Morgunblaðið - 27.02.2004, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 27.02.2004, Blaðsíða 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 15 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S LB I 23 80 3 02 /2 00 4 Tilkynning um uppgreiðslu skuldabréfa í flokki SBLBI0406/V 1999 Landsbanki Íslands hf. hefur ákveðið að nýta sér heimild til uppgreiðslu á skuldabréfaflokknum SBLBI0406/V 1999 sem gefinn var út þann 30. desember 1999. Skuldabréfin verða greidd upp þann 1. júní 2004 í afgreiðslum Landsbankans gegn framvísun bréfanna. Reykjavík, 27. febrúar 2004. Landsbanki Íslands hf. www.landsbanki.is sími 560 6000 BORÍS Trajkovskí, forseti Make- dóníu, og nokkrir af nánustu sam- starfsmönnum hans létu lífið þegar flugvél þeirra fórst í niðaþoku í sunnanverðri Bosníu í gær. Níu manns voru í vélinni og talið víst að enginn hafi komist lífs af, að sögn embættismanna í Bosníu. Trajkovskí var á leiðinni frá Skopje í Makedóníu til bosnísku borgarinnar Mostar til að taka þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um fjárfest- ingar. Flaksins var leitað nálægt bæn- um Stolaj, um 32 km suðaustan við Mostar. Björgunarsveitir og hópur friðargæsluliða Atlantshafsbanda- lagsins fóru á slysstaðinn sem er á mjög torfæru fjalllendi. Fregnir hermdu að þar væri mikið af jarð- sprengjum frá Bosníustríðinu á ár- unum 1992–95. Hópar sprengjusér- fræðinga fóru strax á svæðið. Vélin sögð of gömul Vélin var af gerðinni Beechcraft Super King Air 200, búin tveimur skrúfuhverflum, níu sæta og fram- leidd í Bandaríkjunum. Lögreglan í Stolac sagði að dimm þoka kynni að hafa stuðlað að slysinu en þing- menn í flokki forsetans, VMRO- DPMNE, sögðu að flugvélin hefði verið gömul og forsetinn hefði þurft að fá nýja fyrir mörgum ár- um. Nefnd verður skipuð í Bosníu til að rannsaka slysið og yfirvöld í Makedóníu sendu 20 sérfræðinga á slysstaðinn til að rannsaka flakið. Íbúi þorps í grennd við slysstað- inn kvaðst hafa heyrt hljóð sem hann taldi benda til þess að hreyf- ill vélarinnar hefði bilað. Hann heyrði enga spreng- ingu. Afhendingu ESB- umsóknar frestað Auk tveggja flug- manna og forsetans voru sex farþegar í vélinni, þrír ráðgjafar hans, tveir lífverðir og embættismaður úr innanríkisráðuneyti Makedóníu. Trajkovskí ætlaði síðar um daginn að fara til Dublin á Ír- landi og afhenda þar formlega umsókn um aðild landsins að Evrópusamband- inu ásamt sendinefnd stjórnarinn- ar í Skopje. Athöfninni var frestað og sendinefnd stjórnarinnar hélt strax til Makedóníu. Lýst var yfir þjóðarsorg í Bosn- íu í dag og öllum menningarsam- komum var aflýst. Slysið vakti mikinn óhug meðal íbúa Makedón- íu og stjórn landsins efndi til skyndifundar. Aðeins var leikin sí- gild tónlist í útvarpi og sjónvarpi á milli þess sem skýrt var frá helstu fréttum af slysinu. Varnarmálaráðu- neyti Makedóníu sagði að öryggisgæsl- an hefði verið hert við landamærin og mik- ilvægustu byggingar, meðal annars her- stöðvar. Forseti þingsins, Ljubco Jordanovskí, á að gegna þjóðhöfðingja- embættinu til bráða- birgða. Trajkovskí var 47 ára og kjörinn forseti Makedóníu árið 1999. Hann var einn af einörðustu stuðn- ingsmönnum þess að Makedónía gengi í Evrópusambandið og eitt af síðustu verkum hans var að und- irrita aðildarumsóknina. Hann beitti sér einnig fyrir sáttum milli þjóðernishópanna í landinu eftir sjö mánaða uppreisn albanskra skæruliða og þótti eiga stóran þátt í því að viðhalda stöðugleika í land- inu. Leiðtogar margra ríkja vottuðu Makedóníumönnum samúð sína. Javier Solana, æðsti embættismað- ur Evrópusambandsins í utanrík- ismálum, lýsti Trajkovskí sem mik- ilhæfum umbótasinna og dugnaðarforki. „Það verður mjög erfitt fyrir makedónsku þjóðina að fylla þetta skarð,“ sagði hann. Nam guðfræði í Bandaríkjunum Trajkovskí fæddist 25. júní 1956 í bænum Strumica í austanverðri Makedóníu. Hann lauk lögfræði- námi við Skopje-háskóla 1980 og starfaði í nokkur ár sem lögfræð- ingur byggingarfyrirtækis. Hann nam einnig guðfræði í Bandaríkj- unum og var vígður meþódista- prestur. Hann var ráðgjafi borgarstjóra Skopje árið 1997 og skömmu síðar skipaður aðstoðarutanríkisráð- herra. Hann var ennfremur for- maður utanríkismálanefndar VMRO-DPMNE og álitinn einn af nánustu bandamönnum Ljubcos Georgievskis, fyrrverandi forsætis- ráðherra og leiðtoga flokksins. Forseti Makedóníu lætur lífið í flugslysi Flugvél hans fórst í niðaþoku á fjalli í Bosníu Mostar. AFP, AP. Reuters Björgunarmenn leita að flaki forsetaflugvélarinnar sem fórst í sunnanverðri Bosníu í gærmorgun.                   &!" 5%6$ 2  #  !2 !   $ !   % ! ""! *0! ! *                            !   "     Borís Trajkovskí FERÐAMENN frá Austurríki koma í auknum mæli til Ís- lands og þeir sem koma einu sinni koma oftast aftur, segir Erich Buttenhauser, nýskipaður sendiherra Austurríkis á Íslandi. Hann hefur aðsetur í Kaupmannahöfn en er hing- að kominn að afhenda forseta Íslands trúnaðarbréf sitt. „Ég veit um Austurríkismenn sem hafa fengið Íslands- fíkn,“ segir hann og bætir við að honum finnist landið mjög sérstakt en þetta er í fyrsta sinn sem hann kemur hingað. „Ég hef líka verið svo heppinn með veður allan tímann, þið ættuð að fá mig oftar í heimsókn,“ segir hann og hlær. Með honum í för er Adelheid Höbart, viðskiptafulltrúi við sendiráð Austurríkis í Ósló, en hún sér um samskipti við Ísland. Þegar þau hitta blaðamann eru þau nýkomin af fundi í Landsvirkjun þar sem þau fræddust um Kára- hnjúkavirkjun. „Það er afar spennandi fyrir okkur að sjá þetta því við seljum þangað austurrísk tæki eins og túrb- ínur og rafala fyrir um 60 milljónir evra. Þetta er því gríð- arstórt verkefni á okkar mælikvarða,“ segir hún. Buttenhauser hefur sem fyrr segir aldrei áður komið til Íslands en segist hafa heyrt mikið um landið, þekkir m.a. Íslendingasögurnar. Hann telur Ísland og Austurríki eiga margt sameiginlegt. „Pólitískt vinnum við vel saman. Þetta eru bæði lítil lönd auk þess sem bæði bjóða þau sig fram til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna árið 2008.“ En verður þá ekki samkeppni á milli landanna? „Nei nei, þvert á móti, við ætlum að hjálpa hvort öðru.“ Buttenhauser hefur verið staðsettur í Kína síðustu fimm árin. Hann segist mjög ánægður með að vera kominn til Norður-Evrópu, það verði óneitanlega ólíkt því að vera í Kína. „Jú, auðvitað eru hlutirnir öðruvísi á hverjum stað. En sem sendiherra verður maður að geta aðlagast, annars á maður að skipta um starf!“ „Veit um Austurríkis- menn með Íslandsfíkn“ Morgunblaðið/Jim Smart Erich Buttenhauser, sendiherra Austurríkis, og Adelheid Höbart viðskiptafulltrúi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.