Morgunblaðið - 22.02.2004, Page 27

Morgunblaðið - 22.02.2004, Page 27
Stripes). Það liggur í augum uppi að Minghella gat fengið hvern sem hann vildi. Og ekki gat hann neitað því. Segir alla leikarana hafa verið efst á óskalistanum. „Það sem gerði gæfumuninn,“ skýrir hann hógvær, „var hversu girnileg öll hlutverkin voru og gilti þar einu hvort um var að ræða stór hlutverk eða lítil. Vegna eðlis sög- unnar og uppbyggingar gat ég lofað öllum að þeir fengju að njóta sín, sama hversu mikið vægi þeir hefðu í myndinni. Sjáðu t.d. hlutverk Hoff- mans, Portmans og Ribisis. Þau þurftu ekki að eyða nema hálfum mánuði í að afgreiða þau en samt sem áður eru þau mjög áberandi í myndinni og fá úr mjög miklu að moða. Þegar slíkt er í boði er erfitt að segja nei.“ Það er lúin lenska þegar rætt er við kvikmyndagerðarmenn og leik- ara um samstarfsfólkið að allir hafi staðið sig frábærlega og séu í alla staði hinir mestu snillingar. En blaðamaður gat ekki annað en lagt meiri trúnað í ummæli Minghellas um Jude Law, svo sannfærandi var hann og sterkorður um leikarann og landa sinn. „Ég hef unnið með honum áður (Talented Mr. Ripley) og virði hann mikils. Jude er svo yfirmáta ná- kvæmur og fær, en ekki bara það heldur býr hann yfir útgeislun sem fáir af hans kynslóð geta jafnað. Oft er sagt að engir séu fremri breskum leikurum í að tala á meðan banda- rískir leikarar eru bestir í að tjá og túlka. Persóna Judes, Inman, er það fámáll að sumir töldu að ég þyrfti að fá bandarískan leikara í hlutverkið. En ég hafði fulla trú á Jude því hann er einn af fáum leikurum í heiminum sem búa yfir þessum kostum hvorra tveggja, breskra og bandarískra leikara. Jude er leikari sem hefur og á eftir að virka vel í Hollywood. Og sýnir það enn í Kaldbaki þar sem hann býr til þessa áhugaverðu og innihaldsríku persónu með andlits- dráttunum einum.“ En hversu auðvelt átti Law með að temja sér þennan sterka suðræna hreim? „Hann kom fljótt. Leikarar fá voðalega mikið út úr því að leika með hreim. Hreimur er líka svo gott hjálpartól, hef ég tekið eftir. Um leið og leikari er búinn að ná hreimnum er hann búinn að fatta persónuna og skapa hana. Það er mín reynsla.“ Aðspurður hvernig honum litist á ef svo færi að þessi eftirlætisleikari hans yrði næsti Bond svaraði Minghella á diplómatískan máta – „hann getur gert allt sem hann tek- ur sér fyrir hendur“ – en gaf svo hálfpartinn í skyn að sér þætti það þó viss sóun á góðum og fjölhæfum leikara ef hann verði stærstum hluta ferilsins í að leika hasarmyndahetju á við James Bond. Minghella-ísinn Anthony Minghella verður fimm- tugur á árinu. Fæddur í Bretlandi en er þó af ítölsku bergi brotinn, af frægri ísgerðarfjölskyldu. Áður en hann sneri sér að kvikmyndagerð kenndi hann leikhúsfræði við Hull- háskóla. Fyrst um sinn skrifaði hann einungis handrit og leik- húsverk og gat sér m.a. orð fyrir skrif sín fyrir sakamálaþættina um Morse lögregluvarðstjóra. Hann hlaut mikið lof fyrir fyrstu kvik- mynd sína sem hét Truly, Madly, Deeply og færði honum BAFTA- verðlaun fyrir besta handritið. En það var fyrir The English Patient sem Minghella hlaut heimsfrægð, ekki síst eftir að kvikmyndin hafði unnið til alls níu Óskarsverðlauna árið 1996, þ.m.t. valin besta myndin og Minghella besti leikstjórinn. Minghella á og rekur ásamt banda- ríska leikstjóranum Sidney Pollack Mirage-kvikmyndafyrirtækið sem framleiddi m.a. Hægláta Ameríku- manninn og nýverið var Minghella skipaður forseti Bresku kvikmynda- stofnunarinnar. Hundleiður á stórmyndum Kaldbakur er þriðja kvikmynd Minghellas í röð sem byggist á þekktri skáldsögu, hinar eru Ósk- arsverðlaunamyndin The English Patient og Talented Mr. Ripley. Til- viljun eða sérstakt áhugamál? „Ég veit þú trúir mér ekki, en þetta er algjör tilviljun. Ég er reyndar hættur að trúa því sjálfur núna eftir þrjár myndir í röð. Það hlýtur að vera eitthvað við að búa til kvikmyndagerðir úr skáldsögum sem höfðar svona sérstaklega til mín. Verð að horfast í augu við það núna. En eftir hverja mynd hef ég samt verið harður á að gera eitthvað annað, eitthvað frumsamið – og klikkað svo á því þegar ég hef fallið fyrir bókinni. En núna ætla ég að standa við það. Ég er orðinn hund- leiður á því að gera svona stórar myndir. Ofbýður eiginlega hversu mikið fyrirtæki síðustu myndir hafa verið. Næst langar mig ekkert meira en að hafa betri yfirsýn, koma að fleiri þáttum kvikmyndagerð- arinnar. Þess vegna verð ég að gera litla mynd og þarf. Eitthvað alveg berskjaldað og hrátt. Ekki beint dogma, en því sem næst, jafnvel frumsamið eða næstum spunnið.“ Nicole Kidman og Jude Law: Leikaraliðið í Kaldbaki er með því glæsilegra sem gerist enda segir Minghella að óvenju margir hafi fengið tækifæri til að njóta sín. skarpi@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 27 O D D I H Ö N N U N K 71 79 VIÐ LEIKUM ÚT ÞREMUR TROMPUM Tromp nr. 1 Nýr farsími frá Siemens, C60. Stór litaskjár Útskiptanlegar hliðar MMS GPRS WAP 250 klst. rafhlaða 85 g. Tengjanlegur við myndavél Fjöltónahringingar o.fl. Verð: 15.500 kr. stgr. Tromp nr. 2 Gólflampar frá Aneta. Gólflamparnir frábæru, sem seldust upp fyrir jólin, eru komnir aftur. Pantanir óskast sóttar. Vandaðir lampar með mjög góða lýsingareiginleika. Uppljós og lesljós. 10% afsláttur af öllum gólflömpum til loka febrúar. Tromp nr. 3 Skotsilfursparandi rýmingarsala. Við hreinsum nú til hjá okkur til að rýma fyrir nýjum vörum. Seljum í mismiklu magni með verulegum afslætti ýmsar gerðir heimilistækja frá Siemens og margvíslega lampa. Þið getið gert kjarakaup, ef þið verðið bara nógu snögg að koma koma til okkar. Eitthvað óvænt á hverjum degi til og með laugardeginum 28. febrúar. Láttu sjá þig hjá okkur. Það margborgar sig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.