Morgunblaðið - 27.02.2004, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 9
Bankastræti 14, sími 552 1555
Ný sending
af sportlegum fatnaði frá
Glæsibæ – Sími 562 5110 - Opið virka daga 10-18.00 og laugardaga 10-16.00
Glæsilegt úrval af drögtum
20% afsláttur
Mikið af bolum
einlitir og munstraðir, str. 36-56
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Nýjar vorvörur
Sportleg buxnadress
og toppar
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Laugavegi 28, sími 562 6062.
Mikil verðlækkun
á útsöluvörum
INDRIÐI H. Þorláksson ríkisskatt-
stjóri segir að gildandi reglur um
skattskyldu erlendra starfsmanna
hér á landi séu í raun einfaldar: Öll-
um beri að greiða skatt og útsvar af
áunnum tekjum sínum á Íslandi,
hvort sem um útlending eða Íslend-
ing er að ræða. Var ríkisskattstjóri
spurður í tilefni umræðu sem hefur
skapast um skattgreiðslur erlendra
starfsmanna við Kárahnjúkavirkjun.
Hafa sveitarfélög á svæðinu t.d.
kvartað undan því að takmarkaðar
útsvarsgreiðslur berist og þá á Imp-
regilo í deilu við skattyfirvöld um inn-
heimtu skattgreiðslna.
Embætti ríkisskattstjóra gaf ný-
lega út bækling þar sem finna má
leiðbeiningar til þeirra sem koma til
tímabundinna starfa á Íslandi án
þess að flytja lögheimili sitt til lands-
ins. Þar segir m.a. að þeir sem koma
til landsins þurfi að láta skrá sig hjá
þjóðskrá Hagstofunnar og fá ís-
lenska kennitölu. Þurfa viðkomandi
einstaklingar einnig að sækja um
skattkort frá ríkisskattstjóra og aðrir
en Norðurlandabúar eða íbúar innan
Evrópska efnahagssvæðisins (EES)
þurfa að fá atvinnuleyfi.
Þurfa að skila skattframtali
Í bæklingnum segir ennfremur að
þeir sem starfa hér skemur en sex
mánuði á tólf mánaða tímabili beri
takmarkaða skattskyldu og þá aðeins
vegna tekna sem þeir afla hér á landi.
Réttur til frádráttar frá þessum
tekjum sé hinn sami og hjá þeim sem
bera hér fulla skattskyldu. Sé dvölin
hér á landi lengri en sex mánuðir telj-
ast viðkomandi bera hér ótakmark-
aða skattskyldu, þ.e. eru skyldaðir til
að greiða tekjuskatt af öllum tekjum
sínum, sama hvar þeirra er aflað í
heiminum. Við álagningu gjalda eru
þeim þá ákvarðaðar bætur eftir sömu
reglum og gilda um þá sem eiga hér
lögheimili. Þessir starfsmenn þurfa
svo að skila skattframtali til skatt-
stjóra a.m.k. viku fyrir brottför. Sé
framtali ekki skilað eru tekjur við-
komandi áætlaðar miðað við fyrir-
liggjandi gögn um staðgreiðslu
skatta og álögð gjöld reiknuð á
grundvelli þeirrar áætlunar.
Indriði segir það í raun skipta litlu
máli fyrir skattyfirvöld hvort erlend-
ir starfsmenn séu hér lengur eða
skemur en sex mánuði. Öll vinna
þeirra hér á landi sé skattskyld sam-
kvæmt lögum. Viðmið um sex mánuði
skipti aðeins sköpum um fulla skatt-
skyldu eða takmarkaða, t.d. þurfi út-
lendingur sem vinni hér lengur en
hálft ár að telja fram tekjur sínar í
heimalandinu eða öðru landi mánuð-
ina á undan og greiða af þeim skatta
hér.
Spurður hvaða úrræði skattyfir-
völd hafa, ef fyrirtæki standa ekki
skil á sköttum erlendra starfsmanna
sinna, segir ríkisskattstjóri að úrræð-
in séu þau sömu og gagnvart innlend-
um starfsmönnum. Erlendum starfs-
mönnum beri að telja fram tekjur
sínar hér og fyrirtækin þurfi að skila
inn réttum upplýsingum. Geri fyrir-
tækin það ekki séu þau áminnt af
skattyfirvöldum og síðan áætluð
staðgreiðsla ef ekkert berst. Nú
styttist í að skattframtöl verði send
út og segir Indriði að starfsmenn við
Kárahnjúkavirkjun verði þar ekki
undanskyldir. Framtöl verði send út
samkvæmt upplýsingum frá Hag-
stofunni um skráð lögheimili eða að-
setur viðkomandi. Indriði segist ekki
vita til þess hve margir erlendir
starfsmenn við virkjunina hafi fengið
skattkort frá embættinu.
Una ekki úrskurði skattstjóra
Deila hefur risið milli Impregilo og
skattyfirvalda um innheimtu trygg-
ingagjalds af erlendum starfsmönn-
um við virkjunina. Impregilo hefur
ekki talið sig þurfa að innheimta
tryggingagjaldið af sínum starfs-
mönnum og ekki heldur staðgreiðslu-
skatta fyrir starfsmenn undirverk-
taka sem hafa komið hingað fyrir
tilstilli starfsmannaleiga. Ómar R.
Valdimarsson, talsmaður Impregilo,
segir fyrirtækið líta svo á að inn-
heimta staðgreiðsluskatta eigi að
vera hjá viðkomandi starfsmanna-
leigum eða undirverktökum. Segir
Ómar að Impregilo hafi reynt að
koma á fundi með skattyfirvöldum
síðan í ágúst í fyrra, en án árangurs.
Þau svör hafi fengist að samskipti yf-
irvalda við greiðendur opinberra
gjalda fari fram bréflega ef upp komi
ágreiningur um innheimtu og álagn-
ingu skatta.
Skattstjórinn í Reykjavík hefur úr-
skurðað að Impregilo beri að standa
skil á tryggingagjaldi fyrir þá starfs-
menn sína sem unnið hafa við virkj-
unina skemur en sex mánuði og inn-
heimta skattgreiðslur af starfs-
mönnum undirverktaka í gegnum
starfsmannaleigur. Ómar segir að
Impregilo muni ekki una úrskurðin-
um, fyrirtækið muni standa skil á
þeim greiðslum sem verði innheimtar
en kæra þá meðferð til yfirskatta-
nefndar og krefjast endurgreiðslu.
Fáist ekki viðunandi niðurstaða þar
verði farið með ágreininginn fyrir
dómstóla.
Flestir komast aldrei í þjóðskrá
Fram kom hjá Arnbjörgu Sveins-
dóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokks-
ins í Norðausturkjördæmi, í umræðu
á Alþingi nýlega að stór hluti er-
lendra starfsmanna Kárahjúkavirkj-
unar væri á svonefndri utangarðs-
skrá. Á þá skrá fara útlendingar sem
hafa sótt um dvalarleyfi en ekki bor-
ist fullnægjandi gögn um til að skrá
þá á þjóðskrá og með lögheimili hér á
landi. Hjá Hagstofunni fengust þær
upplýsingar að ekki væri hægt að
finna út hve margir starfsmenn við
Kárahnjúka væru á þessari skrá, að-
eins að það væri „stór hluti“ þeirra.
Lögfræðingur á þjóðskrárdeild
sagði flesta starfsmennina stoppa
það stutt við hér á landi að þeir næðu
ekki að komast í þjóðskrá eða eignast
hér lögheimili, þeir væru allan tím-
ann sinn hér á þessari utangarðsskrá
og margir þeirra um 800 starfsmanna
sem hefðu frá síðastliðnu vori unnið
við Kárahnjúka og fengið kennitölu
væru farnir úr landi. Starfsmenn
þyrftu að vera hér að lágmarki þrjá
eða sex mánuði til að hljóta dvalar-
leyfi og komast í íslensku þjóðskrána.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu hefur Útlendingastofnun
fjallað frá upphafi framkvæmda um
300 mál erlendra starfsmanna sem
hafa fengið dvalarleyfi eða sótt um
það. Oftast er um starfsmenn utan
EES-svæðisins að ræða.
Öllum ber að greiða
hér skatta og útsvar
Morgunblaðið/Kristinn
Engu skiptir hvort starfsmenn hér á landi eru erlendir eða íslenskir og
vinna hér lengur eða skemur, öll þeirra vinna er skatt- og framtalsskyld.
Ómar R.
Valdimarsson
Indriði H.
Þorláksson
SÁLFRÆÐINEMAR við Háskóla
Íslands blása á morgun til ráðstefnu
um bandaríska sálfræðinginn B.F.
Skinner, sem er gjarnan nefndur
faðir atferlissálfræðinnar. Ráð-
stefnan ber nafnið „Hvar er hún nú?
Arfleifð atferlisstefnunnar á 21. öld“
og hefst hún í Odda klukkan tíu.
Markmiðið er að auka umræðu
um atferlisstefnuna hér á landi.
Einnig verða kynntar leiðir til þess
að hagnýta stefnuna í kennslu, við-
skiptum og mörgum fleiri greinum.
Sérstakur gestur ráðstefnunnar
verður dr. Stephen Ledoux, ritstjóri
Behaviorology Today, sem er tíma-
rit atferlissinna í Bandaríkjunum.
Hann mun flytja erindi um framtíð
atferlisstefnunnar sem sjálfstæðrar
náttúrufræðigreinar utan félags-
vísinda. Fjöldi annarra fyrirlesara,
prófessorar frá sálfræðideildum HÍ
og HA, sjálfstætt starfandi sálfræð-
ingar og atferlisfræðingar, mun
einnig flytja fyrirlestra, þar á meðal
Mikael M. Karlsson, heimspekingur.
Þrír ungir sálfræðingar standa
fyrir ráðstefnunni, þau Jón Grétar
Sigurjónsson, Páll Jakob Líndal og
Jara Kristína Thomasdóttir. Þau
segja ekki um neina „halelúja“-
ráðstefnu að ræða, enda muni þarna
koma fram fræðimenn sem fjalla
gagnrýnið um Skinner út frá fræði-
legu sjónarmiði, auk þess sem fjallað
verður um rannsóknir og hagnýt-
ingu atferlisfræðinnar. „Þetta verð-
ur alhliða umfjöllun og kynning á at-
ferlisstefnunni,“ segir Páll Jakob og
bætir við að þetta sé kjörið tækifæri
fyrir almenning, bæði til að kynnast
kenningunni og hagnýtingu hennar í
rannsóknum og atvinnulífinu.
Ráðstefnan er styrkt af HÍ, fé-
lagsmálaráðuneytinu og B.F. Skinn-
er-stofnuninni, en stefnt er að því að
ráðstefnurit með erindum ráðstefn-
unnar komi út í vor.
Sálfræðinemar með ráðstefnu
um sálfræðinginn Skinner
Morgunblaðið/Ómar
Jara Kristína Thomasdóttir, Páll Jakob Líndal og Jón Grétar Sigurjónsson
hafa skipulagt ráðstefnu um B.F. Skinner.