Morgunblaðið - 27.02.2004, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 27.02.2004, Qupperneq 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ HAGNAÐUR Eimskipafélagsins nam 2.204 milljónum króna í fyrra og dróst saman um 51% milli ára. Hagnaður flutningastarfseminnar nam 633 milljónum króna og hagn- aður fjárfestingarstarfseminnar nam 2.559 milljónum króna, en 684 milljóna króna tap var af sjávarút- vegsstarfseminni. Hagnaðurinn er nokkru minni en greiningardeildir bankanna höfðu spáð í byrjun þessa árs, en þær höfðu að meðaltali spáð Eimskipafélaginu um 2.500 milljóna króna hagnaði. Á aðalfundi mun stjórn Eim- skipafélagsins leggja til að greiddur verði 15% arður til hluthafa, eða sem nemur rúmum 600 milljónum króna. Mikill söluhagnaður hlutabréfa Rekstrartekjur samstæðu Eim- skipafélagsins jukust um fjórðung milli ára og námu í fyrra rúmum 30 milljörðum króna. Rekstrargjöld án afskrifta jukust um sama hlutfall og hagnaður fyrir afskriftir sömuleiðis og nam rúmum 3,2 milljörðum króna, eða 10,8% af tekjum. Eignir samstæðunnar minnkuðu um 11% milli ára og námu 53 millj- örðum króna í árslok, og eiginfjár- hlutfallið lækkaði úr 43% í 36%. Fjármunaliðir voru jákvæðir um 5 milljarða króna og bötnuðu um 70% milli ára. Ástæðan er aðallega innleystur söluhagnaður vegna sölu á hlutabréfum í eigu Burðaráss. Hagnaður fjárfestingarstarfseminn- ar, Burðaráss ehf., var sem fyrr segir tæpir 2,6 milljarðar króna. Miklar breytingar urðu á eignasafni Burðaráss í fyrra. Burðarás keypti hlutabréf fyrir samtals 14,6 millj- arða króna og seldi hlutabréf fyrir 20,2 milljarða króna. Bætt nýting í flutningunum Flutningastarfsemin, Eimskip ehf., skilaði eins og áður er getið 633 milljóna króna hagnaði og veltu- fé frá rekstri Eimskips var 1.338 milljónir króna. Rekstrartekjur námu 16.878 milljónum króna og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir nam 1.641 milljón króna, eða 9,7% af veltu. Í fréttatilkynningu félagsins segir að vegna bættrar nýtingar gáma- flota, meiri flutninga og aðhaldsað- gerða, hafi hlutfall flutningagjalda af flutningatekjum lækkað milli ára. Rekstrartekjur Brims, sjávarút- vegsstarfsemi Eimskipafélagsins, voru 13.159 milljónir króna í fyrra og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir 1.799 milljónir króna, eða 13,7% af veltu. Tap af rekstri Brims var sem fyrr segir 684 milljónir króna, en veltufé frá rekstri var 1.159 millj- ónir króna. Í fréttatilkynningu segir að af- koma Brims sé ekki í samræmi við þær væntingar sem gerðar hafi ver- ið til fyrirtækisins í upphafi árs og afkoman sé lakari á flestum sviðum. Helstu ástæður séu styrking krón- unnar, minni afli í grálúðu og loðnu og lægra afurðaverð í erlendri mynt á flestum tegundum. Frá áramótum hefur verið gengið frá sölu allra dótturfélaga Brims og skilaði salan umtalsverðum söluhagnaði, 3.581 milljón króna eftir skatta, og færist sá hagnaður til tekna á þessum fjórðungi. Afkoman af fjárfestingu Eimskipafélagsins í sjávarútvegs- fyrirtækjunum þremur sem mynd- uðu Brim, Útgerðarfélagi Akureyr- inga, Skagstrendingi og Haraldi Böðvarssyni, verði því að teljast góð þegar upp er staðið. Hagnaður Eimskipa- félagsins 2,2 milljarðar Tekjur jukust um fjórðung milli ára REKSTUR Eimskipafélagsins mun taka miklum breytingum frá því sem verið hefur á árinu 2003, að því er segir í fréttatilkynningu félagsins um horfur í rekstri þess. Ákveðið hefur verið að sameina móð- urfélagið, Hf. Eimskipafélag Ís- lands, Brim ehf. og Burðarás ehf., og verður sameinað félag rekið und- ir nafninu Burðarás hf. og mun starfa á sviði fjárfestingarstarfsemi, líkt og Burðarás ehf. hefur gert. Flutningastarfsemin verður rekin innan Eimskips ehf. undir nafninu Hf. Eimskipafélag Íslands. Félögin Burðarás og Eimskip verða svo að- skilin, annaðhvort með því að Eim- skip verði selt að hluta eða öllu leyti, eða félögunum verði skipt upp þann- ig að hluthafar í Hf. Eimskipafélagi Íslands við skiptingu eignist hlut í báðum félögunum, að því er segir í tilkynningu félagsins. Þar segir enn- fremur að stefnt sé að því að bæði fé- lögin verði skráð í Kauphöll Íslands. Horfur í flutninga- og fjárfesting- arstarfseminni eru almennt sagðar góðar. Afkoma flutningastarfsem- innar hafi batnað í fyrra og búist sé við áframhaldandi bata. Afkoma fjárfestingarstarfseminnar ráðist af þróun á gengi hlutabréfa og hvernig til takist með fjárfestingar á árinu. Að öllu óbreyttu verði heildar- afkoma félagsins á fyrsta ársfjórð- ungi góð. Framtíð Eim- skipafélagsins ÍSLENSK erfða- greining hefur kynnt nýjan sam- starfssamning um klínískar lyfjaprófanir við alþjóðlega lyfja- fyrirtækið Merck. Sam- kvæmt samn- ingnum mun Ís- lensk erfða- greining fá hlutdeild í sölu þeirra lyfja og greiningarprófa sem samstarfið kann að leiða af sér. Íslensk erfðagreining mun einnig fá eingreiðslu fyrir framlagða tækni- þekkingu og áfangagreiðslur þegar lyf eða greiningarpróf koma á mark- að, að því er segir í fréttatilkynningu, en samkvæmt upplýsingum frá Ís- lenskri erfðagreiningu verða fjár- hæðir samningsins ekki gefnar upp. Samningurinn er til sjö ára og sam- kvæmt honum mun Íslensk erfða- greining á hverjum tíma stunda klín- ískar lyfjaprófanir á allt að fimm lyfjaefnum frá Merck. Spennandi tækifæri Jafnframt þessum samningi hefur Merck keypt almenna hluti í de- CODE, móðurfélagi Íslenskrar erfða- greiningar, fyrir 10 milljónir Banda- ríkjadali, alls tæplega 700 milljónir króna, á genginu 14,50 dali á hlut. Þá hefur Merck verið veittur kaupréttur á 50 milljónum dala til viðbótar á genginu 29 dalir á hlut á næstu fimm árum. Lokagengi deCODE á miðviku- dag var 10,6 dalir á hlut en gengið hækkaði strax við opnun markaða í gær, eftir birtingu fréttatilkynning- arinnar, og lokagengi í gær var 13,20 dalir á hlut og hækkaði það um 25% frá fyrra degi. Mikil viðskipti voru með bréf deCODE í gær. Í fréttatilkynningu er haft eftir Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskr- ar erfðagreiningar, að samningurinn feli í sér mjög spennandi tækifæri til að nota lýðerfðafræðilega nálgun fyr- irtækisins við þróun næstu kynslóðar lyfja frá Merck. Merck muni ekki að- eins geta spurt hvort að lyf virki gegn ákveðnum sjúkdómi heldur einnig hverjir svari lyfinu best og hvers vegna. „Við teljum að slíkar rann- sóknir séu mikilvægur liður í stjórn- un á viðskiptalegri áhættu í lyfjaþró- unarferlinu og þær muni auka ávinning sjúklinga af nýjum lyfjum og auka mögulega markaðshlutdeild þeirra“, er haft eftir Kára Stef- ánssyni. Í fréttatilkynningunni er einnig haft eftir dr. Stephen Friend, yf- irmanni sameindagreiningarsviðs og grunnrannsókna á krabbameini hjá rannsóknastofum Merck, að fyr- irtækið sé mjög spennt fyrir því að eiga samstarf við Íslenska erfða- greiningu um bættar klínískar próf- anir á lyfjum sem beint sé að alvar- legum sjúkdómum. ÍE semur við lyfja- fyrirtækið Merck Merck kaupir hlutabréf fyrir 700 milljónir króna í deCODE Morgunblaðið/Sverrir                                               !"  #  !  #" $ %$" %  #"# % "  &     &  '       "#! #  (  '   )* '  &            ! "" !+ "+ " # # ! $ !!" %"! "! # %# %   #     $ #       #+ +                  ! " # $ Morgunblaðið/Golli MILESTONE Import Export Ltd., sem er félag í eigu systkinanna Karls Wernerssonar, Steingríms Werners- sonar og Ingunnar Wernersdóttur, hefur eignast u.þ.b. 8,4% eignarhlut í Íslandsbanka. Fyrir átti félagið 5,36% en bætti við sig 3% hlutafjár í bank- anum í gær og fyrradag. Karl Wernersson sagði í samtali við Morgunblaðið um ástæðu kaup- anna: „Við teljum okkur vera að gera góð kaup.“ Hann sagði óákveðið hvort systkinin mundu sækjast eftir manni í bankaráð Íslandsbanka. Kaupverð bréfanna fékkst ekki uppgefið en eftir því sem næst verður komist voru þau keypt á markaðsverði. Lokaverð bréfa í Íslandsbanka var 7,70 krónur á hlut í gær og hafði hækkað um 1,3% innan dagsins. Helgi stærsti hluthafinn Ætla má að Helgi Magnússon sé stærsti hluthafinn í Íslandsbanka eft- ir að hafa eignast 8,8% hlut í bank- anum á þriðjudag og á hann nú 8,86%. Wernersbörn eiga nú um 8,4% og eru því væntanlega annar stærsti hluthaf- inn. Lífeyrissjóður verslunarmanna á 8,1% hlut og Straumur Fjárfestinga- banki á 6,2% hlut, samkvæmt hlut- hafalista frá Íslandsbanka í gær. Orri Vigfússon, eða Urriði ehf., keypti í fyrradag 5,2% hlut af Burðarási og er því væntanlega fimmti stærsti hlut- hafinn. Hluthafalistinn lítt marktækur Litlar breytingar hafa þó orðið á hluthafalista bankans þar sem þeir stóru hlutir sem skipt hafa um hendur undanfarið hafa verið keyptir með framvirkum samningnum. Á þetta við um eignarhlut Helga Magnússonar, sem Landsbankinn er skráður fyrir, eignarhlut Orra Vigfússonar, sem Burðarás er skráður fyrir, og eign- arhlut Wernersbarna sem bæði Landsbankinn og Íslandsbanki eru skráðir fyrir að hluta. Reglan er sú að eignarhlutur er skráður á seljanda þar til framvirki samningurinn fellur úr gildi. Líklegt má því telja að hlut- hafalisti Íslandsbanka muni lítið breytast fyrr en að nokkrum mánuð- um liðnum og er hann því lítt mark- tækur. Framangreindir aðilar hafa, þrátt fyrir að vera ekki skráðir eigendur, öðlast atkvæðarétt í samræmi við eignarhluti sína en aðalfundur Ís- landsbanka verður haldinn 8. mars nk. Vænta má nokkurra breytinga á bankaráði á þeim fundi en framboð verða að liggja fyrir nk. þriðjudag, 2. mars, kl. 14. Bankaráð Íslandsbanka skipa í dag Kristján Ragnarsson, Einar Sveins- son, Guðmundur B. Ólafsson, Guðrún Helga Lárusdóttir, Helgi Magnús- son, Jón Snorrason og Víglundur Þor- steinsson. Wernersbörn bæta við sig 3% í Íslandsbanka HAGNAÐUR breska bankans Sing- er & Friedlander var 99 milljónir punda í fyrra, 13 milljarðar króna, en var árið áður 31 milljón punda. Skýr- ingin á þessari miklu aukningu hagn- aðar liggur í sölu bankans á hlut sín- um í sænska fjármálafyrirtækinu Carnegie, en hagnaður af sölu á 26,2% hlut í fyrirtækinu nam 67 milljónum punda, tæpum níu millj- örðum króna, fyrir skatta. Hagnaður Singer & Friedlander fyrir skatta var 93 milljónir punda, en var 41 milljón punda árið 2002. Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta nam 26 milljónum punda og dróst saman um 35%. Hreinar rekstrartekjur af reglulegri starf- semi drógust lítillega saman og námu 105 milljónum punda, tæpum 14 milljörðum króna. Yfirlýsing um sjálfstæði KB banki keypti fyrr í vikunni 10% hlut í bankanum og á nú 19,5% hlut. Samkvæmt yfirlýsingu KB banka mun hann ekki reyna yfirtöku á Singer & Friedlander á næstu sex mánuðum, en ekkert liggur fyrir um áform KB banka eftir það. Í gær birti stjórn Singer & Friedlander yf- irlýsingu í kauphöllinni í London þar sem fram kemur að stjórnin telji Singer & Friedlander eiga mikla framtíð fyrir sér sem sjálfstætt fyr- irtæki og að stefnan sé áfram að vaxa, bæði með innri vexti og völdum yfirtökum. Stjórnin sé sannfærð um að þessi stefna muni auka hag allra hluthafa bankans, viðskiptavina hans og starfsmanna, líkt og hún hafi gert hingað til. Í afkomutilkynningu til kauphall- arinnar segir að eftir söluna á Carn- egie-hlutnum og útgáfu víkjandi lána undir lok síðasta árs, standi Singer & Friedlander sterkt fjárhagslega og sé í stöðu til að vaxa og leiti nú tækifæra til að ná því markmiði. Í tilkynningunni segir ennfremur að erfiðar aðstæður á breskum hlutabréfamarkaði á fyrri hluta árs- ins hafi, þrátt fyrir uppsveiflu á seinni hluta þess, haft neikvæð áhrif á afkomu bankans. Afkoman í fyrra hafi verið ásættanleg með hliðsjón af markaðsaðstæðum, rekstrarum- hverfið hafi batnað frá því í fyrra og nú ríki bjartsýni um framhaldið. Arðgreiðsla til KB banka 1,9 milljarðar króna Vegna hins mikla söluhagnaðar af Carnegie-hlutnum aukast arð- greiðslur til hluthafa úr 19 milljónum punda í 75 milljónir punda, tæpa 10 milljarða króna, milli ára. Miðað við eignarhlut KB banka verður hlut- deild hans í þeirri arðgreiðslu tæpir 1,9 milljarðar króna. Gengi Singer & Friedlander lækk- aði um 2% í viðskiptum gærdagsins og var 239 pens í lok dags. Markaðs- verð bankans er 460 milljónir punda, tæpir 60 milljarðar króna. Ársuppgjör Singer & Friedlander Mikill söluhagnaður Stjórnin leggur áherslu á sjálf- stæði bankans

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.