Morgunblaðið - 22.02.2004, Síða 33

Morgunblaðið - 22.02.2004, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 33 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111 „ÉG sit hér og er að smíða Gull- og silfurfluguna í tuttugasta og fjórða skipti. Næsta vetur smíða ég þá tuttugustu og fimmtu og þá er vel hugsanlegt að ég láti staðar numið. Talan 25 er mín eftirlæt- istala og þetta er nú orðið gott,“ sagði Sigurður G. Steinþórsson, gullsmiður í Gulli og silfri, í sam- tali við Morgunblaðið í vikunni. „Upphaflega var af stað farið til að hvetja veiðimenn til fluguveiða og þetta áttu að vera fimm flugur, síðan dó pabbi og þá bætti ég við öðrum fimm í minningu hans, en svo var orðið erfitt að hætta og nú eru þær sem sagt orðnar tuttugu og fjórar,“ bætti Sigurður við, en Gull og silfur flugan hefur verið veitt á árshátíð Stangaveiðifélags Reykjavíkur fyrir stærsta flugu- veidda laxinn. Þetta er hinn glæsi- legasti gripur og að verðmæti á þriðja hundrað þúsund hverju sinni. Árshátíð SVFR verður næst- komandi laugardag og verður þá gripurinn afhentur nýjum verð- launahafa. Gull og silfur flugan er aldrei eins, að þessu sinni verður hún flugan sjálf, ásamt laxi úr silfri, sprettandi upp úr gullnum árstraumi á innfluttum skraut- steini, fleira vildi Sigurður ekki segja um það. Bók um Hrútuna Gísli á Hofi gerir það ekki enda- sleppt. Hann hefur síðustu árin upp á eigin spýtur gefið út bækur um hverja norðlensku laxveiðiána af annarri og eftir viku verður sú nýjasta kynnt. Hún fjallar um Hrútafjarðará og hliðará hennar, Síká. Bókin er unnin af fyrirtæki Gísla, Bókaútgáfunni Hofi, í sam- vinnu við Veiðifélag Hrútafjarðar- ár og leigutaka árinnar, Þröst El- liðason. Höfundar efnis í bókinni eru Matthías Johannessen, fyrr- um ritstjóri Morgunblaðsins, Sverrir Hermannsson, fyrrver- andi alþingismaður, Sigurður Már Einarsson fiskifræðingur, Þröst- ur Elliðason, leigutaki árinnar, Kristinn Guðmundsson fram- kvæmdastjóri Staðarskála, og Gunnar Sæmundsson, bóndi í Hrútatungu. Morgunblaðið/Þorkell Sigurður G. Steinþórsson að bauka við nýju fluguna. Næstsíðasta Gull- og silfurflugan? Morgunblaðið/Golli Þetta er flugan frá í fyrra... ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? SVEITARSTJÓRN Mýrdalshrepps hefur ákveðið að ganga til samn- inga við eMax ehf. um háhraðanet- tengingar í Mýrdalnum. Að sögn Sveins Pálssonar, sveitarstjóra Mýrdalshrepps, má gera ráð fyrir að íbúar og fyrirtæki í Vík geti tengst netinu í mars og að velflest heimili í sveitinni umhverfis Vík geti einnig nýtt sér þennan mögu- leika fyrir árslok 2005. Sveinn segir að um sé að ræða 512 kbit tengingu. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Heimili í Mýrdalnum fá háhraðatengingar Fagridalur. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.