Morgunblaðið - 27.02.2004, Side 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Mundu að færa það sem synd að senda mér ruslpóst, Pétur minn.
Skákhátíð Reykjavíkur
Skákhöfuðborg
heimsins?
Það er margt á döf-inni hjá Skákfélag-inu Hróknum, m.a.
fjölskylduhátíð á Broad-
way á morgun, eins og
kom fram í samtali Morg-
unblaðsins við formann fé-
lagsins, Hrafn Jökulsson.
– Segðu okkur fyrst
eitthvað frá uppgangi
Hróksins síðustu misseri
...
„Síðustu ár hafa verið
ævintýri líkust. Hrókurinn
hefur skipulagt fjölda al-
þjóðlegra viðburða, þar af
nokkur af sterkustu skák-
mótum heims. Við höfum
fengið tugi erlendra meist-
ara til Íslands, haldið
skákmót á Grænlandi og
stofnað skákskóla í Saraj-
evo. Við höfum farið í
mörg hundruð skólaheimsóknir
um allt Ísland og ásamt vinum
okkar í Eddu útgáfu gefið um tíu
þúsund eintök af bókinni „Skák
og mát“. Við höfum efnt til ótal
viðburða fyrir börn og erum að
byggja upp Skákskóla Hróks-
ins.“
– Nefndu eitthvað sem er til
marks um mikla sókn skákíþrótt-
arinnar á Íslandi.
„Skák er mál málanna. Nú er
verið að tefla á þúsundum heimila,
enda brúar skákin öll bil milli
kynslóða og kynja. Kjörorð
Skákhátíðar í Reykjavík endur-
speglar þetta: „Það geta allir ver-
ið með“. Skákvakningin teygir sig
um allt Ísland og margir skólar
iða af skáklífi. Þúsundir barna
hafa á síðustu misserum tekið
þátt í viðburðum Hróksins. Á
sama tíma hefur umfjöllun fjöl-
miðla um skák stóraukist.“
– Hvað rekur ykkur af stað með
Skákhátíð Reykjavíkur?
„Við eigum okkur þann draum
að Reykjavík verði skákhöfuð-
borg heimsins og höfum unnið
kappsamlega að því markmiði síð-
ustu árin. Við viljum byggja
Skákhátíð Reykjavíkur upp með
það fyrir augum að hún verði á
næstu árum einn aðalviðburður
ársins í heiminum. En hinir miklu
meistarar eru samt ekki í aðal-
hlutverki, því hátíðin mun teygja
sig um alla Reykjavík. Í næstu
viku heimsækja meistarar Hróks-
ins hvorki meira né minna en 30
skóla. Þannig komumst við í beina
snertingu við þúsundir skák-
glaðra barna.“
– Segðu okkur frá hátíðinni á
Broadway.
„Þetta er hátíð þar sem gleðin
verður í öndvegi. Margir af snjöll-
ustu meisturum Hróksins munu
tefla fjöltefli við börn og fullorðna.
Í þeim hópi eru Regína Pokorna,
21 árs skákdrottning sem hefur
heillað börn og fullorðna, Luke
McShane sem varð heimsmeistari
8 ára og er nú orðinn einn sá besti
í heiminum og Róbert Harðarson
sem hefur verið fyrirliði Hróksins
frá upphafi. En við verðum með
stórmeistara á öðrum sviðum líka,
tónlistarmenn á borð við KK,
Andreu Gylfadóttur,
Jakob Frímann, Ragn-
hildi Gísladóttur, Birg-
ittu Haukdal, Jónsa,
Ómar Ragnarsson og
fleiri. Herra og frú Ís-
land mætast í einvígi og fleiri
kunnir Íslendingar spreyta sig.
Þá mun Alfreð B. Valencia, 5 ára,
yngsti liðsmaður Hróksins, og
stúlkusveit félagsins tefla við
gesti og gangandi. Hátíðin hefst
klukkan 12 og stendur til 17. Að-
gangur er ókeypis og allir vel-
komnir.“
– Segðu okkur síðan frá skák-
mótinu á mánudaginn.
„Stórmót Hróksins og Fjölnis í
Rimaskóla fer fram 1. til 3. mars
og er öllum opið. Tefldar verða at-
skákir, með 25 mínútna umhugs-
unartíma, 9 umferðir alls. Þarna
fá áhugamenn einstakt tækifæri
til að komast í tæri við meistara á
borð við Jóhann Hjartarson, Ivan
Sokolov og Regínu skákdrottn-
ingu. Börn eru sérstaklega boðin
velkomin til leiks og margir
krakkar eru þegar skráðir til
leiks. Alls eru 40 verðlaun í
mótinu, þar af mörg barnaverð-
laun.“
– Hver verður framtíð Hróks-
ins?
„Hrókurinn mun á laugardag-
inn kynna framtíðarsýn félagsins.
Hún byggist á starfi okkar og
reynslu og rúmast í fimm setn-
ingum: Við ætlum að halda áfram
að kynna skákina meðal allra ís-
lenskra barna. Við ætlum að
halda áfram að byggja upp alþjóð-
leg skákmót á Íslandi. Við ætlum
að halda áfram að bjóða bestu
skákmönnum heims til Íslands.
Við ætlum að halda áfram að nota
skákina til góðs í samskiptum við
aðrar þjóðir. Við ætlum að leggja
okkur öll fram til að Ísland verði á
næstu árum mesta skákland í
heimi.“
– Hvernig sérðu fyrir þér skák-
ina dafna í landinu á næstu árum?
„Ég tel að skákin muni á allra
næstu árum ná fótfestu innan
skólakerfisins, sem viðurkennd
námsgrein. Samhliða þarf að
byggja upp skákfélög um allt
land, sem eiga að einbeita sér að
barnastarfi. Við erum að fara í
mjög spennandi verkefni með
UMFÍ til að byggja
upp skáklífið og vænt-
um mikils af samstarf-
inu við þau þróttmiklu
og merkilegu samtök.
Við teljum að með rétt-
um aðferðum getum við gert Ís-
land að mesta skáklandi heims.
Við viljum virkja hugarafl ungu
kynslóðarinnar og á þessum tíma-
mótum leitar Hrókurinn til al-
mennings um stuðning. Við höfum
opnað styrktarsímann 904-2004
og nú biðjum við alla, sem eru
ánægðir með störf Hróksins, að
slá á þráðinn og láta þannig 700
krónur af hendi rakna.“
Hrafn Jökulsson
Hrafn Jökulsson fæddist í
Reykjavík 1. nóvember 1965. Hóf
störf í blaðamennsku innan við
tvítugt. Hann hefur verið rit-
stjóri Sunnudagsblaðs Þjóðvilj-
ans (1987), Alþýðublaðsins
(1994–96), tímaritsins Mannlífs
(1997), vefritsins Pressunnar
(2001–2002) og fleiri blaða og
tímarita og gefið út ljóðabækur,
skáldsögu og bækur sögulegs
eðlis. Hann hefur verið formaður
Hróksins frá stofnun árið 1998.
…sem eiga að
einbeita sér
að barnastarfi
var snjómugga og við tókum fal-
legar myndir í fjöllunum. Þetta
var eins og í Hringadróttinssögu,
en þó betra því landslagið og lit-
irnir eru jafnvel betri en á Nýja-
Sjálandi,“ sagði Dahl.
Myndbandið verður sýnt í
MENN íklæddir víkingafötum hafa
riðið um Mosfellsdalinn síðustu
daga, eltir af kvikmyndatökuliði
frá Noregi. Þar er verið að taka
upp myndband með lagi sem
norskur tónlistarmaður, Dan
Henry Bøhler, sem er fæddur árið
1981, samdi íslenska hestinum til
heiðurs.
Truls Erik Dahl, leikstjóri
myndbandsins, segir að Bøhler
hafi samið lagið á Miðaldadögum í
Ósló árið 2002. Helgi „hestur“
Þórarinsson, sem eigi um 40 ís-
lenska hesta í Svíþjóð, stutt frá
landamærum Noregs, hafi beðið
Bøhler um að semja lag til heiðurs
íslenska hestinum. „Dan Henry fór
inn í víkingatjaldið eitt kvöldið og
kom út með þetta fallega lag.
Helgi, þessi harði hestamaður, fór
að gráta því honum þótti lagið svo
fallegt,“ segir Dahl.
Lagið er á ensku og fjallar um
það þegar víkingar fluttu hesta yf-
ir opið haf frá Noregi til Íslands
fyrir rúmum 1.000 árum. Dahl
segir að íslenski hesturinn sé mjög
vinsæll á erlendri grundu, þar á
meðal í Noregi. Myndbandið fjalli
um menningarleg og sagnfræðileg
tengsl Íslands. „Það er ekki erfitt
að ná frábærum myndum hér því
veðrið er alltaf að breytast. Í gær
norska ríkissjónvarpinu, og í
þremur kvikmyndahúsum í Noregi
áður en myndirnar hefjast og
gestir eru að koma sér fyrir í sæt-
unum. Þá hafa Flugleiðir áhuga á
að sýna myndbandið um borð í
flugvélum til og frá Íslandi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Truls Erik Dahl leikstjóri gefur myndatökumanninum leiðbeiningar fyrir
utan Laxnes í Mosfellsdalnum þar sem þeir unnu við tökur í gær.
Taka upp myndband við lag
til heiðurs íslenska hestinum
HVORKI meira né minna en 60 tonn
af ýsu verða seld á Ýsudögum sem
Grandi stendur fyrir nú um helgina á
athafnasvæði sínu við Norðurgarð í
Reykjavík. Þar verður lausfryst ýsa í
10 kílóa kössum seld á 200 krónur
kílóið. Eins verður fólki boðið að
bragða á ýmiss konar ýsuréttum,
drekka skipstjórakaffi og hlýða á
harmonikkuspil.
Svavar Svavarsson, framleiðslu-
stjóri Granda, segist telja að tonnin
sextíu ættu að endast eitthvað fram
á sunnudag. „En það er alveg rétt að
það er fyrstur kemur fyrstur fær,“
segir hann. Opið verður milli 10 og
16 bæði á morgun og sunnudag.
„Við viljum glæða áhuga landans á
að borða meiri fisk,“ segir Svavar og
bendir á að fiskneysla hafi dregist
saman á síðustu árum. Hann segir að
þessi þróun sé meðal annars rakin til
þess að verð á fiski hafi verið mjög
hátt. „Þetta er ákveðin tilraun hjá
okkur. Það má segja að Grandi og
HB séu samanlagt með mjög mikinn
ýsukvóta. Við eigum samanlagt 4.000
tonn af kvóta. Ýsa verður mjög lík-
lega áherslufisktegund hjá fyrirtæk-
inu. Þá beinist áhugi okkar ekki síst
að innanlandsmarkaði því Íslending-
ar eru mjög frægir fyrir að borða
ýsu,“ segir hann.
Ýsudagar Granda við Norðurgarð um helgina
Sextíu tonn af ýsu seld á
tvö hundruð krónur kílóið