Morgunblaðið - 22.02.2004, Síða 45
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 45
HEIÐARGERÐI - UPPRUNALEGT
Tvílyft 113 fm tengihús ásamt 32 fm
bílskúr. Á neðri hæð er forstofa, þvh.,
eldhús, hol, snyrting og stofur. Á
efri hæðinni eru 4 herb., hol og bað.
Húsið er allt í upprunalegu ástandi og
þarfnast standsetningar.
V. 14,5 m. 3926
MELABRAUT- SELTJARNARNESI
Mjög fallegt 136,5 fm einbýlishús á einni
hæð ásamt 32,8 fm bílskúr með hita, vatni
og rafmagni. Húsið skiptist þannig: tvær
stofur, eldhús, 4 herbergi, svefn-
herbergisgangur, forstofa, hol, baðher-
bergi, gestasalerni, þvottahús, geymsla.
Parket á gólfum og endurnýjað bað-
herbergi. V. 29,5 m. 3888
GEITASTEKKUR
Fallegt og vel skipulagt 267,5 fm einbýli
ásamt 28 fm bílskúr. Húsið er á einni
hæð og hálfum kjallara. Hæðin 180 fm
og 87 fm í kjallara sem er með sérinng.
og hægt að útbúa séríbúðaraðstöðu.
Stórar stofur, sérsvefnherbergisálma og
fallegur garður. Eignin er staðsett innst
í botnlangagötu. Vönduð og vel staðsett
eign. V. 27,5 m. 3914
SKEIÐARVOGUR - 7 HERBERGJA
Vorum að fá í sölu mjög fallegt 166 fm
endaraðhús á tveimur hæðum auk
kjallara. Húsið skiptist m.a. í tvær stofur
og fimm herbergi. Möguleiki er að útbúa
litla íbúð í kjallara. Gróinn garður með
timburverönd. V. 19,9 m. 3936
NAUSTABRYGGJA - 174
6 herbergja glæsileg 174 fm íbúð á
tveimur hæðum m. stæði í bílageymslu,
tvennum svölum og mikilli lofthæð. Á
neðri hæðinni er hol, borðstofa, stofa,
eldhús, tvö herbergi, baðherbergi og
þvottahús. Á efri hæðinni er gott hol, tvö
herbergi og baðherbergi. V. 21,9 m. 3943
FLÓKAGATA
Vorum að fá í sölu mjög fallega 72 fm
3ja herb. íbúð í risi í fallegu húsi við
Flókagötu. Góðir kvistir eru á íbúðinni.
Íbúðin er laus strax. Verð 13,9 millj.
Einng er til sölu 98 fm efri hæð í sama
húsi. Henni tilheyrir 35 fm bílskúr. Hæðin
er laus í des. 2004. V. 19,9 m. 3905
RÁNARGATA
Sérlega falleg 3ja herbergja íbúð í
fallegu 4-býlishúsi á eftirsóttum stað.
Íbúðin skiptist þannig: stofa, tvö
herbergi, eldhús, baðherbergi og hol.
Sérgeymsla með hillum fylgir í
kjallara. Sameiginlegt þvottahús er í
kjallara. V. 12,9 m. 3933
GOÐHEIMAR - FALLEG ÍBÚÐ Á GÓÐUM STAÐ
Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja
66,1 fm íbúð á jarðhæð með sérinngangi
í þríbýlishúsi. Eignin skiptist í eldhús,
stofu, tvö herbergi og baðherbergi. Sér-
geymsla og sameiginlegt þvottahús er á
sömu hæð. Húsið lítur mjög vel út og er
nýlega málað að utan. Parket og flísar á
gólfum. V. 11,3 m. 3931
LAUFRIMI - GLÆSILEG
3ja herb. 100 fm endaíb. m. tvennum
svölum og glæsilegu útsýni. Íbúðin er öll
mjög rúmgóð og skiptist í tvö stór herb.,
stóra stofu, rúmgott eldhús og bað.
V. 14,7 m. 3803
FURUGRUND - LAUS FLJÓTLEGA
Falleg og vel skipulögð ca 58 fm íbúð á 1.
hæð í litlu fjölbýlishúsi. Íbúðin skiptist í
forstofu/hol, rúmgott svefnherbergi,
baðherbergi, eldhús og góða stofu. Vestur-
svalir. Nýlegt eikarparket er á öllum
gólfum nema baðherbergi. Í kjallara er
sérgeymsla, hjólageymsla og
þurrkherbergi. V. 10,3 m. 3927
Höfðabakki
Atvinnuhúsnæði
Góð lofthæð, mjög góð staðsetning, góð aðkoma og næg bílastæði.
Eigum eftirfarandi til ráðstöfunar.
Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson í
síma 588 4477 eða 822 8242
www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30
Mögulegt er að skipta ofangreindum stærðum í smærri einingar. Húsnæðið hefur verið í notkun fyrir
höfuðstöðvar Marels. Hentar fyrir ýmiss konar starfsemi, s.s. iðnað, heildsölu, skrifstofustarfsemi o.fl.
Eignin er í eigu Landsafls, sem er öflugt sérhæft fasteignarfélag.
1. hæð 280 fm Innkeyrslud./lofth. 3,7 m. Laust
266 fm Innkeyrslud./lofth. 3,7 m. Laust
481 fm Innkeyrslud./lofth. 3,7 m. Laust
2. hæð 1.460 fm Skrifstofur/þjónusta
Mjög hagstæð leiga
LJÓSAVÍK 27 - OPIÐ HÚS Í DAG
Sigurbjörn Skarphéðinsson
lögg. fasteignasali
Í - I Í
Hafnarfirði
LJÓSAVÍK 27, 112 Grafarvogi. Falleg 107 fm 4ra herb. endaíbúð með sérinngangi ásamt 25,9
fm innb. bílskúr. Fallegt stórt eldhús með flísum á gólfi, falleg ljós eikarinnrétting, vönduð 4ra
hellu gaseldavél með ofni, fallegur stór háfur yfir eldavél - mjög góður borðkrókur. Út frá eld-
húsi er þvottahús. Tvö góð barnaherbergi og mjög stórt hjónaherbergi. Glæsilegt baðherbergi.
Góð stofa með útgang á stórar suðursvalir. Verð 17,9 m.kr.
Geir Þorsteinsson,
sími 820 9500,
sýnir eignina í dag,
sunnudag, á
milli kl. 14 og 16
Landsvirkjunarmenn fengu
nokkra bændur neðan virkjunar á
sitt band þegar þeir sögðu heima-
mönnum að stífla í Laxárdal ætti að
vernda og rækta ána og þar með
væri stífluhækkun hugsanlega lög-
leg, fyrir þeim vekti nefnilega að
glæða laxveiði í Laxá í Aðaldal og
bæta rekstrarskilyrði um leið. Eitt-
hvað hafa nú þessi sjónarmið staðið
í Umhverfisstofnun trúi ég.
Nýlegar sandrannsóknir benda til
þess að sandburður í Laxá sé ekki
meiri nú en áður og sveiflur í lax-
veiði neðan virkjunar verði ekki
raktar til sandburðar nema að litlu
leyti. Einfalt er í þessu sambandi að
horfa til sveiflna í laxveiði í hlið-
aránum tveimur sem falla til ósa
með Laxá, Reykjadalsá og Mýr-
arkvísl. Hitt liggur í augum uppi að
samkvæmt tölum úr drögum að
matsáætlun Landsvirkjunar fyllist
fyrirhugað stíflulón í Laxárdal af
sandi á 20–30 árum og þá verður
ekki nokkur möguleiki að fjarlægja
hann nema með mikilli umhverf-
isröskun og tilkostnaði.
Önnur rök Landsvirkjunar og
ráðherra umhverfismála eru þau að
Laxárvirkjun sé svo óhagkvæm nú
að sennilega verði að loka henni ef
ekki fæst að stífla. Stjórn Landeig-
endafélagsins og ýmsir aðrir hafa
bent á leiðir til að bæta rekstur
virkjunarinnar án stífluhækkunar
og kynnt þær. Þetta eru ábyrgar til-
lögur sem ég geri ekki að umræðu-
efni hér en hafa verið ræddar við
Landsvirkjunarmenn.
Óskað hefur verið eftir því að
Landsvirkjun birti rekstrar- og af-
komutölur Laxárvirkjunar svo hægt
verði að meta þær, því það er jú það
eina sem að baki þessari fram-
kvæmdatillögu liggur, þ.e. rekstur
og afkoma. Landsvirkjun hefur
neitað að birta tölurnar en klifar sí-
fellt á því að þetta sé óhagkvæm
rekstrareining. Fyrst svo er ætti
Landsvirkjun ef til vill að bjóða
virkjunina til sölu, í ljósi nýs laga-
umhverfis í orkumálum verður að
teljast líklegt að áhugasamir kaup-
endur finnist.
Forráðamenn Landsvirkjunar
hóta Aðaldælingum að leggja niður
virkjunina fái þeir ekki að gera
sandgeymslu í Laxárdal og þar með
missi Aðaldælingar spón úr aski
sínum, þannig stilla þeir hópi
heimamanna upp við vegg og segja,
annaðhvort eruð þið með okkur eða
móti. Þetta finnast mér ekki siðleg
vinnubrögð, enda hljóta menn að sjá
í gegnum þetta. Í drögum að tillögu
að matsáætlun Landsvirkjunar er
einnig látið að því liggja að afhend-
ing á orku til grannbyggða Lax-
árvirkjunar verði ótrygg ef ekki fá-
ist að hækka stíflu. Það er mikil
vanvirðing við sveitarstjórnarmenn
að hóta með þessum hætti og ótækt
að slíkum aðferðum sé beitt.
Ráðherra/Landsvirkjun tala eins
og verið sé með breytingarákvæð-
inu að auka verndarstig, þ.e.
tryggja heimamönnum neitunarvald
og bæta þannig stöðu þeirra. Raun-
in er sú að þessi gjörningur opnar
fyrir stóraukið umhverfisrask í
hjarta sjálfs verndarsvæðisins í tíu
ár og gengur þar með gegn öllum
anda laganna sjálfra. Bráðabirgða-
ákvæðið tryggir að verndarlögin
sjálf verndi ekki svæðið ef einhver
vill fara í framkvæmdir.
Umhverfisráðherra hefur und-
anfarið orðið tíðrætt um að eðlilegt
sé að meta fyrst umhverfisáhrif af
framkvæmdinni áður en tekin er af-
staða til hennar. Um þetta er það að
segja að á síðustu árum hefur það
orðið æ ljósara að mat á umhverfis-
áhrifum framkvæmda hefur alls
ekkert verið notað til þess að afla
upplýsinga til grundvallar ákvörðun
um það hvort af framkvæmdum
verður. Þetta verður best útskýrt
með því að benda á hvernig úr-
skurðir umhverfisráðherra hafa fall-
ið frá upphafi. Í engu tilfelli hefur
ráðherra talið framkvæmd hafa um-
talsverð umhverfisáhrif og lagst
gegn henni! Undirstofnun umhverf-
isráðherra, Skipulagsstofnun, hefur
að vísu viljað stöðva fyrirhugaðar
framkvæmdir vegna umhverfis-
áhrifa tvisvar eða þrisvar (af u.þ.b.
160 málum!) en ráðherra hefur þá
snúið því jafnharðan við. Um þetta
þarf ekki fleiri orð.
Um eitt eru menn sammála, ekki
er um að ræða framkvæmd sem
hefur aukna orkuöflun sem meg-
inmarkmið. Þessu hafa forstjóri og
stjórnarformaður Landsvirkjunar
báðir lýst yfir opinberlega að und-
anförnu. En hvað þýðir það? Það
hangir þá engin samfélagsleg upp-
bygging á spýtunni, eins og jafnan
er í umdeildum náttúruvernd-
armálum sem þessu! Enginn stór-
iðnaður og engin uppbygging í hér-
aðinu, eingöngu aukinn hagnaður af
lítilli vatnsaflsvirkjun. Það vekur
því furðu að umhverfisráðherra sjái
ástæðu til þess að hætta pólitískum
ferli sínum við þessar aðstæður.
Að framansögðu tel ég líklegt að
rafmagnið frá litlu Laxárvirkjun
með 10 eða 12 metra stíflu gæti orð-
ið dýrt rafmagn ef fórnarkostnaður
vegna röskunar á einstöku lífríki og
landslagi er reiknaður í raf-
orkuverðið.
Það kom mjög á óvart að um-
hverfisráðherra Íslands stæði fyrir
því að rjúfa sátt sem skynsamir
stjórnmálamenn úr öllum flokkum
stóðu að á sínum tíma.
Ef ekki verður gripið í taumana á
næstu vikum og ákvæðið um stíflu-
hækkun fellt út úr lagatextanum
munu fara af stað harðvítugar deil-
ur sem búast má við að skaði jafnt
stjórnmálamenn, Landsvirkjun og
heimamenn. Ný Laxárdeila er í
uppsiglingu. Umhverfisráðherra
eða meirihluti alþingismanna verður
að taka umdeildu stífluheimildina
sem fyrst út úr lagatextanum, ann-
að er óverjandi.
Höfundur er skólastjóri og landeig-
andi í Laxárdal.