Morgunblaðið - 22.02.2004, Side 54
MINNINGAR
54 SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
Guðmundur Þór
Gíslason,
útfararstjóri.
Sími 551 3485 • Fax 551 3645
Áratuga reynsla í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 896 8284
Eyþór Eðvarðsson
útfararstjóri
Sími 892 5057
Vaktsími allan sólarhringinn
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 14 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigur›ur
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
✝ Sveinn Guð-mundsson
Sveinsson fæddist í
Hafnarfirði 4. júní
1920. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja 10. febr-
úar síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Guðlaug Ágústa
Guðmundsdóttir, f.
1883, d. 1954, og
Sveinn Guðmunds-
son, f. 1875, d.1929.
Sveinn var yngstur 9
systkina. Látin eru:
Guðfinna Jónína f.
1907, d. 1999, Guðmunda f. 1908,
d. 1996, Þórunn f. 1910, d. 1997,
Guðmundur f. 1911, d. 1966, Guð-
bergur f. 1915, d. 1974, Guðlaug f.
1918, d. 2000. Eftir lifa Björg f.
1913 og Jens Ólafur Páll f. 1917.
Þegar Sveinn var tveggja ára
veiktist faðir hans af berklum og
fór á Vífilsstaði. Þá fór Sveinn í
band milli Sveins og telpunnar og
reyndist hann síðar hennar börn-
um góður afi. Önnur börn Jensu
eru Elísabet, f. 1946, Antony, f.
1948, Lindy, f. 1949 og Finn, f.
1953, öll búsett í Færeyjum.
Sveinn var sannkallaður þúsund
þjala smiður, gat allt sem hann
sneri sér að. Sem ungur maður
tók hann vélstjórapróf á minni
báta og stundaði alltaf af og til
eigin trilluútgerð og fiskverkun
allt til ársins 1970. Einn vetur á
yngri árum fór hann í tónlistar-
skóla og spilaði eftir það bæði á
orgel og klarinett. Hann hafði
yndi af góðri tónlist og naut þess
að hlusta á góðan söng. Hann tók
þátt í uppbyggingunni á Suður-
nesjum eftir stríðið, vann í Breta-
vinnunni og síðar hjá Varnarlið-
inu á Miðnesheiði. Sveinn og Jensa
hófu búskap á Hvalsnesi 1966 en
1969 giftu þau sig og fluttu í eigið
hús í Sandgerði. Eftir það vann
hann í fiskvinnslu og síðustu
starfsárin hjá Aðalverktökum á
Keflavíkurflugvelli. Árið 2001
fluttu þau í húsnæði eldri borgara
að Suðurgötu 17–21 í Sandgerði.
Útför Sveins fór fram í kyrrþey
frá Hvalsneskirkju 21. febrúar.
fóstur til ömmusystur
sinnar Guðlaugar Eyj-
ólfsdóttur, f. 1859, d.
1926, og Páls Magnús-
sonar útvegsbónda á
Hvalsnesi, f. 1857, d.
1940, sem þar bjuggu
með tveimur börnum
sínum, Magnúsi, f.
1892 d. 1970, og Guð-
rúnu Sigurrós, f.
1900, d. 1985. Ólst
hann upp hjá systkin-
unum við bústörf og
önnur störf sem til
féllu á útvegsbænda-
heimili og síðar einnig
með eiginmanni og dætrum Guð-
rúnar, en þeim systrum reyndist
hann ætíð sem besti bróðir.
Árið 1965 kynntist Sveinn Jensu
Petersen Pálsdóttur frá Færeyj-
um, f. 20.7. 1924, og fylgdi henni
yngsta dóttir hennar af fyrra
hjónabandi, Mikkalína Magnusen,
f. 1959. Myndaðist strax gott sam-
Elsku besti Svenni minn, ég man
eins og var það í gær er ég sá þig í
fyrsta sinn. Ég og Finn bróðir vor-
um að flytja til þín frá Færeyjum, ég
var þá 6 ára og Finn var 12 ára, þú
stóðst á bryggjunni og beiðst okkar,
þessi stóri og mikli maður. Alveg frá
fyrstu stundu tengdust bönd á milli
okkar sem aldrei hafa slitnað, þú
gekkst mér strax í föður stað og
betri föður gat ég ekki hugsað mér.
Þú elskaðir mig og lést mig alltaf
finna að ég ætti pláss í hjarta þínu,
ég elska þig eins og dóttur elskar
föður. Aldrei í gegnum öll þessi ár
reiddist þú mér eða skammaðir, allt-
af rólegur og yfirvegaður, fullur af
væntumþykju, enda hændust börn
alltaf mikið að þér. Þú kenndir mér
svo margt og allt gott. Og seinna
meir er börnin mín fæddust eitt af
öðru reyndist þú þeim yndislegur og
traustvekjandi afi sem þau áttu allt-
af öruggt skjól hjá og breiðan faðm
að halla sér að.
Ég kveð þig Svenni minn með
djúpum söknuði og með þá fullvissu
að þú hvílir nú öruggur í faðmi
Drottins, þar sem engin veikindi, tár
eða sorgir finnast. Hvíl í friði og
takk fyrir allt sem þú varst fyrir
mömmu, mig og börnin mín.
Þín fósturdóttir
Mikkalína.
Elsku Svenni, takk fyrir allt sem
þú varst fyrir okkur og mömmu, við
erum svo þakklátar að hafa kynnst
þér og átt samverustundir með þér,
alltaf tókstu vel á móti okkur þegar
við komum í heimsókn til ykkar og
þú lést okkur alltaf finna að við og
makar okkar og börn værum alltaf
velkomin. Það var alltaf gaman að fá
ykkur til Færeyja til okkar, og eig-
um við margar góðar minningar um
þær heimsóknir.
Farðu í friði elsku Svenni, hafðu
ekki áhyggjur af mömmu, hún verð-
ur í góðum höndum. Saknaðarkveðj-
ur.
Elísabeth, Anthony, Lindy
og fjölskyldur.
Til afa.
Hæ elsku afi minn, mér finnst svo
leiðinlegt að þú sért farinn frá mér,
við höfðum það svo gott saman og
mér leið alltaf svo vel hjá þér. Það
var svo gaman að gera við hjólið
mitt með þér og þú kenndir mér svo
margt gott, eins og þegar við fórum í
sund saman. Ég veit ekki hvernig
það verður án þín afi, ég mun sakna
þín svo mikið. Ég vildi að þú gætir
verið í fermingunni minni, en ég veit
að þú ert hjá Jesú og hefur það gott,
þú verður alltaf í hjarta mínu.
Ég vil bara segja bless afi minn og
við sjáumst í Himnaríki.
Þinn afastrákur
Aron.
Jæja, elsku afi minn, nú eru farinn
frá okkur, ég sakna þín svo mikið.
Ég man þegar við fórum í sund sam-
an þegar ég var lítill, svo fórum við
heim til ömmu eftir á og hún grillaði
samloku og þú keyptir litla iscola
handa mér. Svo þegar þú kenndir
mér að tefla og að lesa, við fórum að
veiða saman, fórum í eggjaleit, tók-
um upp kartöflur, svo kenndir þú
mér að keyra úti á Hvalsnesi. Þetta
voru svo skemmtilegir tímar.
Þú hefur alltaf verið mér sem
pabbi, því ég hef aldrei átt neinn
pabba, og það skemmtilegasta við
þetta allt saman er að þú reiddist
mér aldrei. Þú hefur hjálpað mér
svo mikið, ég hef alltaf getað hallað
mér að ykkur ömmu. Það er gott að
vita að þú ert laus við allar kvalir og
alla sjúkdóma. Núna líður þér loks-
ins vel.
Mér finnst svo skrítið að koma
heim til ömmu núna og þú ert ekki
þar. Ég skal passa ömmu vel, þang-
að hún kemur til Himna til þín. Ég
elska þig afi minn og sakna þín.
Takk fyrir allt.
Þinn afastrákur
Sveinn (Svenni litli).
Kæri afi, þá er komið að stundinni
sem ég kveið svo fyrir, en ég veit að
þú verður alltaf hjá okkur í hjörtum
okkar.
Ég þakka þér fyrir allar þær góðu
stundir sem við höfum átt saman,
það er hægt að telja þær endalaust
upp. Þú kenndir mér að lesa, synda
og hjóla, við máluðum bílskúrshurð-
ina saman og smíðuðum niðri í kjall-
ara saman. Við fórum í marga bíl-
túra saman, sóttum ömmu upp á völl
í vinnuna hennar þegar ég var lítil
og svo margt annað. Annía mín elsk-
ar þig svo heitt og þó að hún sé bara
tveggja ára þá vissi hún vel að þú
varst veikur og hún var alltaf að
strjúka á þér handlegginn og pass-
aði þig. Ég mun alltaf tala við hana
um langafa og hafa mynd af þér hjá
henni. Þú verður alltaf í hjörtum
okkar, minning þín lifir með okkur
hvar sem við verðum elsku besti afi
minn. Við Annía Celinda elskum þig
báðar. Þitt afabarn
Jórunn Díana.
Hæ, elsku afi minn, nú ertu farin
frá okkur, sem ég á svo erfitt með að
sætta mig við. En þegar ég hugsa
um það, þá veit ég að við eigum eftir
að hittast aftur á betri stað og þang-
að til mun Jesús passa þig, afi minn.
Ég á svo góðar minningar um okkur
saman. Manstu þegar ég vildi alltaf
koma með þér í kjallarann að smíða
og þegar þú kenndir mér að smíða
bíl sem ég málaði grænan, ég var
svo glöð að eiga svona góðan afa. Ég
man þér þótti svo gaman að synda
og varst fastur gestur í lauginni og
oft fórum við systkinin með þér.
Alltaf varstu tilbúinn að hjálpa okk-
ur og leiðbeina, alltaf þolinmóður og
góður, betri afa er ekki hægt að
hugsa sér. Það er eins og það var í
gær þegar þú kenndir mér nokkur
lög á orgelið í stofunni ykkar og ég
reyndi að syngja með þegar þú spil-
aðir. Takk fyrir hvað þú elskaðir mig
mikið og ég elska þig líka elsku afi
minn. Ég sakna þín svo mikið.
Manstu hvað þú hlóst mikið þegar
ég sagði að eitthvað væri svo ógeðs-
lega gott.
Allar þessar minningar og aðrar
geymi ég í hjarta mínu, þær eru mér
svo dýrmætar. Ekki hafa áhyggjur
af ömmu, ég skal passa hana fyrir
þig afi minn. Við hittumst aftur og
tökum nokkur spil. Ég elska þig og
þú munt alltaf eiga pláss í hjarta
mínu, þú ert besti afi í heiminum.
Saknaðarkveðjur, þín afastelpa
Tinna.
Elsku afi minn, ég elska þig og ég
veit að þú elskar mig. Ég man þegar
við fórum að synda saman, það var
svo gaman að vera með þér, þú
hjálpaðir mér að læra heima, alltaf
svo þolinmóður og góður, ég man
eins og það var í gær. Þú hefur alltaf
hjálpað okkur í vandræðum og erf-
iðleikum. Mér fannst svo gaman að
koma í heimsókn til þín og ömmu,
við spiluðum og fengum okkur síðan
nýbakaða jólaköku sem þú hafðir
bakað, það er uppáhaldsjólakakan
mín.
Ég sakna þín elsku afi minn, ég
veit að þú vakir yfir okkur og passar
okkur á hverjum degi. Það er svo
tómlegt hérna án þín, ég vildi að þú
gætir haldið utan um mig einu sinni
enn. Hafðu það gott í Paradís og ég
skal passa ömmu fyrir þig. Ég elska
þig af öllu mínu hjarta, elsku afi
minn. Við söknum þín öll, við hitt-
umst aftur síðar. Takk fyrir að hafa
alltaf verið hjá okkur.
Saknaðarkveðjur, þín afastelpa
Elísabet.
Elsku Svenni minn, núna ertu far-
inn þangað sem þú ert örugglega
búinn að bíða eftir lengi. Ég veit að
þú hefur það gott núna. Minning-
arnar sem eru hér eftir eru allar
góðar. Ég man þegar þú varst að
skutla okkur Svenna eitt skiptið, þú
ætlaðir að gá hvort það væri hált og
snarhemlaðir, ég man hvað mér brá
og þú hlóst bara, síðan byrjuðum við
öll að hlæja. Mér fannst þú alltaf svo
fyndinn og hlógum við mikið saman.
Aldrei varstu reiður, þú varst algjör
perla. Mér fannst alltaf svo gaman
að elda fyrir ykkur bæði, ég man að
síðast þegar ég eldaði fyrir þig sagð-
ist þú ekki hafa fengið svona góðan
mat lengi. Þessi fjögur ár sem ég hef
þekkt þig hafa verið frábær kynni
SVEINN G.
SVEINSSON