheimilinu Grund kl. 13.30.
Ferðatími er áætlaður um 3 klukku-
stundir.
Ókeypis á stórdansleik
Í tilefni konudagsins verður öllum
konum boðið ókeypis á stórdansleik í
Zalza á Reyðarfirði í kvöld. Hljóm-
sveitin Kusk frá Hornafirði leikur
fyrir dansi en hljómsveitin er þunga-
miðja sýningarinnar Með allt á
hreinu þar sem flutt er tónlist Stuð-
manna og sýnd hefur verið á Höfn
við miklar vinsældir. Sýning Horn-
firðinganna verður sett upp á Broad-
way í Reykjavík í mars.
Zalza verður opnað kl. 22 á laug-
ardagskvöldið og aðgangseyrir fyrir
karlmenn er 1.500 krónur.
Í tilefni konudagsins verða marg-
vísleg tilboð á spennandi drykkjum í
Zalza, bæði á laugardagskvöldinu og
föstudagskvöldinu.
Í DAG
Tívolísyrpa Hróksins og Hús-
dýragarðsins Á morgun, sunnudag-
inn 22. febrúar, fer fram fimmta
stigamótið í Tívolísyrpu Hróksins og
Húsdýragarðsins. Keppt er í fjórum
flokkum, 1.–3. og 4.–6. bekk, drengir
og stúlkur. Fimm úr hverjum flokki
komast áfram í lokað mót þar sem
teflt er um utanlandsferð fyrir tvo til
Kaupmannahafnar.
Þeim keppendum sem ekki komast í
úrslitamótið mun verða boðið upp á
fjöltefli og verða einnig þátttak-
endur í risahappdrætti. Liðsmenn
Hróksins og Húsdýragarðsins munu
grilla fyrir keppendur og bjóða upp
á gos. Verðlaun í mótinu á sunnu-
daginn koma frá Árna Höskulds-
syni, www.tafl.net, Húsdýragarð-
inum og Hróknum.
Mótið hefst kl. 13 en mæting er kl.
12–12.25. Hægt er að skrá sig með
því að senda póst á skakskoli@hrok-
urinn.is.
Kynning á námskeiðum í IESE-
viðskiptaháskólanum í Barce-
lona fyrir stjórnendur fyrirtækja
verður á barselónskri menning-
arhelgi á Kjarvalsstöðum sunnudag-
inn 22. febrúar kl. 13–14. Iðunn Eir
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
„General Management Programs“
hjá IESE-viðskiptaháskólanum í
Barcelona, mun kynna nýtt al-
þjóðlegt námskeið fyrir stjórn-
endum íslenskra fyrirtækja.
Á MORGUN
Líðan starfsfólks á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi. Félagsfundur
Kristilegs félags heilbrigðisstétta
verður haldinn mánudaginn 23. febr-
úar kl. 20.00 að Háaleitisbraut 58–
60. Sigrún Gunnarsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur á LSH, kynnir nið-
urstöður doktorsrannsóknar sinnar
um líðan starfsfólks á Landspítala
–h áskólasjúkrahúsi. Séra Guðlaug
Helga Ásgeirsdóttir sjúkra-
húsprestur flytur hugvekju
Reykjavíkurdeild Rauða krossins
gengst fyrir námskeiðunum
„Börn og umhverfi“ (hétu áður
barnfóstrunámskeið) fyrir nem-
endur fædda 1990, 1991 og 1992.
Fyrsta námskeiðið verður miðviku-
daginn 3. mars í Fákafeni 11, 2. hæð.
Hvert námskeið stendur yfir í fjögur
kvöld kl. 18–21. Markmiðið er að
nemendur öðlist aukna þekkingu á
börnum og umhverfi þeirra. Fjallað
verður um árangursrík samskipti,
hollar lífsvenjur, leiki, leikföng,
slysavarnir o.fl. Einnig verður
kennsla í skyndihjálp.
Leiðbeinendur eru leikskólakenn-
arar og hjúkrunarfræðingar. Skrán-
ing og nánari upplýsingar hjá
Reykjavíkurdeild Rauða krossins og
á netfangi, www.reykjavikurdeild.is
Kynnir það nýjasta frá New York í
dansi. Föstudaginn 27. febrúar kl.
14.00–16.30 og laugardaginn 28.
febrúar kl. 14.00–16.30 mun Darrin
Henson, sem er einn af fremstu
danshöfundum í heiminum, kynna í
boði Dansstúdíós World Class það
nýjasta í dansi frá New York. Jafn-
framt því að vera danshöfundur er
hann leikari og leikstjóri og leikur
m.a. í sjónvarpsþáttunum Soul Food
í Bandaríkjunum, einnig kennir
hann stærstu poppstjörnunum réttu
hreyfingarnar. Skráning er hafin hjá
Dansstúdíó World Class í síma 553
0000.
Á NÆSTUNNI
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111