Morgunblaðið - 27.02.2004, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.02.2004, Blaðsíða 24
AUSTURLAND 24 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Hveragerði | Árlegt val á íþrótta- manni Hamars fór fram um síðustu helgi. Að þessu sinni varð körfu- knattleiksmaðurinn Lárus Jónsson fyrir valinu. Guðríður Aadnegaard, formaður Hamars, setti hátíðina og bauð gesti velkomna. Í upphafi hátíðarinnar var gestum boðið upp á tónleika þar sem nemendur úr tónlistarskól- anum spiluðu undir stjórn Mar- grétar S. Stefánsdóttur kennara. Að loknum tónleikum ávarpaði Guðríður gesti og sagði hún meðal annars að nú væri komið að því að verðlauna það íþróttafólk í félaginu sem að mati stjórna í deildum fé- lagsins hefði skarað fram úr á árinu 2003 með iðni sinni og ástundun. Þessir íþróttamenn hafa stundað æfingar sínar af kappi og lagt sig fram fyrir félagið sitt. Deildir innan Hamars eru fimm. Þær eru badmin- tondeild, blakdeild, fimleikadeild, knattspyrnudeild og körfuknattleiks- deild. Nýjasta deildin sem hóf starf- semi sína á þessu ári stundar frjálsar íþróttir og tilnefnir því engan í ár, en á næsta ári kemur tilnefning frá þeirri deild. Þeir sem tilnefndir voru til verð- launa sem íþróttamenn Hamars voru Jökull Jóhannsson fyrir badminton, Hugrún Ólafsdóttir fyrir blak, Sóley Jóhannsdóttir (systir Jökuls) fyrir fimleika, Haukur Sigurjón Krist- insson fyrir knattspyrnu og Lárus Jónsson fyrir körfuknattleik. Það var stjórn Hamars ásamt formönnum deildanna sem kaus þann íþrótta- mann úr þessum hópi sem hlaut sæmdarheitið Íþróttamaður Hamars. Sannur herforingi Lárus Jónsson, körfuknattleiks- maður Hamars og fyrirliði, var kjör- inn. Í umsögn hans sagði: Lárus stóð sig með eindæmum vel á árinu og hef- ur um árabil verið einn af burðar- ásum í liði Hamars. Lárus er mjög metnaðarfullur íþróttamaður sem tekur íþrótt sína af mikilli alvöru og á svo sannarlega glæsta framtíð fyrir sér. Lárus er góð fyrirmynd annarra íþróttamanna jafnt innan vallar sem utan. Lárus stjórnar sínum mönnum eins og sannur herforingi og er félag- inu mikill styrkur að því að hafa svo mætan dreng í sínum röðum.“ Lárus var að vonum hæstánægður með út- nefninguna. Í lokin var gestum boðið upp á kaffi og rjómabollur enda stutt í bolludag- inn. Fyrirmynd innan vallar sem utan Ljósmynd/Margrét Ísaksdóttir Fremst í flokki: Íþróttamaður Hamars í Hveragerði, Lárus Jónsson, fyrir miðju, ásamt þeim sem tilnefnd voru. Akranes| Á fundi bæjarráðs Akra- ness á dögunum var sundkonunni Kolbrúnu Ýri Kristjánsdóttur úr Sundfélagi Akraness afhentur 350.000 kr. afreksstyrkur en hún mun taka þátt á Ólympíuleikunum í Aþenu í Grikklandi í sumar. Í til- kynningu bæjarstjórnar segir að Kolbrún sé vel að þessum styrk kom- inn enda sé hún einn af fremstu íþróttamönnum Akraness fyrr og síðar. Kolbrún Ýr tók þátt í Ólympíu- leikunum í Sydney árið 2000 en árið 2002 fór hún í tvær aðgerðir eftir að kom í ljós að hún var með hjarta- galla sem lýsti sér með þeim hætti að hjartsláttur hennar fór upp úr öllu valdi við áreynslu. Fyrri aðgerðin fór fram í Noregi en sú síðari á Íslandi. Tók Kolbrún Ýr þátt í innanhússmeistaramótinu í Vestmannaeyjum og náði sér vel á strik á því móti þar sem hún keppti í fimm greinum og setti Íslandsmet í þeim öllum. Metaskrá Kolbrúnar er nú þegar löng en í 25 metra laug á hún nú sex Íslandsmet, í 50 metra laug á hún fjögur Íslandsmet, í 100 metra skrið- sundi og 50, 100 og 200 metra bak- sundi. Stúlknametin eru fimm, telpnametin eru ellefu alls og í meyjaflokki á hún eitt Íslandsmet. Í byrjun árs var Kolbrún Ýr kjörin íþróttamaður ársins 2003 á Akranesi í fjórða sinn á síðustu fimm árum og fékk hún fullt hús stiga í því kjöri. Skagamenn styrkja afrekskonu Fulltrúar Akraneskaupstaðar afhenda Kolbrúnu Ýr styrkinn. Bolungarvík | Einkahlutafélagið Leið ehf., sem er félag um einkafjármögnun vegna mannvirkja, hefur komið fyrir „innhringjanlegu“ skilti á byggingu verslunarhússins við Aðalstræti í Bol- ungarvík. Skiltið er gætt þeim eiginleika að ef hringt er í símanúmerið 904-2444 skuldfærast 100 krónur af reikningi þess síma og skiltið tekur að snúast í nokkra hringi. Skiltið, sem sýnir merki Leiðar ehf., er 80 cm í þvermál og um 170 cm á hæð. Það voru starfsmenn Vélvirkjans í Bolungarvík sem smíðuðu og útfærðu búnaðinn en hugmyndina átti Jónas Guðmundsson í Bolungarvík, for- ustumaður Leiðar ehf. Heildarkostnaður við gerð merk- isins var um 350 þús. krónur þannig að merkið þarf að snúast allmarga hringi áður en það fer að borga sig, en tekjur af merkinu verða jafnframt notaðar til að standa straum af kostnaði við áform félagsins í vega- og samgöngumálum. Helsta baráttumál félagsins hefur verið að sýna fram á kosti þess að beita einkafjármögnun til að flýta fyrir vegaframkvæmdum. Það verkefni sem Leið ehf. hefur horft til sem fyrsta verkefnis er fjár- mögnun og eftir atvikum gerð 25 km vegar milli Hólmavíkur og Gilsfjarðar um Arnkötludal og Gauksdal. Að sögn Jónasar er með þessu skilti jafnframt verið að vekja athygli á því að hægt er að innheimta t.d. veggjald sem greitt væri með innhringingu, þannig að ekki er nauðsynlegt að manna innheimtuna. Hringdu og skiltið snýst Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Fyrsta símtalið: Jónas Guðmunds- son, forsvarsmaður Leiðar ehf., „hringir í skiltið“ við vígslu þess. Egilsstaðir | Hlutfall atvinnutekna kvenna af atvinnutekjum karla á Austurlandi eru að meðaltali um 49%. Efnahagsleg völd kvenna á Austurlandi eru því mjög lök og þau lökustu á landinu öllu. Þetta kom fram á hádegisfundi um atvinnumál kvenna sem haldinn var á veg- um atvinnumálanefnd- ar Austur-Héraðs í vik- unni. Helga Björg Ragn- arsdóttir, atvinnu- og jafnréttisráðgjafi Norðausturkjördæmis, hafði framsögu á fund- inum. Sagði hún m.a. að konum væri jafnt og þétt að fækka á lands- byggðinni og væri það áhyggjuefni. „Búferla- flutningur á Austur- landi sýnir að munur- inn milli kynja er mestur þar,“ sagði Helga Björg. „Hann var um 7,2% 1999 en er nú 9,2%. Á síðustu 12 mánuðum er skipting aðfluttra á Austurland 77% karlar og 23% konur. Þetta dreifist jafnt yfir sveitarfélögin eystra, sem bendir til að það séu ekki afgerandi áhrif af vinnuafli við Kárahnjúka í þessum tölum.“ Láglaunasvæði fyrir konur Samkvæmt tölum frá 2001 er hlut- fall atvinnutekna kvenna af atvinnu- tekjum karla á Austurlandi að með- altali um 49% og er það lægst á landinu öllu. „Þetta eru tölur frá 2001 og hafa aðeins hækkað 2002, eða óstaðfest upp í 52%,“ sagði Helga Björg. „Landsmeðaltal er 57,2% og í Reykjavík 61,8%. Skipt- ing atvinnutekna miðað við atvinnu- tekjur kvenna á landinu öllu sýnir að Austurland kemur þar verst út. Austfirskar konur eru þannig með 84,6% af meðaltalsatvinnutekj- um kvenna á landinu. Austfirskar konur standa því illa og Aust- urland er láglauna- svæði fyrir konur. Endurspeglar stöðu kynjanna Þegar kemur að at- vinnutekjum kynjanna í ákveðunum greinum má til dæmis sjá að í op- inberri stjórnsýslu eru konur með 53% af laun- um karla; meðallaun karla eru 3,2 milljónir á ári en meðallaun kvenna 1,7 milljónir. Í heilbrigðis- og fé- lagsþjónustu er skiptingin 4,3 millj- ónir á karla og 1,8 á konur, eða 41% munur á meðallaunum. Mér finnst þetta með ólíkindum og að mínu mati endurspegla þessar upplýsingar mjög stöðu kynjanna í samfélaginu.“ Mismunandi vinnuframlag er á bak við þessar tölur, en konur vinna um 44% ársverka á móti 56% árs- verkum hjá körlum. Launamunurinn er því miklu meiri en munur á vinnu- framlagi að sögn Helgu Bjargar. Hún segir gríðarlega mikilvægt að fjölga konum í ábyrgðarstöðum inn- an fyrirtækja og í stofnunum til að auka dreifingu valds og fjármagns til kvenna. Árið 2001 voru konur fram- kvæmdastjórar í 18% fyrirtækja í landinu og fundust í 10 af þeim 253 fyrirtækjum þar sem skattskyld laun starfsmanna fóru yfir 100 millj- ónir króna. Breyta verður úthlutunarreglum Fram kom hjá Helgu Björgu að atvinnurekstur kvenna felst töluvert í þjónustu og verslun, sem fellur al- mennt ekki undir úthlutunarreglur vegna styrkveitinga úr opinberum sjóðum. Þetta eru hins vegar oft burðarásar, ekki síst í samfélögum úti á landi og þarf nauðsynlega að breyta úthlutunarreglum um opin- bert fé. Nefnd voru tvö dæmi um að- gengi kvenna að fjármagni. Annars vegar úthlutun Byggðastofnunar til atvinnulífsins, þar sem karlar fengu 84% úthlutunarfjár, en konur 16%. Hins vegar úthlutun Framleiðni- sjóðs landbúnaðarins, þar sem skipt- ingin milli kynja var 78% á móti 22% konum í óhag. Helga Björg telur afar brýnt að stefnumótun stjórnvalda taki raun- verulega mið af aðstæðum og að jafnréttissjónarmið séu höfð að leið- arljósi. Nefndi hún tilmæli Norrænu ráðherranefndarinnar til sjóðs- stjórna, en þau fela í sér að stefna beri að jafnri kynjaskiptingu styrk- þega. Beri að meta á grundvelli árs- skýrslu sjóða hvort úthlutunarreglur eða styrkir halli á annað kynið og skal samkvæmt niðurstöðum breyta úthlutunarreglum eða styrkjum þannig að þeir gagnist báðum kynj- um til jafns. 49% munur á meðaltekjum austfirskra karla og kvenna Austfirskar konur standa illa að vígi Helga Björg Ragnars- dóttir, atvinnu- og jafnréttisráðgjafi í Norðausturkjördæmi. Egilsstaðir | Opið ístöltmót hesta- mannafélagsins Freyfaxa og Gisti- hússins Egilsstöðum verður haldið nk. sunnudag á ísnum á Egils- staðavíkinni, fyrir neðan Gistihúsið Egilsstöðum. Mótið er hið fyrsta sem haldið verður í þriggja móta röð, þar sem samanlögð stig úr öllum mótunum gilda til úrslita. Keppt verður í tölti á beinni braut, í höfðingjaflokki, áhuga- mannaflokki, opnum flokki, flokki 16 ára og yngri og unghrossaflokki fæddum 1998, 1999 og 2000. Verð- launaafhending verður að móti loknu í Gistihúsinu Egilsstöðum og er boðið upp á kaffiveitingar þar meðan á mótinu stendur. Annað mótið verður haldið á Reyðarfirði 28. mars, síðar verður tekin ákvörðun um hvar þriðja mót- ið verður haldið, en það verður lög- legt töltmót. Mót sem einnig eru fyrirhuguð á vegum Freyfaxa í ár eru firma- keppni, úrtökumót fyrir Landsmót, ásamt félagsmóti og síðsum- arsmóti. Ístöltmótið á Egilsstaðavíkinni hefst kl. 14 á sunnudag og fer skráning fram á staðnum frá kl. 13. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Klár í töltið: Hestamenn í Freyfaxa athuga reiðfæri á ísilögðu Lagarfljótinu. Tölt á ísnum í Egilsstaðavík Ferðamenn | Spurst hefur til fyrstu ferðamanna ársins á Héraði. Komu tveir menn á reiðhjólum að bensínstöð Olís á Egilsstöðum í vik- unni og leituðu upplýsinga um gist- ingu á tjaldstæðinu. Kalt hefur verið á Héraði undanfarið, sjö stiga frost að meðaltali og hvass vindur. Hildigunnur Jörundsdóttir, for- stöðumaður upplýsingamiðstöðvar ferðamanna á Egilsstöðum, segist ekki hafa orðið hjólreiðagarpanna vör á tjaldsvæðinu, en eitthvað sé um ferðafólk á bifreiðum, sem gisti þá á hótelum. Hún sagði aðspurð að starfsmenn Kárahnjúkavirkjunar nýttu upplýsingamiðstöðina nokkuð til að forvitnast um land og þjóð, en mætti þó vera meira. Fyrir áramót var haft opið á sunnudögum, þegar virkjunarmenn eiga frídag og koma gjarnan niður í byggð. Var þá ítölskumælandi starfsmaður í upp- lýsingamiðstöðinni, en vegna þess hve þjónustan var lítið nýtt féll sunnudagsopnun niður. Hildigunnur segir að þegar dreg- ur nær vori verði afgreiðslutími mið- stöðvarinnar rýmkaður og enn frek- ar reynt að koma til móts við upplýsingaþyrsta ferða- og virkj- unarmenn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.