Morgunblaðið - 22.02.2004, Side 36
LISTIR
36 SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
JÓN Þórarinsson tónskáld af-
henti á dögunum Lands-
bókasafni Íslands, Háskóla-
bókasafni, nótnahandrit Jóns
frá Ljárskógum Jónssonar, alls
29 lög. Handritin hafa varðveist
hjá einkasyni hans, Hilmari
Braga Jónssyni, sem býr í Virg-
iníu í Bandaríkjunum og af-
henti Jón Þórarinsson handritin
fyrir hans hönd.
Lögin hefur Jón frá Ljár-
skógum raddsett sjálfur í þeim
stíl sem helst mætti kenna við
Íslenskt söngvasafn Halldórs
Jónssonar og Sigfúsar Ein-
arssonar frá 1915-16, þ.e. fyrir
orgel (harmoníum) fremur en
píanó, og skrifað þau á tvo
nótnastrengi eins og þar er
gert. Flest handritin eru dag-
sett og eru þau öll skrifuð á ár-
unum 1936-40. Félag breið-
fiskra kvenna gaf nýverið þessi
lög út í riti er nefnist Kveðja
heimanað.
Nótur Jóns frá Ljárskóg-
um til Háskólabókasafns
Jón Þórarinsson tónskáld (fyrir miðju) afhendir Erni Hrafnkelssyni, for-
stöðumanni handritadeildar Landsbókasafns, og Sigrúnu Klöru Hann-
esdóttur landsbókaverði nótnahandritin til varðveislu.
Sunnudagur
Sú nýbreytni verður á Vetrarhátíð í ár að eitt
hverfi verður í kastljósi hátíðarinnar á sunnu-
deginun, að þessu sinni er það Árbæjarhverfið.
Fylkisheimilið, Fylkisvegi kl. 11.00–13
Opið hús. Upphitun fyrir göngu undir leiðsögn
um Elliðaárdalinn og fræðst um jarðfræði og
sögu dalsins.
Ársel, Rofabæ kl. 12–14 Tilraun við Íslands-
met í bananasplitti.
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1 kl.
13–17 Opið hús og dagskrá hjá Orkuveitu
Reykjavíkur. Slökkviliðið og nemendur Hlíða-
skóla flytja verkið „Í ljósum logum“. Skugga-
leikhús nemenda úr Langholtsskóla, Óvitar í
flutningi nemenda úr Háteigsskóla. Sex í sveit
frá Grundarfirði tekur lagið og margt fleira.
Kynnir Felix Bergsson.
Árbæjarlaug kl. 13–18 4 km og 6 km skokk
hefst kl. 13 og fjölbreytt skemmtiatriði.
Elliðaárstöðin kl. 13–18 Nemendur Garðyrkju-
skóla spreyta sig á blómaskreytingum.
Árbæjarsafn kl. 13–16 Ratleikur fyrir alla
fjölsk.
Hraunbær 119 kl. 13.45–18 Opnunarhátíð
nýs útibús Borgarbókasafns Reykjavíkur í Ár-
bænum hefst í afgreiðslusal Sparisjóðs vél-
stjóra á 1. hæð. Kl. 14 verður sýning frá
Skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkur á
kirkjum í Árbæ, helstu útivistarleiðum hverf-
isins ásamt tillögu að Árbæjartorgi. Kl.
13.30–14 verður Íslandsmeistarakeppni í
bolluáti í Árbæjarkonditori. Í Ásmynd verður
ljósmyndasýning Ásdísar Jónsdóttur. Kl. 15
hefst ganga með Þorvaldi S. Þorvaldssyni arki-
tekt og Reyni Vilhjálmssyni landslagsarkitekt
um Árbæjarhverfið. Þeir rekja sögu þess, líta á
merkar byggingar og segja frá því sem er í bí-
gerð.
Elliðaárdalur kl. 20–21.30 Vetrarhátíð lýkur
með fjölbreytri dagskrá. Öll börn eru hvött til
að koma með vasaljós. Elliðaárstöðin, Minja-
safnið og Rafheimar standa öllum opin.
Hallgrímskirkja kl. 10 Stefán Karlsson kennari
talar um trú og stjórnmál.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir kl.
11–17 Með kveðju frá Barcelona. Myndlist-
armaðurinn Antonio Hervás Amezcua kynnir
verk sín kl. 11–13. Persónuleg ferðakynning kl.
14.
Laugardalshöll kl. 12–18 Freestyle-
danskeppnin fyrir aldurshópinn 13–16 ára.
Hitt húsið, Pósthússtræti 3–5 kl. 13.30–
16 Menningardagskrá Tipp Topp, fé-
lagsmiðstöðvar fatlaðra.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar kl. 14–17
Fjölskylduleikurinn Þekkir þú verk Sigurjóns?
Ráðhús Reykjavíkur kl. 14–17 Fjölþjóðleg
þjóðahátíð heldur áfram. Kl. 14.30, 15.30 og
16.30 verða skemmtiatriði á sviðinu. Í hátíð-
arlok mun hópur leikskólabarna syngja lög á
nokkrum tungumálum.
Þjóðmenningarhúsið, Hverfisgötu kl. 14
Gísli Sigurðsson verður með leiðsögn um sýn-
inguna Handritin.
Grafíksalurinn, Hafnarhúsinu kl. 14–18
Kynning á Skúffugalleríi Íslenskrar grafíkur og
opnun á nýjum vef félagsins.
Listasafn Íslands kl. 15–16 Leiðsögn um Flúx-
ussýninguna Löng og margþætt saga.
Þjóðmenningarhúsið, Hverfisgötu kl. 15
Sigrún Kristjánsdóttir verður með leiðsögn um
sýninguna Þjóðminjasafnið – svona var það.
Söngskólinn í Reykjavík, Snorrabraut 24
kl. 17 Sibylle Köll flytur ljóðaflokkinn Zigeuner-
lieder eftir J. Brahms og fjögur ljóð eftir R.
Strauss opus 27. Lára Rafnsdóttir leikur á píanó.
Dómkirkjan kl. 20 Barnakór Dómkirkjunnar og
Æskulýðsfélagið NEDO koma m.a.fram.