Morgunblaðið - 27.02.2004, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.02.2004, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ www.landsbanki.is sími 560 6000 Varðan - alhliða fjármálaþjónusta Nokkrir punktar um beinharðapeninga! Vor í París 14. - 17. maí Yndisleg vorferð til Parísar þar sem gist verður á 3ja stjörnu hótelinu Home Plazza Bastille í þrjár nætur. Íslenskur fararstjóri er Laufey Helgadóttir, listfræðingur. Verð: 36.475 kr. á mann í tvíbýli auk 10 þús. ferðapunkta. Innifalið: Flugvallarskattar og þjónustugjöld. Nánari upplýsingar fyrir ofangreind tilboð hjá Icelandair í hópadeild, sími 505 0406 eða sendið tölvupóst á groups@icelandair.isÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S LB I 23 72 2 02 /2 00 4 FJARAN er oft áhugaverð og þar getur margt leynst þegar ungir og gamlir líta í kringum sig. Benedikt og Arnór könnuðu fjörurnar í Kópavogi og þótt ekki hafi endi- lega sést fiskur undir steini mátti sjá eitt- hvert líf undir sumum steinum. Fjörulallar hafa því margt að rannsaka og hægt að fara þangað aftur og aftur enda fjaran alltaf sí- breytileg. Morgunblaðið/Ásdís Fjölbreytni í fjörulalli SAMNINGAFUNDUR í deilu hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða og stjórnenda Heilsugæslunnar í Reykjavík sem halda átti undir kvöldmat í gær var felldur niður og því allt útlit fyrir að fjörutíu þeirra liðlega 80 hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sem starfa hjá Heima- hjúkrun muni ekki mæta til vinnu á mánudag og 40 af þeim 67 sem fara í vitjanir, en uppsagnir starfsmann- anna taka gildi frá og með 1. mars og segja þeir að stefni í neyðarástand eftir helgina. Þjónustan raskast tímabundið Heilsugæslan í Reykjavík sendi sl. miðvikudag út bréf til skjólstæðinga sinna þar sem m.a. sagði: ,,Vegna uppsagna hluta starfsmanna Heima- hjúkrunar liggur fyrir að þjónustan mun tímabundið raskast frá og með 1. mars nk. Ef að breyting verður á þeirri þjónustu sem veitt er til þín verður þú látinn vita með fyrirvara. Búist má við að tímasetning vitjana riðlist.“ Þórunn Ólafsdóttir, hjúkrunarfor- stjóri hjá Heilsugæslunni í Reykja- vík, segir að menn hafi ekki talið tímabært að ræða saman á formleg- um fundi á þessu stigi. Hún segir engan samningafund hafa verið boð- aðan en væntanlega verði reynt að fara yfir málin og finna samræðu- grundvöll með óformlegum hætti. „Við erum enn að reyna að finna ein- hvern flöt,“ segir Þórunn. Kristjana Guðjónsdóttir, einn af talsmönnum starfsmanna Heima- hjúkrunar, segir það vera mjög var- lega orðað af hálfu Heilsugæslunnar, svo ekki sé meira sagt, að segja að þjónstan muni raskast. Staðreyndin sé sú að 40 af þeim 67, eða 60% af þeim starfsmönnum sem fari í vitj- anir, muni ekki mæta til vinnu eftir helgi. „Þetta er neyðarástand og ég skil ekki að Heilsugæslan geti látið frá sér svona yfirlýsingu, að þetta sé bara röskun á starfseminni.“ Kristjana segir deiluna í hnút eins og er. „Ástandið er raunar þegar orðið mjög slæmt. Það er mikill kvíði og óvissa hjá okkar skjólstæðingum og við höfum áhyggjur af þeim.“ Í tilkynningu Heilsugæslunnar segir að á miðvikudag hafi komið í ljós að daginn áður, þ.e. þriðjudag, hafi 300 skjólstæðingar af alls 1.100 fengið sent uppkast að nefndu bréfi þar sem fastara hafi verið kveðið að orði um afleiðingar uppsagna hluta starfsmanna Heimahjúkrunar en efni stæðu til. „Þetta voru mistök sem beðist er velvirðingar á. Heilsu- gæslan mun að gefnu tilefni senda skjólstæðingum sínum rétta bréfið þegar í stað,“ segir í tilkynningunni. Heimahjúkrun í uppnámi Samningafundur deiluaðila felldur niður Morgunblaðið/Golli VIÐRÆÐUR atvinnurekenda við Starfsgreinasambandið og Flóa- bandalagsfélögin eru langt komnar og eru daglegir fundir fram á kvöld í húsnæði ríkissáttasemjara. Stefna samningsaðilar nú að því að öllum frágangi við sérmál og gerð nýrrar launatöflu verði lokið um hádegi á morgun og þá verði farið að takast á um almennar launa- hækkanir og lífeyrismálin yfir helgina. „Menn eru að vonast til að þetta verði allt orðið klárt um hádegi á laugardag og þá getum við farið að ræða um launahækkanirnar og líf- eyrissjóðina og fleira,“ sagði Hall- dór Björnsson, formaður SGS, í gærkvöldi. Hann segir ekki margt útistand- andi í viðræðum SGS við atvinnu- rekendur og gerir ráð fyrir að yfir helgina verði tekist á um stóru málin sem séu mun einfaldari við- fangs, „hvort sem það klárast um helgina eða fljótlega eftir helgina,“ segir hann. „Ég sagði einhvern tíma að þetta yrði í byrjun mars og held að miðað við allt og allt þá geti menn reiknað með að sú dag- setning standi. En svo þarf ekki nema eina steinvölu til að velta þessu.“ Samningar gætu náðst í byrjun mars KONAN sem flutt var á gjörgæslu- deild sl. föstudag eftir að eldur kviknaði á heimili hennar í Víði- hvammi í Kópavogi er látin. Hún hét Árný Kolbeinsdóttir. Árný var fædd árið 1930. Hún var ekkja og lætur eftir sig tvö uppkomin börn. Lést eftir eldsvoða ♦♦♦ HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær tveggja ára fangelsisdóm yfir tæp- lega sextugum karlmanni sem Hér- aðsdómur Suðurlands á Selfossi dæmdi í október. Var hann dæmd- ur fyrir kynferðisbrot gegn þremur stúlkum á aldrinum 7-13 ára á ár- unum 1997-2002. Ein þeirra er barnabarn hans. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að gagnvart annarri 13 ára stúlkunni hefði verið um tvö brot að ræða, bæði á þáverandi heimili mannsins. Í öðru tilvikinu reyndi hann að strjúka brjóst henn- ar innan klæða og í hinu strauk hann líkama stúlkunnar innan klæða og snerti brjóst. Þá var hann fundinn sekur um að hafa á heimili sínu káfað á líkama 7 ára stúlku, nuddað kynfæri hennar innan klæða og kysst hana á munninn. Loks var hann sekur fundinn um að hafa frá árinu 1997 eða þar um bil og fram í desember sl. margoft káfað á líkama hinnar eldri stúlk- unnar, brjóstum og kynfærum, inn- an og utan klæða, tekið í hönd hennar og látið hana snerta kyn- færi sín. Í héraðsdómi var m.a. bent á að flest brotin voru framin á heimili stúlkunnar eða á heimili ákærða þegar stúlkan dvaldi í skjóli ákærða. Með því hafi maðurinn brugðist trausti stúlkunnar og móður henn- ar. Í dómnum segir að ákærði eigi sér engar málsbætur og því sé refs- ing hans ákveðin fangelsi í tvö ár. Fyrir Hæstarétt voru lagðar skýrslur sálfræðings um greiningu og meðferð þeirra þriggja stúlkna, sem ákærði var sakaður um að hafa brotið gegn. Maðurinn var dæmdur til að borga stúlkunum samtals 950 þús- und krónur í miskabætur. Enn- fremur var honum gert að borga allan sakarkostnað, þar með talin 380.000 króna málsvarnarlaun verj- anda síns og 120.000 króna þóknun réttargæslumanns stúlknanna. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Markús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason, Guðrún Erlends- dóttir, Hrafn Bragason og Pétur Kr. Hafstein. Tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot VERIÐ er að fínkemba allt sem tengist mönnunum þrem- ur sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna líkfundarins í höfninni í Neskaupstað 11. febrúar síð- astliðinn. Farið er nákvæm- lega yfir gerðir og ferðir mann- anna sólarhringana á undan að sögn Arnars Jenssonar, að- stoðaryfirlögregluþjóns hjá embætti ríkislögreglustjóra. Hann segir þá mynd að skýr- ast. Miklu máli skipti að dánar- tími Litháans liggi fyrir til að tengja mismunandi atriði rannsóknarinnar saman. Arn- ar segir lögregluna í góðu sam- bandi við meinafræðing og réttarlækni vegna krufningar líksins en formleg niðurstaða liggi ekki fyrir. Það skipti máli við hvaða aðstæður og hve lengi hinn látni var geymdur áður en honum var fleygt í sjó- inn til að geta greint dánartíma nákvæmlega. Dánar- tími enn óljós ♦♦♦ STJÓRN Heimdallar lýsir því yfir í ályktun að flytja eigi flugvöllinn úr Vatnsmýrinni, „enda er óásættanlegt hversu slæm áhrif staðsetning flug- vallarins hefur haft á skipulag Reykjavíkur og hamlað eðlilegri upp- byggingu borgarinnar,“ segir í álykt- uninni. Einnig er lýst andstöðu við áætlanir um flutning Hringbrautar- innar. „Í tillögunni er ekki tekið tillit til þess að flugvöllurinn muni senn fara og því er ekki hugað nægilega að nauðsynlegri tengingu milli gömlu miðborgarinnar og þeirrar byggðar sem mun rísa í Vatnsmýrinni.“ Flugvöllur fari sem fyrst
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.