Morgunblaðið - 22.02.2004, Síða 66

Morgunblaðið - 22.02.2004, Síða 66
DAGBÓK 66 SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Vædderen kemur í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Polar Siglir kemur í dag. Fréttir Fjölskylduhjálp Ís- lands Eskihlíð 2–4 í fjósinu við Miklatorg. Móttaka á vörum og fatnaði, mánudaga kl. 13–17. Úthlutun mat- væla og fatnaðar, þriðjudaga kl. 14–17. Sími skrifstofu er 551 3360, netfang dal- ros@islandia.is, gsm hjá formanni 897 1016. Mannamót Aflagrandi 40. Íþróttadagur aldraðra er á öskudag í íþrótta- húsinu Austurbergi kl. 14, leikfimi söngur dans rútuferð frá Afla- granda kl. 13.15 Allir velkomnir, skráning í síma 562 2775 og á Aflagranda. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Leiksýning Snúðs og Snældu fellur niður í dag vegna aðal- fundar. Dansleikur í kvöld kl. 20. Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Félags- heimilið er opið virka daga frá kl. 9–17. Heitt kaffi á könnunni. Félagsstarf eldri borg- ara í Mosfellsbæ. Pútt- kennsla í Íþróttahús- inu Varmá á sunnudögum kl. 11–12. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Miðvikudag- inn 25. febrúar íþróttahátíð á vegum FÁÍA í íþróttahúsinu við Austuberg kl. 14, m.a danssýning dans- hóps Helgu Þórarins- dóttur. Fimmtudaginn 26. febrúar „kynslóðir saman í Breiðholti“ fé- lagsvist kl. 13.15 í sam- starfi við Hólabrekku- skóla, verðlaun frá Essó. Föstudaginn 27. febrúar óvissuferð með lögreglunni og fleiri samstarfsaðilum, mæt- ing í Gerðubergi kl. 12.30, skráning hafin. Allir velkomnir s. 575 7720. Vesturgata 7. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra, verða með íþróttadag aldraðra á öskudag miðvikudag- inn 25. febrúar kl.14– 16 í íþróttahúsinu við Austurberg. Farið frá Vesturgötu 7 kl. 13.30, skráning í síma 535 2740. Allir vel- komnir NA (Ónefndir fíklar). Neyðar- og upplýs- ingasími 661 2915. Opnir fundir kl. 21 á þriðjudögum í Héðins- húsinu og á fimmtu- dögum í KFUM&K, Austurstræti. Íslenska bútasaums- félagið. Fundur þriðju- daginn 24. febrúar kl. 20 í Safnaðarheimili Háteigskirkju. Fyr- irlestur: Hallfríður Tryggvadóttir text- ílkennari. Happdrætti: 2 ½“x3x45 grænt. Fé- lagar sýna og segja frá. Nýir félagar velkomn- ir. Félag kennara á eft- irlaunum boðar til fundar um kjaramál miðvikud. 25. febrúar (öskudag) klukkan 16 í Kennaraháskóla Ís- lands, stofu 206 (gamla bókasafninu). For- ystumenn Kenn- arasambands Íslands koma á fundinn, ræða um samningana við kennara á eftirlaunum og svara fyrirspurnum. Félagsmenn hvattir til að mæta. Kvenfélag Hreyfils. Aðalfunduinn verður þiðjudaginn 24. febr- úar kl. 20, gengið inn að ofanverðu. Minningarkort Minningarkort Ás- kirkju eru seld á eft- irtöldum stöðum: Kirkjuhúsinu Lauga- vegi 31, þjón- ustuíbúðum aldraðra við Dalbraut, Norð- urbrún 1, Apótekinu Glæsibæ og Áskirkju Vesturbrún 30 s. 588 8870. KFUM og KFUK og Samband íslenskra kristniboða. Minning- arkort félaganna eru afgreidd á skrifstof- unni, Holtavegi 28 í s. 588 8899 milli kl. 10 og 17 alla virka daga. Gíró- og kred- itkortaþjónusta. Minningarkort Minn- ingarsjóðs hjónanna Sigríðar Jakobsdóttur og Jóns Jónssonar á Giljum í Mýrdal við Byggðasafnið í Skóg- um fást á eftirtöldum stöðum: Í Byggðasafn- inu hjá Þórði Tóm- assyni, s. 487 8842, í Mýrdal hjá Eyþóri Ólafssyni, Skeiðflöt, s. 487 1299, í Reykjavík hjá Frímerkjahúsinu, Laufásvegi 2, s. 551 1814 og hjá Jóni Aðalsteini Jónssyni, Geitastekk 9, s. 557 4977. Minningarkort Minn- ingarsjóðs Maríu Jóns- dóttur flugfreyju eru fáanleg á eftirfarandi stöðum: Á skrifstofu Flugfreyjufélags Ís- lands, s. 561 4307/fax 561 4306, hjá Halldóru Filippusdóttur, s. 557 3333 og Sigurlaugu Halldórsdóttur, s. 552 2526. Í dag er sunnudagur 22. febrúar, 53. dagur ársins 2004, konudagur. Orð dagsins: Guð vonarinnar fylli yður öllum fögnuði og friði í trúnni, svo að þér séuð auðugir að voninni í krafti heilags anda. (Rm. 15, 15, 13.) Steinþór Heiðarssonsegir í pistli á Múrn- um að fyrirlestur Díönu Wallis, sem situr á Evr- ópuþinginu, í Norræna húsinu í vikunni hafi tæp- ast verið boðlegur hugs- andi fólki. „Mestum tíma eyddi hún í fremur mátt- lausar dæmisögur eftir ótrúlega langan inngang um ekki neitt. Jafnframt var með ólíkindum hversu þjóðernissinnuð og ósamkvæm sjálfri sér Wallis var í sínu stutta erindi.“     Síðan segir hann:„Wallis spurði hvort Íslendingum litist virki- lega á það að þjóðir á borð við Pólverja og Kýpurbúa hefðu í fram- tíðinni meira að segja um ESB-löggjöfina sem að mestum hluta gengur sjálfkrafa í gildi hér á landi. Hvers vegna lands- menn áttu að eiga á illu von frá þessum þjóðum fremur en t.d. Svíum, Frökkum og Bretum er ekki alveg ljóst. Að minnsta kosti áttar sá sem þetta ritar sig ekki á því hvað er verra við fólk í Suður- og Austur- Evrópu heldur en þær manneskjur sem búa í norðvestanverðri álf- unni.“ Hann segir hana hafa hiklaust gefið sér að að- ild að stofnunum ESB þýddi sjálfkrafa áhrif. „Hins vegar var Wallis ekkert að rifja upp hversu margir þingmenn sætu á þingi Evrópusam- bandsins og hversu marga fulltrúa Ísland ætti þar ef það væri hluti af ESB. Þar hefði mátt miða við stöðu Lux- embourg, sem er reyndar heldur fjölmennara ríki.     Það er alveg rétt hjáWallis að staða Ís- lands gagnvart ESB er um margt illþolandi vegna EES-samningsins sem skuldbindur okkur til að taka upp um eða yf- ir 90% af nýrri löggjöf ESB. Hins vegar er ekk- ert nýtt í því – á þetta var bent þegar Alþingi hafði EES-samninginn til umfjöllunar. Fylgjendur hans lögðu þá nótt við dag til að sannfæra fólk um að þetta væri alger- lega skaðlaust ef ekki beinlínis eftirsóknarvert til að sparka Íslandi inn í nútímann í eitt skipti fyr- ir öll í stað þess að bisa við hvert skref fyrir sig með lagasetningum heima fyrir. Nú er þessi sami veruleiki notaður sem sérstök rök fyrir að- ild. Man einhver frasann „Allt fyrir ekkert“?“ spyr Steinþór.     Ekki megi gleyma aðvegna þess að Ísland sé ekki aðili að ESB séu Íslendingar lausir við margt fleira en sæti í stofnunum þess, „þar á meðal sjávarútvegsstefnu og landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins. Sama gildir um þá vænt- anlegu hrossakaupaafurð sem mun stjórn- arskrárbinda frjálshyggj- una fyrir öll aðild- arlöndin,“ segir Steinþór Heiðarsson á Múrnum. STAKSTEINAR Fyrirlestur að hætti þingmanna ESB Víkverji skrifar... Bláa lónið er einn þekktasti staðurlandsins á meðal margra útlend- inga. Íslensk kona sem býr í Ósló og var hér á landi á dögunum vakti at- hygli Víkverja á því að Norðmenn sem hún hafði rætt við um Ísland á dögunum hefðu ekki átt orð til þess að lýsa dásemdum nokkurra klukku- stunda heimsóknar í Bláa lónið. Norðmennirnir voru hins vegar undrandi á því hversu seint og illa væri vakin athygli á beygjunni út af Reykjanesbrautinni og í átt til Bláa lónsins. Það væri ekki fyrr en rétt áð- ur en komið væri að beygjunni sem vakin væri athygli á Bláa lóninu með skilti sem væri aðeins á íslensku. Þótti Norðmönnunum, sem voru á bílaleigubíl, sem vekja mætti athygli miklu fyrr á beygjunni góðu, hvort sem komið væri úr Keflavík eða úr Hafnarfirði, þannig að útlendingar sem ekki væri staðkunnugir á Reykjanesbrautinni, þurftu ekki að nærri því snögghemla rétt áður en þeir beygðu, eins og þessir frændur okkar lentu í. Víkverji hafði ekki spáð í þessar merkingar fyrr en hann átti leið suður í Leifsstöð snemma morg- uns í vikunni. Komst hann ekki hjá því að vera sammála Norðmönn- unum, vegmerkingarnar við beygj- una í átt að Bláa lóninu eru ekki merkilegar og síst til þess fallnar að vekja athygli á þessari vin sem marg- ir sækja í. x x x Það er mikilvægt að framrúðan séhrein þegar ekið er í ýmsum veðrum á Íslandi. Víkverji sá vart út á dögunum þrátt fyrir að vinnukon- urnar væru í hæsta gír og um leið var sprautað ógrynni af ilmsterkum rúðuvökva án árangurs. Rúðuþurrkurnar voru ekki upp á sitt besta eftir mikla notkun og var verð á slíkum útbúnaði kannað á eldsneytisstöð olíufélags sem var í næsta nágrenni. Þar var gott úrval af rúðuþurrkum en verðið kom skemmtilega á óvart, rúmar 5 þús- und kr., fyrir tvær gúmmíræmur. Víkverji brá sér í Bílanaust og var það ferð til fjár þar sem rúðuþurrk- urnar voru um 1.800 kr. ódýrari en á umræddri eldsneytisstöð. x x x Víkverji varð fyrir miklum von-brigðum er hann brá sér á einn af fyrstu leikjum úrvalsdeildar karla í handknattleik á dögunum, leik Fram og ÍR. Aðeins 57 áhorfendur voru mættir á áhorfendabekkina þegar leikmenn hlupu inná til að heilsa áhorfendum. Þe gar mest var í húsinu voru áhorfendur 128 og heyrðist mest í einum þeirra. Stemn- ingin var lítil – bæði innan og utan vallar. Aðeins einn fyrrverandi leik- maður Fram og sömuleiðis einn fyrr- verandi leikmaður ÍR voru á meðal áhorfenda. Já, af þúsundum leik- manna sem hafa leikið með liðinum. Það segir kannski mest um áhuga manna á slæmu mótafyrirkomulagi, sem býður upp á leik eftir leik, sem hafa litla sem enga þýðingu fyrir úr- slitakeppni, sem hefst í apríl. Morgunblaðið/Þorkell Bláa lónið. Benetton MIG langar að taka und- ir orð Svölu Jónsdóttur í Morgunblaðinu frá 14. febrúar sl. Ég hef verslað í mörg ár hjá Benetton og það áfallalaust þangað til kom að því að skila jóla- gjöf þetta árið. Reyndar var ég frekar sein í því, var erlendis um jólin en varan var komin á útsölu og það var bara ekki um neitt annað að ræða en að taka vöruna til baka á útsöluverði. Ég er reynd- ar ekki kunnug öllum reglum um skilafrest en ekki lenti ég í neinum erfiðleikum í öðrum verslunum. Og vissulega hefur Benetton fullan rétt á sínum reglum en eins og Svala bendir réttilega á er þetta ekki besta leiðin til að hafa viðskiptavini ánægða. Benetton sparaði sér kannski 1000 kr. á að ég skipti á útsölu en eitt veit ég. Aldrei skal ég versla þar aftur og þá veit ég ekki hvað mikið þeir hafa í raun sparað. Verði þeim að því, nóg er til af öðrum fataverslunum á landinu svo ég lendi ekki í vand- ræðum við að eyða pen- ingunum mínum. Ragnheiður R. Hanson. Svar til Kristjönu KRISTJANA Vagnsdóttir svarar mér í Velvakanda 16. febrúar sl. og segist ekki geta skilið að sá sem er 75% öryrki geti unnið fullan vinnudag af því að hún eða hann þurfti ekki að borga sína skatta og skyldur. Ég vil taka það fram að ég er ekki að bera blak af þeim sem svindla á kerf- inu. Ég hef í mörg ár unnið að velferðarmálum og hef ekki enn þá hitt ör- yrkja sem svindlar á þessu kerfi. Öryrkjar borga fullan skatt af sín- um bótum og vinnu ef þeir vinna á vinnumark- aðnum. En kannski er til fólk sem svindlar á kerf- inu og kemst upp með það. Ljótt er ef satt er. En getur það ekki verið vegna þess að bætur ör- yrkja eru svo lágar að þeir geta ekki lifað af þeim? Sigrún Á. Reynisdóttir. Tapað/fundið Hækja í óskilum HÆKJA var skilin eftir 6. febrúar sl. í Fiskbúðinni við Sundlaugaveg. Upp- lýsingar á staðnum eða í síma 568 6003. Eyrnalokkur týndist GULLEYRNALOKKUR með litlum steini týndist í kringum áramótin. Skilvís finnandi hafi samband í síma 847 1507 og 551 2267. Dýrahald Lítil kisa í óskilum SVÖRT lítil læða, loðin, með bláa hálsól en ómerkt er í óskilum. Hún er horuð og hrakin en blíð og góð. Hún fannst við Bókasafnið í Kópavogi sl. fimmtudag. Þeir sem kannast við kisu eru beðnir að hafa samband við Kattholt í síma 567 2909. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 fáni, 4 þoli, 7 manns- nafns, 8 ósætti, 9 þil að innan, 11 rómur, 13 geislahjúpurinn, 14 lands í Asíu, 15 hryggdýr, 17 tala, 20 bókstafur, 22 flokk, 23 hreysið, 24 þekkja, 25 stílvopns. LÓÐRÉTT 1 til sölu, 2 þátttaka, 3 eignir, 4 hjartanleg fram- koma, 5 hreyfir, 6 glerið, 10 uxans, 12 blett, 13 kærleikur, 15 ný, 16 hlunnindin, 18 eykta- markið, 19 hljóðfæri, 20 dugnaður, 21 bátur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 aftansöng, 8 útlæg, 9 nýtan, 10 ann, 11 arinn, 13 arður, 15 frosk, 18 gnótt, 21 aur, 22 guldu, 23 okinn, 24 afrakstur. Lóðrétt: 2 fylki, 3 aggan, 4 sinna, 5 netið, 6 búta, 7 snær, 12 nes, 14 rún, 15 fúga, 16 oflof, 17 kauða, 18 groms, 19 ófimu, 20 tonn. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.