Morgunblaðið - 27.02.2004, Qupperneq 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 17
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700
Matarlist og leikhús
Leikhúsmatseðill
milli 18.00 - 20.00
Þryggja rétta kvöldverður
á 4.500 kr.
Upplýsingar á www.holt.is
• • •
• • •
• • •
Fást í verslunum um land allt
H. Blöndal ehf.
Sími 517 2121
www.hblondal.com
Purga-T sjálfvirku
slökkvitækin fyrir
sjónvörp
• Alltaf á vakt
• Slekkur eldinn strax
• Fullkomlega öruggt
MICHAEL Howard, leiðtogi breska
Íhaldsflokksins, hefur rekið einn
þingmann flokksins, Ann Winter-
ton, fyrir að segja brandara sem
einkenndist af kynþáttahatri. Hann
hefur enn fremur beðist afsökunar
á ummælunum fyrir hönd flokksins.
Brandari Winterton fjallaði um
tvo hákarla sem ákváðu að fara í
Morecambe-flóa til að borða Kín-
verja. Var hún þar að vísa til slyss
þar sem 20 kínverskir innflytjendur
drukknuðu er þeir voru að tína
skelfisk í flóanum 5. febrúar sl.
Brandarann sagði hún í kvöldverð-
arboði þar sem samskipti Breta og
Dana voru rædd á þriðjudagskvöld.
Hún neitaði að biðjast afsökunar
og var því rekin. Howard hefur
beðist afsökunar fyrir hönd flokks-
ins. „Ummæli Ann Winterton um
hið skelfilega slys í Morecambe-flóa
voru algerlega óviðunandi,“ sagði
hann. „Slíkar skoðanir eiga ekki
heima í Íhaldsflokknum.“
Winterton er enn þingmaður en
situr ekki fyrir Íhaldsflokkinn leng-
ur. Hún var áður sett af sem leið-
togi stjórnarandstöðunnar í mál-
efnum landsbyggðarinnar, eftir að
hún lét falla athugasemd um fjölda
fólks frá Asíu sem einkennast þótti
af kynþáttafordómum.
Þingkona rekin úr Íhaldsflokknum
Sagði ósmekklegan
brandara um Kínverja
Ann Winterton
Lundúnum. AP. AFP.
Morð á flug-
umferðarstjóra
Maður
handtekinn
Zürich. AFP.
LÖGREGLAN í Sviss handtók í
gær mann, sem grunaður er um að
hafa myrt flugumferðarstjóra, sem
var á vakt er tvær flugvélar rákust
saman yfir Þýskalandi fyrir tveim-
ur árum. Fórst þá 71 maður. Að
sögn lögreglunnar missti hinn
handtekni konu sína og börn í slys-
inu.
Lögreglan hefur ekki greint frá
þjóðerni mannsins, sem var hand-
tekinn, en talið er víst, að hann sé
ekki svissneskur. Kom hann til
Sviss 18. þessa mánaðar. Flestir
þeirra, sem fórust í árekstri flug-
vélanna, voru börn frá rússneska
sjálfstjórnarlýðveldinu Bashkort-
ostan á leið til Spánar.
Flugumferðarstjórinn, sem var
danskur að þjóðerni, var einn á
vaktinni er slysið átti sér stað en
vinnufélagar hans höfðu brugðið
sér í kaffi. Hefur það verið harð-
lega gagnrýnt en ekki er þó ljóst
hvað slysinu olli. Er helst hallast
að einhverjum misskilningi milli
flugmanna og flugturns. Þjóðverj-
ar, Svisslendingar og fyrirtækið
Skyguide, sem annaðist flugum-
ferðarstjórnina, ætla að greiða
ættingjum hinna látnu skaðabætur.
Perle segir
af sér
RICHARD Perle, einn af helstu
ráðgjöfum George W. Bush Banda-
ríkjaforseta hefur sagt sig úr ráð-
gjafarnefnd um
varnarmál. Seg-
ist hann gera það
til að koma í veg
fyrir, að skoðan-
ir sínar verði
túlkaðar sem
skoðanir stjórn-
valda.
Perle, sem er
einn mesti harð-
línumaðurinn í kringum Bush for-
seta, segir í afsagnarbréfi sínu, að
margir virðist telja, að skoðanir
hans endurspegli ávallt skoðanir
ríkisstjórnarinnar og forsetans en
það sé rangt. Til að leggja áherslu
á það og til að koma í veg fyrir, að
hann og skoðanir hans verði not-
aður sem vöndur á ríkisstjórnina
nú á kosningaári, hafi hann ákveðið
að segja af sér. Kom þetta fram í
Washington Post.
Richard Perle
♦♦♦
Fréttir á SMS