Morgunblaðið - 27.02.2004, Blaðsíða 49
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 49
AUÐUN Helgason,
knattspyrnumaður hjá
Landskrona í Svíþjóð,
kveðst hafa áhuga á að
leika áfram með félaginu
þegar samningur hans
við það rennur út í haust.
Auðun sagði í samtali við
knattspyrnuvefinn
Svenskafans að sér líkaði
mjög vel í Landskrona.
„Mér hefur ekki verið
boðinn samningur ennþá svo það er
erfitt að segja til um framtíðina. Ég
er að verða þrítugur og hef hugsað
mér að snúa aftur til Íslands. En ég
vil spila áfram í þessum gæðaflokki
á meðan ég get, og ef Landskrona
hefur áhuga á að ræða málin við
mig er ég til. Landskrona er mjög
gott félag og hér vil ég
vera áfram. Ég hef spilað
með stærri félögum en
hvergi hafa stuðnings-
menn verið jafn góðir og
hér, stemmningin á
heimaleikjum er eins og í
Suður-Evrópu og manni
hlýnar um hjartarætur
þegar af og til sést veifað
íslenskum fána í mann-
þrönginni,“ sagði Auðun.
Hann hefur verið meiddur að
undanförnu og ekki tekið þátt í æf-
ingaleikjum liðsins, en reiknar með
að vera tilbúinn í slaginn innan
þriggja vikna. Keppni í sænsku úr-
valsdeildinni hefst 3. apríl og
Landskrona spilar opnunarleik á
heimavelli gegn Helsingborg.
Auðun vill leika áfram
með Landskrona
Auðun
Veigar Páll skrifar að ölluóbreyttu undir þriggja ára
samning við Stabæk í næstu viku en
Jensen sagði að málið væri ekki end-
anlega í höfn. Veigar Páll væri vænt-
anlegur í æfingabúðir Stabæk á La
Manga og þar yrði tekin endanleg
ákvörðun um hvort hann yrði keypt-
ur. Hann væri samningsbundinn KR
til tveggja ára en það myndi ekki
koma í veg fyrir að hann færi til
norska félagsins.
„Ef við erum sáttir við það sem
hann sýnir okkur, þá munum við
kaupa hann. Veigar er leikmaður
sem getur farið beint í okkar lið, og
hann mun fara beint í samkeppni við
þá sóknarmenn sem fyrir eru hjá
okkur,“ sagði Jensen og staðfesti að
Stabæk hefði fylgst með Veigari í
langan tíma. Félagið gerði honum
tilboð fyrr í vetur en Veigar hafnaði
því.
Blaðið rifjar upp stuttan feril
Veigars í Noregi, en hann lék með
Strömsgodset árið 2001 – skoraði tvö
mörk í 15 leikjum. Rifjuð eru upp
ummæli Veigars við Drammens Tid-
ende þegar hann var á förum frá
Strömsgodset. „Ef ég yrði um kyrrt í
Drammen yrði ég aldrei góður
knattspyrnumaður,“ sagði Veigar
Páll við það tækifæri. Strömsgodset
féll úr úrvalsdeildinni og Veigar Páll
sneri heim á ný, gekk til liðs við KR
og varð Íslandsmeistari tvö ár í röð.
Íslenskir knattspyrnumenn hafa
verið í herbúðum Stabæk allt frá
árinu 1997. Helgi Sigurðsson spilaði
þar í þrjú ár. Pétur Marteinsson lék
með Stabæk 1999 til 2001, Marel
Baldvinsson 2000 til 2002 og Tryggvi
Guðmundsson frá 2001 til 2003.
Morgunblaðið/Arnaldur
Veigar Páll Gunnarsson í leik gegn Skagamönnum. Gunnlaugur Jónsson sækir að honum.
Forráðamenn Stabæk í Noregi um Veigar Pál Gunnarsson
„Maðurinn sem
okkur vantar“
„VIÐ teljum að Veigar Páll Gunnarsson sé sú tegund af sóknar-
manni sem gæti nýst okkur vel, við höfum trú á að hann sé mað-
urinn sem okkur vantar,“ sagði Stein Erik Jensen, formaður hluta-
félagsins Stabæk Fotball ASA, við norska staðarblaðið Asker og
Bærums Budstikke. Hlutafélagið sér um að fjármagna kaup á leik-
mönnum fyrir úrvalsdeildarlið Stabæk í knattspyrnu.
JALIESKY Garcia, leikmaður Göppingen, er orðinn
markahæstur af íslensku handknattleiksmönnunum sem
leika í þýsku 1. deildinni. Garcia hefur skorað 15 mörk í
síðustu tveimur leikjum Göppingen í deildinni, og er nú í
34.–35. sæti á markalista deildarinnar með 87 mörk.
Christian Fitzek, sem var sagt upp störfum sem þjálf-
ara Göppingen á dögunum, sagði í viðtali við Handball-
World í gær að Garcia væri eini leikmaðurinn sem komið
hefði til félagsins fyrir þetta tímabil sem hefði staðið und-
ir væntingum til þessa.
Íslendingarnir hafa skorað sem hér segir í vetur:
34–35. Jaliesky Garcia, Göppingen .......................... 87/1
44–45. Snorri S. Guðjónsson, Grosswallstadt ....... 80/24
47–49. Guðjón Valur Sigurðsson, Essen ................. 78/1
53–55. Gylfi Gylfason, Wilhelmshavener................. 74/4
70–73. Gunnar Berg Viktorsson, Wetzlar ............. 61/15
87–88. Sigfús Sigurðsson, Magdeburg ....................... 54
105–107. Einar Örn Jónsson, Wallau.............................. 45
138–139. Róbert Sighvatsson, Wetzlar........................... 30
177–180. Rúnar Sigtryggsson, Wallau ........................ 13/1
Guðmundur Hrafnkelsson, markvörður, hefur ekki
skorað fyrir Kronau-Östringen.
Kyung-Shin Yoon, suður-kóreski risinn hjá Gummers-
bach, er markahæstur með 153 mörk en síðan koma Lars
Christiansen, danski hornamaðurinn hjá Flensburg, með
147 mörk og Björn Navarin hjá Pfullingen með 146 mörk.
Garcia skorar mest
Í FRÉTT norska dagblaðsins Aft-
enposten segir Stein Erik Jensen,
framkvæmdastjóri norska knatt-
spyrnuliðsins Stabæk, að hann
vonist til þess að Veigar Páll
Gunnarsson og Daninn Mads
Jørgensen staldri stutt við í
herbúðum liðsins. „Við sjáum fyr-
ir okkur að þeir verði seldir frá
liðinu síðar. Þeir eru báðir hæfi-
leikaríkir ungir leikmenn sem
eiga framtíðina fyrir sér,“ segir
Jensen en hann er einnig formað-
ur hlutfélagsins Stabæk ASA.
Kaupin eru fjármögnuð af dótt-
urhlutafélagi Stabæk ASA, „Spill-
erinvest AS“, en að því standa
hluthafar í Stabæk auk stuðnings-
manna félagsins sem lögðu til
rúmlega 1 millj. kr. í leikmanna-
kaupin.
Stabæk fær helming af andvirði
söluverðsins fari svo að félagið
selji leikmennia í nánustu framtíð
en hlutahafar Spillerinvest AS
skipta afgangnum á milli sín.
Mads Jørgensen er þegar mætt-
ur í æfingabúðir Stabæk í La
Manga á Spáni en von er á Veig-
ari á næstu dögum. Forráðamenn
liðsins vonast til þess að þeir leiki
báðir gegn San Jose Earthquakes
á laugardag.
Keyptur til þess að verða seldur