Morgunblaðið - 22.02.2004, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 22.02.2004, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 19 voru teknir úr Douglas Dakota flugvélinni Gunnfaxa, TF ISB. Hún var eiginlega alltaf í þessum flutningum sem hófust í byrjun október og stóðu í upp undir tvær vikur,“ segir Snorri og heldur áfram. „Við fórum í myrkri úr Reykjavík og þá var orðið bjart þegar við komum austur. Náðum stundum þremur ferðum ef með þurfti og fórum þá rétt fyrir myrkur frá Fagurhólsmýri.“ Embættismenn á ullarpokum En haustveðrin gátu líka verið válynd og leiðin orðið krókótt. Þannig var það einn dag haustið 1957. Þá voru þeir með í för, Haukur Snorrason, bróðir Snorra og ritstjóri Tímans, og Kristján Eldjárn, þjóðminjavörður og síðar forseti. Snorri hafði tekið þá með sér austur um morguninn því Kristján sinnti rannsóknum í Sandfelli. Nú voru þeir á bakaleið með síðustu vél suður og Snorri enn við stjórnvölinn. Ekki voru nein sæti í vélinni og þaðan af síð- ur flugfreyja með þýða rödd að bjóða farþegum að spenna beltin heldur gerðu embættismennirnir sér að góðu að liggja ofan á stórum ullarpokum sem voru með- al flutnings. „Það fór ágætlega um þá,“ segir Snorri og kímir. Svo lýsir hann heimferðinni: „Við vorum komnir vestur undir Lómagnúp þegar við lentum þar í úrkomu og hefðum þurft að kom- ast upp fyrir ský til að halda áfram til Reykjavíkur. Það var hins vegar ekki hægt því blöðr- urnar á vængjum vélarinnar voru hálf ónýtar og því þoldi vélin ekki ísingu. Svo ég sneri við og fór til Hornafjarðar, ræsti Þorbjörn flug- afgreiðslumann út, hann kom út á Melatanga og bætti bensíni á vél- ina. Síðan flaug ég norður fyrir Vatnajökul sjónflug til Akureyrar. Það var komið vont veður í Reykjavík svo við gistum fyrir norðan en vorum komnir suður kl. 7 næsta morgun.“ Þrátt fyrir að Douglasinn væri ekki alveg heill heilsu í þessari ferð fullyrðir Snorri að slíkt hafi heyrt til algerra undantekninga. „Þessar vélar voru völundarsmíð og það var alltaf vel um þær hugs- að enda stóðu þær sig frábærlega. Eftir áratuga þjark á ósléttum brautum og ókyrrð sá aldrei á byggingu þeirra. Ein þeirra flýgur enn í dag, það er vél Landgræðsl- unnar, Páll Sveinsson, sem hét áð- ur Gljáfaxi,“ bendir hann á og upplýsir líka að Gunnfaxi standi á hjólum í skýli á Reykjavík- urflugvelli en á hann vanti væng- ina. „Ég veit ekki hvort hann verður gerður upp,“ segir hann. Læknaði flughræðslu Fleiri farþegum en félögunum Hauki og Kristjáni laumaði Snorri með sér í kjötflutningaferðirnar. Einn þeirra var vinur hans, Óskar Þorkelsson, sem var gjaldkeri hjá Slippnum í Reykjavík. „Óskar var einn af þessum ábyrgu, heiðarlegu og góðu mönnum. En honum leist ekkert á flugið yfirleitt. Var alltaf hálf hissa að sjá mig því hann átti alltaf von á að ég væri dauður. Dóttir hans var vinkona konunnar minnar og ég var stundum að bjóða henni í flug en hún mátti aldrei fara. Ég var líka að reyna að fá Óskar í flugtúr með mér en lengi vel gekk það ekki. Þó kom að því að ég gat komið honum í einn túr til Fagurhólsmýrar. Það var glampandi fínt veður og við flugum lágt austur, yfir friðlandið að fjallabaki og allt þetta fallega svæði. Lentum á Mýrinni en í bakaleiðinni var orðið skýjað. Ég lét samt Óskar alltaf vita hvar við værum. Hann fylgdist með blind- aðfluginu og hafði rosalega gaman af þessu öllu. Var „í skýjunum“ þegar við lentum og læknaðist al- veg af hræðslu við flugið. Fór meira að segja til útlanda eftir þetta. Annar ágætur vinur minn, Sveinbjörn Markússon kennari, fór með mér einn svona túr og hefur oft haft orð á því síðan hversu gaman það hafi verið að fljúga lágt og skoða landið í fal- legu veðri.“ Ein af fyrstu ferðum Snorra sem aðstoðarflugmanns á Douglas DC3 var til Fagurhólsmýrar haustið 1958 að sækja lifandi lömb og fljúga með þau að Stóra-Kroppi í Borgarfirði. Í mörgum héruðum landsins hafði mæðiveikin orðið til þess að skera varð niður fé en þar sem Öræfin höfðu sloppið við þá óáran var sóst eftir fullhraustum kindum þaðan. Þannig er það enn í dag þegar um fjárskipti er að ræða vegna riðuveiki. Síðar kveðst Snorri hafa flogið margar ferðir með líflömb frá Fagurhólsmýri að Hellu og Skúli Steinþórsson verið aðstoð- arflugmaður. Þeir hafi eitt sinn þurft að bíða dálitla stund eftir bílnum og þá gert sér til dundurs að koma einum hrútnum fyrir í flugstjórasætinu og mynda hann þar. „Ekki man ég hvorum okkar datt þetta í hug en framkvæmdin var þannig að Skúli var inni í vél að stimpast við hrútinn en ég fór út á væng með myndavélina,“ rifj- ar hann upp hlæjandi og bætir svo við: „Skúli var eldklár og skemmtilegur og hafði mikið gam- an af þessu öllu og líka að fljúga niður undir jörð eins og ég.“ Norðanbál af Breiðamerkurjökli Snorra leiðist heldur ekki að rifja upp þessa löngu liðnu daga og eitt af því sem honum er minn- isstætt eru kaffiveitingarnar hjá Guðrúnu Sigurðardóttur á Fag- urhólsmýri. „Það var föst regla að fara í kaffi meðan vélin var losuð og fermd og þar voru áreiðanlega tuttugu sortir af kökum á borð- um,“ segir hann. Flugfélag Íslands hélt uppi föst- um ferðum í Öræfin um árabil í tengslum við áætlunarflugið til Hornafjarðar sem var í uppáhaldi hjá Snorra. „Að fljúga á Mela- tanga og hitta Þorbjörn og strák- ana var afskaplega skemmtilegt,“ segir hann og meinar það greini- lega. En þótt bjart sé yfir minning- unum þá neitar Snorri því ekki að stundum hafi „þristarnir“ eins og Douglas vélarnar voru kallaðar, tekið í og hrist óþyrmilega. „Það gat til dæmis verið grábölvað í norðanátt að fara frá Fagurhóls- mýri og austur á Höfn,“ segir hann. Stundum þurfti að sveigja langt út á haf því það stóð norð- anbál af Breiðamerkurjökli út á sjó og oft var fjandi ókyrrt þar en svo lægði austar,“ segir hann og hefur orðið áfram: „Ég var líka einu sinni á leið austur á Mýri að sækja kjöt. Það var norðan leiðindarok og ég var kominn austur að Heklu, talsvert hátt, himinninn var voðalega óró- legur og eiginlega var ekki ver- andi í loftinu. Ég kallaði í Helga Arason, flugafgreiðslumann og vin minn á Fagurhólsmýri, gegnum radíóið og sagði honum að ég yrði að snúa við. „Þá verðum við að salta,“ sagði hann.“ Snorri kveðst hafa haft mætur á Helga og rifjar í lokin upp ferð á Mýrina á aðfangadag jóla 1962. „Það var heiðríkja og frost, kyrrt og óskaplega fallegt veður. Stirndi á allt. Ég tók Helga afsíðis og spurði hann hvort hann vissi um nokkurn bæ í sveitinni sem gæti tekið strákinn minn næsta sumar. Hann sagðist mundu skrifa mér sem hann og gerði og kom á sam- bandi við Guðrúnu Karlsdóttur á Hnappavöllum. Það var mikil gæfa fyrir okkar fjölskyldu. Þetta var síðasti túrinn sem ég flaug á Fag- urhólsmýri en hann leiddi gott af sér og mér þykir alltaf vænt um Öræfin.“ Höfundur er blaðamaður. Margar hendur vinna létt verk! - s a m s t a r f s a ð i l a r ó s k a s t - Við leitum eftir samstarfi við félagasamtök, sveitarfélög og stofnanir sem ætla að vinna að verkefnum á sviði umhverfismála eða ferðamála í sumar. N O N N I O G M A N N I • 1 1 4 5 1 • s ia .i s Stígager› í Esju Gró›ursetning í Kaldárhöf›a Ræktun vi› Úlfarsfell Vi› bjó›um fram krafta vinnuhópa ungmenna á aldrinum 16 til 20 ára sem starfa hjá okkur á sumrin. Auk fless sem hóparnir sinna vi›haldi og snyrtingu í nágrenni mannvirkja okkar hafa fleir um árabil sinnt umhverfismálum og sköpun a›stö›u til útivistar og fer›amennsku ví›a um land. Vi› viljum eiga samstarf um verkefni sem lúta a› ræktun, hreinsun og ö›rum umhverfisbótum ásamt t.d. stígager› og stikun göngu- lei›a. Vi› bjó›um fram vinnuframlag unglinganna og flokkstjórn yfir fleim. Vi› óskum eftir a› samstarfsa›ilar leggi fram vel skilgreind verkefni, kostnaðaráætlun verkefnisins ásamt lýsingu á vinnuskipulagi og stjórnun. Þá þarf að tilgreina ábyrgðaraðila verkefnisins (nafn, heimilisfang, síma og netfang). Nánari uppl‡singar veitir: Ragnhei›ur Ólafsdóttir umhverfisstjóri Sími 515 9000 ragnheidur@lv.is Sjá einnig www.lv.is Umsóknum skal skila bréflega í sí›asta lagi 19. mars til Landsvirkjunar, Margar hendur vinna létt verk, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík. RAFMAGN Á ÍSLANDI 1904–2004
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.