Morgunblaðið - 22.02.2004, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 22.02.2004, Blaðsíða 65
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 65 LEIKSKÓLAR Reykjavíkur til- kynntu það 17. febrúar síðastliðinn að þeir muni loka öllum leikskólum í 2 vikur í sumar. Síðar fékk ég svo send- an tölvupóst þess efnis að leikskóli dóttur minnar loki samanlagt í 3 vikur í sumar vegna viðhalds. Gerð verður könnun meðal foreldra þess efnis hve- nær best henti hverjum og einum að hafa leikskólann lokaðan og mun meirihlutinn ráða. Síðasta sumar var lokað í 4 vikur á flestum ef ekki öllum leikskólum borgarinnar. Ég var sjálf nýkomin úr námi, átti ekkert sumarfrí inni og þurfti því að redda pössun fyrir barn- ið í þessar 4 vikur. Það er ekkert smá rót á lífi lítils barns, þar sem öryggi, festa og regla á daglegri rútínu er tal- ið eitt af mikilvægum þáttum í upp- eldinu. Svo ekki sé talað um það að ekki fyrir alla að redda barnapíu (sem er mjög dýrt) eða ömmum og öfum til að passa allan daginn. Ég vil sérstaklega vekja athygli á skólafólki í þessari umræðu. Mjög margir foreldrar leikskólabarna er skólafólk. Þetta fólk fær tæpan mán- uð í jólafrí, eða frá ca 15. des. og fram til 5.–10. janúar og tæpar 2 vikur í páskafrí. Á sumrin aftur á móti er þetta fólk í sumarvinnu. Ekki getur það tekið sér sumarfrí, nema þá að velja sér þann kost að vera atvinnu- laus til að geta fylgt kröfum leikskóla- ráðs um að fjölskyldan taki sér mán- aðarfrí á hverju sumri. Það eru ekki margir valmöguleikar í stöðunni. Skiljanlega þurfa börnin frí frá starfsfólkinu, hinum börnunum og umhverfinu. En að þurfa að loka er óskiljanlegt. Aðalafsökun leik- skólaráðs er sparnaður, en sparnaðurinn er ekki mjög mikill miðað við þær tölur sem ég heyrði minnst á í fyrra. Önnur afsökun sem gefin er til útskýringar á þessum lokun- um er viðhald á leikskólabygg- ingu og /eða útileiksvæði. Það hlýtur að vera til önnur lausn en sú að hreinlega loka. Ég hef aldrei orðið vör við það að það þurfi að loka hverju fyrirtæk- inu á fætur öðru þó þurfi að gera við það húsnæði sem starfsemin er í. Og ekki þurfa heilu fjölskyldurnar að flytja þó lagfæra þurfi heimili þeirra, hvort sem er að utan eða innan. Auk þess vil ég setja útá þá reglu að taka þurfi samfellt 4 vikna frí eins og reglan er í dag. Mun hentugra væri t.d. að leyfa þeim sem þess óska að skipta þessu í tvö tveggja vikna tímabil. Einnig væri mun hentugra að gefa skólafólki og öðrum möguleika á að taka sín frí (og barnanna) um jól og páska, en ekki bara um mitt sumar eins og hentar útivinnandi foreldrum. Ég mótmæli þessum aðgerðum al- gjörlega og óska eftir að leikskólaráð endurskoði þessar ákvarðanir sínar. BERIT G. KRISTJÁNSDÓTTIR, Hraunbæ 102a, Reykjavík. Um sum- arlokanir leikskól- anna Frá Berit G. Kristjánsdóttur: Morgunblaðið/Ómar Leikskólar Reykjavíkur hafa tilkynnt að leikskólum verði lokað í 2 vikur í sumar. ÞANNIG var með gærkvöldið að ég sat við lærdóm og horfði á Ísland í dag á Stöð 2 þar sem rætt var um lík- fundinn í Neskaupstað. Þar sá ég skemmtilega mynd af fjölmiðl- um og þá aðal- lega hvernig Norðurljósa- fréttastofurnar vinna og þá sér- staklega í farar- broddi Róberts Marshalls. Ég bara skil ekki hvernig honum dettur í hug að nota þessa röksemda- færslu sem hann notaði gagnvart því að hann fékk ekki upplýsingar um málið. Meðal þess sem hann sagði var það að sýslumanninum á Eskifirði bæri skylda til að segja landanum frá því hvort það væri morðingi gangandi um íslenska jörð. Eitt skil ég ekki hvort honum hafi ekki dottið í hug, en það er hvort lögreglan hafi nokkuð vitað um þetta sjálf og væri að rann- saka þetta og því liggur það í augum uppi að lögreglan hefur ekkert að segja við fjölmiðla. Hvað ætti hún að segja? Önnur orð voru notuð sem ég átti erfitt með að tengja en þau orð voru annars vegar ófagmennska og ókurteisi. Hvernig sér hann út að þetta hafi verið ófagmennska? Þetta kalla ég fagmennsku, að lögreglan hlaupi ekki í fjölmiðla bara til að segja eitthvað heldur einbeiti sér að því að rannsaka málið. Það er jú hennar hlutverk að rannsaka það og upplýsa og myndi ég meta það frekar mikilvægara heldur en að vera enda- laust á einhverjum fundum þar sem fullorðnir menn spyrja spurninga einungis til að vekja athygli á sjálfum sér og sínum vinnuveitanda og selja sjálfan sig. Hitt orðið, ókurteisi, skil ég alveg svona að hluta til. Fjölmiðlar og þá sérstaklega Róbert Marshall er bara móðgaður út í lögregluna fyrir að vera ekki kóngurinn sem fái allt upp í hendurnar svo hann geti nú byrjað að gaspra um hitt og þetta. Síðan hef ég fulla trú á sýslumann- inum á Eskifirði, ef hún teldi að fjöl- miðlar gætu hjálpað þá myndi hún upplýsa almenning um einhverja hluti sem varðar málið. En það að hún sé ekki tilbúin til þess að leyfa Róberti að vera með sér 24 tíma sól- arhringsins svo hann geti nú leyst þjóðina úr þessari skelfilegu reynslu, að lögreglan vill ekki tala við fjöl- miðla, þá skil ég hana vel. Hún er auð- vitað að sýna Róberti ókurteisi sem hann sættir sig ekki við og mætir því í Ísland í dag og reynir að blása þetta upp. Af minni skemmtilegu reynslu við fréttastofur Norðurljósa veit ég hvernig þessir menn vinna, þeir hafa enga samvisku, spara ekki orðin, blása upp fréttir einungis til þess að geta selt sig og síðan má nú ekki gleyma frekjunni. Ég lenti í því fyrir nokkrum árum í vinnu sem ég var í að ónefndur fréttamaður á Bylgjunni fékk móðursýkiskast þegar hann missti af frétt sem síðar birtist á RÚV. Hann hringdi til baka og hótaði að kæra mig. Þar sem mér bar engin skylda til að segja neitt við hann, skil ég ekki alveg á hverju kæran átti að byggjast. Kannski ókurteisi sem ég sýndi honum með því að segja ekki það sem ég ekki einu sinni vissi af, en það má taka það fram að RÚV var á staðnum og fékk því fréttina sjálft án þess að ég hafi komið nokkuð nálægt því. Málið er að ég tel að ákveðnir fjölmiðlar séu að vinna á mjög lágu stigi hvað varðar fagmennsku. Málið er að ef fjölmiðlar vissu eitthvað væru þeir ekki að spara að nota það og því hlýtur það að vera að lögreglan verð- ur óvinur þeirra sjálfkrafa. Sumt þarf bara ekki að koma fram í fjölmiðlum og ætti það að vera í höndum lögreglu að ákveða það en ekki fjölmiðlanna sjálfra. Þetta mál er auðvitað ekkert venjulegt mál og því kannski ekki skrýtið að þetta sé eins og þegar fjöl- miðlar vilja vita um þegar finnast nokkur grömm af dópi. Því held ég að Róbert Marshall ætti að slappa af og kannski snúa sér að fréttum sem varðar það góða í samfélaginu, svona rétt á meðan ekk- ert er að gerast í líkfundamálinu. Og ég styð sýslumanninn á Eskifirði og lögregluna alveg fullkomlega, við þurfum ekkert að vita allt! DAVÍÐ ÞÓR SIGURÐARSON, Viðskiptaháskólanum á Bifröst, Borgarfirði. Fjölmiðlar í móðursýkiskasti Frá Davíð Þór Sigurðarsyni: Davíð Þór Sigurðarson Fyrirtæki til sölu Upplýsingar um fyrirtæki ekki veittar í síma Við sölu fyrirtækja er gagnkvæmur trúnaður mikilvægur og við gefum því ekki upplýsingar um fyrirtæki í síma. Við viljum fá kaupendur til okkar og kynnast þeim, en með því móti getum við einnig þjónað þeim betur. Vinsamlega hringið áður og pantið tíma. Síminn er 533 4300, en einnig er hægt að nota tölvupóstinn: jens@husid.is . Eftirfarandi eru stuttar lýsingar á nokkrum fyrirtækjum sem eru fáanleg, en við auglýsum ekki nema brot af þeim fyrirtækjum sem höfum til sölu:  Lítið plastframleiðslufyrirtæki í miklum vexti óskar eftir meðeiganda til að stjórna framleiðslu. Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af vélum og framleiðslu, sé röskur, reglusamur og umfram allt jákvæður.  Lítið og arðbært sjálfsalafyrirtæki. Hentugt sem aukavinna eða með öðrum rekstri. Góðir vaxtamöguleikar.  Heildverslun með byggingavörur. Ársvelta 160 m. kr.  Söluturninn Hagamel. Auðveld kaup.  Álgluggaverksmiðja með miklum tækjakosti. Tilvalið til sameiningar. Meðeign kemur til greina.  Blóma- og gjafavöruverslun í Glæsibæ. Verð aðeins 1,3 m. kr.  Matvöruverslun, bensínssala og veitingarekstur í Búðardal. Eigið hús- næði. Ársvelta er nú tæpar 200 m. kr. og hefur farið vaxandi með hverju ári. Góður hagnaður um margra ára skeið og mjög heilbrigður rekstur. Sérstaklega hentugt fyrir stóra fjölskyldu eða tvenn hjón.  Arðbært þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði með góða verkefnastöðu. Ár- svelta 60 m. kr. Tilvalið til sameiningar við fyrirtæki tengd byggingariðaði.  Söluturn í tengslum við bensínstöð í Grafarvogi. Mikil grillsala.  Rekstraleiga með kauprétti. Stórt samkomuhús í nágrenni Reykjavíkur með góðri aðstöðu fyrir dansleiki, veislur og fundi. Ársvelta 30 m. kr. Gott tækifæri fyrir fagmenn.  Maraþon í Kringlunni. Sportvöruverslun með þekkt merki og mikla sölu. Rekstrarhagnaður 11 m. kr. á ári.  Vitum af mörgum sérverslunum, heildverslunum og iðnfyrirtækjum í ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr.  Kringlubón. Ein þekktasta og besta bónstöð landsins. Sami eigandi í 16 ár.  Þekkt vefnaðarvöruverslun. Ársvelta 60 m. kr. Góð framlegð. Tilvalið fyr- ir „saumakonur“ með góðar hugmyndir.  Gallery bón. Lítil bónstöð í Skeifunni. Gott byrjendafyrirtæki. Auðveld kaup.  Lítið landflutningafyrirtæki með föst viðskipti um fiskflutninga. Heppileg viðbót við annað álíka.  Lítil rótgróin prentsmiðja með góð tæki og föst verkefni. Tilvalið til sam- einingar eða fyrir duglega menn sem vilja vinna sjálfstætt. Auðveld kaup.  Hárgreiðslumeistarar / sveinar óskast til samstarfs í nýrri heilsu- og dek- urlind í Faxafeni. Gott tækifæri fyrir hæfileikafólk.  Spennandi tískuverslun í Kringlunni.  Lítil heildverslun með iðnaðarhráefni.  Lítil efnalaug í Keflavík. Gott atvinnutækifæri.  Sérverslun með eigin innflutning. 200 m. kr. ársvelta. Gagnlegur fróðleikur á heimasíðu fyrirtækjadeildar: www.husid.is . Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen), sími 533 4300, GSM 820 8658. Fréttasíminn 904 1100 FYRIRTÆKI TIL SÖLU www.fyrirtaekjasala.is FYRIRTÆKJASALA ÍSLANDS Síðumúla 15 • Sími 588 5160 Gunnar Jón Yngvason lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.