Morgunblaðið - 27.02.2004, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 11
SMÁRALIND - KRINGLUNNI
Rýmum fyrir vor 2004
30% afsláttur
af öllum götuskóm og mokkasínum
og
Sérstaða Háskólans
Feller telur mikilvægt að minni
vísindasamfélög eins og á Íslandi taki
aðstæður sínar með í reikninginn
þegar matið á starfinu fer fram.
Hann bendir einnig á að ólík mark-
mið krefjist mismunandi mæli-
kvarða.
Sérstaða Háskóla Íslands er að
vera bæði rannsóknarháskóli og
þjóðarháskóli. Markmið hans eru
nokkur: Að veita nemendum mennt-
un á heimsmælikvarða. Að varðveita
og endurskapa þekkingu á sviði sögu
íslenskrar menningar og samfélags.
Að leggja ríkinu til embættismenn.
Að vera rannsóknarháskóli í fremstu
röð í heiminum.
„Samfélagið vill að háskólinn sinni
þörfum stúdenta,“ segir Feller og að
háskólinn þurfi því að bjóða upp á
menntun fyrir alla. „Stofnunin vill
jafnframt vera rannsóknarháskóli
sem stenst alþjóðlegar kröfur.“
Feller segir það síðan vera póli-
tískt mál hvort háskólinn eigi að
leggja jafnríka áherslu á að vera
rannsóknarháskóli á alþjóðavett-
vangi og að sinna skyldum sínum sem
þjóðarháskóli. „Þetta þarf ekki að
fara saman, eða vera verkefni fyrir
kvarðar í mati eiga að vera úr há-
skólastarfinu sjálfu eða úr hinni aka-
demísku menningu. Mælikvarðarnir
þurfa jafnframt að vera í samræmi
við þau markmið sem vísinda-
samfélagið hefur sammælst um í
gegnum tíðina.“
Mælikvarðar á árangur
Hefðbundnar akademískar mæl-
ingar við mat á rannsóknarstarfi eru
t.a.m.: 1. Fjöldi birtra rannsóknarrita
og greina kennara í virtum ritrýnd-
um alþjóðlegum fræðiritum. 2. Fjöldi
tilvitnana í rannsóknarritverk og vís-
indagreinar kennara.
Dr. Rúnar Vilhjálmsson prófessor
nefndi á fundi Félags prófessora
einnig nokkra aðra mælikvarða, sem
notaðir hafa verið við virta rannsókn-
arháskóla erlendis, t.d.: Fjölda kenn-
ara með hæstu prófgráðu, hlutfall
nemenda á kennara og alþjóðlegar
viðurkenningar kennara. (Ólík must-
eri menntunar. Mbl. 22.2. 04.)
Dr. Inga Dóra Sigfúsdóttir fé-
lagsfræðingur sagði á sama fundi að
mat á vísindastarfi væri aldrei vanda-
laust, ekki síst vegna þess hve erfitt
er að skilgreina eða afmarka við-
fangsefnið. Einnig væru skilin milli
hagnýtra og grunnrannsókna að
verða æ óljósari.
Feller segir að ástæðan fyrir því að
hefðbundið mat dugi ekki til að
spanna stofnun eins og háskóla sé að
hlutverk vísindamanna hefur breyst
mikið á undanförum árum. Starfið og
starfsemin eru svo fjölbreytt og flók-
in að árangurinn mælist ekki nægi-
lega vel með því að beita einum eða
tveimur mælikvörðum. Dæmi um það
er miðlun upplýsinga til fyrirtækja,
stofnana og almennings, seta í stjórn-
um fyrirtækja, öflun fjármagns, seta
í vísindaráðum, skipulagning ráð-
stefna og úthlutun úr sjóðum.
Krafan um mat á árangri ívísindastarfi er ofarlega ábaugi í samfélaginu. Bæðivegna þess að þekkingin
er höfuðatriði í velferð þjóða og hag-
sæld og vegna þess að gögn um skil-
virkni og gæði háskóla og fyrirtækja
þurfa að liggja fyrir.
Félag prófessora við Háskóla Ís-
lands hefur haldið tvo fundi um stöðu
og framtíð Háskóla Íslands og um
hvatakerfi og mat á gæðum háskóla-
starfs. Þar flutti m.a. Irwin Feller,
gestaprófessor hjá American Asso-
ciation for the Advancement of
Science, fyrirlestur. Feller er sér-
fræðingur í mati á kennslu og rann-
sóknum í háskólastarfi. Hann er eft-
irsóttur fyrirlesari á því sviði í
háskólum víða um heim.
Feller hefur m.a. greint þá þróun
hjá alþjóðlegum rannsókn-
arháskólum, að múrar milli deilda
séu að hruni komnir, og að vís-
indamenn sem tilheyra ólíkum deild-
um nái nýjum og óvæntum árangri
með samstarfi. „Framþróunin felst
m.a. í því að háskóladeildir rugli sam-
an reytum sínum,“ segir Feller, „þær
þurfa að leggja saman lausnir sínar
til að sjá heildarmyndina.“
En áður en breytingar eru gerðar
er mikilvægt að gera grein fyrir réttu
spurningunum og Feller er fær í
þeirri list að móta þær og fínpússa.
Blaðamaður átti samtal við hann um
mat á háskólastarfi.
Markmið úttekta og mats á há-
skólastarfi er einfaldlega að gera há-
skólana skilvirkari og bæta árang-
urinn. „Gallinn er aftur á móti að það
hentar ekki vel að yfirfæra aðferðir
úr viðskiptalífinu til að meta árangur
í háskólum,“ segir Feller og að ekki
dugi heldur að nota viðmið úr stjórn-
sýslunni. Því hvaða „afurðum“ eiga
vísindastofnanir að skila? „Mæli-
einn háskóla, en þetta er málefni sem
háskólar víða í Vestur-Evrópu takast
á við nú um stundir,“ segir hann.
Feller segist ekki hafa skoðað Há-
skóla Íslands í smáatriðum, hann hafi
ekki verið kallaður til þess, hann hafi
fyrst og fremst komið hingað í stutta
heimsókn til að miðla þekkingu sinni.
Hann segir að háskóli eins og HÍ
þurfi væntanlega að setja fram áætl-
un um hvernig hann vilji þróast. „Ég
ætla ekki að segja HÍ til um hvert
hann eigi að stefna, heldur að miðla
aðferðum um hvernig breytingar eru
framkvæmdar. Þó þykir mér ekki
ólíklegt að deildaskiptingin muni riðl-
ast,“ segir hann.
Hið flókna hlutverk
Feller ræddi um tilgang mats á
fundinum og aðferðafræðina. „Til-
gangur mats er m.a. að vera leið-
arvísir í starfinu og tæki til að bæta
kerfið,“ segir hann og að markmiðið
sé ekki að finna svör við því hvort til-
tekinn kennari eigi að fá stuðning við
tiltekið verkefni eða ekki.
Meginspurningarnar eru: „Hverju
býst samfélagið við af háskólanum,
við hverju búast stúdentar og fjöl-
skyldur þeirra? Hvert er hlutverk HÍ
í samfélaginu?“ Matið liggur síðan í
því að kanna hvort stofnunin standi
undir væntingum. Svarið sem fæst
kallast þá aftur á við hið flókna hlut-
verk háskólans.
Kröfur um innihald háskólamennt-
unar og vísindastarfs hafa breyst á
síðustu áratugum. Umhverfi hefð-
bundinna háskóla eins og HÍ hefur
einnig breyst því hann glímir við
samkeppni um stúdenta bæði innan-
lands og utan. „Það er því mikilvægt
fyrir háskóla að móta sér nýja stefnu,
og matið á starfinu verður að vera í
samræmi við þá stefnu og markmið
hennar að bæta starfið,“ segir Feller.
Hann efast ekki um að háskólar
eins og HÍ geti gegnt þessum ólíku
hlutverkum og hann verði í raun að
gera það. „Hann verður að standast
bæði kröfur nemenda og alþjóða vís-
indasamfélagins,“ segir hann, „og
starfsmenn við HÍ efast ekki um að
hann eigi að gera það. Um það er
ekki deilt innan deilda háskólans.“
Hugmyndin um skólagjöld
Hann segir að mörgum spurn-
ingum sé ósvarað og mikilvægt að
gera sér grein fyrir því að takmörk
séu fyrir því hversu mörgum hlut-
verkum HÍ geti sinnt. Nauðsynlegt
sé því að velja úr eða forgangsraða.
Ennfremur verði að leita sátta um
hvað starfið megi kosta. „Hvað kost-
ar það að vera framúrskarandi rann-
sóknarháskóli og þjóðarháskóli, og
hver á að bera kostnaðinn?“ spyr
Feller og að samfélagið verði að finna
svarið. Hann segir að háskólar víða
um heim séu nú um stundir í leit að
slíkum svörum.
Háskólinn og samfélagið takist nú
á við hugmyndina um skólagjöld og
sé mat á háskólastarfi þ.a.l. knýjandi
nauðsyn, því að þeir sem borga geri
kröfu um mælanlegan árangur.
Hvað viljum við gera? Hver
ákveður hvað hvað viljum? Er það
ríkisvaldið, háskólaráð, háskóladeild-
ir eða utanaðkomandi sérfræðingar
og ráðgjafar? „Hver sem það er sem
tekur ákvörðun þá þarf ævinlega að
láta hagsmuni stúdenta ganga fyrir,“
segir Feller. „Mæta þarf þörfum
þeirra og veita þá menntun sem hef-
ur gildi í samfélaginu. Aldrei má
gleyma því heldur að stúdentar geta
valið og hafnað háskólum eða farið á
milli þeirra. Ef menntunin er ekki
fullnægjandi hér fyrir ákveðna hópa,
þá fara þeir til útlanda, og þá er
hætta á því að þeir komi ekki aftur
heim.“
Árangur menntakerfis
Meginspurningin sem þarf að
svara óháð skólagjöldum og öðrum
hlutverkum háskólans er eftirfarandi
að mati Fellers: „Framreiðir
menntakerfið hæfileikaríka ein-
staklinga fyrir samfélagið og nema
þeir þar staðar eða hverfa þeir á
braut?“
Aðrar spurningar koma síðan í
kjölfarið eins og: „Hvernig vill HÍ
þróast? Hvaða hlutverkum á HÍ að
gegna? Hver á að borga til að hann
geti rækt hlutverk sín? Eiga stúd-
entar að borga?“
Ef ríkið vill ekki borga til að há-
skólinn geti sinnt hlutverkum sínum
þarf að taka ákvarðanir innan háskól-
ans um hver eigi að gera það og
hvaða hlutverk hann eigi að leggja
rækt við og hverju skuli hætta,“ segir
Feller.
„Hvað kostar það að vera framúrskarandi
rannsóknarháskóli og þjóðarháskóli og
hver á að bera kostnaðinn?“ spyr dr. Irwin
Feller í samtali við Gunnar Hersvein og
segir að samfélagið verði að takast á við
spurninguna um skólagjöld.
„Framreiðir menntakerfið hæfi-
leikaríka einstaklinga fyrir sam-
félagið?“ er meginspurning að mati
Irwin Fellers sérfræðings í mati á
starfi háskóla.
guhe@mbl.is
Forgangsröð hlutverka Háskólans
Morgunblaðið/Eggert
Nefnd um eignarhald
á fjölmiðlum
Nær ekki
að ljúka
störfum á
réttum tíma
NEFND um eignarhald á fjölmiðl-
um sem menntamálaráðherra skip-
aði í desember síðastliðnum nær
ekki að ljúka störfum og skila grein-
argerð fyrir 1. mars eins og henni
var ætlað. Að sögn formanns nefnd-
arinnar, Davíðs Þórs Björgvinsson-
ar, prófessors við lagadeild Háskól-
ans í Reykjavík, hefur gagnaöflun
einfaldlega tekið meiri tíma en gert
var ráð fyrir í upphafi. Davíð Þór
segist ekki geta sagt nákvæmlega
hvenær nefndarstörfum verður lok-
ið, en segir stefnt að því fyrir mars-
lok.
Aðrir í nefndinni eru Karl Ax-
elsson hæstaréttarlögmaður, Guð-
mundur Frímannsson, deildarfor-
seti kennaradeildar Háskólans á
Akureyri, og Pétur Gunnarsson,
skrifstofustjóri Framsóknarflokks-
ins.
Metur hvort setja ætti lög
Nefndinni er falið að meta hvort
tilefni er til að setja sérstaka löggjöf
um eignarhald á fjölmiðlum hér-
lendis. Telji hún þörf á slíkri löggjöf
verður henni enn fremur falið að
semja frumvarp til laga um eign-
arhald á fjölmiðlum.