Morgunblaðið - 22.02.2004, Side 40

Morgunblaðið - 22.02.2004, Side 40
40 SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ 22. febrúar 1994: „Í gær- kvöldi benti allt til þess að samkomulag mundi takast á milli stjórnarflokkanna um búvörufrumvarpið, sem verið hefur til meðferðar í land- búnaðarnefnd Alþingis. Þótt endanlegt samkomulag hafi ekki verið innsiglað, þegar Morgunblaðið fór í prentun er ekki ástæða til að ætla annað en að lausn sé að finn- ast á þeim deilum, sem staðið hafa um málið. Þær deilur, sem blossað hafa upp með hléum eru vís- bending um, að þáttaskil séu að verða í landbún- aðarmálum. Gera má ráð fyr- ir því, að á næstu misserum losni eitthvað um þau höft, sem verið hafa á innflutningi landbúnaðarvara. Þetta veld- ur bændum að sjálfsögðu áhyggjum. Þeir hafa tekið á sig mikinn niðurskurð á und- anförnum árum í framleiðslu búanna og þar með orðið fyr- ir umtalsverðum tekjumissi. Skiljanlegt er, að þeir hafi áhyggjur af því, að hagur þeirra þrengist enn, ef ein- hver innflutningur kemur til skjalanna. Þess vegna leitast fulltrúar bænda, hvort sem er á Alþingi eða embætt- ismenn í landbúnaðarráðu- neyti við að tryggja stöðu landbúnaðarins eins og kost- ur er vegna þeirra breytinga, sem framundan eru.“ . . . . . . . . . . 22. febrúar 1984: „Þjóðviljinn kemst að þeirri niðurstöðu í forystugrein í gær að gagn- rýni Morgunblaðsins á Sov- étstjórnina og útsendara hennar eigi uppruna sinn að rekja til KGB! Það hefur margoft sýnt sig að síst af öllu er þess að vænta að unnt sé að eiga skynsamlegar rök- ræður við Þjóðviljann. Fjar- stæðukenndar skoðanir blaðsins eru þess eðlis. Með því að saka Morgunblaðið um þjónkun við KGB er Þjóðviljinn að reyna að svara leiðara og samantekt hér í blaðinu á laugardag, þar sem enn einu sinni var leitt í ljós að Þjóðviljinn og for- ystumenn Alþýðubandalags- ins eru helstu heimildarmenn lygafréttamiðlunar sovéska sendiráðsins og KGB í Reykjavík hvort heldur hún er stunduð annars staðar á Norðurlöndunum eða í mál- gagni Rauða hersins í Moskvu.“ . . . . . . . . . . 22. febrúar 1974: „Rík- isstjórnin læðir nú inn hverri skattahækkuninni á fætur annarri. Hún hefur heitið því að lækka tekjuskatt um 2600 milljónir, en á móti ætlar hún að hækka söluskatt um 3700 milljónir. Fyrirsjáanlegt er þó, að afrakstur ríkissjóðs af söluskattshækkuninni verður mun meiri. Ástæðan er sú, að því meiri sem verðbólgan verður, þeim mun hærri verða tekjur ríkissjóðs af söluskattinum. Þótt talið sé í dag, að hvert söluskattsstig gefi yfir árið í tekjur 700–800 milljónir króna, er ljóst, að þegar líður á árið og verð- hækkanir hafa orðið veru- legar, gefur hvert söluskatts- stig mun hærri upphæð. Þannig á að svíkjast aftan að launþegum og sópa fé í rík- ishítina með blessun helztu verkalýðsforingja komm- únista með Eðvarð Sigurðs- son í fararbroddi.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. S amtök áhugamanna um spilafíkn voru stofnuð hér á landi í jan- úar. Markmið þessara samtaka er að koma þeim til hjálpar, sem haldnir eru spilafíkn. Júl- íus Þór Júlíusson, formaður samtakanna, greindi frá ástæð- unni fyrir því að að samtökin voru stofnuð í samtali við Morgunblaðið á þriðju- dag: „Tildrögin eru þau að fyrir fólk með spilafíkn er varla hægt að fara lengur út í búð eða fram- kvæma einfalda hluti, fara í sjoppu eða kaffihús, vegna áreitis.“ Það er rétt hjá Júlíusi Þór að svo- kallaða söfnunarkassa er mjög víða að finna. Spilakassarnir, sem nú eru reknir, eiga ekkert skylt við tíkallakassana, sem settir voru upp hér á landi í upphafi áttunda áratugar 20. aldar á vegum Rauða krossins. Hafa glatað 800 þúsund krónum á einum degi Eftir lýsingum Júl- íusar Þórs að dæma geta kassarnir hrein- lega ryksugað peninga úr vösum þeirra, sem við þá sitja, þótt þeir kunni að byrja smátt. Í viðtalinu lýsir hann fíkn- inni: „Þetta er bara fíkn eins og eiturlyfjafíkn, áfengisfíkn og fleira. Þetta byrjar alveg blásak- laust í flestum tilvikum og enginn sem byrjar að fikta við spilakassa ætlar sér að ánetjast frekar en þeir sem taka fyrsta sopann ætla sér að verða áfengissjúklingar. Það byrjar á því að þú setur kannski fimmtíukall í kassann og áður en þú veist af ertu búinn að græða eitt til tvö þúsundkall. Þú tapar síðan næst fimmhundruðkalli, en finnst þú samt hafa grætt 1.500, þannig að það er allt í lagi að halda áfram og áður en þú veist af ertu farinn að fara með tíu til þrjátíu þúsund í hvert skipti og þá er stutt í skellinn. Það er staðreynd að það er hægt að tapa allt að þrjú þúsund krónum á einni mínútu í spilakössum,“ segir hann og bætir við síðar: „Það eru dæmi um að menn hafi glatað upp í 800 þúsund krónur á einum degi. Menn festast í vítahring, tapa og tapa og til eru mörg dæmi um að menn hafi tapað aleigunni og fjölskyldunni í kjölfarið og á endanum hafa menn tekið eigið líf.“ Júlíus Þór segir að viðbrögð við samtökunum hafi verið góð og þegar viðtalið við hann var tekið höfðu 190 manns skráð sig í þau, bæði spilafíklar og aðstandendur þeirra: „Við erum ánægð með viðtökurnar, því það eru miklir fordómar í þjóð- félaginu og mikill skortur á fræðslu og mikil skömm sem fylgir spilafíklum. Það hringdu hundrað manns í okkur í síðustu viku, þessar und- irtektir sýna okkur að samtök af þessum toga voru löngu tímabær.“ Hann segir að fram til þessa hafi spilafíklum einkum verið vísað til SÁÁ og nýju samtökin hyggist síður en svo fara í samkeppni við þau sam- tök: „Hins vegar verður fíklum nú í vaxandi mæli beint inn á fundi í anda GA (Gamblers Anonymo- us) sem starfa á sömu línum og AA-samtökin. Þetta er ólæknandi sjúkdómur, en með svona fundastarfi er veitt aðhald og fólki er hjálpað að halda sjúkdómnum í skefjum. Það kynnist fólki sem á við sömu vandamál að glíma og fær aftur smávirðingu á ný og finnur að lífið er ekki alveg vonlaust eftir allt saman,“ segir Júlíus Þór. Hagnaður af spilakössum 1,4 milljarðar Hagnaður af söfnun- arkössum og happ- drættisvélum er gríð- arlegur. Í nóvember kom fram í svari Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur, þingmanns Samfylkingar, að árið 2002 hefði hreinn hagnaður af þeim numið tæpum 1,4 milljörðum króna. Hagnaðist Íslands- spil, sem áður hét Íslenskir söfnunarkassar, um 940 milljónir og Happdrætti Háskólans um 450 milljónir. Júlíus Þór Júlíusson segir að markmið hinna nýstofnuðu Samtaka áhugamanna um spilafíkn sé að spilakassar Íslandsspila verði á afmörkuðum rýmum líkt og vélar Háskólans og um þá gildi strangar reglugerðir. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri hreyf- ingarinnar – græns framboðs, hefur beitt sér af krafti í þágu spilafíkla. Hann lagði fyrir rúmri viku fram fyrirspurn til dómsmálaráðherra á Al- þingi þar sem hann vakti máls á því að enn hefði ekki verið gengið frá slíkri reglugerð, þótt kveðið væri á um að það bæri að gera í lögum um spila- kassa, sem sett voru fyrir áratug. Í lögunum seg- ir: „Dómsmálaráðherra setur í reglugerð, að fengnum tillögum stjórnar Íslenskra söfnunar- kassa [nú Íslandsspils], nánari ákvæði um stað- setningu, auðkenningu, fjölda og tegundir söfn- unarkassa, eftirlit með þeim, notkun mynta og seðla við greiðslu framlaga, fjárhæð vinninga og aldur þeirra sem nota mega kassana til að leggja fram framlög en hann skal þó eigi vera lægri en 16 ár. Með sama hætti getur ráðherra sett í reglu- gerð nánari fyrirmæli um framkvæmd laga þess- ara, þar á meðal um greiðslu kostnaðar vegna eft- irlits og endurskoðunar.“ Svipað ákvæði er að finna í lögum um Happdrætti Háskóla Íslands: „Dómsmálaráðherra setur með reglugerð m.a. nánari ákvæði um staðsetningu, auðkenningu, fjölda og tegundir happdrættisvéla, eftirlit með þeim, notkun mynta og seðla við greiðslu fyrir þátttöku, fjárhæð vinninga og aldur þeirra sem mega nota vélarnar. Lágmarksaldur skal þó vera 16 ár.“ Sagði Björn Bjarnason að þegar væri hafin vinna við að setja slíkar reglur í samræmi við lög- in. „Ég tel að það eigi að setja þessar reglur og það er fagnaðarefni að það eru komin fram sam- tök, sem unnt er að eiga samstarf við um efni reglnanna þegar til þess starfs er gengið,“ var haft eftir honum í frétt Morgunblaðsins um málið. Björn sagði að slíkar reglur væru nauðsynlegar bæði til þess að þeim, sem rækju kassana, væri ljóst hvernig að því skyldi staðið eins og Ögmund- ur hefði nefnt, en ekki síður fyrir ráðuneytið sjálft til þess að það gæti framfylgt því eftirliti, sem því væri skylt að halda uppi gagnvart þessari starf- semi. Í máli Björns kom fram að aldursmörkin hefðu tekið mið af sjálfræðisreglunum, sem giltu þegar lögin voru samþykkt, en síðan hefðu fyr- irtæki, sem rækju kassana, hækkað aldurstak- markið í 18 ár og kvaðst hann vita til þess að Ís- landsspil bindi í samningi við eigendur þeirra staða þar sem kassar væru að þess væri gætt að unglingar yngri en 18 ára hefðu ekki aðgengi að kössunum. Til þess að koma í veg fyrir óæskilegt aðgengi að þeim hefði Íslandsspil m.a. komið upp fjarstýrðum rofum í fjölda söluturna þannig að unnt væri að slökkva á kössunum við vissar að- stæður, svo sem ef hópur unglinga kæmi í sölu- turn. Þá hefði Íslandsspil einnig sent öllum sýslu- mönnum tilkynningu um hvar kassar væru og væru þær upplýsingar uppfærðar á hálfs árs fresti. Vona að nú séu tímamót fyrir spilafíkla Björn og Júlíus Þór hafa þegar ræðst við um þessi mál. Júlíus Þór sagði að hann væri bjartsýnn eftir þennan fund og kvaðst vonast til þess að nú væru komið að tíma- mótum í málum spilafíkla: „Aðalatriðið er að gera okkur sýnilegri til þess að hægt sé að koma af stað umræðu og auka fræðslu þannig að spilafíklar þurfi ekki lengur að læðast með veggjum. Ég sé fyrir mér að upp sé runninn tími líkt og 1976 eða svo, þegar þessir þekktu karlar sem þá áttu við áfengisvandamál að stríða komu fram með líkum hætti. Þá var samnefnari á milli þess að vera „lús- er“ og alkóhólisti, en þarna hófst þessi sterka um- ræða um áfengisfíkn sem breytti öllu, viðhorfum og úrræðum. Það var líkt og stungið hefði verið á kýli. Vonandi erum við að sjá viðlíka atburð nú og vissulega er ég bjartsýnn, a.m.k. ef marka má við- tökur sem við höfum t.d. fengið hjá Birni Bjarna- syni, dóms- og kirkjumálaráðherra, sem við áttum nýlega fund með. Hann var búinn að kynna sér allar reglugerðir og fór afar faglega yfir málin með okkur. Hann á heiður skilinn fyrir viðtök- urnar.“ Að Íslandsspili standa SÁÁ, Rauði kross Ís- lands og Slysavarnafélagið Landsbjörg. Á heima- síðu Íslandsspils kemur fram að árið 1989 hafi SÁÁ og Rauði krossinn bundist samtökum og ári síðar hafi Slysavarnafélag Íslands og Landsbjörg, sem nú eru gengin í eina sæng, bæst í hópinn. 1994 hefðu samtökin stofnað Íslenska söfnunar- kassa, en nú væri samstarfið rekið undir heitinu Íslandsspil. Það leikur enginn vafi á því að sam- tökin, sem að Íslandsspili standa, vinna gríðarlega mikilvægt starf í þjóðfélaginu, hvert á sínu sviði. Sömuleiðis er Happdrætti Háskóla Íslands Há- skólanum mikilvægt. Mikilvægi þeirra þarf ekki að tíunda hér. Það hlýtur hins vegar að vera ástæða til að setja spurningarmerki við aðferðir þeirra til að afla fjár til að reka sitt merka starf. Sagt hefur verið að vegið yrði að starfsemi þeirra yrðu þau svipt þessum tekjustofni, en á móti má spyrja hvort þeim sé siðferðilega stætt á því að afla sér fjár með leið þar sem gert er út á fíkn og eymd. Þessi fjáröflunarstarfsemi hefur orðið til- efni til siðfræðilegra úttekta, þar sem meðal ann- ars hefur verið tekist á um það hvort í raun sé um að ræða fjárhættuspil þar sem spilakassarnir eru annars vegar, og hafa kennimenn fært að því flók- in rök í löngu máli að svo sé ekki. Það sagði hins vegar sína sögu þegar SÁÁ, Rauði krossinn og Slysavarnafélagið Landsbjörg fengu hingað til lands sérfræðing frá Nevada-ríki í Bandaríkjun- um til þess að réttlæta rekstur spilakassanna. Í leiðara Morgunblaðsins í febrúar árið 2000 sagði í ÞJÓNUSTA VIÐ FJÖLMIÐLA – OG ALMENNING Nú orðið þurfa opinberir aðilarað gera ráð fyrir því í vinnu-áætlunum sínum að veita fjöl- miðlum ákveðna þjónustu þegar til- tekin mál koma upp eins og t.d. vegna líkfundarins í Neskaupstað. Í raun snýst það ekki um þjónustu við fjöl- miðla heldur almenning. Fjölmiðlar eru sá milliliður, sem kemur upplýs- ingum til almennings. Framan af reyndist erfitt að fá upplýsingar um málið hjá embætti sýslumanns í Neskaupstað en síðan var það gert með myndarlegum og af- gerandi hætti á blaðamannafundi sýslumanns og starfsmanna Ríkislög- reglustjóra. Fyrsta skylda sýslumanns á staðn- um, sem hefur forræði málsins í sín- um höndum, er auðvitað rannsókn málsins. Bæði fjölmiðlar og aðrir hljóta að gera sér grein fyrir því, að fámennt sýslumannsembætti getur ekki gert allt í einu og hefur heldur ekki reynslu til þess, hvorki í rann- sóknum á alvarlegum málum né í samskiptum við fjölmiðla. Þess vegna er ástæðulaust að hafa of stór orð um, þótt hnökrar hafi komið upp í sam- skiptum við fjölmiðla í þessu máli í upphafi. Það er hins vegar tilefni til að draga ákveðinn lærdóm af því, hverju var ábótavant í upplýsingagjöf í byrjun. Í fyrsta lagi getur verið ástæða til að opinberir aðilar kalli þegar til fólk, sem hefur reynslu og þjálfun í sam- skiptum við fjölmiðla og í upplýsinga- miðlun. Í tilvikum sem þessum á að vera hægt að kaupa þá þjónustu að þegar þörf krefur. Það þarf einfald- lega að vera hluti af vinnuáætlun op- inberra aðila í málum m.a. af þessu tagi að sjá fyrir þessari þjónustu. Í öðru lagi hlýtur að vera álitamál, hvort það á yfirleitt að leggja það á fámenn sýslumannsembætti með tak- markaða reynslu að hafa forræði rannsóknar í alvarlegum málum eins og því, sem kom upp í Neskaupstað. Er ekki eðlilegt að þeir, sem mesta reynslu hafa í slíkum rannsóknum, taki að sér rannsókn allra stærri mála þegar í stað? Það er auðvelt að fella skyndidóma yfir öðru fólki. Þeir hinir sömu mundu vafalaust sjá málin með öðrum hætti ef þeir sætu hinum megin við borðið. Ekki verður betur séð af því sem fram hefur komið en fagmannlega og skipulega hafi verið staðið að rann- sókn líkfundarins í Neskaupstað. Það skiptir auðvitað mestu máli, þegar upp er staðið. HÖRMULEG SLYS Á skömmum tíma hafa orðið hörmu-leg slys í umferðinni. Ísland er að mörgu leyti hættulegt land yfirferðar. Þótt vegir hafi batnað og bifreiðar séu betur búnar en áður er mikil hætta á ferðum, ekki sízt að vetri til. Skyggni er oft afar slæmt og bíl- stjórar sjá oft illa til. Vegir eru vara- samir vegna þess að hálkublettir leyn- ast víða, þótt þeir séu kannski ekki sjáanlegir. Veðrabreytingar eru oft snöggar og stundum er alls ekki ferða- fært. Betri vegir og betri bílar valda því svo að fólk gætir hugsanlega ekki jafn vel að sér og það mundi ella gera. Það sem hefur gerzt verður ekki aft- ur tekið. Slysin eru átakanleg og mikil sorg hjá fjölskyldum um þessar mund- ir. Í ferðum um okkar fallega land leyn- ast hættur nánast við hvert fótmál.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.