Morgunblaðið - 22.02.2004, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.02.2004, Blaðsíða 28
28 SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Kaldbakur – Cold Mount-ain, sem hefur göngu sínaí Háskólabíói og Sambíó-unum um helgina, er einaf svipmestu og virtustu stórvirkjunum á síðasta ári í kvik- myndaheiminum. Byggð á verðlauna- og metsölubók Charles Frazier og gerð undir handleiðslu Óskarsverð- launaleikstjórans og handritshöfund- arins Anthonys Minghella, sem laðaði að sér frábæra samstarfsmenn beggja vegna myndavélarinnar. Hún er löng í mínútum talið (155), en er ein þeirra safaríku gæðamynda sem flestir bíógestir vilja lengri. Höfundurinn Kvikmyndin Kaldbakur – Cold Mountain – er byggð á samnefndri skáldsögu Charles Fraziers, fyrrver- andi háskólaprófessors sem varði doktorsritgerð í heimspeki 1986. Kenndi síðar enskar bókmenntir við Háskóla Norður Karólínuríkis áður en hann tók sér fimm ára frí til að kafa ofan í sögu forfeðra sinna í þrælastr- íðinu. Afraksturinn var stórkostleg, söguleg skáldsaga sem vann það ótrú- lega afrek að sitja 45 vikur á metsölu- lista The New York Times og vinna til hinna virtu The National Book Aw- ards árið 1997. Árangurinn er enn glæsilegri í ljósi þess að bókin er frumraun höfundarins, sem áður hafði sent frá sér smásögur og ferða- pistla. Menntamaðurinn Frazier not- aði hinsvegar fé sitt og frægð til að gerast hestabóndi – að hætti forfeðr- anna, rótgróinna Suðurríkjamanna. Lokakaflinn hefst í borgarastyrj- öldinni, þrælastríðinu í Banda- ríkjunum (1861-1865). Suðurríkjaher- maðurin Inman (Jude Law), sem er m.a. búinn að lenda í mannskæðum stórorrustunum við Petersburg og Fredericksburg, er að gróa sára sinna á hersjúkrahúsi sunnanmanna er hann ákveður að nóg sé komið af til- gangslausum drápum og heldur heimleiðis. Í átt til héraðsins við ræt- ur fjallsins Kaldbaks í órafjarlægð Norður-Karólínu. Þar vonar hann að Ada (Nicole Kidman), konan sem hann elskar, bíði hans á bóndabýli föður hennar. Við tekur margra mán- aða þrautaganga hermannsins sem er réttdræpur í augum Norðurríkja- manna og liðhlaupi frá sjónarhorni eigin stríðsbræðra. Hætturnar leyn- ast því við hvert fótmál, Iman verður að halda sig fjarri alfaraleiðum og hafa í sig og á í héruðum mergsognum af langvarandi stríðsrekstri. Hann kynnist þverskurði landa sinna í göngunni, jafnt góðum sem vondum. Á meðan hefur borgarbarnið Ada tek- ið við búrekstrinum er faðir hennar fellur frá, en notið ómetanlegrar hjálpar náttúrubarnsins Ruby (Ren- ée Zellweger). Hún hefur átt við mót- læti að stríða, en lifir í voninni um endurfundi við Inman. Söguslóðirnar í dag? Þess ber fyrst að geta að Kaldbak- ur er ekki tekinn á söguslóðum í Norður-Karólínu og nágrenni. Ming- hella og framleiðendur myndarinnar mynduðu þess í stað í afskekktum sveitahéruðum Rúmeníu. Þar svipar landslaginu til nágrennis Kaldbaks, og er tiltölulega ósnortið. Á sveitavegum Bláfjallgarðs – Blue Ridge Mountain, þar sem Kaldbakur teygir sig upp í svipaða hæð og Heimleiðin löng Smábærinn hlýlegi við rætur Kaldbaks. gamla skógartroðninga og fjallastíga. Fjallið og umhverfi þess er nánast óbyggt, og aðeins á færi þaulreyndra fjallamanna að reyna að ná 2.000 metra háum toppi Kaldbaks. Hita- lækkunin nemur um 1°C., á hverja 100 metra, slóðirnar eru óglöggar, illa merktar og villugjarnar. Frá því að kvikmyndin var frumsýnd hafa hjálp- arsveitirnar í héraðinu verið kallaðar út í nokkur skipti til að aðstoða óvana bíógesti sem heilluðust fram úr getu af kvikmyndinni og óttast sveitar- menn að slíkum hrakfallabálkum fjölgi mjög er tekur að hlýna með vor- inu. Þannig er nútíminn. Art Loeb slóðin er aðalleiðin á fjall- ið og hefst við bæinn Sunburst í N- Karólínu. Hún liðast upp vesturhlíð- arnar, allt á toppinn og er hæðarmun- urinn um 1.000 metrar. Leiðin er löng og ströng, en geysifögur á öllum árs- tíðum og útsýnið mikilfenglegt. En það er ekkert líkt því sem ber fyrir augun í Kaldbak. Þegar Minghella og Ferretti, útlitshönnuðurinn frægi, fóru að líta á tökustaði sáu þeir sér til skelfingar að skógarhögg og hnetu- vinnsla er búin að stórskaða uppruna- legt útlit landslagsins. Þeim félögum fannst landssvæðið fagurt og tilkomumikið en skarð var hoggið í gróðurríkið og fátt bygginga uppistandandi frá sögutímunum á 19. öld. Þeir enduðu leitina í Karpatafjöll- unum í Rúmeníu þar sem náttúran er tiltölulega ósnortin og tilkomumikið skógarþykknið í fjallahlíðum minnir á landslagið í sögu Fraziers. Kaldbakur – Cold Mountain var fundinn. Öræfajökull, má enn greina merki um heimferð Suðurríkjahermannsins Im- ans. Því víða prýða gulir borðar póst- kassana við heimreiðina. Þjóðarsiður og alamerískt tákn um að íbúarnir bíði enn heimkomu hermanna sinna úr Borgarastyrjöldinni (sem öðrum hernaði) – sem lauk fyrir 140 árum. Í fjöllunum í nágrenni Kaldbaks er ekki lengur að finna Geitakonuna góðu, en þar er fjöldi harðgerðra fjallakvenna sem enn lifa af landinu; rækta illskeytta víghana sem fluttir eru út um allan heim. Og fjöllin sjálf eru á sínum stað í víðáttumiklum Pingah þjóðgarðinum. Þeirra á meðal Kaldbakur sem setur mikinn svip á umhverfið og er sýnilegur frá mörg- um og fjarlægum sjónarhornum. Ef maður vill setja sig í fótspor In- mans er nauðsynlegt að leita uppi saebjorn@mbl.is                                           Auk ofangreindra aðalpersónanna þriggja, er Kaldbakur þéttskipuð vel mótuðum og litríkum aukapersónum sem koma við sögu Ódysseifskviðu Inmans og búskaparbasls kvenn- anna. Þær eru undantekningarlaust túlkaðar af óaðfinnanlegum, völdum hópi skapgerðarleikara. Þessar helst- ar: Stobrod Thewes (Brendan Gleeson). Kotbóndi og drabbari, faðir Ruby. Lúrir á mannkostum og hæfileikum sem koma í ljós er líður á myndina. Sally Swanger (Kathy Bates). Bóndakona og góður granni Ödu. Veasy (Philip Seymour Hoffman). Kvensamur pokaprestur og lítilmenni sem lendir í slagtogi með Inman um sinn. Séra Monroe (Donald Sutherland). Faðir Ödu. Prestur og heldri borgari í Charleston. Flytur til fjalla úr borginni af heilsufarsástæðum. Sara (Natalie Portman) Kornung ekkja sem Inman kemur óvænt til hjálpar er Norðurríkjamenn hyggjast láta greipar sópa um kotið. Junior (Giovanni Ribisi) Dusilmenni sem dregur fram lífið við þjóðgötuna ásamt hyski sínu (eiginkonu og ver- gjörnum mágkonum), á ódæð- isverkum. Teague (Ray Winstone) Suður- ríkjamaður, illmenni sem fer fyrir heimavarnarliðinu í héraðinu við Kaldbak. Með annað augað á Ödu, hitt á liðhlaupum og norðanmönnum. Geitakonan (Melora Walters) Einbúi og grasalæknir sem lifir af landsins gæðum og geitunum sínum í óbyggð- um fjallanna. Kemur Inman til bjargar. Helstu kvikmyndagerðarmenn Leikstjóri og handritshöfundur: Anthony Minghella (Mr. Wonderful, The English Patient (Óskar), The Tal- ented Mr. Ripley.) Kvikmyndatökustjóri: John Seale (The English Patient (Óskar), Dead Poets’ Society, Witness, Rain Man, Gorillas in the Mist.) Tónlist: Gabriel Yared. (The English Patient (Óskar), The Talented Mr. Ripley, City of Angels) Klipping: Walter Murch (Julia, The Conversation, Apocalypse Now, The Godfather Part III., The English Pat- ient (Óskar). ) Útlitshönnuður: Dante Ferretti (Ad- ventures of Baron Munchausen, Hamlet, Age of Innocence, Interview with a Vampire, Kundun, Gangs of New York) – hlaut Óskarsverðlauna- tilnefningu fyrir þær allar.) Renée Zellweger (besta leikkona í aukahlutverki) og Gabriel Yared (tón- list), hlutu BAFTA verðlaunin um síð- ustu helgi. Aðrar persónur Bollan á kr. Í dag Nettó Akureyri - Akranesi Mjódd - Salavegi Kópavogi AUKINN KAUPMÁTTUR Nettó vinnur að bættum hag heimilanna... ...til langs tíma! BOLLUTILBOÐ! Á S P R E N T
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.