Morgunblaðið - 22.02.2004, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.02.2004, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Anthony Minghella hefurverið á fullu við aðkynna mynd sína í Evr-ópu. Á þeysingi millikvikmynda- og verð- launahátíða þar sem Kaldbakur hef- ur oftar en ekki verið tilnefnd til fjölda verðlauna. Vertíð sem hófst vestra með Golden Globe-hátíðinni þar sem Renée Zellweger náði í Hnött fyrir frammistöðu sína í hlut- verki hinnar sérvitru og skeleggu náttúrustelpu Ruby Thewes. Þá var ferðinni heitið til Berlínar þar sem myndinni hlotnaðist sá heiður að opna hina virtu Berlinale-hátíð. Svo kom Bafta-hátíðin þar sem myndin hlaut 13 tilnefningar, fleiri en nokk- ur önnur þetta árið. Uppskeran reyndist heldur rýrari þar en við mátti búast af mynd sem skartar svo mörgum breskum listamönnum en Renée blessunin stóð sína plikt og virðist nokkuð örugg um að bæta Óskarnum í gripasafnið innan tveggja vikna. Svo hafði akademían breska vit á að verðlauna hreint magnaða tónlist þeirra Gabriels Yareds og T-Bone Burnetts við myndina enda sannarlega um að ræða eitthvert mesta afrek sem unnið var á því sviði kvikmynda- gerðarinnar á liðnu ári – frumleg, fjölbreytt og einstaklega áhrifarík tónlist sem vegur myndina á hærra plan og nýtur sín jafnframt ein og sér. Og alls staðar hefur Minghella leikstjóri verið, ekki bara í glam- úrnum, klæddur sínu fínasta, heldur einnig á hverjum blaðamannafund- inum á fætur öðrum, að ræða um mynd sína, fram og aftur, og svara endalaust sömu spurningunum. Eftir mikinn eltingaleik sem stað- ið hafði í góða viku náði blaðamaður Morgunblaðsins loksins í skottið á honum, ekki bókstaflega, heldur símleiðis. Minghella var þá staddur á Spáni en vitanlega á leið út á flug- völl, í leigubíl, og notaði tímann til að spjalla stuttlega við íslenska blaðamanninn sem hann var fyrir löngu búinn að lofa spjalli. En sam- bandið í gegnum gsm-símana var viðkvæmt, slitrótt. Heyrirðu í mér? Viltu endurtaka? Nú heyri ég ekk- ert. Ertu þarna? Hvar var ég? Já, það sem ég var að segja … Svaka stress. En maðurinn samt áberandi hæglátur og kurteis, lét sér fátt um finnast þótt erfiðlega gengi að landa spjallinu. Var þol- inmæðin uppmáluð og hringdi bara alltaf aftur og aftur. Lúffaði eins og Fellini Því lá einhvern veginn beint við að spyrja kvikmyndagerðarmann í þessari erilsömu stöðu hvernig hann kann við sig. Hvernig hann kann við að þurfa að eyða svo miklu púðri í að fylgja myndum sínum eftir? „Satt best að segja lofaði ég sjálf- um mér því sem ungur maður að taka aldrei þátt í slíku. Rétt eins og Fellini. En ég lúffaði líka eins og Fellini. Lærði fljótt inn á að þetta er svo mikilvægur hlekkur í kvik- myndaiðnaðinum, að fylgja mynd- unum eftir. Kenna þeim að tala og ganga. En þessar uppeldiskröfur kvik- myndaiðnaðarins hafa samt ekki breytt afstöðu Minghella. „Ef ég mætti ráða þá myndi ég ekki segja eitt aukatekið orð um myndir mínar eftir að hafa lokið við gerð þeirra. Kæri mig lítið um að þurfa að útskýra þær. Finnst að þær eigi að segja sig sjálfar.“ Hann samsinnir blaðamanni þeg- ar hann veltir upp þeim möguleika hvort endalaust blaður og grein- ingar á kvikmyndum svo skömmu eftir afhjúpun þeirra geti hugs- anlega skaðað upplifun áhorfand- ans. „Því minna sem ég veit um þær myndir sem ég sé, því betur er ég í stakk búinn til að melta þær og mynda mér skoðun. Það er svo ekki fyrr en ég er búinn að sjá þær sem ég er tilbúinn til að kynna mér við- horf annarra og útskýringar kvik- myndagerðarmanna og leikara á verkinu.“ Ein er sú spurning sem brunnið hefur á vörum flestra sem rætt hafa við Minghella síðustu vikurnar, og það eðlilega, en hún er hvort það hafi valdið honum og öðrum að- standendum vonbrigðum að myndin skuli ekki hafa fengið fleiri „stórar“ Óskarsverðlaunatilnefningar, en þótt hún hafi verið tilnefnd til heilla sjö verðlauna var hún sniðgengin í flestum stærstu flokkunum eins og besta myndin, besti leikstjórinn og besta handrit. En Minghella virðist taka því „áfallinu“ af heimspekilegri ró. „Þetta er afstaða hinnar banda- rísku akademíu, fjölda manns, og hana ber að virða eins og alla aðra afstöðu. Því fer fjarri að mér finnist velgengni á Óskarnum varða líf og dauða. Framleiðendurnir hafa meiri áhyggjur af slíku. Svo framarlega sem ég get verið stoltur af verki mínu og áhorfendur taka því vel er ég sáttur. En það breytir því ekki að ég er leiður fyrir hönd hinna sem komu að myndinni og skiluðu frá- bæru verki án þess að fá þá við- urkenningu sem felst í tilnefningu. En að sama skapi samgleðst ég Jude Law, Renée Zellweger og öll- um þeim sem fengu tilnefningu.“ Hafnað vegna stríðsádeilu? Sú kenning hefur verið sett fram að meginástæðan fyrir því að Kald- bakur hlaut ekki náð fyrir augum Óskarsakademíunnar hafi sitthvað með ranga tímasetningu að gera. Þ.e. að mynd sem hafni með svo af- dráttarlausum hætti stríðsbrölti eigi ekki séns nú þegar bandarísk stjórnvöld eiga fullt í fangi með að verja innrás sína í Írak. Minghella segist kannast við slíkar kenningar og gefur lítið fyrir þær, tekur hvorki undir þær né hafnar. En bætir svo við að í sínum huga sé myndin hreint engin stríðsádeila. „Nei, ég hef aldrei litið þannig á hana. Miklu heldur finnst mér myndin boða frið en mótmæla stríði. Þetta er friðelskandi fólk, sögu- hetjur myndarinnar, sem vill fá að lifa í friði og ró, lifa sínu lífi án af- skipta annarra. En Inman (sögu- hetjan) er alveg á því hversu miklu máli þetta stríð skipti, eða taldi sig vita það áður en hann stóð augliti til auglitis við tilgangsleysið og só- unina á vígvellinum.“ Ekki mynd um borgarastríðið Það vekur nokkra athygli að Breti skuli taka að sér að fjalla um það heilagasta af öllum heilögum tíma- bilum í sögu Bandaríkjunum, borg- arastríðið. En inntur eftir ástæðu ber hann til baka þá fullyrðingu að myndin sé um borgarastríðið. „Það var í það minnsta ekki sá þátturinn sem ég heillaðist af við söguna, heldur voru það Ódysseifs- minnin. Sagan af hinni fjarlægu tak- markalausu ást sem ekkert vinnur á. Fólk sem lifir á umrótstímum þegar keppst er við að draga allt og alla í dilka. Fólk sem ákveður að gefa öllu slíku langt nef, stéttum, stöðu og öðru, til að fá að lifa í sátt og friði með gjöfum náttúrunnar. Banda- ríkjamenn hafa verið alltof upptekn- ir af borgarastríðinu satt best að segja, enda er það þeim greinilega enn mjög ofarlega í huga. Á meðan Evrópubúum, með sína ríku og löngu sögu, hefur tekist að greina hana frá nútímanum og virðast ekki eins háðir fortíðinni eru Bandaríkja- menn enn afar uppteknir af sinni stuttu sögu og þeim fáu en djúpu sárum sem hún hefur að geyma.“ Aðspurður segist hann ekki hafa lent að neinu ráði í hinum miklu borgarastríðssérfræðingum banda- rísku, „blessunarlega“, enda séu þeir býsna harðir í horn að taka. „Við sáum líka til þess að ekki yrði hægt að góma okkur í landhelgi út af einhverju slíku, búningum, sögu- staðreyndum eða öðru slíku. Feng- um aðstoð frá nokkrum úr þeirra liði.“ Vaðið í fang dauðans Upphafsatrið í Kaldbaki er eitt- hvert það áhrifaríkasta sem sést hefur. Í senn hrottafengin og næsta ljóðræn lýsing á þeirri ringulreið sem ríkir á vígvellinum. „Ég leitaðist þar við að draga fram í sviðsljósið hvað það var sem fékk Inman, þennan annars trygg- lynda og hlédræga mann, til að vilja segja skilið við stríðið,“ skýrir Minghella. Og honum tekst líka gríðarlega vel upp við að draga skýrum línum hvílíkar hörmungar þetta voru, þessa botnlausu vanvirðingu fyrir mannslífinu og óstjórnlegu rökleysu sem það er að vaða fús í opið fang dauðans. „Ég lagði mig mjög eftir því að draga upp mynd af hinum óbreyttu hermönnum, að þetta hafi verið þeirra stríð. Engir herforingjar, engir liðsstjórar, engin hernaðar- áætlun, bara það að finna næsta andstæðing og myrða hann, sem flesta, helst alla. Það átti atriðið að ganga út á og gerir.“ Um leið og Minghella undir- strikar þesar hörmungar stríðsins eru myndirnar er hann dregur upp einkar listrænar, vel stílfærðar og litanotkunin úthugsuð sem málverk væri. Minghella segist ekki vísvit- andi hafa verið að reyna að skapa einhverja ljóðræna stemmningu í kringum þessa sláandi bardagasenu en segir þó flest atriðin hafa komið til sín í draumi eftir að hafa lesið bókina og velt þessu fyrir sér fram og aftur. Hann naut þar mikillar að- stoðar kvikmyndatökumannsins síns, auk þess að sækja í nýrri mál- verk er tengjast baráttu verkalýðs- ins. Lítil og stór aðalhlutverk Þá vikum við talinu að leikurunum og fannst blaðamanni ekki hjá því komist að geta óvenjuglæsilegs leik- araliðs, allt frá stærstu hlutverkum niður í þau minnstu; Jude Law, Nic- ole Kidman, Renée Zellweger, Phil- ip Seymour Hoffman, Brendan Gleeson, Eileen Atkins, Natalie Portman, Giovanni Ribisi, Donald Sutherland, Ray Winstone, Kathy Baker og Jack White (úr The White Hægláti kvikmynda- gerðarmaðurinn Leikstjórinn Anthony Minghella um einn eftirlætis leikara sinn Jude Law sem leikur Inman: Jude er svo yfirmáta ná- kvæmur og fær, en ekki bara það heldur býr yfir útgeislun sem fáir af hans kynslóð geta jafnað. Hann sem aldrei ætlaði að tala um myndir sínar við neinn. Þarna sat Anthony Minghella í leigubílnum og var að veita sitt trilljónasta viðtal þann daginn. Með Skarphéðin Guðmundsson á viðkvæmri farsímalínunni að tala um nýjustu mynd sína, Kaldbak, svikin loforð sín og Fellinis, snilligáfu Judes Laws og löngunina til að gera litla mynd. Bardagasenurnar í Kaldbaki eru átakanlega raunsannar og blóði drifnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.