Morgunblaðið - 22.02.2004, Qupperneq 69
AUÐLESIÐ EFNI
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 69
TALIÐ er að um 320 manns
hafi farist í miklu slysi í Íran á
miðvikudag. Þá sprungu í loft
upp lestarvagnar við bæ sem
heitir Neyshabur.
Í vögnunum var bensín,
áburður og brennisteinn.
Vagnarnir voru lausir á
járnbrautarteinunum. Þeir
runnu af stað. Ekki er vitað
hvers vegna. Ef til vill hefur
jarðskjálfti komið þeim á
hreyfingu. Vagnarnir runnu af
stað og fóru út af sporinu á
næstu stöð. Þar kviknaði í
þeim.
Þegar slökkvilið kom á
staðinn og reyndi að slökkva
eldinn sprungu þeir í loft upp.
Um 320 manns týndu lífi.
Þrjú þorp í nágrenninu urðu
illa úti. Sprengingin var svo
öflug að hún heyrðist í 75
kílómetra fjarlægð. Sagt er
að um 400 manns hafi
slasast.
320
farast
í Íran
Reuters
Lestarvagnar brenna nærri Neyshapur í Íran.
MAÐURINN sem fannst dáinn
í höfninni í Neskaupstað 11.
febrúar hét Vaidas
Jucevicius og var frá Litháen.
Hann var fæddur árið 1974
og var 29 ára gamall.
Lögreglan segir að í líkama
hans hafi fundist um 60 hylki
með samtals um 400
grömmum af eiturlyfjum.
Vaidas flaug til Íslands frá
Kaupmannahöfn 2. febrúar
síðastliðinn.
Þrír menn voru handteknir
á föstudag í tengslum við
rannsókn málsins, tveir
Íslendingar og einn Lithái, en
þeir voru áður búnir að gefa
lögreglunni skýrslu þar sem
þeir voru snemma taldir
tengjast málinu.
Þrír hand-
teknir
KNATTSPYRNUMENN KR
færðu félagi sínu afmælisgjöf
á dögunum þegar þeir sigruðu
Fylki, 4:3, í
bráðskemmtilegum
úrslitaleik á
Reykjavíkurmótinu í
Egilshöllinni. KR fagnar 105
ára afmæli sínu um þessar
mundir.
Þetta er fyrsti sigur KR-inga
í mótinu frá 1999 en þá lögðu
þeir einmitt Fylki í úrslitaleik,
1:0, með marki Andra
Sigþórssonar. Sigur KR er
ekki síst athyglisverður
sökum þess að liðið er án
margra sterkra leikmanna, en
alls eru 13 leikmenn úr
æfingahópi liðsins meiddir
eða frá keppni af öðrum
orsökum um þessar mundir.
KR-ingar komust í 2:0 á
fyrsta stundarfjórðungnum
með mörkum frá Sölva
Davíðssyni og Veigari Páli
Gunnarssyni. Eyjólfur
Héðinsson minnkaði fljótlega
muninn fyrir Árbæinga með
glæsilegu skoti í þverslána og
inn af 25 metra færi og
staðan var 2:1 í hálfleik.
Eyjólfur var aftur á ferð
fljótlega eftir hlé og jafnaði
metin, 2:2, með laglegri
hjólhestaspyrnu af markteig
eftir þunga pressu að marki
KR. Arnar Gunnlaugsson,
sem kom inn á sem
varamaður fyrir Bjarka,
tvíburabróður sinn, færði KR
forystuna á ný, 3:2, en Helgi
Valur Daníelsson jafnaði fyrir
Fylki að vörmu spori með
skoti frá vítateig, 3:3.
Þegar framlenging blasti
við kom Arnar aftur til
skjalanna, skoraði af stuttu
færi eftir að skot Veigars Páls
var varið, og þar með tryggði
hann KR-ingum sigurinn, 4:3.
Fylkir mátti því þola tap í
úrslitaleik mótsins annað árið
í röð en í fyrra biðu Árbæingar
lægri hlut fyrir Fram.
Morgunblaðið/Jim Smart
ÞAÐ stefnir allt í að árið 2004
verði metár þegar kemur að
tónleikahaldi erlendra
hljómsveita og
tónlistarmanna á Íslandi.
Búið var að staðfesta að
bandaríska rokksveitin Korn
muni leika í Laugardalshöll
31. maí, breska
stúlknapopptríóið
Sugababes leikur í Höllinni 8.
apríl, írski söngvarinn
Damien Rice leikur á Nasa
19. mars og þýsku
brautryðjendurnir í Kraftwerk
halda tónleika í Kaplakrika í
Hafnarfirði 5. maí. Nú í lok
vikunnar var svo tilkynnt að
breska rokksveitin Placebo
muni leika í
Laugardalshöllinni í júlí á
þessu ári. Þá hefur
Morgunblaðið öruggar
heimildir fyrir því að
rokksveitin Incubus sé á
leiðinni til landsins á árinu.
En það eru ekki bara
tónlistarmenn á leiðinni því
frægasti flamenkó-dansari í
heimi, Joaquín Cortés, mun
leiða stórsýningu í
Laugardalshöll 24. apríl .
Kraftwerk er aðeins ein af mörgum athyglisverðum sveitum
sem eru á leiðinni.
Margir erlendir listamenn á leiðinni
Á FIMMTUDAG byrjaði
vetrarhátíð í Reykjavík og var
hún alla helgina. Ýmislegt
skemmtilegt var á
dagskránni, til dæmis
skrúðganga, listasýningar,
tónleikar, danssýningar og
fjölmargt fleira.
Á dagskránni var einnig
þjóðahátíð þar sem menning
margra landa var kynnt.
Þjóðahátíðin var haldin í
Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem
14 þjóðir kynntu menningu
sína, matargerð og fleira með
ýmsum uppákomum.
Leikskólabörn í Reykjavík
völdu sér þjóðfána og hittust
á nokkrum stöðum í
Reykjavík. Þannig vildu þau
segja að allt fólk ætti að vera
vinir, eins og þau.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Listamaður skar drottningu
vetrarhátíðar út í ís.
Vetrarhátíð
í Reykjavík
KR-ingar Reykjavíkurmeistarar
Kristján Finnbogason, fyrirliði KR-inga, lyftir bikurum.
Netfang: auefni@mbl.is