Morgunblaðið - 22.02.2004, Side 41

Morgunblaðið - 22.02.2004, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 41 tilefni af þeirri heimsókn: „Fjárhættuspil hefur ekki verið leyft á Íslandi en hins vegar happ- drætti. Það er athyglisvert að með þessari heim- sókn er rekstur spilakassanna skilgreindur sem fjárhættuspil, sem er út af fyrir sig alveg rétt skil- greining, en við í okkar fámenni og sveita- mennsku höfum sennilega ekki hugsað út í þá hlið málsins heldur litið á þetta sem eins konar fram- hald af happdrættum eins og við höfum þekkt þau. Tvennt vekur athygli í sambandi við rekstur spilakassanna og þá reynslu sem fengizt hefur af þeim. Í fyrsta lagi það að ákveðinn hópur fólks hefur orðið spilafíkn að bráð og með svo alvar- legum hætti að nokkur hópur einstaklinga hefur misst allt sitt, eigur sínar og fjölskyldu. Í öðru lagi þarf ekki annað en fylgjast með því hverjir það eru sem stunda spilakassana til þess að sjá að það eru efnaminnstu Íslendingarnir sem eru að gera sér vonir um stóra vinninginn. Tekjurnar af spila- kössunum koma því að töluverðu leyti frá fólki sem missir allt sitt í kassana og hins vegar frá fólki sem á lítið sem ekki neitt og hefur afar tak- markaðar tekjur. Er það frambærilegt fyrir Rauða kross Íslands, Slysavarnafélagið Landsbjörg og SÁÁ að fjár- magna starfsemi sína með þessum hætti? Er það sæmandi fyrir þessi samtök að leita liðsinnis í þeim umræðum sem hér fara fram um þetta mál hjá sérfræðingi frá sjálfri höfuðborg spilavíta í heiminum?!“ Skemmtilegir leikir Á heimasíðu Íslands- spils er talað um „skemmtilega leiki“. Skemmtun er ekki fyrsta orðið sem kemur í hugann þegar komið er inn á reykmettaðan vínveitingastað þar sem ógæfusamir einstaklingar sitja með plastmál full af smápeningum og stinga hverri myntinni á fæt- ur annarri í söfnunarkassann. Nær væri að tala um ömurleika. Íslandsspil hefur einnig haldið innreið sína inn á heimilin í gegnum tölvuna. Þar er reyndar ekki um fjárhættuspil að ræða þar sem aðeins er spilað upp á punkta, sem engir raunverulegir peningar eru á bak við, og eftir sem áður er miðað við 18 ára aldurstakmark. Þar er hins vegar hægt að spila peningaspil á borð við tuttuguogeinn og póker þótt ekki séu peningar lagðir undir og við enda regnbogans bíður lukkupottur. Leikirnir eru kynntir sem tilraunaverkefni, en ekki er sagt hvert markmið þessarar tilraunar er. Þó er aug- ljóst að þarna er verið að kynna leiki á borð við þá, sem boðið er upp á í spilakössunum. Fjárhættu- spil á Netinu hefur aukist jafnt og þétt og getur reynst erfitt að koma böndum á það, sem þar fer fram, vegna þess að þar eru engin landamæri. Spilavítið heima í stofu er opið allan sólarhring- inn. Eyða meira í löglegt fjár- hættuspil en mat Gróði Íslandsspils og Happdrættis Háskól- ans sýnir að hér er á ferð tekjulind, sem erfitt er að bæta upp með öðrum hætti. Til að átta sig á því hvað maðurinn er sólginn í að leggja undir í þeirri von að lánið leiki við hann má nefna að Bandaríkja- menn verja meira fé í löglegt fjárhættuspil en þeir eyða í mat. Bandaríkjamenn leggja um 600 millj- arða dollara (42.000 milljarða íslenskra króna) undir á ári. Bretar leggja 42 milljarða punda (um 5.300 milljarða króna) undir á ári. Ímynd fjár- hættuspila hefur tekið miklum breytingum í vest- rænum samfélögum á undanförnum áratugum. Lengstum hafa þau verið tengd skipulagðri glæpastarfsemi og nægir að benda á Bandaríkin í því sambandi. Árið 1931 voru spilavíti leyfð í Ne- vada í Bandaríkjunum og mafían var ekki lengi að hreiðra þar um sig. Las Vegas með ljósadýrð sinni varð áfangastaður þeirra, sem vildu detta í lukku- pottinn, en borginni fylgdi einnig ímynd glæpa og hættu. Fyrir þremur árum gerði breska ríkissjón- varpið sjónvarpsþætti um fjárhættuspil og í um- fjöllun um þá þætti á fréttavef BBC er lýsing á því hvernig ástandið var á Bretlandi á þeim tíma: „Á Bretlandi var fjárhættuspil á þeim tíma útbreitt þótt það væri að mestu ólöglegt. Þeir, sem vildu leggja undir, voru neyddir til að fara á svig við lögin. Menn urðu að veðja hjá útsendurum á göt- um úti því að veðmálastofur voru ekki til. Á heim- ilum ungra og auðugra Lundúnabúa voru haldin einkasamkvæmi þar sem miklar upphæðir og jafnvel erfðagóss eins og það lagði sig skipti um hendur.“ Árið 1961 var lögunum breytt á Bretlandi og þeir, sem höfðu haft lifibrauð sitt af ólöglegum veðmálum gátu nú skyndilega rekið starfsemi sína fyrir opnum tjöldum. Hundrað veðmálastof- ur voru opnaðar á viku og á fyrstu sex mánuðun- um eftir að lögin tóku gildi voru tíu þúsund slíkar stofnanir opnaðar. Á fyrstu fimm árunum voru opnuð eitt þúsund spilavíti. Lögin voru illa samin og gat nánast hver sem er opnað spilavíti. Glæpa- samtök voru ekki lengi að ganga á lagið og bast mafían í Bandaríkjunum samtökum við glæpa- gengi í London. Það var ekki fyrr en níu árum síð- ar að Bretar komu böndum á þessa starfsemi með nýrri lagasetningu, þar sem skilyrði fyrir veitingu leyfis til að reka fjárhættuspil voru hert verulega. Spilavítum snarfækkaði. Á sama tíma áttu ákveðnar breytingar sér stað í Nevada þar sem menn voru að gera sér grein fyrir því að hreinsa þyrfti glæpastarfsemina út úr und- irstöðu atvinnugrein ríkisins. Á níunda áratugnum var áhersla lögð á það að Las Vegas væri staður fyrir fjölskylduna, einhvers konar Disneyland full- orðna fólksins. En fjárhættuspilin eiga sér sínar skuggahliðar þótt skipulagðri glæpastarfsemi sé ýtt til hliðar. Það kannast flestir við atriði úr bíó- myndum þar sem breski njósnarinn James Bond klæddur smóking gengur inn í spilavíti og leggur undir háar fjárhæðir án þess að depla auga. Fjöldinn allur af sögum er einnig til um áráttu körfuboltastjörnunnar Michaels Jordans að leggja undir við hvert tækifæri. Hinn dæmigerði gestur spilavítisins er hins vegar ekki sveipaður slíkum dýrðarljóma. Félag bandarískra geð- lækna skráði spilafíkn sem sjúkdóm árið 1980. Samtökin Gamblers Anonymous fóru sömu leið og AA-samtökin og hafa byggt á tólf þrepa með- ferð og stuðningi á fundum. Nú er einnig verið að rannsaka hvort hægt sé að stjórna spilafíkninni með lyfi, sem tekið er inn daglega. Í áranna rás hafa ýmsar leiðir verið reyndar með ærið misjöfnum árangri. Þá umdeildustu mætti nefna óbeitarmeðferð. Í einni útfærslu hennar var beitt raflostum. Rafskaut voru fest við úlnliði sjúklingsins, sem síðan voru sýndar myndir af fjárhættuspilum. Um leið gaf lækn- irinn rafstuð, sem áttu að skapa tengsl í undir- meðvitund sjúklingsins á milli fjárhættuspila og óþæginda. Þessi meðferð gaf ekki góða raun. Önnur gerð af óbeitarmeðferð var fólgin í því að viðkomandi spilafíkli var gefið lyf, sem fram- kallaði velgju. Honum var síðan stillt upp við spilakassa með fötu sér við hlið. Áhrif þessarar meðferðar voru einnig hverfandi. Raunhæft markmið Mestum árangri hafa samtök á borð við þau, sem nú hafa ver- ið stofnuð hér á landi, náð. En það er ekki nóg að ráðast á vandann með því að veita fíklunum hjálp. Það þarf einnig að taka á honum hinum megin frá. Samtök áhuga- manna um spilafíkn vilja ekki ganga svo langt að láta loka spilakössunum alfarið. Þau fara fram á að kassarnir verði á afmörkuðum svæðum. Hvort ástæðan fyrir því er sú að ákveðið hafi ver- ið að setja sér raunhæft markmið, sem hægt væri að ná fram, verður ekki sagt til um, en þessi nálgun gerir þeim, sem reka spilakassana, í það minnsta erfitt með að saka Samtök áhugamanna um spilafíkn um óbilgirni. Júlíus Þór Júlíusson, formaður samtakanna, segir að talið sé að hér á landi geti verið allt frá 1.200 til 17.000 spilafíklar. Það getur verið erfitt að átta sig á umfangi vand- ans, en þann, sem á annað borð er haldinn spila- fíkn, varðar engu um það hversu margir þjást með honum og tölfræði er fjölskyldu hans engin huggun þegar hún er komin á vonarvöl. Spurn- ingin er sú hvort hægt er að sætta sig við það í þjóðfélagi allsnægta að mikilvæg samtök og stofnanir á borð við SÁÁ, Rauða kross Íslands, Slysavarnafélagið Landsbjörg og Háskóla Ís- lands þurfi að byggja starfsemi sína á fjáröfl- unarstarfsemi, sem getur komið heilu fjölskyld- unum á vonarvöl. Morgunblaðið/Rax Í Grindavík Spurningin er sú hvort hægt er að sætta sig við það í þjóðfélagi allsnægta að mikilvæg samtök og stofnanir á borð við SÁÁ, Rauða kross Íslands, Slysa- varnafélagið Lands- björg og Háskóla Ís- lands þurfi að byggja starfsemi sína á fjáröflun, sem getur komið heilu fjölskyldunum á vonarvöl. Laugardagur 21. febrúar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.