Morgunblaðið - 22.02.2004, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.02.2004, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Dr. Rúnar Vilhjálmsson,prófessor í félagsfræðivið hjúkrunarfræði-deild Háskóla Íslands,hélt nýlega fyrirlestur á fundi kollega sinna við Háskóla Ís- lands um þróun háskólastigsins og framtíð Háskóla Íslands. Þar bar Rúnar Háskóla Íslands saman við virta háskóla erlendis, bæði einka- skóla og skóla rekna af opinberum aðilum. Eins bar hann saman ís- lenska skóla á háskólastigi. Rúnar sagði tilefni þessarar um- ræðu vera örar breytingar á skömmum tíma á „landslagi“ há- skólastigsins hér á landi. Jafnt skól- um sem námsleiðum hefur fjölgað ört á tiltölulega skömmum tíma. Hann bendir á að Háskóli Íslands hafi verið stofnaður 1911. Deildum skólans fjölgaði í tímans rás og námsleiðum. Næsta skref var stigið 1971 þegar Kennaraskóli Íslands færðist á háskólastig og varð Kenn- araháskóli Íslands. Háskólinn á Ak- ureyri var svo stofnaður 1987, Listaháskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Viðskiptaháskólinn á Bifröst koma fram sem háskólar á síðari hluta 10. áratugarins. 1998 runnu Íþróttakennaraskólinn, Þroskaþjálfaskólinn og Fósturskól- inn inn í Kennaraháskólann og nám þeirra færðist á háskólastig. Með nýjum lögum um búnaðarfræðslu árið 1999 breyttist Bændaskólinn á Hvanneyri í Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri og Hólaskóli (Háskól- inn á Hólum) og Garðyrkjuskóli rík- isins að Reykjum voru að hluta færðir á háskólastig. Loks varð Tækniháskóli Íslands til úr Tækni- skólanum með nýjum lögum árið 2002. Rúnar bendir á að þótt skólarnir kenni sig flestir við háskóla, þá sé mikill munur á þeim. „Þessir skólar leggja ólíkar áherslur. Sumir ein- beita sér að fræðslu en aðrir vilja sinna bæði fræðslu og rannsóknum, þó með misjöfnum áherslum. Það er ljóst að menn hafa teygt mjög á hinu gamla háskólahugtaki. Á örfáum ár- um hefur það öðlast allt aðra merk- ingu en það hafði. Í dag merkir „há- skóli“ í daglegu tali skóla sem tekur við stúdentum og veitir þeim kennslu. Áður fyrr hafði háskólahug- takið miklu þrengri merkingu og vís- aði til fjölfaglegrar stofnunar sem sinnti jöfnum höndum vísindastarfi og háskólakennslu á grunn- og fram- haldsstigi. Það var þýðing á latneska heitinu universitas eða university á ensku. Nú er farið að þýða það sem rannsóknaháskóla til aðgreiningar frá annarri skólastarfsemi á háskóla- stigi,“ segir Rúnar. Gæðavísar metnir Rúnar segir að meta megi gæði skóla út frá nokkrum lykilatriðum, sem hann kallar gæðavísa, því þau vísa til faglegra gæða skólanna. Rún- ar skiptir gæðum í þrennt: Aðfangagæði vísa til þess hve vel starfsfólk uppfyllir hæfniskröfur og við hve góð ytri skilyrði, svo sem búnað og aðstöðu, skólarnir búa. Ferilgæði vísa til þess hvort unnið sé í samræmi við viðurkenndar við- miðanir og kröfur, hvað varðar fram- kvæmd og tilhögun kennslu og rann- sókna. Útkomugæði vísa til þess árang- urs sem næst í kennslu og rannsókn- um, með tilliti til þekkingar og hæfni nemenda, og birtra rannsókna kenn- ara. Í samanburði skólanna segist Rúnar styðjast mest við gæðavísa sem tengjast aðföngunum. Þar sé hægt að sjá ákveðið mynstur og tengsl á milli einstakra gæðavísa, til dæmis sé samband á milli gæða rannsókna og kennslu skólanna. Samanburður við þá bestu Rúnar bar ýmsa gæðavísa Há- skóla Íslands saman við erlenda skóla sem teljast til virtustu rann- sóknaháskóla heims. Þetta eru hinir einkareknu Harvard, Princeton og MIT í Bandaríkjunum og Oxford-há- skóli í Englandi, og bandarísku rík- isháskólarnir University of Calif- ornia-Berkeley, University of Wisconsin-Madison og University of Michigan-Ann Arbor. Rúnar segist hafa varpað fram þeirri spurningu hvort Háskóli Íslands geti flokkast sem rannsóknaháskóli? „Það er ljóst að Háskóli Íslands uppfyllir ýmsar viðmiðanir rann- sóknaháskóla, en er samt töluvert frá kjörmynd slíks háskóla. Háskól- inn ber þó höfuð og herðar yfir aðra íslenska skóla á háskólastigi hvað varðar heildarumsvif og umfang og árangur rannsóknastarfs. HÍ setur sér það megin markmið að vera rannsóknaháskóli og í nýrri þróun- aráætlun fyrir skólann er stefnt að því að hann verði rannsóknaháskóli þjóðarinnar er standist alþjóðlegan samanburð.“ Rúnar bendir á að flestir aðrir ís- lenskir skólar á háskólastigi séu í raun fagháskólar og sinni afmörkuðu sviði kennslu og fræða. Nöfn Kenn- araháskólans, Tækniháskólans, Landbúnaðarháskólans, Garðyrkju- skólans og Listaháskólans bendi til sérsviða þeirra. Þá hafa Háskólinn í Reykjavík og Viðskiptaháskólinn á Bifröst markað sér stöðu tengda við- skiptalífinu. Garðyrkjuskólinn og Háskólinn á Hólum bjóði upp á svo- nefnt diplómanám sem ljúki með prófskírteini en ekki háskólagráðu. Einn mælikvarðinn sem Rúnar tekur til skoðunar er fjöldi nemenda sem lýkur framhaldsnámi, sem gjarnan er rannsóknatengt, með meistaragráðu (MA, MS eða annarri sambærilegri) og doktorsgráðu. Menntamálaráðuneytið hefur viður- kennt rannsóknahlutverk Háskólans með því að gera við hann sérstakan rannsóknasamning, auk kennslu- samnings. Rannsóknasamningurinn stendur að hluta straum af kostnaði við rannsóknir og rannsóknatengt framhaldsnám í Háskólanum. Með rannsóknasamningnum fá háskóla- deildir viðbótarfjárveitingu sem tek- ur mið af fjölda framhaldsnema sem þreyta próf, rannsóknastigum kenn- ara og innlendum og erlendum styrkjum sem kennarar afla. Rúnar segir að alþjóðlegir rannsóknahá- skólar byggi að verulegu leyti rekst- ur sinn á rannsóknastyrkjum sem kennarar afla á grundvelli árangurs í rannsóknum. Öflugt rannsóknastarf dragi aukið fé til háskólanna og fleiri framhaldsnema. Misþröngar dyr Rúnar skoðaði meðal annars gæðavísi sem snýr að inntökuskil- yrðum skólanna. „Ef skóli er í þeirri aðstöðu að geta valið úr bestu nemendurna þá fylgir að árangur nemenda og skil- virkni í námi verður að jafnaði meiri. Það er samband á milli hlutfalls nemenda sem fá skólavist og þess hve vel nemendum gengur í nám- inu,“ segir Rúnar. Hann bendir á að Bandaríkjamenn séu mikil háskóla- þjóð og hafi hæst hlutfall einstak- linga með háskólagráðu ásamt Jap- önum. Einkareknu bandarísku rannsóknaháskólarnir þrír, sem Rúnar skoðaði, hafna 80–90% um- sækjenda, en Oxford-háskóli hafnar 65% umsækjenda. „Þessir skólar eiga einnig sameig- inlegt að þar eru mjög fáir virkir nemendur, 5–10, á hvert stöðugildi kennara. Þessi mælikvarði sýnir ákveðna festu í rekstri deilda og al- mennt góðan aðgang nemenda að kennurum. Hann sýnir einnig hvað skólarnir hafa mikla fjármuni til að fastráða kennara, en hátt hlutfall fastráðinna kennara og fáir nemend- ur á fastráðinn kennara er almennt tengt gæðum í skólastarfi.“ Eitt einkenni þeirra skóla sem Rúnar setur í fremstu röð er mjög hátt hlutfall fastráðinna kennara í fullu starfi, eða um 90%. Sambærileg tala fyrir kennara við Háskóla Ís- lands er tæp 75%. Rúnar segir ljóst að fremstu rannsóknaháskólarnir vilji fastráða kennarana í fullt starf. „Þeir vilja ekki að kennararnir séu að skipta hollustu sinni í marga staði, heldur hafi fyrst og fremst þennan eina vinnustað og helgi sig starfi á honum. Þetta gerir kleift að nýta kennarana betur í stjórnun og rekstri skólanna.“ Rúnar bendir á að í skólum sem byggja mikið á stundakennurum sé aðgangur nemenda að kennurum al- mennt lakari, því kennararnir eru alla jafna ekki til staðar utan kennslustunda. Stundakennarar taki yfirleitt ekki þátt í stjórnun deild- arinnar og innra starfi skólans. Það megi því telja vissan veikleika í skólastarfi að hafa hátt hlutfall stundakennara. Í hinum virtu erlendu rannsókna- háskólum er skilvirkni nemenda mjög mikil. „Það er lítill munur á heildarfjölda nemenda og fjölda þeirra sem eru í fullu námi og skila fullum afköstum. Hlutfallið er 85– 95% í þessum toppskólum.“ Rúnar segir marga þætti hafa áhrif á skilvirkni nemenda í námi, meðal annars námsgeta þeirra, námsáhugi, vinna með námi og fjár- hagsaðstæður. Að geta valið úrvals- nemendur úr hópi umsækjenda um skólavist sé einkennandi fyrir fremstu rannsóknaháskólana. Fáir nemendur á kennara geri að verkum að kennarar eigi auðveldara með að fylgjast með og sinna hverjum nem- anda. Í þessum skólum sé einnig góð aðstaða til náms og skólarnir fjár- hagslega sterkir. Það að geta boðið nemendum upp á styrki og aðra fjár- hagsfyrirgreiðslu hjálpi til að skapa skólunum sérstöðu og hvetji nem- endur til að helga sig náminu ein- göngu. „Mikil vinna nemenda með námi er einkennandi fyrir stóran hóp nemenda á háskólastiginu hérlend- is,“ segir Rúnar. „Það hefur margoft verið bent á að við erum með lána- kerfi sem krefst endurgreiðslu að námi loknu, en mjög takmarkað námsstyrkjakerfi. Það gæti verið hvetjandi að vera með árangurs- tengt styrkjakerfi fyrir háskóla- nema. Stúdentar hafa einnig iðulega haldið því fram að Lánasjóður ís- lenskra námsmanna veiti ekki næg lán og að hópar nemenda fái ekki lán fyrir raunkostnaði.“ Rúnar segir að styrkir til rannsókna hérlendis séu af skornum skammti og mjög erfitt að ráða nemendur í fulla vinnu við rannsóknir. „Nemendurnir sem við ráðum geta sjaldnast verið í fullri vinnu við rannsóknirnar. Þeir fá kannski full laun í þrjá mánuði eða hálf laun í sex. Þeir sem fá verkefn- aráðningar eru því yfirleitt ekki með full laun fyrir þessi störf.“ Menntunarkröfur kennara Einn helsti mælikvarði, eða gæða- vísir, á gæði skóla er menntun starfsliðsins. Í alþjóðlega viður- kenndum rannsóknaháskólum er þess almennt krafist að prófessorar hafi doktorspróf, stundi umfangs- miklar rannsóknir og njóti alþjóð- legrar viðurkenningar sem fræði- menn, jafnvel að þeir séu í fremstu röð sérfræðinga á sínu sviði. Eins að þeir eigi að baki farsæla kennslu- reynslu í grunn- og framhaldsnámi á háskólastigi. „Yfirgnæfandi meirihluti prófess- ora í þessum skólum hefur sótt um styrki til sinna rannsókna með ár- angri, eru framarlega á sínum svið- um. Um eða yfir 90% þeirra hafa birt eina eða fleiri ritsmíðar, oftast fjöl- margar, í alþjóðlega viðurkenndum ritrýndum vísindatímaritum, eða hafa ritað fræðibækur sem gefnar hafa verið út hjá alþjóðlegum viður- kenndum fræðibókaforlögum.“ Þeg- ar ráðið er í dósentsstöður í þessum skólum er einnig krafist doktors- prófs, verulegs eigin rannsókna- starfs með góðum árangri og árang- ursríkrar kennslureynslu. Eins er krafist doktorsprófs, þegar ráðið er í lektorsstöður, árangursríkrar kennslureynslu og ótvíræðrar hæfni til sjálfstæðra rannsóknastarfa. „Doktorsprófið er raunar skilyrði fyrir því að fá allar þessar stöður,“ segir Rúnar. „Þessi menntunarkrafa er ekki bundin við þessa virtu rann- sóknaháskóla, heldur er hún einnig regla meðal frænda okkar í Skandin- avíu. Menn eru ekki ráðnir í fastar kennarastöður nema með doktors- próf.“ Mismunandi inntökukröfur Rúnar segir nokkurn mun á op- inberlega reknu og einkareknu al- þjóðlegu rannsóknaháskólunum sem hann skoðaði. Munurinn sé einkum sá að opinberu skólarnir geri minni inntökukröfur en þeir einkareknu. Það helgist af þjónustuskyldu við það ríki eða samfélag sem þeir til- heyra. Þeir geri að vísu strangar kröfur til stúdenta sem komi ut- anfrá, en heimili breiðari hópi heima- stúdenta skólavist. Höfnunarhlut- fallið í þessum opinberu rannsóknaháskólum er samt hátt miðað við það sem almennt gerist hérlendis. Í opinberu rannsóknahá- skólunum eru fleiri virkir nemendur á hvern kennara en í einkareknu rannsóknaháskólunum og stærri bekkir. Rúnar segir að hlutfall stórra bekkja í háskólum sé gjarnan í öfugu hlutfalli við það fjármagn sem þeir hafa til umráða. Ef þrengi að fjárhagnum leiti skólarnir hag- ræðingar með fjölgun nemenda í fyr- irlestrum. Skilvirkni nemenda í námi sé jafnframt heldur lakari í hinum opinberu rannsóknaháskólum en þeim einkareknu. Rúnar telur það athyglisvert, að á sama tíma og gæði og árangur kennaraliðsins í opinberu alþjóðlegu rannsóknaháskólunum sé svipaður og í einkareknu rannsók- naháskólunum, endurspeglist slak- ari inntökukröfur opinberu skólanna í slakari framvindu náms og minni skilvirkni nemendanna. Þjóðskólahugmyndin úrelt? En hvernig skyldi Háskóli Íslands standa í þessum samanburði við skóla sem eru í fremstu röð í heim- inum? „Það sem er mest sláandi er höfn- unarhlutfallið. Við erum eini skólinn á háskólastigi sem tekur næstum alla umsækjendur. Allir sem upp- fylla formleg inntökuskilyrði fá skólavist, og þeir sem ekki gera það geta sótt um undanþágu og við tök- um meira að segja við 57% af þeim sem óska undanþágu. Háskóli Ís- lands hefur um langan aldur skort lagaheimildir til að takmarka skóla- vist stúdenta sem sækjast eftir námi við skólann.“ Rúnar segir dyr Háskóla Íslands svona opnar vegna þess að skólinn hafi verið skilgreindur sem „þjóð- skóli“ – skóli allrar þjóðarinnar. „Það hefur meira að segja verið til vinnuregla um að allir geti sótt fyr- irlestra í Háskólanum, svo lengi sem húsrúm leyfir,“ segir Rúnar. Hann telur að þetta hafi ákveðna ann- marka, því það leiði á köflum til los- arabrags á náminu og að námsum- hverfið verði ekki eins örvandi Ólík musteri menntunar Háskólum hefur fjölgað ört á Íslandi á undanförn- um árum. Dr. Rúnar Vilhjálmsson prófessor hefur borið íslenska háskóla saman við erlenda hvað varðar gæði og eins íslensku skólana innbyrðis. Guðni Einarsson ræddi við dr. Rúnar. Morgunblaðið/Jim Smart Dr. Rúnar Vilhjálmsson prófessor kallar eftir skýrum viðmiðunum um gæði há- skólastarfs, ákveðnum skilgreiningum á háskólum hér á landi og eðlilegri verka- skiptingu á milli þeirra. ’ Það er ljóst að Háskóli Íslands uppfyllirýmsar viðmiðanir rannsóknaháskóla, en er samt töluvert frá kjörmynd slíks háskóla. ‘ 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.