Morgunblaðið - 22.02.2004, Page 44
SKOÐUN
44 SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UMHVERFISRÁÐHERRA Sif
Friðleifsdóttir hefur lagt fram á Al-
þingi lagafrumvarp um verndun
Laxár og Mývatns. Í frumvarpi ráð-
herrans er heimild sem opnar
möguleika á því að hækka núver-
andi stíflu í Laxá.
Í gildi eru lög nr. 36/1974 um
vernd Mývatns og Laxár. Lög þessi
eru tilkomin sem nið-
urstaða mestu og
þekktustu deilu um
náttúruvernd og nýt-
ingu sem fram hefur
farið á Íslandi. Lax-
árdeilan vakti lands-
athygli og raunar
gætti áhrifa hennar út
fyrir landsteinana þar
sem fregnir voru sagð-
ar af atburðunum í
fjölmiðlum Evr-
ópuþjóða. Í fræðilegri
umræðu hefur Lax-
árdeilan einnig verið
talin á alþjóðavísu ein af birting-
armyndum breyttra viðhorfa til nýt-
ingar náttúru og umhverfis sem upp
voru að vakna undir lok sjöunda
áratugarins og fram á þann átt-
unda.
Lögin voru á sínum tíma eins
konar griðasamningur og höfðu þá-
verandi stjórnvöld mikinn sóma af
þeim. Sáttargjörð sem ríkisstjórnin
gerði við Landeigendafélag Laxár
og Mývatns var innsigluð með lög-
unum enda er skýrt tekið fram í
samþykktum Landeigendafélagsins
að stífluhækkun í Laxá sé óheimil.
Sáttargjörðin og lögin voru því af
sama meiði.
Laxár- og Mývatnssvæðið er eitt
af þremur svæðum sem íslensk
stjórnvöld hafa tilnefnt sem RAMS-
AR-svæði skv. alþjóðlegri samþykkt
frá árinu 1971 um verndun votlend-
issvæða heimsins. Aðildarlönd
Ramsar-samþykktarinnar eru
skuldbundin til að tilnefna al-
þjóðlega mikilvæg votlendissvæði,
friðlýsa þau, sjá um að
þau njóti fullnægjandi
verndar og gera vernd-
aráætlun. Gerð vernd-
aráætlunar hefur verið
trössuð í 30 ár. Það
virðist því liggja í aug-
um uppi að fráleitt er
að opna möguleika á
stífluhækkun áður en
slík áætlun er gerð.
Verndaráætlun hlýtur
að eiga að koma á und-
an ákvörðun um fram-
kvæmdir.
Umhverfisráðherra
Sif Friðleifsdóttir skipaði nefnd til
að gera tillögu að breytingum á lög-
unum eftir ábendingar um að end-
urskoða þyrfti lögin, einkum það at-
riði er sneri að friðun
Skútustaðahrepps alls. Nefndin,
sem skipuð var fulltrúum frá um-
hverfisráðuneyti og helstu hags-
munaaðilum í héraði, skilaði til-
lögum sínum til ráðherra fyrir um
það bil ári síðan og náðist mála-
miðlun og víðtæk sátt um þær
breytingar sem nefndin lagði til.
Þannig stóðu málin þangað til í jan-
úar 2004 að ráðherra bætti einhliða
stífluhækkunarheimild sinni í frum-
varpið í trássi við nefndarálitið.
Í desember sl. kom starfsmaður
umhverfisráðuneytisins að máli við
formann Landeigendafélags Laxár
og Mývatns til að bera undir hann
viðbótartillögu frá umhverf-
isráðherra, eins konar bráðabirgða-
ákvæði til tíu ára sem heimilaði
stíflu í Laxá að undangengnum
ákveðnum skilyrðum. Stjórn Land-
eigendafélagsins tók þunglega í
þessa hugmynd og taldi sendimaður
ráðherra að þá yrði ólíklegt að við-
bótin yrði sett í lagatextann, stjórn-
málamenn kærðu sig ekki um nýja
Laxárdeilu. Var svo kyrrt um hríð.
Það var svo í janúar sem um-
hverfisráðherra, Sif Friðleifsdóttir,
boðaði komu sína á fund stjórnar
Landeigendafélags Laxár og Mý-
vatns. Sá fundur var haldinn á
Laxamýri, með í för var ráðuneyt-
isstjóri hennar. Nú var erindið að
tilkynna stjórn Landeigendafélags-
ins að hún sem umhverfisráðherra
ætlaði einhliða að setja þetta um-
deilda viðbótarákvæði sitt inn í
lagatextann, hvað sem tautaði og
raulaði og senda frumvarpið til
þinglegrar meðferðar. Strax í kjöl-
farið sendi stjórn Landeigenda-
félagsins ráðherranum og ráðuneyt-
isstjóranum ályktun þar sem
ákvæði ráðherra er harðlega mót-
mælt. Allir stjórnarmenn sam-
þykktu ályktunina. Enn lifðu menn í
voninni um að umhverfisráðherrann
drægi viðbótarákvæðið út úr laga-
textanum svo hægt yrði að leggja
frumvarpið fram í sátt, en ráð-
herrann gaf sig ekki, ef til vill vegna
þrýstings frá Landsvirkjun. Nú fór
það að heyrast að annaðhvort færi
frumvarpið fram í heild sinni eða af-
greiðslu þess yrði frestað um
óákveðinn tíma. Ekki hef ég trú á
því að menn hér heimafyrir láti
svona hótanir yfir sig ganga.
Talsmenn Landsvirkjunar hafa
ekki farið leynt með fyrirætlanir
sínar að hækka stíflu í Laxá þrátt
fyrir að lögin heimili það ekki,
meira að segja kynntu þeir drög að
matsáætlun um stífluhækkun í júlí
síðastliðnum. Fjöldi einstaklinga og
félagsamtaka sendi athugasemdir
við þessar áætlanir og mönnum
mátti vera ljóst að mikil andstaða
var við hugmyndirnar.
Heggur sá er hlífa skyldi!
Eftir Halldór Valdimarsson ’Það kom mjög á óvartað umhverfisráðherra
Íslands stæði fyrir því
að rjúfa sátt sem skyn-
samir stjórnmálamenn
úr öllum flokkum stóðu
að á sínum tíma.‘
Halldór Valdimarsson
VÍFILSGATA 11 - OPIÐ HÚS Í DAG
Nánari upplýsingar og myndir á www.Heimili.is
sími
530 6500
Bogi Pétursson
löggiltur fasteignasali
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Björt og falleg ca 50 fm 2ja herbergja
íbúð á 1. hæð í reisulegu húsi í
Norðurmýrinni. Rúmgóð stofa og stórt
svefnherbergi. Nýtt parket á gólfum.
Þak, gluggar, gler og rafmagn
endurnýjað.
Áhv. ca 5,3 millj. Verð 9,3 millj.
Gunnar tekur á móti fólki milli kl. 14 og 16 í dag.
Verið velkomin.
Við hjá fasteignasölunni fasteign.is höfum verið
beðin að finna einbýli, rað- eða parhús í
ofangreindum hverfum fyrir ákveðinn kaupanda.
Verðhugmynd allt að 32 milljónir. Rúmur
afhendingartími ef þess er óskað.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason
sölumaður á fasteign.is í síma 5 900 800 eða
6 900 820.
Íbúar Ártúnsholts, Árbæjar
og Seláss athugið!
SÍMI 5 900 800
Ólafur
Finnbogason
sölumaður B. ed.
Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali
Lindarbraut 2 - 170 Seltjarnarnesi
Opið hús
milli kl. 15 og 16 í dag
Góð 107 fm sérhæð ásamt
bílskúr á fallegum útsýnis-
stað við sjávarsíðuna á Sel-
tjarnarnesi. Eignin er á 1.
hæð, tvennar suðursvalir
með glæsilegu útsýni. Mjög
góð eign á vinsælum stað.
Áhv. 5 millj. Verð 16,9 millj.
Hildur sölufulltrúi Foldar
verður á staðnum, sími
868 7643. Nafn á bjöllu er
Gísli.
Opið hús
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 Fax 552 1405
www.fold.is fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401
HEFUR ÞÚ
.........lengi leitað að einbýli á einni hæð á góðum stað
sem er glæsilega hannað og býr yfir fallegum
nútímalegum arkitektúr?
Í Kjarrási 7, Garðabæ, höfum við þetta 207 fm hús til
sölu og afhendingar strax, fullbúið að utan og tilbúið til innréttingar.
Frekari upplýsingar veitir Brynjar Harðarson á skrifstofu Húsakaupa.
Sími 575 8500 Fax 575 8505
Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík
Jón Ellert Lárusson, lögg. fasteignasali
Opið hús - Kjarrhólma 34 -
LÆKKAÐ VERÐ Góð og vel skipulögð
4ra herbergja 90 fm íbúð á annarri hæð við
Kjarrhólmann í Kópavogi. Íbúðin skiptist í
hol með parketi á gólfi og skápum, teppa-
lagða stofu með fallegu útsýni til Esjunnar,
þrjú svefnherbergi og eru skápar í tveimur
þeirra, eldhús með dúkaflísum á gólfi og
viðarinnréttingu, búr með hillum, baðher-
bergi með flísum á gólfi og baðkari og þvottaherbergi með innréttingu. Í kjallara
hússins er stór sérgeymsla ásamt sameign. Áhv. 5,9 m. húsbréf. Verð 12,5 m.
Andri mun sýna íbúðina áhugasömum milli kl. 14 og 16 í dag
KJARRHÓLMI - LÆKKAÐ VERÐ - 4ra herb.
Opið Hús - Hólmgarður 50 Mjög
falleg tæplega 60 fm 3ja herbergja íbúð á
fyrstu hæð í fjórbýlishúsi við Hólmgarðinn í
Reykjavík (hús byggt 1978). Íbúðin skiptist
í parketlagt anddyri með skáp, bjarta park-
etlagða stofu með útgangi út á stórar suð-
ursvalir, tvö svefnherb. og er skápur í því
stærra og baðherbergi með flísum á gólfi
og veggjum ásamt baðkari og innréttingu.
Í kjallara hússins er mikil sameign. Þar er
stórt þvottaherbergi með tveimur þvottavélum, leikherbergi, salerni, gufubaði og
sturtu. Verð 11,2 m.
Guðbjarni og Ragnheiður sýna íbúðina milli kl. 14 og 16 í dag.
HÓLMGARÐUR - 3ja herb.
Uppl. hjá ERON í síma 515 7440 og 894 8905 - eron@eron.is
Giljaland 24
Endaraðhús – Opið hús í dag
Til sölu ákaflega vandað endaraðhús á pöllum, u.þ.b. 190 fm, ásamt
22,9 fm bílskúr. Húsið er í góðu ástandi og er hægt að aka að því að of-
anverðu. Stór og falleg stofa með mikilli lofthæð og suðursvölum. 3-4
svefnherbergi. Ágætar innréttingar. Lóðin snýr til suðurs. Eign í mjög
góðu viðhaldi. Frábær staður. Verð 25,9 m.
Kristbjörg og Per sýna eignina í dag frá kl. 14-16. Sími 699 2381.